Dagur - 22.12.1992, Side 3
Þriðjudagur 22. desember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Vill áfram heimila sveitarstjóraum að
veita einfalda áhyrgð á lánum
- vandmeðfarin og ekki alvont að fella hana út, segir bæjarstjóri
Bæjarstjórn Húsavíkur mælir
ekki með þeirri breytingu á
sveitarstjórnarlögum að felld
verði úr gildi ákvæði sem
heimila sveitarstjórnum að
veita einfalda ábyrgð á lánum.
Álit bæjarráðs þessa efnis var
samþykkt í bæjarstjóm sl.
fimmtudag.
Samband íslenskra sveitar-
félaga sendi bæjarráði erindi þar
sem óskað er eftir umsögn um til-
lögu bæjarráðs Akureyrar þess
efnis, að felld verði úr gildi
ákvæði sem heimila sveitarstjórn-
um að veita einfalda ábyrgð á
lánum. Töluverðar umræður
urðu um málið í bæjarstjórn, en
samþykkt var að mæla ekki með
þessari breytingu.
„Rökin með samþykktinni
voru þau að það væri mjög mikil-
vægt fyrir bæjarráð og bæjar-
stjórn að hafa þennan mögu-
leika, það gæti oft ráðið úrslitum
gagnvart atvinnulífinu að með
þessum hætti væri hægt að styðja
við atvinnulífið í bænum. í mörg-
um tilfellum gæti það ráðið úrslit-
um án þess að veruleg áhætta
væri tekin,“ sagði Einar Njáls-
son, bæjarstjóri, aðspurður um
rök fyrir samþykktinni. Einar
sagði að í sínum huga væri ekki
alvont að fella þetta út. Einföld
bæjarábyrgð væri vandmeðfarin,
bæði vegna pólitískra og tilfinn-
ingalegra hliða á málum. Þetta
gæti og hefði bundið sveitarfélag-
ið ábyrgðum sem veruleg útgjöld
hefðu fylgt, í kjölfar gjaldþrota.
Bankar og opinberir sjóðir hefðu
oft stillt sveitarfélögum upp við
vegg og neitað fyrirtækjum um
lán nema gegn ábyrgð sveitar-
félagsins. Þetta væri óheppilegt.
„Ég lít svo á að bankarnir eigi
ekki að hafa tækifæri til að stilla
sveitarfélögum upp við vegg með
þessum hætti. Bankarnir ættu að
vega og meta þá áhættu sem þeir
taka og taka óháðar ákvarðanir
út frá því,“ sagði bæjarstjóri. IM
Skagagörður:
Meira atviraiuleysi en áður
heldur hækkandi tala. Ekki verð- i Hofsósi, en vinna stöðvast þar frá
ur sagt upp hjá frystihúsinu á | 22. des. til 4. jan. sþ
Frystihús KEA í Hrísey:
Ari Þorsteinsson
ráðinn frystihússtj óri
Atvinnuleysi á landinu er nú
það mesta í áratugi og fer vax-
andi. Fjöldi atvinnulausra á
Norðurlandi vestra fer einnig
vaxandi.
Hjá Sauðárkróksbæ er skráð
atvinnuleysi í bænum, auk fjög-
urra hreppa í Skagafirði. Nú eru
56 manns á skrá, 31 karl og 25
konur. Um síðustu mánaðamót
voru 49 manns á skrá. Að sögn
Matthíasar Viktorssonar félags-
málafulltrúa bæjarins fer
atvinnuleysi vaxandi. Árið 1991
voru atvinnuleysisdagar 6189 en
voru 8437 árið 1990. Árið í ár er
verra en 1990, en Matthías
kvaðst ekki hafa endanlegar
tölur.
Stór hluti atvinnulausra er fólk
um og yfir fimmtugt og kveðst
Matthías hafa af því þungar
áhyggjur, sérstaklega hvað varð-
ar konurnar. Atvinnulausum á
Sauðárkróki fjölgar í desember,
eins og í Húnaþingi, vegna lok-
unar fiskvinnslufyrirtækja um jól
og fram yfir áramót.
Hjá Hofshreppi fengust þær
upplýsingar að þar hafi verið 13
manns á skrá 1. des. og sé það
Nýverið var gengið frá ráðn-
ingu frystihússtjóra við Frysti-
hús Kaupfélags Eyfirðinga í
Hrísey. Ari Þorsteinsson, verk-
fræðingur, frá Höfn í Horna-
fírði var ráðinn til starfsins.
Eiginkona Ara er María Gísla-
dóttir frá Akureyri og þau
hjón eiga tvö börn.
Jóhann Þór Halldórsson, fv.
útibússtjóri Kaupfélags Eyfirð-
inga, lét af störfum fyrir nokkru
og er nú framkvæmdastjóri
útgerðarfyrirtækis austur á landi.
Jón Þór Gunnarsson, rekstrar-
verkfræðingur, hefur að undan-
förnu séð um rekstur Frystihúss
KEA í Hrísey og svo verður þar
til um miðjan janúar að Ari Þor-
steinsson tekur við.
Ari er Hornfirðingur, sem fyrr
segir, fæddur árið 1958. Að
loknu tækniskólanámi nam hann
vélaverkfræði við Háskólann í
Álaborg. Framhaldsnámi í sjáv-
arútvegsgreinum lauk Ari árið
1987 og hóf þá störf hjá Fiskiðju-
veri KASK á Höfn í Hornafirði.
„Fyrstu þrjú árin vann ég í tækni-
deild að vöruþróun. Frá árinu
1990 hef ég verið forstjóri Fisk-
iðjuvers KASK, sem nú hefur
fengið nafnið Borgey hf. Nú ligg-
ur leiðin til Hríseyjar. Ég kem til
starfa um miðjan janúar, en í síð-
ustu viku var ég í Hrísey að
kanna allar aðstæður. í kafalds-
byl brölti ég á milli húsa, en engu
að síður leist mér vel á staðinn,"
segir Ari Þorsteinsson. ój
r i
Schiesser'S
Gœðanna vegna
L j
Kópavogur
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Reykjanessvæði
leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli í
Kópavogi. Um er að ræða einbýlis- eða raðhús, 150-
220 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu, helst í
vesturbænum.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat,
afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík,
fyrir 6. mars 1993.
Fjármálaráðuneytið, 18. desember 1992.