Dagur - 22.12.1992, Side 5
Þriðjudagur 22. desember 1992 - DAGUR - 5
Leit Lindu hf. og Dags að „Konfektmeistaranum“ er lokið:
Myntukonfekt Grýlu“ tryggði
Unni Maríu Hjálmarsdóttur titilinn
Unnur María Hjálmarsdóttir,
húsfreyja á Ytra-Hvarfi í
Svarfaðardal, bar sigur úr být-
um í samkeppni sem Linda hf.
og Dagur efndu til um besta
heimagerða konfektið. Auk
sæmdarheitisins „Konfekt-
meistarinn 1992“, hlýtur Unn-
ur María að launum kassa með
úrvali af framleiðsluvörum
Lindu hf., að verðmæti rúm-
lega 10 þúsund krónur og væn-
an konfektkassa að auki. Þá
hlýtur hún fría áskrift að Degi
allt næsta ár og nýútkomna og
veglega bók um listmálarann
og sérvitringinn Picassó.
Alls barst 71 konfektgerð í
keppnina og hlýtur það að teljast
frábær þátttaka í þessari fyrstu
keppni sinnar tegundar hér á
landi.
Sigurkonfekt Unnar Maríu ber
heitið „Myntukonfekt“. í það
notaði hún Lindusúkkulaði og
plöntufeiti en eggjahvítu, rjóma,
flórsykur og tár af sherrýi í fyll-
inguna. Unnur María er greini-
lega slyng í konfektgerðarlist-
inni, því hún átti aðra uppskrift í
hópi þeirra tíu, sem dómnefnd
mat bestar, en alls sendi Unnur
María inn þrjár gerðir. Hitt verð-
launakonfekt hennar ber nafnið
„Karamellukonfekt". Hún not-
aði dulnefnið „Grýla“.
Sex aðrir í úrvalshópnum
Erla Ásmundsdóttir, Kringlu-
mýri 10 á Akureyri, sendi tvær
konfektgerðir til keppni, „Döðlu-
konfekt“ og „Jólakonfekt“, og
lentu þær báðar í hópi þeirra 10
bestu. Dulnefni Erlu var „Sæl-
kerinn“.
Þriðji keppandinn, sem hlýtur
tvöföld verðlaun, er Svanborg
Svanbergsdóttir, Fellshlíð í
Eyjafjarðarsveit, en hún sendi
alls þrjár gerðir til keppni. Af
þeim lentu „Kaffi-rós“ og
„Sherrý-biti“ í verðlaunasæti.
Dulnefni Svanborgar var „Sveita-
kona“.
Aðrir konfektgerðarmenn á
„topp tíu“ lista dómnefndar eru:
Guðrún Kristjánsdóttir með kon-
fekt sitt „Skel“ og dulnefnið „Ein
af 70“ - en þess má geta að Guð-
rún er búsett í Fellshlíð í Eyja-
fjarðarsveit eins og Svanborg.
Dulnefni Guðrúnar, „Ein af 70“,
ber vott um mikla spádómsgáfu
því konfektgerðirnar reyndust
alls 71, sem fyrr segir.
Ingibjörg Ringsted, Vana-
byggð 8 d á Akureyri, lenti í
úrvalshópnum með ónefnt
konfekt en dulnefnið „Dós“; Sig-
ríður Kjartansdóttir, Útskálum,
Kópaskeri, með „Karíusk C“
undir dulnefninu „Karíusk" og
Sigurbjörn Sveinsson, Keilusíðu
8 e, Akureyri, með „Sveita-
skrímsli A“ og dulnefnið „Sveita-
skrímsli“. Sigurbjörn er einn
þriggja karlmanna, sem tóku þátt
í keppninni.
Það eru því sjö manns sem
hreppa verðlaunin fyrir tíu bestu
konfektgerðirnar en þessir sjö
sendu inn alls 16 tegundir.
