Dagur - 22.12.1992, Side 2

Dagur - 22.12.1992, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 22. desember 1992 Fréttir Akureyrarbær: Óvíst hvort félagsmálasviðið fer í Hafiiarstræti 88 b Gert hefur verið ráð fyrir að félagsmálasvið bæjarins fari allt undir eitt þak að Hafnar- stræti 88b (gamla hús Hita- veitu Akureyrar), en ekki er Ijóst hvort af því verður. Þetta kom fram í máli Sigurðar J. Akureyri: Harður árekstur á suimudag Harður árekstur varð á sunnudag á Akureyri og þurfti að flytja báða bflana með kranabfl af slysstað. Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki. Að sögn Ingimars Skjóldal, varðstjóra hjá Akureyrarlög- reglunni, varð áreksturinn á mótum Teigasíðu og Hlíðar- brautar. Bíl var ekið inn á Hlíðarbraut og í veg fyrir ann- an sem kom akandi eftir Hlíð- arbraut. Fólk úr bílunum var flutt á sjúkrahús til skoðunar en ekki talið alvarlega slasað. Að öðru leýti var róleg helgi hjá Akureyrarlögreglunni en fnikið álag á umferðaræðum í miðbænum í gær. Ingimar seg- ir að þar hafi strætisvagnar átt í erfiðleikum með að komast áfram. „Þarna er þröngt og satt að segja sáralítið hægt að gera til að bæta úr,“ sagði Ingimar. JÖH Hrútafjörður: Sendiferðabffl á hliðina - ökumaður slapp ómeiddur Um sjöleytið á laugardags- kvöld ók sendiferðabfll út af yið Stkárbrú í Hrútafirði. Ökumaðurinn slapp ómeidd- ur, en bfllinn skemmdist mikið. - Að sögn lögreglu á Blöndu- ósi mátti ekki miklu muna að bíllinn lenti í ánni, en hann fór út af við brúna og lenti á hlið- ina utan vegar rétt við brúna. Ökumaður var einn á ferð og slapp hann ómeiddur. Bíllinn er hinsvegar talsvert skemmd- ur og var óökufær. Mikil hálka var á vegum á laugardags- kvöldið. sþ Akureyri: Innbrot við Glerárgötu Aðfaranótt laugardags var brotist inn í verslunina Örk- in hans Nóa við Glerárgötu á Akureyri. „Engu var stolið og litlar skemmdur voru unnar. Málið er að fullu upplýst,1' segir tals- maður rannsóknarlögreglunn- ar á Akureyri. ój Sigurðssonar, formanns bæjar- ráðs Akureyrar, á fundi bæjar- stjórnar sl. þriðjudag. Sigurður sagði { samtali við Dag að samkvæmt fyrstu athugun kæmist allt félagsmálasviðið fyrir í húsinu, en menn hafi gert sér vorir um að það rúmaðist í þeim hluta hússins sem Hitaveita Akureyrar hefði til umráða. Sigurður sagði að sú hugmynd hafi komið upp að setja ris á þetta hús, bæði vegna aðkallandi viðgerða á þaki og til að húsið falli betur að umhverfinu, og ef af yrði myndi þar skapast rými. „En allt snýst þetta um peninga og spurningin er hvað er skynsamlegast í málinu,“ sagði Sigurður. Hann sagði að vel gæti verið að hagkvæmari kostur reyndist að finna félagsmálasvið- inu annað húsnæði, en allir möguleikar yrðu skoðaðir snemma á næsta ári. Ekki er gert ráð fyrir peningum á næsta ári til húsnæðisúrbóta fyrir félagsmála- svið, en Sigurður sagðist vænta þess að snemma næsta árs verði tekin ákvörðun í málinu. óþh Akureyri: Lýst eftír mannier bakkaði á konu Fimmtudaginn 3. desember var bakkað á konu á bifreiða- stæði við íbúðarblokkina Múlasíðu 9 í Glerárhverfi á Akureyri. Rannsóknarlögregl- an á Akureyri fer þess á leit við ökumanninn að hann gefi sig fram. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar féll konan við er bíllinn skall á henni. Konan og ökumað- ur ræddu saman eftir óhappið og kvaðst konan ekki hafa meiðst. „Annað hefur komið í ljós. Kon- an hefur þurft að leita sér lækn- inga. Því er svo að við verðum að hafa tal af manninum, en konan veit ekki hver hann er,“ segir talsmaður rannsóknarlögregl- ój unnar. Norðurljósin sýndu Óskasteininn í skóladagheimiiinu Hamarkoti í gær og féll ævintýrið krökkunum vei í geð. Leikritið verður sýnt í leikskólum Akureyrar og þá eru Norðurljósin fús til að flytja ævintýrið við ýmis tækifæri. Mynd: Robyn Norðurljósin skína á Akureyri: LeiMð fyrir leikskólaböm Áhugaleikfélagið Norðurljósin ferðast nú milli leikskóla Akureyrar og sýnir ævintýra- leikinn „Óskasteininn“ fyrir börnin við mjög góðar undir- tektir, enda börnin þakklátir áhorfendur. Leikritið varð til á leiklistarnámskeiði hjá Erni Ing og skrifaði hann handritið, en æfingar hafa staðið yfir frá því í haust. „Ég hafði samband við yfir- mann leikskólanna í haust og bauð fram sýningu. Undirtektirn- ar voru mjög jákvæðar og þetta hefur verið í vinnslu frá því í september. Við munum sýna á öllum leikskólum