Dagur - 15.12.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 15. desember 1992 - DAGUR - 9
Halldór Arinbjarnarson
Óblíðir veðurguðir: Bikarleikium frestað
Vetur konungur setti heldur betur strik í reikninginn í bikarleikjum helgarinnar. Hér norðanlands áttu að fara fram 3 leikir og þeim þurfti öllum að fresta. Aðeins 3 leikir fóru l'ram skv. áætlun. Víkingur vann Gróttu 24:17 og Valur ÍBV 28:26 í handboltanum og ÍBK vann UBK 105:95 í körfubolt- anum Leikur KA og Hauka f handboltanum verður á föstu- dagskvöldið, • kl. 20.30 í KA húsinu. í kvöld eigast við í bikarkeppninni í körfubolta karlaflokki, Tindastóll og Njarðvík. Stelpurnar í Tinda- stól áttu að taka á móti ÍBK í gærkvöld og þegar blaðið fór í prentun, leit allt út fyrir að af því yrði.
Blak, 1. deild karla:
Tap og sigur
hjá KA-strákunum
Karlalið KA í blaki hélt suður
yfir heiðar um helgina og lék
þar 2 leiki. Fyrri leikurinn var
gegn ÍS. Um jafna og skemmti-
lega viðureign var að ræða, en
úthald ÍS virtist meira og þeir
unnu leikinn 3:1. A laugardag-
inn mættust síðan KA og
Stjarnan. Nýliðarnir í 1. deild,
lið Stjörnunnar, áttu aldrei
möguleika og öruggur 3:1 sigur
KA var í raun aldrei í hættu.
Viðureign KA og ÍS var jöfn
og spennandi og lék lið KA einn
sinn besta útileik til þessa. Liðið
komst í 4:0 í 1. hrinu, en Stúdent-
ar náðu að jafna og komast yfir.
KA hélt þó áfram að berjast og
náði að jafna 14:14. Liðin skipt-
ust síðan lengi á um að vinna
uppgjafarréttinn og loks náði KA
að skora 15 stigið. Glæsileg
hávörn Péturs Ólasonar tryggði
síðan KA sigur í hrinunni 16:14.
Næsta hrina var einnig mjög jöfn,
en KA-menn þó heldur daprari.
Aftur kom upp staðan 14:14, en í
þetta sinn náði ÍS að klára
dæmið, mest fyrir klaufaskap hjá
KA. í 3. hrinu sá KA aldrei til
sólar og lék afspyrnu illa. Staðan
var jöfn 4:4, en þá skoruðu
Stúdentar 11 stig í röð og gerðu
út um hrinuna.
ÍS var nú komið með 2 vinn-
inga og þurfti því aðeins að vinna
eina lotu í viðbót. KA komst í
10:5 í 4. hrinunni, en ÍS tókst að
jafna 10:10 og þannig var staðan
mjög lengi. Uthald ÍS virtist,
meira og þeir náðu að klára
dæmið, meðan einbeiting KA
virtist þverra smám saman. Leik-
ur KA var allt annar og slakari í
tveim síðari hrinunum og tókst
liðinu ekki að fylgja góðri byrjun
eftir. Áki Thoroddsen átti góða
spretti fyrir KA, en gerði þó
mjög mörg mistök. Bjarni Þór-
hallsson var sterkur að vanda og
Pétur Ólason og Hafsteinn
Jakobsson komust vel frá leikn-
um. Þorvarður og Sigfinnur Sig-
fússynir voru allt í öllu hjá ÍS.
Á laugardaginn vann KA sinn
1. útisigur þegar liðið mætti
Stjörnunni. Talsverður getumun-
ur var á liðunum og sigur KA í
raun aldrei í hættu. Liðið lék vel
og virðist loksins vera að smella
saman eftir óvenju slaka byrjun.
KA vann 1. hrinuna 15:7 og þá
næstu 15:9. í þeirri 3. komst liðið
í 8:0 en þá náði Stjarnan góðum
leikkafla og vann sigur í hrinunni
15:9. í 4. og síðustu hrinunni
sýndi KA enga miskunn og vann
öruggan sigur 15:5 og þar með
sigur í leiknum 3:1.
Stefán Magnússon þjálfari
kvaðst nokkuð ánægður með
leikinn. Liðið hefði náð sér vel á
strik og áttu allir leikmenn góðan
dag. Framspil liðsins var mjög
gott og náði það að halda
Stjörnumönnum algerlega niðri.
