Dagur - 15.12.1992, Síða 11
Þriðjudagur 15. desember 1992 - DAGUR - 11
Mjög ánægöur með hvemig til hefiir tekist
- segir Helgi Jónsson, höfundur bókarinnar „Myrkur í maí“
„Hvað verður um Rut eftir að
hún kemur heim af sjúkrahús-
inu? Er hægt að jafna sig eftir
svona hrikalega lífsreynslu?
Rut reynir hvað hún getur,
heldur áfram í skólanum, fer á
sjálfsvarnarnámskeið; en
Yalur, kærasti hennar, sem er
með bíladellu og æfír knatt-
spyrnu af kappi, mætti sýna
henni meiri skilning og Tinnu,
sameiginlegri vinkonu, minni
áhuga. Ognvaldurinn í lífí
þeirra, Fribbi, sá sem narraði
Rut í bflinn og hélt fanginni í
kofanum, heldur áfram að
skelfa Rut, því hann getur ekki
gleymt henni og hyggst ná sínu
fram.“
Svo hljóðar stutt lýsing á efni
bókarinnar „Myrkur í maí“ eftir
Ólafsfirðinginn Helga Jónsson,
sem Skaldborg gefur út. Hér er
um að ræða sjálfstætt framhald
bókarinnar „Nótt í borginni“,
sem kom út í fyrra, en þetta er
þriðja bók höfundar.
í „Nótt í borginni“ er greint frá
líkamsárás í Reykjavík og sú bók
er látin gerast á tveim sólarhring-
um. í nýju bókinni eru í stórum
dráttum örlög fórnarlambsins
rakin og árásarmanninum fylgt
eftir.
Meiri mannlífsstúdía
„Ég hafði ekki ákveðið að skrifa
þessa framhaldsbók, en af því að
fyrri bókin gekk mjög vel ákvað
ég að slá til og í heildina er ég
mjög ánægður með hvernig til
hefur tekist. Þessi bók er að mínu
mati mun betri en fyrri bókin.
Þetta er meiri mannlífsstúdía,
meira er lagt upp úr persónu-
sköpuninni," sagði Helgi um
bókina. „Sumarið fór allt í að
skrifa en bókin hefur verið í
Helgi Jónsson.
vinnslu frá áramótum."
A bókarkápu er „Myrkur í
maí“ sögð spennusaga fyrir ungl-
inga, en Helgi telur að hún höfði
Kvikmyndarýni
Ekki hefðbundinn vestri
Borgarbió sýnir: Hina vægðarlausu
Leikstjori: Clint Eastwood.
Aðalhluterk: Clint Eastwood, Morgan
Freman, Gene Hackman og Ed Harris.
Það væri ekki alls kostar rétt að
segja Hina vægðarlausu gjörsam-
lega á skjön við vestramyndir en á
hinn bóginn væri það ekki heldur
rétt að kalla hana venjulegan
vestra. Ætti ég að segja ósatt til í
aðra hvora áttina en reyna þó að
vera í sem mestri nálægð við
sannleikann myndi ég kalla þessa
nýjustu kvikmynd Eastwoods
óhefðbundna. Hann heldur sig á
kunnuglegum slóðum víðáttunnar,
forugum strætum smáþorpsins og
óróasamri kránni. Nýlundan er
hins vegar sú að í staðinn fyrir
unga og villta bófann er teflt fram
gamlingja (sem Eastwood leikur
sjálfur) og í stað hinnar hugum-
stóru og hreinlyndu lögguhetju
kemur kjaftfor og fremur ofbeldis-
sinnaður lagavörður, hugrakkur
þó en fullur hégóma (Gene Hack-
man). Við þetta má bæta, sem
skiptir ekki minnstu máli, að
áherslumar hjá leikstjóranum
Eastwood eru aðrar en við erum
vön að sjá í kúrekamyndum. Leyf-
ið mér að útskýra þetta ögn.
