Dagur - 22.12.1992, Síða 16

Dagur - 22.12.1992, Síða 16
16 - DAGUR - Þriðjudagur 22. desember 1992 Jólapakki veiöimannsins Pakki I. Kaststöng Daiwa SGE S-9. Opið hjól Daiwa J 1650X. Jólatilboð kr. 5.312,- Pakki II. Kaststöng Daiwa CR S-9. Opið hjól Daiwa MG 2650 H. Jólatilboð kr. 9.952,- Pakki lll. Kaststöng Daiwa CS 98-9S. Kasthjól Daiwa 600 M. Jólatilboð kr. 15.312, Pakki IV. Flugustöng Daiwa NC 98-8.5 HIC. Fluguhjól Daiwa 708. Flugulína Daiwa Osprey. Undirlína. Jólatilboð kr. 11.844,- ★ Nýtt greiðslukortatímabil Veljið sjálf góðgæti I körfuna Einnig sápur og snyrtivörur Við pökkum í gjafapakkningu * 30L iS0!71'” ■ Starfsfólk Þú fœrð gjafavöruna hjó okkun Ekta kínverskar silkislœður..... kr. 1.160 Ekta kínversk dömunáttföt........ kr. 4.700 Ekta kínverska sloppa........... kr. 4.800 Barnanáttföt.................... kr. 990 Treflar....................... kr. 1.590 Amsterdam sófasett 3+2...........kr. 69.900 Reyrhúsgögn - Stakir stólar. Úrval af gjafavöru og bastkörfum. IB/eiM fí/Hnrá Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 12025. Konur kaupa líka skartgrípi fyrir karla Flosi Jónsson, gullsmiður ákvað snemma að hann skyldi flytjast til Akureyrar. Aðeins drengur á níunda eða tíunda ári og í sumardvöl hjá afa sínum og ömmu á Hjalteyri. Hann sagði að sér hefði strax litist vel sig fyrir norðan og þessi ákvörðun bernskunnar alltaf blundað í sér. „Ég var alveg ákveðinn þegar ég sagði við konuna að nú væri ég búinn að ákveða að flytja norður og hún réði hvort hún kæmi með. Hún lét til leiðast og nú höfum við búið hér á Akureyri í 15 ár og ekkert fararsnið á okkur,“ sagði FIosi, sem rekið hefur gullsmíðavinnustofu sína, Skart, frá því hann tilkynnti konu sinni þessa ákvörðun og þau yfirgáfu Þórsgötuna í Reykjavík. Flosi er uppalinn í Kópavogi en dvaldi oft á Hjalteyri á sumrin. Hann minnist athafnaár- anna á Hjalteyri. Síldarskipin komu og fóru. Gufubólstrarnir og „peningafnykurinn“ stigu upp af verksmiðjunni og strákarnir dorguðu á löndunarbryggjunni milli þess sem bátarnir lögðust að - til að landa silfri hafsins. „Við dorguðum ufsa - það var fullt af ufsa við bryggjumar og þegar við höfðum fyllt eina tunnu þá seld- um við hana fyrir 200 kall til bræðslu í verksmiðjunni,“ sagði Flosi með augljósum söknuði og eftirsjá í röddinni. „Frá þeim tíma hafði ég alltaf ætlað mér að búa fyrir norðan.“ Eftir krókaleiðum í Hafnarstrætið Flosi lærði gullsmíðar hjá Hall- dóri Sigurðssyni, gullsmið og hestamanni á Skólavörðustíg 2 og setti því næst á stofn eigið verkstæði á Óðinsgötunni, skammt frá heimili sínu á Þórs- götunni, þar sem hann vann að gullsmíðum þótt hann opnaði ekki verslun fyrr en á Akureyri. Fyrsta gullsmíðavinnustofa Flosa á Akureyri og sú fyrsta undir nafninu Skart var undir tröppun- um í Glerárgötu 20 - hjá Kristjáni P. Guðmundssyni í Sjóvá. Þar starfaði hann fyrsta árið en keypti þá húsið númer 19 við Strandgötuna, þar sem Óskabúð- in var, og flutti starfsemi sína þangað. Hann kvaðst á þessum tíma hafa leitað með logandi ljósi að húsnæði við Hafnarstrætið - meira að segja talað við Odd Thorarensen í Akureyrarapoteki og falast eftir turninum í Hafnar- strætinu en hann hafi þá ekki ver- ið laus. Flosi bjó, smíðaði og verslaði við Strandgötuna næstu tvö til þrjú árin, þar tii honum bauðst húsnæði í Hafnarstræti 84 - þar sem Tískuverslun Steinunnar hefur verið. Síðar færði hann sig aðeins til í götunni - til suðurs þar sem verslunin Skart er nú til húsa. Flosi fór því eftir nokkrum krókaleiðum í Hafnarstrætið. Margir kaupa trúlofunar- og giftingarhringa ennþá En hvernig tóku „kollegarnir" - aðrir gullsmiðir í bænum - því að fá keppinaut? „Vel,“ sagði Flosi. Hann kvaðst hafa farið til þeirra þegar hann kom til bæjarins og sagt þeim frá hvað hann hefði í hyggju. „Þeim leist strax vel á þetta og í gegnum tíðina hefur þróast ágætt samstarf með okkur. Ég fann strax að Akureyringar kunna að meta skartgripi og verkefnin hafa verið næg.