Dagur - 22.12.1992, Page 8

Dagur - 22.12.1992, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 22. desember 1992 Iþróttir Halldór Arinbjarnarson íþróttamaður ársins valinn í 8. sinn: Glæsileg verðlaun í boði frá versliuiimii Radíónaust Eins og greint var frá í föstu- dagsblaði Dags mun blaðið samkvæmt venju standa að kjöri á íþróttamanni Norður- lands, í samvinnu við lesendur. Dregið verður úr innsendum atkvæðaseðlum og heppinn þátttakandi getur unnið glæsi- leg verðlaun frá versluninni Radíónausti Geislagötu 14 Akureyri. Nú er komið að því að kynna þessi verðlaun. Verðlaunin sem Radíónaust gefur er glæsilegt sambyggt tæki með geislaspilara, útvarpi og tvö- földu segulbandstæki af gerðinni Samsung RCD 1360. Geislaspil- arinn er forritanlegur, 16 bita af hæsta gæðaflokki, segulbands- tækið tvöfalt með hraðfjölföldun á kassettu og einnig er 3 bylgju útvarp. Tækið er mjög vandað og það fæst nú á sérstöku jólatilboðs- verði í Radíónausti. Verðið er 17.900 kr. og enn ódýrara ef stað- íþróttamaður Norðurlands 1992 Nafn íþróttamanns: 1 2. íþróttagrein: 3, 4 5. Nafn: Sími: Heimilisfang: Sendist til: (þróttamaður Norðurlands 1992 B.t. Dagur, Strandgötu 31, 600 Akureyri Skilafrestur er til 8. janúar 1993. greitt er, eða 16.900. Undir venjulegum kringumstæðum mundi tæki af þessari gerð kosta yfir 20 þúsund. Af þessu sést að til mikils er að vinna og því ættu lesendur að bregðast skjótt við. Þetta verður í 8. sinn sem Dag- ur stendur að þessu kjöri í sam- vinnu við lesendur og síðast var það knattspyrnumaðurinn Eyjólfur Sverrisson sem varð fyrir valinu. Aðrir sem hlotið hafa þessa nafnbót eru Guðmundur Benediktsson, Þorvaldur Örlys- son, Guðrún H. Kristjánsdóttir, Halldór Áskelsson, Daníel Hilm- arsson og Kári Elíson. Skila- frestur er til 8. janúar og stefnt er að því að lýsa kjörinu 16. janúar. Lesendur skrifa 5 nöfn á seðil- inn hér fyrir neðan og senda hann inn til blaðsins með nafni heimilisfangi og síma. Gjald- gengir í kjörinu eru íþróttamenn sem stunda íþrótt sína á Norður- landi og Norðlendingar sem stunda íþrótt sína annars staðar. Allir atkvæðaseðlar verða settir í pott og síðan verður nafn eins heppins lesenda dregið út og hann, eða hún, hlýtur sem fyrr segir hin glæsilegu verðlaun frá Radíónausti Geislagötu 14. ■"/" /'** /////"/" " Hér má sjá hin glæsilegu verðlaun sem verslunin Radíónaust, Geislagötu 14 á Akureyri gefur. Frjálsíþróttir um jólin Frjálsíþróttafólk ætlar að enda árið með stæl og milli jóla og nýárs verður nóg við að vera. Þar ber fyrst að nefna Akur- Boðgangaá annan dag jóla Nú er komið nóg af snjó og skíðafólk því farið að hugsa sér verulega til hreyfings. Á annan dag jóla er stefnt að boðgöngukeppni milli Ólafsfirð- inga og Akureyringa. Keppnin fer fram í Kjarnaskógi. Þetta er þó að sjálfsögðu háð veðri. Körfuknattleikur: Stjömuleikuriim í kvöld í kvöld fer loks fram stjörnu- leikurinn í körfubolta sem frestað var á föstudagskvöldið. Þar mætir Norðurlandsúrvalið Nike-liðinu, sem skipað er erlendum leikmönnum sem leika hérlendis. Leikurinn hefst kl. 20 í íþróttahöllinni á Ólympíufónmum veittar viöurkeimingar - árið 1992 réttnefnt íþróttaár fatlaðra Síðastliðinn laugardag var efnt til kaffisamsætis á veitinga- staðnum Fiðlaranum á Akur- eyri þar sem norðlensku