Dagur - 22.12.1992, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 22. desember 1992
Það var danskur póstafgreiðslu-
maður, sem átti hugmyndina að
jólamerkinu. Fyrir níutíu árum
31
Jólamerki Kvcnfélagsins Framtídarinnar 1992. Hvert merki er á stærð við
venjulegt frímerki.
drjúgur hluti jólamerkja fer til
safnara. Jólamerkin eru skráð í
bækur eins og frímerki. í Dan-
mörku er gefinn út listi Nordisk
Julemærke Katalog. Sjöunda út-
gáfa hans árið 1985-86 var yfir
600 blaðsíður. í þessum lista er
mynd af merkjunum, verðskrán-
ing og aðrar upplýsingar. Hér-
lendis er þörf á útgáfu slíks lista
með öllum tiltækum upplýsingum
og vonandi verður þess ekki langt
að bíða.
Jólamerkjasöfnun er ekki síð-
ur áhugaverð en söfnun frí-
merkja. En einhvern veginn
finnst mér samt, að virðulegir
frímerkjasafnarar líti jóla-
merkjasöfnun hornauga. En eru
jólatré og ber áletrunina Gleðileg
jól.
Framan af árum teiknaði Stef-
án merkin, en flest hefur Alice
Sigurðsson teiknað. Margir fleiri
listamenn hafa teiknað þau, svo
sem Örlygur Sigurðsson, Kristinn
Jóhannsson, Ragnar Páll, Jakob
Hafstein og Einar Helgason, svo
að nokkrir séu nefndir.
Öll eru merkin prentuð í Prent-
verki Odds Björnssonar.
Árin 1940, 1941 og 1943 komu
engin jólamerki út.
En Akureyrarmerkin eiga sér
nokkra forsögu. Merki, sem
prentað var í Danmörku, hefur
af sumum verið talið fyrsta jóla-
me,'kið á Akureyri. Gunnhildur
Ágrip af sögu jólamerkisiiis
vann hann við að stimpla jóla-
póstinn í Kaupmangaragötu í
Kaupmannahöfn. Allt í einu fói
hann að hugsa um það, að ef all-
ur þessi jólapóstur væri ofurlítið
skattlagður, þá mætti afla fjár til
líknarmála.
Þessi maður hét Einar Holböll.
Hann hugleiddi þetta nánar, og
gekk síðan á fund yfirmanna
sinna, sem strax sýndu málinu
áhuga. Þetta var árið 1903. Jóla-
merkjanefndinni var komið á fót
og hún undirbjó málið.
Árið 1904 kom fyrsta jóla-
merkið út í Danmörku og.það
var fyrsta jólamerkið í heímin-
um. Jólamerkið var selt á 2 aura
og fyrsta árið söfnuðust 74 þús-
und krónur. Útgáfunni var haldið
áfram og 1907 höfðu safnast 250
þúsund krónur.
Hugmynd Einars Holböll var
að verja fénu til hjálpar fátækum
og sjúkum börnum og 1907 var
hafin bygging fyrsta jólamerkja-
heimilisins í Kolding, og það var
fullbyggt 1911.
Alla tíð síðan hefur jólamerkið
verið gefið út og á þessu ári er 89.
merkið komið. Upplagið hefur
stækkað og tekjurnar orðnar all
verulegar. Árið sem leið gaf sala
dönsku jólamerkjanna 16 millj-
ónir króna og nú eru rekin jóla-
merkjaheimili á 4-5 stöðum.
Þangað koma árlega um það bil
500 börn á aldrinum 3ja-15 ára,
börn sem þurfa hjálpar við.
Árið 1911 skrifaði danskur rit-
höfundur eitthvað á þessa leið:
Aldrei hefur neinni hugmynd
verið tekið með svo almennum
skilningi og velvild sem útgáfu
jólamerkisins. Á þeim árum, sem
liðin eru síðan útgáfa þessi hófst,
hefur það ekki aðeins orðið al-
þjóðlegt tákn um það að láta gott
af sér leiða, með framlagi til líkn-
armála, heldur hafa önnur lönd
fetað í fótspor Dana og gefið út
jólamerki í vaxandi mæli.
Textinn á dönsku jólamerkja-
örkinni í ár er þannig. Lausleg
þýðing:
Gamalt jólamcrki.
Englar glaðir með gyllta vængi
flytja gleðiboðskapinn - um frið á jörðu.
Ljósin sem við tendrum boða náttúrunnar jól
með hækkandi sól.
s
I fótspor frumherjans
Útgefendur jólamerkja eru nú
orðnir margir. Flestir eru þeir í
Danmörku, nokkuð á annað
hundrað. Tilgangur nær allra út-
gefenda jólamerkja er að safna fé
til líknarmála og feta þannig í
fótspor Einars Holböll.
í Noregi hófst útgáfa jóla-
merkja 1906, Svíþjóð 1909,
Finnlandi 1912, íslandi 1913,
Færeyjum 1941 og Grænlandi
1974.
Útgefendur jólamerkja eru
orðnir helst til margir, þó á það
ekki við um Finnland, Færeyjar
og Grænland.
Auðvitað er það undir velvilja
manna komið, hvað mikið selst.
Ætla má að minna af jóla-
merkjum sé límt á bréf nú en
áður.
