Dagur - 14.01.1993, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 14. janúar 1993
áS'
Otsato
hefst á morgun,
föstudag
||| EYFJÖHÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
... ...... —n.™ »• '
Líf og fjör
Árshátíð félagsins
verður haldin laugardaginn 30. janúar
í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, 4. hæð.
Miðapantanir í símum 61232 Ásta Dalvík, 21179 Jón,
24054 Elsa, 24682 Ingi, 24243 Þorsteinn.
Panta þarf miða fyrir 22. janúar.
Miðar verða afhentir í Alþýðuhúsinu 4. hæð,
milli kl. 17 og 19, 28. janúar.
Miðaverð kr. 2.500 fyrir félagsmenn.
Borðhaldið hefst kl. 19.30.
Stjórnin.
J
Þorro-
motur
Kjötborðið okkor
tútnor út of
gómsætum þorromot
ó hogkvæmu verði
Við bjóðum velkomna
ungo og oldno,
litlo og stóro,
einstcfeklinga og hópo
Matvöru-
markaðurinn
Kaupangi
Opið virka daga kl. 9-22
Laugardaga og
sunnudaga ki. 10-22
Fréttir
Mjólkurbílar ekki komist fram í Svarfaðar- og Skíðadal
í ijóra sólarhringa:
Ekki mokað þar fyrr en lát
verður á skafrenningniim
Að fenginni reynslu frá því í
desember fóru mjólkurbílar
fram í Svarfaðardal og Skíða-
dal á sunnudag og tæmdu alla
mjólkurtanka kúabænda þar.
Aðfaranótt mánudags lokað-
ist svo vegurinn og hafa mjólk-
urbflarnir ekki komist þangað
aftur til að sækja mjólk en
reyna átti að moka í gærkvöld
ef veður skánaði en talsverður
skafrenningur var á þessum
slóðum.
Að Þverá í Skíðadal rekur
Ingvi Eiríksson minkabú en seg-
ist ekki verða í neinum vandræð-
um strax þar sem fóðurgjöf sé nú
í lágmarki þar sem nýlokið er
slátrun (pelsun) og bústofninn í
lágmarki, en nú eru þar um sex-
hundruð læður. Auk þess notar
Ingvi þurrfóður, en á aðeins
birgðir til nokkurra daga, en seg-
ist gera ráðstafanir til að sækja
fóður til Dalvíkur ef ekki verði
mokað fram í Skíðadal og að
honum fari að kreppa.
„Vandamálið er ekki orðið
neitt ennþá en það er hins vegar
æskilegt að mjókin sé ekki eldri
en fjögurra sólarhringa gömul í
mjólkurtönkum bænda og sumir
eru jafnvel orðnir aðþrengdir
fyrr. Það er stefnt að því að moka
nú ef veður lagast en hér er enn
talsverður skafrenningur og því
ekki skynsamlegt að moka á
meðan. Það verður hins vegar
ekki eins mikið mál að moka nú
og í desember því snjómagnið er
minna nú,“ segir Atli Friðbjörns-
son oddviti á Hóli.
Mjólkurbílar Mjólkursamlags
KEA hafa komist á alla bæi á
samlagssvæðinu eftir helgina að
Svarfaðardal undanteknum, nú
„Ég held að flestir séu ánægðir
með að farið var út í þetta,
allavega heyrist ekki annað. I
sjálfu sér hafa skiptin gengið
vel. Mönnum finnst reyndar
hitavcitan hafa hækkað, en
það er mjög mismunandi, sum-
ir lækka,“ sagði Víglundur
Þorsteinsson, veitustjóri á
Húsavik, aðspurður um reynslu
af breyttu sölufyrirkomulagi á
heita vatninu hjá veitunni.
Víglundur sagði að heildar-
tekjur hitaveitunnar hefðu aukist
um 14%, miðað við fjárhagsáætl-
un í fyrra. Það þyrfti ekki að vera
óeðlilegt þar sem um væri að
ræða gjaldskrárbreytingar og
umframnotkun í bænum, miðað
síðast komust bílarnir í Grýtu-
bakkahrepp og Fnjóskadal á
miðvikudagsmorgun og seinni
hluta dags var búið að moka
heimreiðar að bæjum í Árskógs-
hreppi og Arnarneshreppi þannig
að mjólkurbílarnir komust
þangað. GG
við það sem reiknað var með.