Ofbeldi er jafn sjálfsagður
fylgifiskur vestramynda og skegg-
ið hökunni; um það þarf ekki að
hafa nein sérstök orð. í Hinum
vægðarlausu eru konur skomar og
karlar ýmist barðir eða myrtir,
nema hvorutveggja sé. Þunga-
miðja myndarinnar verður þó
aldrei ofbeldið sjálft. Og er ég nú
loks að komast að kjama málsins.
Það sem umfram annað gerir Hina
vægðarlausu að óvenjulegri kú-
rekamynd eru hinar skemmtilegu
mannlýsingar. Óþokkinn er ekki
bara óþokki, hann virðist einnig
hafa sál og nokkurt tilfmningalíf,
að minnsta kosti hefur kona fellt
til hans ástarhug, gifst honum og
breytt í venjulegan bónda. Lög-
reglustjórinn hefur ekki orðið fyrir
Kvennakóriim Iissý
með nýja plötu
Láttu rætast draum nefnist
hljómplata, geisladiskur og
snælda sem Kvennakórinn Lissý
gefur út. Margrét Bóasdóttir
stjórnar og syngur einsöng, Hild-
ur Tryggvadóttir syngur einsöng
og undirleikarar eru Guðrún A.
Kristinsdóttir og Ragnar L. Þor-
grímsson.
Platan er til sölu hjá öllum 60
Karlakórínn Hreimur
gefiir út plötu
Karlakórinn Hreimur í Suður-
Þingeyjarsýslu hefur gefið út
hljómplötu með fjölbreyttu laga-
vali, en það hefur einmitt verið
aðalsmerki kórsins. Hreim skipa
45 söngmenn úr flestum hreppum
Suður-Þingeyjarsýslu. Stjórnandi
er Robert Faulkner og undirleik-
ari Juliet Faulkner. Einsöngvarar
eru bræðurnir Baldur og Baldvin
Kr. Baldvinssynir.
Kórfélagar aka nú um sveitir
sýslunnar og bjóða plötuna til
sölu, en kórfélagar á Húsavík
munu selja hana í anddyrum versl-
ana í bænum. (Fréttatilkynning)
kórfélögum en auk þess í hljóm-
plötuverslunum á Akureyri, hjá
Bókaverslun Þórarins Stefáns-
sonar á Húsavík, Bókaverslun
Rannveigar á Laugum, Skógum á
Kópaskeri, Versluninni Seli
Mývatnssveit, kaupfélagsverslun-
inni Varmahlíð í Skagafirði og
hjá Japis, Brautarholti 2 í
Reykjavík. (Fréttatilkynning)
"Hnífur og skæri -
ekki barna meðfæri"
neinum álíka heilaþvotti. Hann er
sami gleiðgosinn og hrottinn og
hann var sem ungur maður. Og
það þarf ekki annað en umrenn-
andi ævisöguritara til að vekja
hégómagimdina upp í lögreglu-
stjóranum. Ed Harris er enski
spjátrungurinn sem fær hina háðu-
legustu meðferð, hann fær stuttan
tíma til að láta ljós sitt skína en
notar hann að sama skapi vel.
Það sem fær spjátrunginn til að
heimsækja smáþorp í auðninni eru
verðlaun sem gleðikonur heita
þeim er banar tveimur kúrekum er
gerst hafa nærgöngulir við eina
þeirra og skorið með hnífi. Það
sama fær gamla byssubófann,
Eastwood, til að blása 11 ára gam-
alt ryk af skotvopnum sínuin.
Einn daginn kemur ungur maður
til hans og vill fá hann í lið með
sér að drepa tvímenningana. I per-
sónum þeirra tveggja felst boð-
skapur myndarinnar; annar vill
verða það sem hinn er en getur að-
eins náð marki sínu með því að
fæðast aftur í von um að réttu litn-
ingamir myndi erfðasúpu hans.
Það er svo annað mál hvort þessi
löngun unga mannsins lifir mynd-
ina á enda.
ekkert síður til fullorðinna. „Ég
myndi segja að bókin sé fyrir
sextán ára og eldri,“ sagði hann.
„Hitt er annað mál að maður
reynir að höfða til unglinganna
og starf mitt sem kennari við
Gagnfræðaskólann í Ólafsfirði
auðveldar mér að skrifa tyrir
þennan aldurshóp. Ég heyri á tal
unglinganna og fylgist með þeim.