kepp- endunum úr röðum fatlaðra íþróttamanna, sem þátt tóku í Olympíumótunum á Spáni í sumar, voru veittar viðurkenn- ingar. Voru það íþróttaráð Akureyrarbæjar og IBA sem fyrir þessu stóðu. Þau sem þarna um ræðir eru Rut Sverrisdóttir og Elvar Thor- arensen sem kepptu í Barcelona og Aðalsteinn Friðjónsson og Stefán Thorarensen sem kepptu í Madrid. Sem kunnugt er náðist frábær árangur á báðum stöðum. Rut Sverrisdóttir krækti m.a. í 2 bronsverðlaun. Stutt ávörp á laugardaginn, fluttu Gunnar Ragnars og Þröstur Guðjónsson. Einnig þakkaði Elvar Thoraren- sen, fyrir hönd íþróttafólksins, fyrir hlýjar kveðjur þeim til handa. Ólympíufararnir, lengst til vinstri er Aðalsteinn Friðjónsson, Eik, þá Rut Sverrisdóttir, Óðni og bræðurnir Elvar og Stefán Thorarensen, Akri, lengst til hægri. Mynd: HA Akureyri. Körfuknattleiksmennirnir verða í versluninni Sportver milli kl. 16 og 18 og árita plagöt ofl. Ferðin er sem kunnugt er farin til styrktar landsliði íslands í körfuknattleik. í þeim leikjum sem búnir eru hafa hreint stór- kostleg tilþrif litið dagsins ljós og því sjálfsagt fyrir fólk að fjöl- menna á þennan einstaka viðburð. Að sjálfsögðu verður léttleikinn í fyrirrúmi og í hálf- leik verður troðslukeppni o.fl. eyrarmót í frjálsum íþróttum innanhúss sem fer fram sunnu- daginn 27. desember í íþrótta- höllinni. Keppt verður í mörgum flokkum. Hið árlega Gamlárs- hlaup verður síðan á gamlársdag og verða hlaupnir 4 km. Bæði þessi mót verða kynnt nánar í blaðinu á morgun. Nú er opið hjá golh'erslun David Bamwell Margir þeir sem ætlað hafa að heimsækja golfverslun David Barnwell að Jaðri undanfarna daga, hafa orðið frá að hverfa. Astæðan er að sjálfsögðu hið leiðinlega tíðarfar sem hrjáð hefur Norðlendinga að undan- förnu, en vegurinn upp í Golf- skála hefur verið meira og minna ófær vegna snjóa. Nú hefur hins vegar orðið breyting á bæði tíðarfari og færi að Jaðri. Allt er nú nýmokað og því ekkert því til fyrirstöðu að golfarar geti snúið sér að jóla- gjafainnkaupunum. Þar má fá allt sem viðkemur golfi og m.a. nýja kennslumyndbandið í golfi, ef einhver hefur áhuga á að lækka forgjöfina fyrir næsta sumar. Skíði: Kristiim gerir það gott Nýkjörinn skíðamaður ársins, Kristinn Björnsson frá Ólafs- firði, hefur verið að standa sig vel í keppnum á erlendri grund að undanförnu. Síðastliðin föstudag varð hann 3. í stórsvigi á alþjóðlegu móti sem haldið var stutt utan við Geilo í Noregi, þar sem Kristinn dvelur við nám og æfir af kappi. Hann sagðist vera á uppleið hvað formið varðar. „Tímabilið byrj- aði frekar brösuglega en þetta er allt að koma,“ sagði hann. í blað- inu á morgun verður birt viðtal við Kristin um dvöl hans í Noregi o.fl. Pétur Þ. Óskarsson gengur til liðs við KA-mönnum hefur nú bæst góður liðsstyrkur fyrir fótbolt- ann næsta sumar, því Fram- arinn Pétur Þ. Óskarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við KA. Pétur er miðju- og varn- armaður og á að baki 1 U-18 landsleik og 4 U-21 landsleiki. Pétur gekk til liðs við Fram fyr- ir síðasta sumar, eftir að hafa leikið með Fylki, en hann er upp- alinn hjá Fram. Njáll Eiðsson þjálfari KA sagði að Pétur væri mikill fengur fyrir KA og mundi styrkja liðið í baráttunni næsta sumar. Pétur Þ. Óskarsson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.