Dagur


Dagur - 22.12.1992, Qupperneq 18

Dagur - 22.12.1992, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Þriðjudagur 22. desember 1992 þeim dyr“ „Við erum að reyna að opna - Þroskabraut Fjölbrautaskólans hefur starfað í rúmt ár Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki býður upp á margvíslega möguleika til náms. Meðal annars nýja námsbraut fyrir þroskahefta og seinfæra. Þetta er tilrauna- verkefni og það fyrsta á þessu sviði hér á landi. Nú er rúmt ár síðan Þroskabrautin tók til starfa og fyrstu nemendumir að útskrifast. Af því tilefni leit ég við í kennslustund og átti spjall við kennara, nemendur og skólameistara. Árið 1989 skipaði Mennta- málaráðuneytið starfshóp til að gera tillögu að námstilboði fyrir þroskahefta við Fjölbrautaskól- ann. Miðað var við þrjá hópa, í þroskahefta, seinfæra og brott- fallsnemendur úr framhalds- skóla. Þroskabrautin er tilrauna- verkefni í samvinnu Fjölbrauta- skólans og Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Norðurlandi vestra. Kennsla hófst á haustönn 1991. Skipulag Þroskabrautar Nám á Þroskabraut eru 56 ein- ingar, eða þrjár annir. Það er tekið mið af getu hvers og eins, námið er einstaklingsmiðað, eins og segir í námsvísi. Námið skipt- ist í kjarnanám sem er bóklegt og starfsnám, sem fer fram bæði í skólanum og á vinnustöðum. Starfsþjálfun á vinnustað er í samráði við vinnuveitanda sem skilar skriflegu mati á frammi- stöðu nemandans. Markmiðið með Þroskabraut- inni er að þroskaheftir og sein- færir fái tækifæri til náms við sitt hæfi eftir grunnskóla. Að „auka sjálfstraust nemenda, sjálfstæði og aðlögunarhæfni“, eins og segir í námsvísinum. í skýrslu Önnu Dóru Antonsdóttur sérkennara við deildina fyrir fyrsta námsárið kemur m.a. fram að sumir nem- endur hafi sótt tíma með almenn- um nemendum skólans og að þeir hafi tekið vaxandi þátt í félagslífi í skólanum. Haldnir eru vinnu- fundir hálfsmánaðarlega með kennurum, umsjónarmanni starfs- náms og forstöðumanni sambýlis, en flestir nemenda búa þar. Einnig eru haldnir samráðsfundir þessara aðila, ásamt námsráð- gjafa, aðstoðarskólameistara og sálfræðingi Svæðisskrifstofu. I skýrslu Önnu Dóru kemur fram að aðrir nemendur skólans, svo og kennarar og starfsfólk hafi tekið þessari nýbreytni vel. Fjórar stúlkur hófu nám á Þroskabrautinni 1991 og ljúka námi nú fyrir jól. Þær eru að hugsa um að finna sér vinnu að því loknu, en þrjár þeirra eru reyndar í starfsnámi á vinnustað. Þær vinna á leikskóla, í verslun og í þvottahúsi Sjúkrahússins. Þrír ungir menn hófu nám á brautinni nú í haust. Tillit tekið til einstaklingsins Ég hitti Önnu Dóru Antonsdótt- ur sérkennara að máli og forvitn- aðist um Þroskabrautina. - Hvað eru margir kennarar sem kenna við brautina? „Þeir eru sex með umsjónar- kennara.“ - Eru það sérkennarar? „Nei, enginn nema ég. En ég hef reynt að vera þeim innan handar eins og ég hef getað.“ - Er það rétt skilið að námið miði að því að kenna þessum ein- staklingum að bjarga sér í kerf- inu og að starfa á almennum vinnumarkaði? „Já, það er hárrétt skilið. Þetta miðar allt að því að gera þau sem hæfust til að lifa í okkar þjóð- félagi í dag, sem verður alltaf flóknara og flóknara. Við erum að reyna eins og hægt er að opna þeim dyr inn í það.“ - Hvernig gengur samstarfið við vinnustaðina? „Það gengur ágætlega. Við viljum koma á framfæri þökkum til vinnuveitenda hér á Króknum, hvað þeir hafa tekið þessu vel og sýnt mikinn skilning.“ - Eru einhverjir vinnustaðir umfram aðra sem henta þessum einstaklingum? „Það er alveg ljóst að þeim henta ekki allir vinnustaðir. Við höfum leitað fyrir okkur og tekið tillit til hvernig vinnustaðurinn er og hvort þau muni ráða við eitt- hvert starf þar og þá í samráði við vinnuveitanda. Við teljum að hver og einn geti fundið eitthvert starf við hæfi. Við getum tekið sem dæmi að enda þótt piltur geti ekki orðið bifvélavirki af því að hann getur ekki farið í gegnum allt það nám sem krafist er, þá teljum við samt að hann gæti lært eitthvert ákveðið verk innan þess sviðs sem hann gæti svo unnið við.