Dagur - 22.12.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 22. desember 1992
244. tölublað
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Akureyri:
Hætt við vatnsflóðum
- vatn fór inn í tvær íbúðir á sunnudag
Lítillega bar á því á sunnudag á
Akureyri að vatn flæddi inn í
íbúðir og fyrirtæki. Mikill
snjór er í bænum og er talsverð
ÓlafsQarðarvegur:
Rútur í tveim-
ur árekstrum
Umferðaróhöpp urðu á leið-
inni milli Dalvíkur og Ólafs-
fjarðar bæði á laugardag og í
gær. í báðum tilvikum urðu
þau við mætingar og í bæði
skiptin köstuðust bflar framan
á sérleyfisbfl frá Dalvík.
Á laugardag valt fólksbíll eftir
að hafa ekið upp í ruðning í Klif-
inu í Ólafsfjarðarmúla og rann
bíllinn framan á rútu frá Dalvík.
Hjón í bílnum slösuðust minni-
háttar.
Síðdegis í gær varð svo svipað-
ur árekstur við Sauðanes en þar
lenti jeppi framan á rútu eftir að
hafa snúist á veginum þegar hann
ætlaði að mæta. JÓH
hætta á vatnsflóðum inn í hús
ef mikið hlánar á þetta
snjómagn, ekki síður í fjölbýl-
ishúsum ef ekki hefur verið
hirt um að hreinsa snjó af
svölum.
Að sögn Árna Steinssonar hjá
Securitas á Akureyri var leitað
aðstoðar fyrirtækisins á sunnudag
vegna tveggja íbúða sem vatn
| hafði flætt inn í. í öðru tilvikinu
mun fyrst og fremst hafa flætt inn
vegna mikils snjómagns á
svölum. Þá sagði Árni að í
nokkrum tilfellum hafi eftirlits-
menn Securitas þurft að kalla út
eigendur fyrirtækja þar sem
bregðast hafi þurft við leka.
Árni segir að ástæða sé til að
hvetja fólk til að grípa til aðgerða
svo komist verði hjá vatnsflóðum
inn í íbúðir. Þetta verði best gert
með því að moka snjó frá húsum,
af svölum og stigapöllum og létta
þunga af þökum húsa. Þetta sé
full ástæða til að gera við slíkar
aðstæður eins og nú eru, ekki síst
ef veður gengi skyndilega til
sunnanáttar og hlýinda eins og
spáð hefur verið síðustu daga.
JÓH
Verslunarmenn a Akureyri:
Þokkaleg verslun á sunnudag
- mikil umferð á laugardag
Sunnudagsopnun verslana á
Akureyri tókst ágætlega, sam-
kvæmt upplýsingum frá nokkr-
um verslunarmönnum. Mikil
umferð var í bænum á laugar-
daginn enda hafði verið við því
búist eftir óveðrið alla síðustu
viku. Á sunnudag var ágæt
sala í verslunum þá fjóra tíma
sem opið var, eða „eins og á
aðfangadagsmorgni,“ eins og
Stefán Jónasson, bóksali orð-
aði það í samtali við blaðið.
„Þetta var allt í lagi á sunnu-
daginn en ég er ekki viss um að
þessi sunnudagaopnun sé komin
til að vera,“ sagði Páll Þór
Ármann, vöruhússtjóri KEA á
Akureyri. „Spurningin er hvort
þessi sala sem var á sunnudaginn
hefði ekki skilað sér á laugardag-
inn ef búðir hefðu verið lokaðar á
sunnudag. Það er erfitt að meta
þetta og spurning við hvað á að
miða.“
Jógvan Purkhus, verslunar-
stjóri Rúmfatalagersins, segir að
góð verslun hafi verið á laugar-
daginn og greinilega hafi verið
talsvert af utanbæjarfólki í
bænum. Rólegra hafi hins vegar
verið yfir á sunnudaginn.
Stefán Jónasson í bókabúð
Jónasar segir að verslunin á laug-
ardag hafi ekki verið ósvipuð
samsvarandi laugardegi í fyrra.
„Það skilar sér því ekki sem
glatast hefur niður,“ sagði Stefán
og bætti við að sunnudagaopan-
unin hafi verið eins og verslun á
aðfangadagsmorgni alla jafna.
Stefán taldi að þrátt fyrir góða
kynningu á sunnudagaopnuninni
þá mun það taka nokkur ár að ná
upp verslun á sunnudegi, ef á
annað borð eigi að koma þessari
venju á. JÓH
Konfektmeistarinn, Unnur María Hjálmarsdóttir með þá Sigurð Arnórsson, framkvæmdastjóra Lindu hf. á
aðra hönd og Hörð Blöndal, framkvæmdastjóra Dagsprents hf. á hina. Hún heldur á staðfestingu sæmdarheit-
isins „Konfektmeistarinn 1992“ en á borðinu í forgrunni eru frekari verðlaun hennar: kassi með úrvali af fram-
leiðsluvörum Lindu hf., vænn konfektkassi frá sama fyrirtæki og vegleg bók um Picassó. Þá fær Unnur María
fría áskrift að Degi allt næsta ár. Mynd: Robyn
Svarfdælskiir konfektmeistari
Úrslitin eru ráðin! „Konfekt-
meistarinn“, sigurvegari í
samkeppni sem Linda hf. og
Dagur efndu til um besta
heimagerða konfektið, er
Unnur María Hjálmarsdóttir,
húsfreyja á Ytra-Hvarfi í
Svarfaðardal.
