Dagur - 22.12.1992, Síða 19

Dagur - 22.12.1992, Síða 19
Þriðjudagur 22. desember 1992 - DAGUR - 19 Anna Dóra leiðbeinir Ornu Kristjánsdóttur, Guðrúnu Onnu Númadóttur og Hrafnhildi Sverrisdóttur við að útfylla skattskýrsluna. með í flestöllu, árshátíðum og svoleiðis." „Þau eiga sinn þátt í því að minnka fordóma gagnvart þroskaheftum þegar maður umgengst þau á hverjum degi.“ - Hvernig haldið þið að við- horfið sé almennt? „Hérna á Sauðárkróki er það örugglega betra en á mörgum öðrum stöðum.“ „Á Siglufirði eru þau í sambýli og vinna í frystihúsinu og þá umgengst fólk þau eins og hverja aðra.“ Þau telja þó að fordómar í garð þroskaheftra hafi verið algengir í þjóðfélaginu og stutt síðan jákvæð umræða hafi skapast. Pað hafi t.d. tekið lang- an tíma að berjast fyrir þessari námsbraut. „Þessi áfangi sem við erum í núna hefur opnað augu okkar fyrir þessu, í sambandi við þá sem eru öðruvísi.“ „Pað er í sjálfu sér ekkert um þroskahefta í námsefninu, en það hefur myndast umræða sem teng- ist svona frávikum." Þetta sagði unga fólkið í Sál- fræði 303 í Fjölbrautaskólanum og taldi jafnvel að það ætti að hafa þroskasálfræði í kjarna- námi, hún væri nauðsynlegra en margt annað. Það styrkir skólann Að lokum heimsótti ég Jón F. Hjartarson skólameistara Fjöl- brautaskólans á skrifstofuna og spurði hann álits á Þroskabraut- inni. „Það stendur í lögum um fram- haldsskóla frá 1988 að þeir skuli vera fyrir alla. Við höfum reynt að sinna þessum markmiðum lag- anna eins og við höfum frekast getað. Því höfum við fagnað tækifæri til þess að sinna þessum nemendum ekki síður en öðrum. Hins vegar má segja að í reynd sé það svo að framhaldsskólinn geti ekki sinnt öllum nemendum. Það vantar annars konar náms- framboð við hæfi í framhalds- skólana. Það þarf að sinna mis- munandi þörfum nemenda. Til dæmis vantar skemmri starfsmið- aðar námsbrautir. Hér fyrr á árum voru framhaldsskólarnir sjálfir með námsskrárgerðina. Síðan tók ráðuneytið þetta í sín- ar hendur og hefur því ekki notið frumkvæðis sem kom frá skólun- um meðan þeir höfðu með þetta að gera. Mér finnst að sjálfsmynd þess- ara nemenda hafi styrkst og það geisli frá þeim ákveðin ánægja og og sjálfstraust. Þetta ræðst tals- vert af því hversu lipurt og lagið starfsfólkið er. Ég er mjög ánægður með það starfsfólk sem sinnir þessum nemendum. Ég geri ráð fyrir að þetta verði við- loðandi viðfangsefni skólans og það styrkir hann. Þetta verður smám saman sjálfsagður hlutur.“ Viðtal: Sigríður Þorgrímsdóttir Vörutalning Lagerinn Austursíðu 2 verður opinn mánu dag- inn 28. desember en lokað verður vegna vöru- talningar þriðjudaginn 29. desember og mið- vikudaginn 30. desember. Pantanir sem eiga að afgreiðast fyrir áramót þurfa að berast í síðasta lagi 28. desember. Gleðileg jól. Efnaverksmiðjan Sjöfn Takið eftir! ^SÍðasta blað fyrir jól kemur út miðviku- daginn 23. desember. Skilafrestur auglýs- inga er til kl. 11.00 þriðjudaginn 22. des- ember. |Milli jóla og nýórs koma út tvö blöð, þriðjudaginn 29. og miðvikudaginn 30. desember. Skilafrestur auglýsinga í þriðjudagsblaðið er til kl. 11.00 mónudaginn 28. desember en fyrir miðvikudagsblaðið er skilafrestur auglýsinga til kl. 11.00 þriðjudaginn 29. desember. t Fyrsta blað ó nýju óri kemur út þriðjudag- inn 5. janúar. auglýsingadeild, sími 24222. Skoðaðu úrvalið í Nestunum Þar er besta verðið vegna samkaupa Olíufélagsins T.d. litaðar Ijósaperur kr. 69 o.fl o.fl. o.fl. fKl Hress hópur í Sálfræði 303.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.