“ Önnnur spurning - svolítið forvitnileg. Trúlofar fólk sig ennþá með hringum? „Já - en ekki í sama mæli og áður. Þó kaupa margir trúlofunar- og gift- ingarhringa. Við eigum þá líka orðið á lager. Áður fyrr þurfti að smíða hringana en nú getum við nánast afgreitt þá á meðan fólkið bíður. Ekkert eftir annað en að grafa innan í þá.“ Og Flosi rifjar upp atvik er kom fyrir hjá læriföður hans á Skólavörðustígnum. „Einhverju sinni kom par inn í búðina hjá honum. Því lá mikið á að trúlof- ast. Yrði að fá hringana afgreidda á stundinni og bað hann um blessun að trúlofuninni lokinni. Hringarnir voru til á lager og snör handhök höfð við að útbúa þá. Einhver falleg orð lét gullsmiðurinn falla er parið hafði dregið þá á fingur og þau hurfu hamingjusöm á svip út á Skólavörðustíginn. “ Gullsmiðurinn er fyrst og fremst handverskmadur Flosi neitar að hafa nokkru sinni blessað ástfangið fólk er sett hafi upp hringa frá honum. Sala á trúlofunar- og giftingarhringum sé þó alltaf ákveðinn hluti af starfseminni í skartgripabúð. Hann kvaðst ætíð reyna að hafa fjölbreytt úrval skartgripa á boðstólum; skartgripi sem kalla megi ódýra, meðaldýra og síðan dýra er hann kýs fremur að kalla erfðaskartgripi. „Þar er oft um að ræða skartgripi sem ganga í erfðir - frá foreldrum til barna. Þá eru vinsældir módelsmíðaðra skart- gripa að aukast. Fólk er farið að leita meira til gullsmiða með sér- stakar hugmyndir og biðja þá að vinna úr þeim. Og það er hinn raunverulegi vettvangur gull- smíðinnar. Gullsmiðir eru fyrst og fremst handverksmenn og geta og eiga að veita þjónustu á því sviði.“ Verðlag Iægra hér á landi Á tímum mikilla umræðna um verðlag hér heima og í borgum annarra landa og tíðra innkaupa- ferða til útlanda berst talið að verðlagi skartgripa hér á landi samanborið við verð í nágranna- löndunum. Flosi segir að verð á skartgripum sé fremur lægra hér á landi en í Evrópu. Hann kvaðst reglulega kynna sér verðlag á skartgripunm erlendis og þá hafi hann rekið sig á verð sem sé allt að tvöfalt hærra miðað við sam- bærilega hluti. Þar gæti verið um einstök tilfelli að ræða en þegar á heildina er litið sé hagkvæmara að kaupa skartgripi hér á landi en víðast hvar í nálægum löndum. Flosi kvaðst áiíta að það byggist fyrst og fremst á lægri álagningu hér á landi. Flest gullsmíðafyrir- tæki séu smá í sniðum - ekki með mikla yfirbyggingu og geti þar af leiðandi boðið vörur á hagstæð- ara verði. Konur kaupa líka skart- gripi fyrir karlmenn En hverjir kaupa skartgripi. Karlmenn fyrir konur - eða eru konur farnar að kaupa skartgripi handa karlmönnum? „Já - konur kaupa líka skartgripi fyrir karlmenn," segir Flosi en bætir við að konur noti þó mikið meira af skartgripum. En það séu alls ekki alltaf karlmenn sem kaupi skartgripina - konur kaupi einnig skartgripi handa konum. Til dæmis saumaklúbbar, sem sam- einist um gjafir handa félaga eða aðrir hópar. Á síðustu árum hafi þó notkun karlmanna á skart- gripum aukist. Nú sé algengt að Þennan hring kaupir líklega einhver karlmaður handa konu, en Flosi segir að konur kaupi einnig skartgripi handa körlum. Flosi Jónsson, gulismiður við vinnu sína. k

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.