Dagur - 22.12.1992, Blaðsíða 7

Dagur - 22.12.1992, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 22. desember 1992 — DAGUR — 7 Bikarkeppnin í handknattleik, 8 liða úrslit: KA-menn komnir í undanúrslit bikarkeppninnar - unnu Hauka 27:26 í framlengdum leik Þeir gerast ekki meira spenn- andi handboltaleikirnir en þeg- ar KA og Haukar áttust við í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar á föstudagskvöldið. Liðin skiptust á um að hafa forust- una og þegar 2 sekúndur voru eftir fengu KA-menn vítakast, sem hefði getað tryggt þeim sigurinn, en Magnús Arnason varði frá Pétri Bjarnasyni. I framlengingunni reyndust heimamenn sterkari og sigruðu með eins marks mun, 27:26, eftir mikinn hamagang á loka- sekúndunum. Það varð snemma ljóst að allt stefndi í hörku leik. Bæði lið léku firna sterkan varnarleik og sókn- arleikurinn var einnig mjög góður. Haukar eru með ákaflega léttleikandi lið og augljóst að þar á bæ hefur Jóhann Ingi Gunnars- son gert góða hluti. Alfreð Gísla- son á sem kunnugt er við meiðsl að stríða og lék ekki með í 1. Jóhann Jóhannsson átti stórleik fyrir KA á föstudagskvöldið og réðu varn- armenn Hauka lítið við drenginn. Mynd: Robyn Bikarkeppnin 1 handknattleik: Selfyssingar mæta í KA-húsið Á einhverjum af fyrstu dögum hins nýja árs munu Selfyssing- ar mæta í KA-húsið, en KA og Selfoss drógust saman í undan- úrslitum bikarkepnninnar í handknattieik. Alfreð Gísla- son þjálfari KA kvaðst nokkuð sáttur við þessa niðurstöðu. „Auðvitað hefði ég helst kosið að fá Víkingana frekar, því það hefði líkast til verið léttari leikur. Það má kannski segja að það skipti ekki öllu máli hvort maður spilar gegn Selfossi í úrslitum eða undanúrslitum og kannski bara gott að vera búinn að losa sig við þá. Það sem skipti ölly máli var að fá heimaleik,“ sagði Alfreð. Hann sagði einnig að lið Selfoss væri mjög erfitt viðureignar þessa dagana. KA og Selfoss hafa tví- vegis áttst við á þessu ári. KA vann fyrri leikinn sem fór fram á Akureyri með einu marki en í síðari leiknum tapaði KA með einu marki eftir dramatískar lokasekúndur. í hinum undanúrslitaleiknum í karlaflokki keppa Valsmenn og Víkingar í Víkinni. í kvenna- flokki eigast við Valur og Grótta og Stjarnan fær Fram í heim- sókn. Leikur KA og Selfoss verð- ur að öllum líkindum háður 4. eða 5. janúar. sókn liðsins og bjuggust margir við að hann mundi sitja á bekknum. Hann var þó skyndi- lega mættur til leiks í næstu sókn og skoraði 4 fyrstu mörk liðsins. Um miðbik hálfleiksins náðu Haukar 3 marka forustu sem KA náði að vinna upp og komast yfir en í leikhléi var staðan jöfn, 12:12. KA var betri aðilinn í síðari hálfleik og lék á köflum stórgóð- an handknattleik. Liðið náði mest 4 marka forystu, en með ótrúlegri baráttu náðu Haukar að jafna. Á síðustu sekúndum leiks- ins fór Gunnar Gíslason inn úr horninu og fiskaði vítakast, sem ekki náðist að nýta, eins og fyrr var sagt. Framlengingin var tvisvar sinn- um 5 mínútur. Að loknum fyrri hlutanum hafði KA eitt mark yfir en Haukar byrjuðu með boltann og jöfnuðu. í næstu sókn var dæmt víti á Hauka. KA-menn höfðu misnotað 4 víti í leiknum. Hinn ungi og bráðefnilegi Leó Örn Þorleifsson var nú kallaður af bekknum og inn fór boltinn. KA skoraði einnig 2 næstu mörk. Þá hófu Haukar að leika maður á mann og við það leystist leikur- inn upp. Haukar náðu að skora 2 mörk í röð en þá var leiktíminn runninn út og sigur KA í höfn. „Ég er ánægður með úrslitin því sigurinn gat lent hjá hvorum aðilanum sem var. Við vorum heppnir í lokin, náðum að nýta okkar færi en þeir ekki,“ sagði Alfreð Gíslason þjálfari