37 þátttakendur
- 71 konfektgerð
Höfundar konfektsins í keppn-
inni reyndust 37 talsins. Skilyrði
var að senda inn 15 mola af
hverri gerð og létu margir eina
nægja. „Afkastamesti“ keppand-
inn sendi hins vegar inn 6
konfektgerðir og því 90 mola
alls.
Meirihluti þátttakenda býr á
Akureyri en konfektgerðarfólk á
Dalvík, í Eyjafjarðarsveit,
Grýtubakkahreppi, Hafnarfirði,
á Húsavík, í Kópavogi, Ólafs-
firði, Reykjavík, Svarfaðardal og
á Svalbarðsströnd lét ekki sitt eft-
ir liggja.
Dómnefndin
Fimm manna dómnefnd hafði
það vandasama verk með hönd-
um að bragðprófa konfektið.
Hana skipuðu þau Sigurður E.
Arnórsson, framkvæmdastjóri
Lindu hf., en hann var formaður
nefndarinnar; Bragi V. Berg-
mann, ritstjóri Dags; Ragna
Sölvadóttir, framreiðslumeistari;
Bjarni Hafþór Helgason, fram-
kvæmdastjóri Eyfirska Sjón-
varpsfélagsins og Kristín Sigfús-
dóttir, hússtjórnarkennari.
Kristínu til halds og trausts voru
tveir nemendur hennar í Mennta-
skólanum á Akureyri, þær Hrönn
Brynjarsdóttir og og Rósa Aðal-
steinsdóttir.
Dómnefndin lauk fyrri umferð
bragðprófunarinnar á tveimur
kvöldstundum. Að henni lokinni
reyndust 13 konfektgerðir í
úrvalshópnum. Þeim fækkaði
niður í 10 í annarri umferð.
Þrautin þyngsta var svo að dæma
eina konfektgerð besta og reynd-
ist mjög mjótt á mununum þegar
upp var staðið.
Hver dómnefndarmaður gaf
einkunn á bilinu 1-5 stig fyrir alls
fjögur atriði og gat hver konfekt-
moli því mest fengið tuttugu stig
en minnst fjögur.
Til mikils að vinna
Þegar hefur verið greint frá sigur-
launum Unnar Maríu, „Konfekt-
meistarans 1992“. Höfundar
hinna konfektgerðanna níu fá
hver um sig kassa með úrvali af
framleiðsluvörum Lindu hf. Hver
kassi er að verðmæti rúmlega 10
þúsund krónur.
Aðstandendur keppninnar
stefna að því að koma verðlaun-
unum til vinningshafa fyrir ára-
mót. Þá munu hinir keppendumir
30 fá sendan konfektkassa frá
Lindu hf. eftir áramótin, í þakk-
lætisskyni fyrir þátttökuna.
Að lokum má geta þess að
forráðamenn Lindu hf. munu
hugsanlega vilja kaupa uppskrift,
eina eða fleiri, svo og fram-
leiðslurétt að konfekti sem sent
var inn í keppnina. Hvort af því
verður og þá hvaða uppskrift/
uppskriftir verður/verða fyrir val-
inu, mun koma í ljós síðar en þar
getur verið um tugi þúsunda króna
„aukaglaðning“ að ræða fyrir
heppinn eða heppna konfekt-
gerðarmenn.
Linda hf. og Dagur senda öll-
um keppendunum kærar kveðjur
með þökk fyrir þátttökuna. BB.
Og svona er útlitið á verðlaunakonfektmolunum í meistarakeppni Lindu og Dags. Þetta eru 10 bestu tillögumar að
mati dómnefndar og í miðjunni eru molar Unnar Maríu Hjálmarsdóttur en hún fékk 1. verðlaun fyrir framleiðslu
Mynd: Robyn
HMIVMÍHMMM
er íslensk hágæöa mjólkurafurö sem
gefur ótal möguleika viö matargerö.
Sýröur rjómi hentar vel m.a. í salöt, sósur,
ídýfur og meö ávöxtum og tertum
Betra bragð
meö
Sýrðum
'^rjoma
- Ifka á jólunum
Mjólkursamlag KEA
ŒNNSLA