Eftir ýmsar tilraunir með liðs-
uppstillingu, virðist svo sem liðið
sé að finna hinn rétta tón. Það
sýna leikir helgarinnar. SV
Þýska knattspyman
Nú um helgina fór sautjánda
umferö þýsku úrvalsdeildar-
innar í knattspyrnu fram, sem
var jafnframt sú síðasta fyrir
vetrarfrí þýskra knattspyrnu-
manna sem stendur alveg fram
til 20. febrúar. Þýska úrvals-
deildin er nú á sínu þrítugasta
aldursári og af 29 meistaratitl-
um sem hafa unnist, hafa sk.
haustmeistarar, þ.e.a.s. þaö
lið sem er í efsta sæti þegar far-
ið er í frí, unnið deildina 20
sinnum. í þetta sinn er það lið
Bayern Múnchen sem leiðir,
einu stigi á undan Eintracht
Frankfurt.
Útlendingahatur er málefni
sem mikið hefur verið í fjölmiðl-
um síðustu daga, enda hafa öfga-
menn til hægri farið hamförum
hér í Þýskalandi að undanförnu.
Sem betur fer eru þessir villi-
menn aðeins lítill minnihlutahóp-
ur, en hinn almenni Þjóðverji
hefur miklar áhyggjur af þessu
enda rifjar þetta upp óþægilega
tíma sem Þjóðverjar eru ekki
stoltir af. Af þessu tilefni tóku öll
þýsku úrvalsdeildarliðin sig sam-
an í baráttunni gegn útlendinga-
hatri og í stað þess að leika með
hefðbundnar auglýsingar á bún-
ingum sínum, voru þau öll með
áletrun, þar sem á stóð „vinur
minn er útlendingur“ („mein
Freund ist Auslánder“), í leikj-
um helgarinnar. Þetta framtak
knattspyrnumanna vakti mikla
athygli enda fékk þetta góða
umfjöllun í fjölmiðlum og til
marks um það hvað útlendingar
eru í reynd mikilvægir þýsku
úrvalsdeildinni, eru 5 af 10
markahæstu leikmönnum deild-
arinnar útlendingar.
■ Miklar vangaveltur hafa verið
upp á síðkastið um það hvort
Christof Daum, þjálfari
Stuttgart, myndi halda áfram
með liðið, eða hætta nú í vetrar-
fríinu, en eftir þau hræðilegu
mistök sem hann gerði í Evrópu-
keppni meistaraliða nú í haust,
þegar hann skipti fjórða útlend-
ingnum inn á, þar sem aðeins
mátti nota þrjá, í leik gegn Leedsi
sem hafði það í för með sér að
Stuttgart féll úr keppninni, hefur
hann mátt sæta mikilli gagnrýni
og ekki náð sama árangri með
liðið og tvö undanfarin ár. For-
ráðamenn Stuttgart og flestir
stuðningsmenn vildu hins vegar
Síðumót í Boccia:
Góðir lokapunktar á árinu
Á laugardaginn fór fram boccia-
mót í Iþróttaskemmunni á
Akureyri. Mótið var svokallað
Síðumót, en verslunin Síða gaf
öll verðlaun á því. Keppendur
voru 30, allir frá íþróttafélag-
inu Eik á Akureyri. Mót sem
þetta er orðið árlegur viðburð-
ur og nokkurs konar Ioka-
punktur á vel heppnuðu
íþróttaári hjá fötluðum.
Það gefur auga leið að mikið
verk er að skipuleggja slíkt mót.
Bæði var keppt í einstaklings- og
sveitakeppni og stóð mótið yfir
frá kl. 10 til 16. Félagar úr Lions-
klúbbnum Hæng sáu um dóm-
gæslu, en Hængsmenn hafa löng-
um reynst fötluðum íþrótta-
mönnum vel, sbr. hið árlega og
víðfræga Hængsmót, sem haldið
verður 30. apríl og 1. maí næst-
komandi. Keppnin á laugardag-
inn fór vel fram í alla staði og
ágætis árangur náðist.
í einstaklingskeppni varð röð
þriggja efstu eftirfarandi:
1. Aðalsteinn Friðjónsson.
2. Pétur Pétursson.
3. Magnús Ásmundsson.
í sveitakeppni urðu úrslit þessi:
1. Valdimar Sigurðsson, Vignir
Hauksson og Sölvi Víkingsson.
2. Heiðar Hjalti Bergsson, Sævar
Bergsson og Sigfús Eysteinsson.
3. Pétur Pétursson, Hólmfríður
Jónsdóttir og Dóra Magnúsdóttir.
gera allt til að halda honum og í
síðustu viku ákvað Daum að
ganga til samninga og á föstu-
dagskvöldið skrifaði hann undir
tveggja ára samning við liðið. á
laugardaginn mætti liðið síðan
Werder Bremen á útivelli.
