Dagur - 22.12.1992, Síða 20

Dagur - 22.12.1992, Síða 20
m Akureyrí, þríðjudagur 22. desember 1992 „Ö1 él syttir upp um síðir“: Fært í allar áttir - þó skafrenningur á Öxnadalsheiði Allir vegir á Norðuriandi eru nú færir og er öll jólaumferð eftir þjóðvegkerfinu að komast í samt horf. Fært er fram í Bárðardal og austur í Mývatns- sveit um Mývatnsheiði en Kísil- vegurinn verður ekki opnaður að sinni. Fært er um ströndina austur til Kópaskers, Raufar- hafnar, Þórshafnar, Bakka- fjarðar og Vopnafjarðar. Allir vegir í Skagafirði og Húna- vatnssýslum eru orðnir færir en í gær var nokkuð hvasst þar víða og skafrenningur á Öxnadals- heiði en Vegagerðin bjóst ekki við að það yrði til trafala. Mokað hefur verið fram í Svarfaðardal en ófært var búið að vera framan við Svarfaðardal, þ.e. í Skíðadal, síðan föstudaginn 11. desember. Geysilegur snjór er í Skíðadal og 1 komust snjóruðningstæki að Syðra-Hvarfi um miðjan dag á laugardag, að Dæli um kvöldið og að Hnjúki um klukkan tvö aðfaranótt sunnudags en á þess- um þremur bæjum er mjólkur- framleiðsla. Aðeins er stungið í gegn og vegurinn sem djúp göng og því mun skafrenningur á þess- um slóðum fljótlega teppa alla umferð. Hreinn Andrés Hreinsson, bóndi að Syðra-Hvarfi, segir að allir tankar hafi verið orðnir fullir fyrir nokkru og því hafi hann brugðið á það ráð að fóðra kálf- ana á mjólk auk þess sem hann hafi framleitt súrmjólk og eigi nú margra mánaða birgðir af þeirri mjólkurafurð. Með þessu móti hafi hann að mestu komist hjá því að hella mjólkinni niður. Norðurland: Flest skíðasvæðin verið opnuð og aðstæður hinar ákjósanlegustu - skíðasvæði verða opin milli jóla og nýárs ef veður leyfir „Þetta lítur ágætlega út. Ég held að ég muni það rétt að við höfum ekki opnað skíðasvæðið fyrír almenning fyrir áramót síðan 1986,“ sagði ívar Sig- mundsson, forstöðumaður Skíðastaða. ívar sagði að þrátt fyrir tölu- verðan snjó í Hlíðarfjalli væri hann þó ekki mikill miðað við snjóinn sem kyngt hefur niður á Akureyri. Skýringin á því væri trúlega sú að mun hvassara hafi verið í Fjallinu en niður í bæ. í gær var lokað í Hlíðarfjalli vegna veðurs en ef veður leyfir verður opið í dag og á morgun kl. 11 til 16. Milli jóla og nýárs er ætlunin að hafa opið í fjóra daga, 27., 28., 29. og 30. desember kl. 11 til 16. Á Siglufirði fengust þær upp- lýsingar að svo lengi sem vel full- orðnir menn muna hafi skíðalyft- ur ekki verið áður opnaðar á Siglufirði fyrir jól. Á skíðasvæð- inu á Skarðsdal er nú mjög gott skíðafæri og nægur snjór. Aðstæður eru því eins og best @ VEÐRIÐ Veöur fer nú hlýnandi á Norðurlandi þannig að búast má við miklum vatnsaga og hálku á vegum. Á Norðurlandi er spáð vaxandi sunnan- og suðvestanátt og má víða búast við stormi. Jafnframt þessu verður rigning þegar Kður á daginn og kvöldið. verður á kosið. Búið er að ákveða opnun skíðasvæðisins fram að áramótum sem hér segir: Þriðju- daginn 22. desember, Þorláks- messu, annan dag jóla, 27. des- ember, 29. desember, 30. des- ember og á gamlársdag. Alla dagana verður opið kl. 10 til 16. Nágrannar þeirra í Ólafsfirði hafa einnig opnað skíðalyftu ofan bæjarins og þar er sömuleiðis nægur snjór og góðar aðstæður. Verði veður skaplegt er ætlunin að hafa opið milli hátíða og jafn- framt verða göngubrautir troðnar. í Böggvisstaðafjalli ofan Dal- víkur hafa lyftur verið ræstar og þar er nægur snjór. Stefnt er að því að hafa svæðið opið daglega kl. 13 til 17 að frátalinni Þorláks- messu, aðfangadegi, jóladegi, gamlársdegi og nýársdegi. Skíðasvæði Húsvíkinga í Stöll- um var opnað í byrjun desember en vegna tíðarfarsins í desember hefur ekki verið unnt að hafa opið nema í örfáa daga. Skíða- færi er ágætt og því beðið eftir að veðrið verði skaplegra. Ef veður leyfir verður svæðið opið milli hátíða frá kl. 11 til 15 eða 16. Skíðasvæði Blönduósinga í Vatnahverfi hefur ekki verið opnað enn sem komið er. Sigurð- ur Kristjánsson, útibússtjóri á Blönduósi, segir að kominn sé nægur snjór til að opna neðri lyft- una og hún verði jafnvel opnuð fyrir áramót ef tíð haldist góð og ekki geri asahláku. Skíðasvæði Skagstrendinga hefur heldur ekki verið opnað, enda er þar varla kominn alveg nægilega mikill snjór. óþh líka ájólunum Og þegar fernurnar eru tómar má breyta þeim í skemmtilegt I jólaskraut

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.