Ég neita því ekki að ég hef fengið
hugmyndir frá nemendum
mínum.“
Spenna eða ekki spenna
Þessi nýja bók Helga hefur feng-
ið prýðilega dóma í dagblöðum.
Hann getur ekki varist brosi þeg-
ar minnst er á gagnrýni. „Það var
ákveðinn maður sem skrifaði um
„Nótt í borginni“ í Morgunblaðið
og gagnrýni hans var almennt
jákvæð. Hann talaði að vísu um
að ég hugsaði of mikið um spenn-
una. í „Myrkur í maí“ passaði ég
mig á því að hugsa ekki eins um
spennuna en leggja þess í stað
meiri áherslu á persónurnar. í
gagnrýni sem birtist í Morgun-
blaðinu á dögunum segir sami
gagnrýnandi að ekki sé eins mikil
spenna í þessari bók og þeirri
fyrri!“
„Ég vil taka fram að ég fékk
ómetanlega hjálp frá Björgu
Marteinsdóttur, sem vinnur hjá
Stígamótum og Kvennaathvarf-
inu. Ég þori að fullyrða að án
aðstoðar hennar hefði mér ekki
tekist að skrifa sumt í þessari
bók,“ sagði Helgi.
Þeim ósköpum gerður að
vilja semja
Hann sagði erfitt að skýra út þá
ástríðu að setjast niður og skrifa.
„Það er ekki hægt að útskýra
þetta. Þetta er eins og sjúkdómur
sem maður hefur og vill ekki
losna við. Ég er þeim ósköpum
gerður að vilja semja og skrifa og
ég kann ekki að skýra af hverju.“
Helgi neitar því ekki að hann
sé þegar farinn að huga að næstu
bók. „Það er svo skrítið að loks
þegar bók kemur úr prentun er
maður búinn að ýta henni til hlið-
ar og kominn í næsta verkefni.
Ég er þegar byrjaður á nýrri bók,
en ég segi ekkert meira um hana
núna,“ sagði Helgi leyndardóms-
fullur á svip. En bætti síðan við:
„Sú bók verður á aðeins léttari
nótum en „Myrkur í maí“. óþh
Þarfaþing
skóeigap,daps
ís’//3
/ />Skóþrepiö
^ hlífir bak-
inu þegar
fariö er í
skó, þeir
reimaöir
eða
burstaöir.
Sannkallaö þarfaþing í
hverju anddyri, hvort
sem er á heimllinu eöa
á vinnustaðnum.
Sérlega nytsöm og
vönduö gjöf á aöeins
kr.6.900.-
Skóþrepiö er vönduö tslensk
framleiðsla úr krómuöu stáli.
Salaog dreifinq:
Dak-mann
Pöntunar- og póstkröfusíml
91-686 882
Milli kl. 18 - 22
Einingarfélagar
Eyjafirði
Félagsfundir verða haldnir í öllum deildum félagsins fimmtu-
daginn 17. desember 1992 og byrja þeir ailir kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Uppsögn samninga.
2. Önnur mál.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Akureyri, í Alþýðuhúsinu, 4. hæð. Eftirtaldir stjórnarmenn koma á fundinn, Sig-
ríður Rut Pálsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir og Sigurður Búason.
Hrísey, í kaffistofu frystihússins. Eftirtaldir stjórnarmenn koma á fundinn, Þórir
Snorrason og Guðrún Skarphéðinsdóttir.
Dalvík, í kaffistofu frystihússins. Eftirtaldir stjórnarmenn koma á fundinn, Matt-
hildur Sigurjónsdóttir, Erna Magnúsdóttir og Guðrún Helgadóttir.
Grenivík, í Gamla skólahúsinu. Eftirtaldir stjórnarmenn koma á fundinn, Hilmir
Helgason og Helga Rósantsdóttir.
Ólafsfirði, í Tjarnarborg. Eftirtaldir stjórnarmenn koma á fundinn, Björn Snæ-
björnsson og Hólmfríður Helgadóttir.
Félagar fjölmennið! Stjórnin.