Dagur - 22.12.1992, Síða 12
12 - DAGUR - Þriðjudagur 22. desember 1992
I
po/tunette®
undirfatnaður er töfrandi léttur.
Einnig náttkjólar í miklu úrvali
Menningarsjóður
útvarpsstöðva auglýsir
Samkvæmt útvarpslögum og reglugerð fyrir Menn-
ingarsjóð útvarpsstöðva er hlutverk sjóðsins m.a. að
veita styrki til eflingar innlendri dagskrárgerð fyrir
hljóðvarp og sjónvarp, þeirri er verða má til menn-
ingarauka og fræðslu.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum.
í umsókn ber að tilgreina eftirfarandi:
- Aðstandendur verkefnis og samstarfsaðila,
- heiti verkefnis og megininntak,
- fjárhæð sem sótt er um og áætlun um heildar-
kostnað,
- áætlun um fjármögnun, þ.m.t. fjárframlög frá öðr-
um aðilum,
- áætlun um framvindu verkefnis og til hvaða verk-
þátta sótt er um styrk til.
Þá skal fylgja umsókn, handrit eða nákvæm lýsing
verkefnis. Sé um að ræða umsóknir um styrki til
verkefna sem sjóðurinn hefur áður styrkt skal fylgja
greinargerð um framvindu þess og með hvaða hætti
fyrri styrkur hefur verið nýttur.
Umsóknum ber að skila til ritara stjórnar, Davíðs
Þórs Björgvinssonar, Lögbergi, Háskóla íslands,
101 Reykjavík, fyrir 10. febrúar nk.
Stjórnin. ________________
Þeim leiddist ekki þessum unglingum þrátt fyrir að utandyra geysaði stórhríð. Myndir: GG
Jólakvöldvaka í Dynheimum:
Hlustað á djass og
gengið kringum jólatré
Jólakvöldvaka var haldin í Dyn-
heimum miðvikudagskvöldið
16. desember. Vegna veðurs
fór dagskráin meira og minna
úr skorðum, m.a. komst sr.
Hannes Örn Blandon prestur í
Eyjafjarðarsveit ekki til Akur-
eyrar tíl að flytja unglingunum
jólahugvekju.
Á kvöldvökunni spilaði djass-
band Tónlistarskólans og enn-
fremur voru flutt atriði frá félags-
miðstöðvunum í Lundarskóla og
Glerárskóla. Mikll söngur var og
allir viðstaddir fengu léttar veit-
ingar, óáfengt jólaglögg og pipar-
kökur. Vegna veðurs þurfti að
aka þeim unglingum til síns
heima sem ekki voru sóttir af
skyldmennum eða vinum. GG