bæjarins og sérstakur styrktaraðili er Súkku- laðiverksmiðjan Linda og leik- tjöldin eru gefin af Foldu, þannig að uppsetningin er í nánum tengslum við atvinnulífið," sagði Örn Ingi. Óskasteinninn er hálftíma verk og taka þrettán krakkar þátt í sýningunni. Þetta er fyrsta verk- efni Norðurljósanna eftir að hóp- urinn fékk inni í Bandalagi íslenskra leikfélaga. Eftir áramót ætlar Örn Ingi að fara af stað með fullorðinssýningar og hvetur hann þá sem hafa áhuga á að taka þátt í leiklistarstarfseminni að koma fram í dagsljósið. „Þær fjórar sýningar sem eru búnar hafa gengið mjög vel og viðtökurnar nánast undraverðar hjá börnum alveg niður í tveggja ára. Ég er mjög ánægður með það að þetta skyldi heppnast, enda frumraun að vissu leyti því Norðurljósin hafa aldrei verið með svona margar sýningar á sama verki. Það eru einar 16 sýn- ingar áætlaðar á leikskólunum en við erum tilbúin til að sýna nán- ast hvar sem er ef fólk óskar eftir að fá sýningu,“ sagði Örn Ingi. SS Kvartanir um mismunun kynja í snyrtingar- og pökkunarstörfum frystihúsa: Jafnréttisráð áminnir hags- munaaðila í sjávarútvegi - bendir á að karlar sinni eingöngu sambærilegum störfum í frystitogurum Vegna kvartana sem fram komu í haust um að kynjum sé mismunað í aðgangi að störf- Póststofan á Akureyri: Samgöngur við „Gullströndina“ komnar í samt lag Um helgina tókst að flokka all- an fyrirliggjandi póst á Póst- stofunni á Akureyri og koma honum áleiðis til viðtakenda þannig að á mánudagsmorgun var í fyrsta skipti í langan tíma hægt að tala um „hreint borð“ hjá póstinum. Póstbílarnir eru aftur komnir á áætlun og allur póstur austur til og frá „Gullströndinni“ fór þang- að með flugi á sunnudag og mánudag. Jón Ingi Cesarsson hjá Póststofunni segir að um starfs- mennina hríslist nú mikil gleði eftir að ljóst er að allur póstur muni nú komast til viðtakenda fyrir jól. „Gullströndin" erheitiá svæðinu frá Kópaskeri og austur á Vopnafjörð og er frá tímum síldaráranna þegar stór hluti þjóðarteknanna varð til á þessu landshorni. Áætlunarbílar sjá hins vegar um póstflutninga til og frá þeim byggðarlögum sem næst liggja Akureyri. GG um í frystihúsum hefur Jafn- réttisráð nú sent hagsmuna- aðilum í sjávarútvegi bréf þar sem minnt er á ákvæði jafn- réttislaga, þ.e. að komið verði á jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla á öllum sviðum. Þær athugasemdir sem komu fram í haust voru um að atvinnu- rekendur í sjávarútvegi vilji ein- göngu ráða konur til starfa í snyrtingu og pökkun í frystihús- um en ganga framhjá körlum sem leiti eftir störfum í þessari grein. í umfjöllun Jafnréttisráðs um þetta mál er minnt á að jafnréttis- lög kveði á um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla frá 1991 en þar er skýrt tekið fram að hvers kyns mismunum eftir kyn- ferði sé óheimil. Auk þess séu ákveðnar skyldur lagðar á herðar atvinnurekenda sem sé ætlað að vinna gegn kynskiptingu á vinnu- markaði þannig að störf flokkist ekki í karla- og kvennastörf. Þessi afstaða forráðamanna fisk- vinnslufyrirtækja sé þeim mun furðulegri þegar haft sé í huga að karlmenn sinni sambærilegum störfum um borð í frystitogurum. JÓH Hjálparstofnun kirkjunnar: Um sjö milljónir hafa safnast - söfnunarbíll í göngugötunni á Akureyri á Þorláksmessu Um sjö milljónir króna höfðu safnast í jólasöfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar um síð- ustu helgi. Er það um einni milljón krónum minna en á sama tíma á síðasta ári. Loka- átak söfnunarinnar stendur nú yfir og verður meðal annars efnt til sérstaks söfnunarátaks á Akureyri á Þorláksmessu eins og undanfarin ár. Að sögn Jóhannesar Tómas- sonar hjá Hjálparstofnun kirkj- unnar höfðu safnast um sjö millj- ónir króna í jólasöfnuninni um síðustu helgi sem er um einni milljón krónum minna en á sama tíma í fyrra. Ef miðað sé við allar aðstæður - minnkandi ráðstöfun- arfé fólks og undirtektir þess við beiðnum stofnunarinnar fyrr á þessu ári verði þetta að teljast góður árangur en lokaátakið sé þó eftir. Á Akureyri verður sérstakur söfnunarbíll staðsettur í göngu- götunni á Þorláksmessu frá kl. 11.00 til 23.00 þar sem tekið verður á móti framlögum til Hjálparstofnunar kirkjunnar á sama hátt og á undanförnum árum. Þá má geta.þess að sóknar- prestar veita framlögum einnig viðtöku. ÞI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.