Dómnefnd keppninnar þótti
„Myntukonfekt" Unnar Maríu
best þeirra rúmlega 70 konfekt-
gerða sem bárust - og var þó úr
sannkölluðu lostæti að velja.
Unnur María átti tvær tegundir
í hópi þeirra 10 bestu og tveir
aðrir keppendur léku sama leik,
þær Erla Ásmundsdóttir, Akur-
eyri og Svanborg Svanbergs-
dóttir, Eyjafjarðarsveit. Aðrir í
„úrvalshópnum" eru Guðrún
Kristjánsdóttir, Eyjafjarðar-
sveit; Ingibjörg Ringsted,
Akureyri; Sigríður Kjartans-
dóttir, Útskálum, Kópaskeri og
Sigurbjörn Sveinsson Akureyri.
Það vildi svo vel til í gær að
Unnur María var stödd á Akur-
eyri ásamt börnum sínum. Með
góðri hjálp þeirra og eigin-
mannsins, Jóhanns Ólafssonar,
tókst Dagsmönnum að fá Unni
Maríu inn á ritstjórn án þess
hún vissi hvað til stæði. Það
kom henni því algerlega í opna
skjöldu er henni var tilkynnt um
niðurstöðuna. BB.
Sjá bls. 5.
Verkalýðsfélagið Eining:
Samþykkt með miklum meirihluta
að segja upp kjarasamningum
- af 128 fundarmönnum gáfu 121 jáyrði
Félagsfundir voru haldnir í ÖII-
um deildum Einingar sl.
fimmtudagskvöld þrátt fyrir
slæmt veður og mikla ófærð og
áður auglýstir fundargestir úr
röðum stjórnarmanna voru þar
af leiðandi fjarstaddir. Þar var
samþykkt að segja upp núgild-
andi kjarasamningum.
Talið var sameiginlega úr
kjörkössum í gærdag og vildi 121
Einingarfélagi segja upp samn-
ingum, nei sögðu 5 en 2 skiluðu
auðu. Viðsemjendum Einingar
verður tilkynnt þessi niðurstaða
bréflega. Björn Snæbjörnsson
formaður Einingar segir að þungt
hljóð hafi verið í þeim sem voru á
fundunum og greinilega hugur í
félagsmönnum að sækja sinn rétt
til viðsemjenda þegar sest verður
að samningaborðinu á komandi
ári. Fyrirhugað er að hefja aðra
fundaherferð um miðjan janúar-
mánuð til að kynna stöðuna eins
og hún verður þá. GG
Hófleg bjartsýni um framhald loðnuvertíðarinnar:
Mjöl- og lýsisútskipun hjá verksmiðjunum
- um 215 þúsund tonn veiddust á haustvertíðinni
Síðustu loðnumjölspokunum
var skipað út frá Raufarhöfn á
mánudag, alls 1114 tonnum og
einnig 1250 tonnum af lýsi og
er birgðastaða verksmiðjunnar
þá um 300 tonn af lýsi og ekk-
ert mjöl eins og fyrr getur.
Flutningaskipið fer síðan og
lestar loðnumjöl á Reyðarfirði
og lýsi á Seyðisfirði.
Um 200 tonnum var nýlega
skipað út á Siglufirði og eru
birgðir verksmiðjunnar um 1000
tonn af mjöli og 300 tonn af lýsi.
Síðasta útskipun var hjá Krossa-
nesverksmiðjunni 6. desember sl.
en ráðgert er að skipa út 600
tonnum af mjöli í janúar og svip-
uðu magni í febrúar. Áætlað er
að skipa út um 700 tonnum af lýsi
milli jóla og nýárs. Töluverðar
birgðir eru enn hjá Krossa-
nesverksmiðjunni.
Hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar
er birgðastaðan um 2000 tonn af
loðnumjöli og 400 tonn af lýsi.
Lýsið fer milli jóla og nýárs, en
300 tonn fara af mjöli á Þorláks-
messu og um 700 tonn milli jóla
og nýárs. Um 215 þúsund tonn
veiddust af loðnu á þessari haust-
vertfð á móti 56 þúsund tonnum
haustið 1991. Talsmenn verk-
smiðjanna voru hóflega bjartsýn-
ir á loðnuvertíðina eftir áramótin
en janúarmánuður hefur oft ver-
ið mjög rýr, sérstaklega ef loðnan
hefur haldið sig austur af land-
inu. Ef hún hins vegar gefur sig
fyrir norðan standa vonir til þess
að um meiri afla verði að ræða.
GG