Söfnun jólamerkja er þó
nokkur, einkum erlendis og
frímerkin nokkru æðri? Þetta eru
pappírsmiðar hvort tveggja.
Thorvaldsensmerkin
Árið 1913 gaf Thorvaldsensfélag-
ið út fyrsta jólamerki sitt og kost-
aði það 2 aura eins og danska
jólamerkið 1904. Síðan hafa þau
komið út árlega, nema 1917.
Merkin eru seld til fjáröflunar
fyrir Barnauppeldissjóð Thor-
valdsensfélagsins. Tilgangur
sjóðsins hefur frá upphafi og æ
síðan verið það að leggja lið
börnum, sem vegna veikinda eða
annarra ástæðna hafa þurft
aðstoðar við, en einnig að leggja
öðrum líknarmálum lið.
Barnauppeldissjóðurinn hefur
m.a. staðið straum af byggingu
vöggustofu við Dyngjuveg í
Reykjavík. Var hún afhent
Reykjavíkurborg 19. júní 1963
og viðbótarbygging 1965, dvalar-
heimili fyrir eldri börn.
Jólamerkin voru lengi vel
prentuð í Danmörku, en síðan
hér heima um skeið, en á árunum
1951-1960 voru þau prentuð í
Englandi. Síðan 1960 hafa þau
verið prentuð hér heima, t.d. hjá
Litmyndum í Hafnarfirði.
Milli 40 og 50 listamenn hafa
teiknað merkin. Má þar t.d.
nefna Jóhannes Kjarval, Barböru
Árnason, Ásgrím Jónson,
Tryggva Magnússon, Ríkharð
Jónsson, Gunnlaug Blöndal o.fl.
í ár kostar merkið 25 kr. stykk-
ið eða örkin með 12 stk. 300 kr.
Akureyrar jólamerkin
Fyrsta jólamerki Kvenfélagsins
Framtíðarinnar er gefið út 1937.
Það var teiknað af Stefáni Jóns-
syni. Myndin er af stúlku með
Ryel kom með þetta merki
hingað. Merkið var til sölu í rúmt
ár og ber áletrunina Gamalmenna-
hælissjóður Akureyrar. Myndin
er af gömlum manni, sem situr á
steini og kirkja í baksýn. Það er í
bláum lit. Ekki er vitað um stærð
upplags né hver teiknaði. Geta
má sér til að það hafi verið Stefán
Jónsson. Ekkert bendir til þess
að þetta hafi verið hugsað sem
jólamerki.
Meiri leyndardómur er yfir
merkinu með myndina af gamla
manninum og bóndabænum
merkt stöfunum SJ og áletruninni
Elliheimilissjóður Akureyrar,
prentað í gulum og bláum lit.
Öruggt er að Stefán Jónsson hef-
ur teiknað þetta merki, það
sanna stafirnir hans. Sennilega er
merkið prentað í POB. Engar
heimildir eru um útgefanda,
upplag, né hvort það var nokk-
urn tíma til sölu. 12 merki voru í
örkinni. Örugg vissa er að jóla-
merkið sem Alice Sigurðsson
teiknaði og kom út 1962 var
teiknað eftir þessu merki. Mynd-
efnið er það sama en áletrunin er
Jólin Akureyri 1962.
Laust fyrir 1980 voru öll þessi
merki til sölu í Frímerkjamið-
stöðinni í Reykjavík. Eitt þeirra
merkja var boðið upp hér á
Akureyri 1977. Nú munu öll
þessi merki seld og dreifð víðs
vegar og metin háu verði og ekki
gott að geta sér til um gangverð
þeirra. Hins vegar mun merkið
frá 1934 vera ennþá til sölu í
verslunum. Miklar líkur eru að
merkið með gamla manninum
hafi verið prentað 1935 eða 1936
og næsta sennilega aðeins sem
próförk.
Líklegt er að konurnar í Kven-
félaginu Framtíðinni sem stóðu
að útgáfu merkisins frá 1934 og
1935/36, hafi ekki verið búnar að
fullmóta hugmyndina um útgáfu
jólamerkjanna. Ágóði af sölu
jólamerkjanna hefur runnið til
elliheimilis eða annarra mannúð-
armála.
Gott málefni
Að lokum þetta: Með því að
kaupa jólamerkin styðja menn
góð málefni og um leið gefa þeir,
með því að setja þau á jólapóst-
inn, bréfum sínum hlýlegri blæ
og jólalegri svip.
Arni Friðgeirsson.
Höfundur er fyrrum ráösmaður Menntaskólans
á Akureyri.
i$M,t Iðjufélagar
nÉsI^ Akureyri og nágrenni
Almennur félagsfundur verður í Alþýðuhúsinu 4.
hæð, þriðjudaginn 29. desember kl. 17.00.
Fundarefni:
1. Uppsögn samninga.
2. Önnur mál.
Stjórn og trúnaðarráð Iðju.
Verslun og
timburnnnsla
verða lokaðar vegna vörulalningar
milli jóla og nýárs
Skrifstofan verður opin
28., 29. og 30. desember frá kl. 09.00-
18.00 og 31. desember frá kl. 09.00-12.00
Opnum aftur
mánudaginn 4. janúar kl. 08.00
Gleðilega hátíð