Bremen hóf leikinn af miklum
krafti og fyrstu tuttugu mínúturn-
ar komust leikmenn Stuttgart
vart fram fyrir miðju. Á 9. mín.
var dæmd hendi á Schneider inn-
an vítateigs Stuttgart og úr víta-
spyrnunni skoraði Rufer af
öryggi. Þegar leið á hálfleikinn
tóku gestirnir hins vegar við sér
án þess þó að ná að skora. í síð-
ari hálfleiknum sótti Stuttgart
síðan án afláts, en það var ekki
fyrr en á 89. mín. að Walter tókst
að jafna leikinn úr vítaspyrnu
sem Stuttgart fékk eftir að brotið
hafði verið á Kögl. Eyjólfur
Sverrisson lék allan leikinn með
Stuttgart og stóð sig vel og hann
var nálægt því að skora í fyrri
hálfleik þegar hann átti skalla að
marki Bremen af stuttu færi.
■ Topplið Bayern fékk Schalke
í heimsókn í Múnchen. Bayern
átti í hinu mesta basli með gest-
ina og á 53. mín. náði Freund
forustunni fyrir þá.k A 62. mín.
gerðu leikmenn Schalke sitt ann-
að mark, en því miður fyrir þá, í
sitt eigið. fleiri mörk voru ekki
skoruð og jafntefli því staðreynd.
■ Liðið í öðru sæti, Frankfurt,
fékk Hamburg í heimsókn.
Leikurinn var mjög fjörugur og
þegar upp var staðið voru mörkin
orðin sex, þrjú á hvort lið.
Heimamenn gerðu fyrstu tvö,
Yeboah á 9. mín. og Rahn á 11.
mín., en Rohde svaraði fyrir
gestina á 22. mín. Nígeríumaður-
inn Okocha skoraði þriðja mark
Frankfurt beint úr aukaspyrnu á
36. mín. í seinni hálfleik skoruðu
síðan Spies á 66. mín og von Hes-
en á 68. mín. fyrir HSV og þar
við sat.
■ Önnur hörku viðureign átti
sér stað þegar Dortmund fékk
Karlsruhe í heimsókn. Strax á 1.
mín. skoraði Chapuisat fyrir
Dortmund og rúmum tuttugu
mínútum síðar bætti Rummenigge
öðru markinu við. Kirjakow lag-
aði stöðuna á 57. mín., en
Chapuisat skoraði sitt annað
mark í leiknum og það þriðja fyr-
ir Dortmund á 68. Fleiri mörk
voru ekki skoruð, en leikmenn
Karlsruhe vildu ólmir fá víta-
spyrnu þegar brotið var á Kirja-
kow skömmu síðar, en fengu
ekki og áður en yfir lauk hafði
dómarinn bæði vísað Schafer,
þjálfara Karlsruhe, og Kirjakow
af velli fyrir að mótmæla dómi.
■ Leikmenn Kölnar tóku leik-
menn Uerdingen í bakaríið. Þeg-
ar hinir síðarnefndu komu í
heimsókn. Leikurinn endaði 5:0
og það voru þeir Greiner, Uwe
Fuchs, Ordenewitz og Henri
Fuchs, sem skoraði tvö, sem
gerðu mörk Kölnar.
■ Dresden fékk Kaiserslautern í
heimsókn. Witeczek kom gestun-
um yfir á 8. mín., en Jáhnig jafn-
aði fyrir heimamenn á 22. mín.
Witeczek bætti sínu öðru marki
við á 41. mín. og á 90. mín. inn-
siglaði síðan Ritter sigur Lautern
með marki úr vítaspyrnu.
■ Á föstudagskvöldið vann
Wattenscheid mikilvægan sigur á
Bochum í botnbaráttunni, 2:0.
Souleyman Sane frá Senegal
gerði bæði mörk Wattenscheid, á
22. og 39. mín.
■ Á sama tíma vann Núrnberg
Saarbrúcken á útivelli, með
marki Brunner á síðustu mínútu
leiksins.
í Mönchengladbach gerðu
heimamenn jafntefli við Lever-
kusen 2:2. Gestirnir skoruðu tvö
fyrstu mörk leiksins á 8. og 30.
mín. og þar voru að verki þeir
Kree og Kirsten. Á 39. mín.
minnkaði Kastenmeier muninn
fyrir Gladbach og á 76. mín. jafn-
aði síðan Wynhoff leikinn.
Árni Hermannsson.
Húsbréf
Sigurvegari í einstaklingskeppni varð ólympíufarinn Aðalsteinn Friðjóns-
son. Hann er hér lengst til vinstri. í miðið er Pétur Pétursson sem hafnaði í
2. sæti og Magnús Ásmundsson er lengst til hægri. Mynd: ha
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram níundi
útdráttur húsbréfa
í 1. flokki 1989,
sjötti útdráttur
húsbréfa í 1. flokki 1990
og fimmti útdráttur
í 2. flokki 1990.
Einnig þriðji útdráttur
í 2. flokki 1991.
Koma þessi bréf til
innlausnar 15. febrúar 1993.
Öll númerin birtust í DV
mánudaginn 14. desember,
og í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess licjgja upplýsingar
frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri,
í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
Cpb HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900