“ - Hvaða hópar eiga rétt á námi sem þessu? „Við erum að tala um þrjá hópa sem þyrfti að búa náms- aðstæður í framhaldsskóla, sem ég tel að sé ekki um að ræða í dag. Þar er í fyrsta lagi þroska- heftir, öðru lagi seinfærir nemendur úr grunnskóla sem ekki sækja um nám m.v. núver- andi námstilboð og svo eru í þriðja lagi brottfallsnemendur úr framhaldsskóla. Við viljum að þessi námsbraut taki yfir þroska- hefta og seinfæra. Sem sagt, þetta er sértilboð sem við sveigj- um að hverjum og einum innan þessara tveggja hópa. Einstakir nemendur geta farið inn í almenna hópa og tekið ákveðna áfanga og er það metið hverju sinni. Við teljum að áfanga- skólarnir eigi að vera sveigjan- legri að þessu leyti en skólar með bekkjakerfi. Áfangakerfið á að bjóða upp á þetta, og gerir það raunverulega, það er bara spurn- ing um hvernig við nýtum það.“ Þetta á að verða eðlilegur þáttur - Hvernig er staða þessara mála nú? „Það er víða að fara af stað einhver vísir að svona námi í áfangaskólum. Það er í mótun samstarf milli þessara aðila.“ - Hvernig var þetta áður? „Þá var ekkert slíkt. Þá gerðu lögin heldur ekki ráð fyrir því. Þessi möguleiki opnaðist með nýju framhaldsskólalögunum. Þau gera ráð fyrir að allir hafi tækifæri til náms við hæfi í fram- haldsskólum. Þetta er allt sam- kvæmt lögum og reglum, það er bara spurningin hvenær skólinn gerir það sem lögin leyfa.“ - Hvað sérð þú fyrir þér sem fyrirmyndar skipulag? „Ja, þegar stórt er spurt! Mín ósk í þessu sambandi er að þetta verði eðlilegur þáttur í starfi hvers framhaldsskóla. Eins eðli- legur og hvað annað. Að nem- endur geti komið þarna inn og stundað nám við hæfi. Við höfum reynt eins og við getum að láta þessa námsbraut vera eðlilegan þátt í Fjölbrautaskólanum.“ - Taka aðrir nemendur Fjöl- brautaskólans þessum þætti skól- ans vel? „Við höfum ekki orðið vör við annað. Mér hefur fundist það líka hjá starfsfólki, kennurum og öðrum. Þetta er bara ein leið inni í áfangakerfinu.“ - Nú er kominn inn nýr hópur á Þroskabrautina, hefur eitthvað breyst? „Já, já. Þessi hópur er öðru vísi samsettur. Til dæmis er grunndeild málmiðna komin til sögunnar. Það er auðvitað það albesta þegar hægt er að veita verkmenntunina innan skólans sjálfs." - Þér virðist þá að þetta hafi tekist vel? „Við höfum sjálfsgagnrýni því við höldum alltaf samráðsfundi með ákveðnum fagaðilum. Þar eru málin rædd og þar vonum við að komi fram það sem þarf að fara betur. Við lögðum upp með það strax að það yrði að vera gott samráð. Fá sem flesta aðila til að leggja orð í belg.“ - Nýtur þetta skilnings ráða- manna? „Ja, við höfum að minnsta kosti fengið fé í þetta. Það er ekki hægt að neita því að þetta var erfitt fyrst.“ Þeim fínnst þetta sjálfsagt mál Ég ákvað að forvitnast um sjón- armið annarra nemenda og fyrir svörum urðu átta ungmenni, tveir strákar og sex stelpur, sem voru í kennslustund í sálfræði. Þau hafa m.a. verið að ræða um frávik í þjóðfélaginu, og hafa rætt um Þroskabrautina í því sambandi. Afstaða þeirra til veru þroskaheftra og seinfærra í skólanum er mjög jákvæð. Þau telja öll að slík kennsla eigi rétt á sér og þátttaka nemenda á Þroskabrautinni í félagslífi í skólanum sé til hins betra. Þau voru ánægð með samskipti við þessa nemendur. Ég spurði þau hvað þeim fynd- ist um að þroskaheftir ættu sama aðgang að skólanum og þau. Svörin voru á þessa leið: „Ég get ekki séð neitt því til fyrirstöðu, þau hafa rétt til náms. Það hafa allir gott af þessu bæði þau og við. Mér líst vel á þetta, alveg frá- bært að hafa þessa krakka í skólanum.“ Þau kváðust ekki taka neitt sérstaklega eftir veru nemenda Þroskabrautar í skólanum, þau skæru sig ekkert úr. En hvað með þátttökuna? „Þau eru rosalega virk í félags- lífinu, meira en margir aðrir.“ „Þau fara með í ferðir og eru Rakel Brynjólfsdóttir kennir Önnu Höllu Friðriksdóttur matargerð. Itmvötn frá Jvtoments og CjabrieLa Sabatini

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.