KA eftir leikinn. Alfreð átti mjög góðan dag þrátt fyrir að spila meiddur. Einn besti maður liðsins var þó hornamaðurinn Jóhann „Brói“ Jóhannsson sem skorðaði 7 mörk og barðist vel. Páll Ólafsson var einna bestur í jöfnu liði Hauka. Gangur leiksins: 2:2, 4:4, 5:8, 8:10, 12:10, 12:12, 15:15, 17:16, 20:17, 22:20, 22:22, 24:23,27:24 og 27:26. IVlörk KA: Alfreð Gíslason 9, Jó- hann Jóhannsson 7, Erlingur Kris- tjánsson 6/4, Pétur Bjarnason 1, Gunnar Gíslason 1, Þorvaldur Þor- valdsson 1, Leó Örn Þorleifsson 1, og Óskar Elvar Óskarsson 1. Iztok Race varði 7 skot og Björn Björns- son 2. Mörk Hauka: Petr Baumruk 8/5, Páll Ólafsson 8/3, Sigurjón Sigurðs- son 6, Óskar Sigurðsson 3 og Hall- dór Ingólfsson 1. Magnús Árnason varði 10 skot og Leifur Dagfinnsson 3. Dómarar: Lárus Lársson og Jóhannes Felixson. Voru slakir, þó sérstaklega í síðari hálfleik. Leiftur missir helsta markaskorara sinn í knattspyrnu: Þorlákur Ámason á leið tQ Grindavíkur Þorlákur hefur verið einn af burðarásum Leifturs undanfarin ár og er mikil eftirsjá í honum. Hann er hér til hægri á myndinni í leik með Leiftri. Bikarkeppnin í körfuknattleik: „Er góð nidurstaða íyrst við fengum ekki heimaleik“ - segir Þórarinn Thorlacius Þorlákur Arnason, helsti markaskorari knattspyrnuliðs Leifturs síðustu þrjú ár, mun ekki leika með liðinu næsta sumar eins og til stóð. Hann mun að öllum líkindum ganga til liðs við Grindvíkinga fyrir komandi keppnistímabil. Porsteinn Þorvaldsson, for- maður knattspyrnudeildar Leift- urs, segir að slæmt sé að missa Þorlák, enda hafi hann verið helsti markaskorari liðsins þau þrjú ár sem hann hefur verið í Ólafsfirði. „En það kemur maður í manns stað og við munum reyna að fá annan framherja í stað Þorláks,“ segir Þorsteinn. Þorlákur skoraði 9 mörk fyrir Leiftur í 2. deildinni árið 1990 en það ár féll liðið í 3. deild. í 3. deildinni árið eftir varð Þorlákur lang markahæstur í deildinni með 20 mörk en þá vann liðið sér sæti í 2. deild á ný. Á síðasta keppn- istímabili varð Þorlákur næst markahæstur í 2. deild með 17 mörk. Guimí skípti í Hácken Nú hefur verið gengið frá fé- lagaskiptum Gunnars Gísla- sonar úr KA í Hácken. Gunnar þjálfaði sem kunnugt er knattspyrnulið KA síðastliðið sumar en ákvað í haust að snúa á ný til Svíþjóðar. Gunnar hefur leikið í stöðu hornamanns í handboltanum hjá KA að undan- förnu og mun gera það eitthvað áfram. Hann hefur þótt standa sig með miklum sóma og verið sem klettur í vörninni. Tindastólsmenn munu halda til Stykkishólms í undanúrslitum bikarkeppninnar í körfuknatt- leik og leika við heimamenn í Snæfelli. Þetta varð Ijóst eftir að dregið var á laugardaginn. Þórarinn Thorlacius formaður körfuknattleiksdeildar Tinda- stóls sagðist sáttur við þessa niðurstöðu, fyrst liðið fékk ekki heimaleik. Stólarnir slógu sem kunnugt er Njarðvíkinga út í síðustu umferð og nú er komið að Snæfelli. „Mér líst bara vel á þetta. Menn fara auðvitað með öðru hugarfari í þessa leiki heldur en deildarleiki og hér er það dagsformið sem gildir. Auðvitað hefðum við helst viljað spila heima, en fyrst svo fór ekki er þetta besta niðurstað- an,“ sagði Þórarinn. Leikirnir í karlaflokki verða að öllum líkindum sunnudaginn 17. janúar og þá leika saman auk Snæfells og Tindastóls, ÍBK og Skallagrímur. Kvennaleikirnir verða þriðjudaginn 26. janúar og þá leika Tindastóll eða ÍBK gegn Grindvíkingum og KR gegn ÍR. Enn er ekki að fullu ljóst hvenær hægt verður að spila leik Tinda- stóls og ÍBK í 8 liða úrslitum kvenna, en honum hefur verið frestað margsinnis vegna veðurs.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.