Skipt hefur verið frá hemlakerfi
til mælakerfis. „Áður borguðu
menn ákveðinn skammt en nú
borga menn fyrir það sem þeir
láta renna. Við erum að safna
upplýsingum um stöðuna hjá
mönnum, húsin og annað. Ekki
er farið að vinna úr þeim upplýs-
ingum. Við höfðum áhuga á að
vita hvernig menn nýta vatnið.
Menn eru bæði með potta og
stéttar sem þeir hita upp. Þetta
skekkir myndina þegar verið er
að reikna út hvað húsið þurfi og
skýrir mismunandi mikla notkun.
En við erum ekki að banna
mönnum að nota vatnið,“ sagði
Víglundur. IM
Húsavík:
Breytt sölufyrirkomu-
lag hjá Hitaveitunm
Vísitala framfærslukostnaðar:
Verðbólgan 6,8% á heilu ári
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í janúarbyrj-
un 1993. Vísitalan í janúar
reyndist vera 164,1 stig og
hækkaði um 1,2% frá í des-
ember sl. Vísitala vöru og
þjónustu í janúar reyndist vera
167,1 stig og hækkaði um
1,3% frá í desember.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 2,4% og vísitala vöru
og þjónustu um 3,5%. Undan-
farna þrjá mánuði hefur vísitala
framfærslukostnaðar hækkað um
1,7% og jafngildir sú hækkun um
6,8% verðbólgu á heilu ári. Sam-
svarandi árshækkun vísitölu vöru
og þjónustu er 8,0%.
Áf einstökum breytingum vísi-
tölunnar frá desember til janúar
má nefna að verðhækkun mat-
vöru um 2% olli 0,33% hækkun
vísitölunnar. Þar vó þyngst
hækkun á grænmetisverði og að
sú lækkun á eggjaverði sem fram
kom fyrir jólin, gekk nú til baka.
Verð á áfengi hækkaði að
meðaltali um 1,6% og tóbaks-
verð um 6,3% og olli þetta um
0,13% vísitöluhækkun. Bensín-
verð hækkaði um 7,6%, aðallega
vegna hækkunar bensíngjalds og
hafði það í för með sér 0,3%
hækkun á vísitölu framfærslu-
kostnaðar.
Um áramótin lagðist 14% virð-
isaukaskattur á heitt vatn og raf-
magn til húshitunar. Niðurstaða
þessa ásamt breytingum á niður-
greiðslum og endurgreiðslu á
virðisaukaskatti var sú að húshit-
unarkostnaður hækkaði um 8,5%
að meðaltali og hafði í för með
sér 0,15% vísitöluhækkun. Þá
hækkaði rafmagnsverð af öðrum
ástæðum um 2,1% að meðaltali
og hækkaði það vísitöluna um
0,03%. Lækkun á hlutdeild hins
opinbera í tannlæknakostnaði
barna hafði í för með sér um 11%
hækkun á útgjöldum til tann-
lækninga og 0,13% hækkun vísi-
tölunnar.
Árið 1992 var vísitala fram-
færslukostnaðar að meðaltali
3,7% hærri en árið áður, en sam-
bærileg meðalhækkun var 6,8%
árið 1991 og 14,8% árið 1990.
Vísitala vöru og þjónustu var
árið 1992 4,1% hærri að meðal-
tali en árið áður, en sambærileg
meðalhækkun árið 1991 var 7,1%
og 14,7% árið 1990.
Oddur Carl Thorarensen
erlátinn
Oddur Carl Oddsson Thor-
arensen, apótekari á Akur-
eyri, er látinn, 63 ára að
aldri.
Oddur Carl Thorarensen
fæddist 13. nóvember árið
1929 á Akureyri. Foreldrar
hans voru Oddur Carl Thorar-
ensen, apótekari á Akureyri,
og Gunnlaug Júlíusdóttir.
Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
árið 1950 og sama ár hóf hann
nám við Lyfjafræðingaskóla
íslands. Verknám stundaði
hann í Akureyrar Apóteki,
Laugavegs Apóteki og Oxford
Allé Apotek. Að námi á ís-
landi loknu hélt hann til frek-
ara náms í lyfjafræði til Dan-
merkur og lauk Cand. pharm.
prófi í nóvember árið 1960.
Oddur Carl Thorarensen
var lyfjafræðingur í Akureyrar
Apóteki frá og með nóvember
1960 til 22. júní 1963 þegar
honum var veitt leyfi til rekst-
urs Akureyrar Apóteks. Frá
þeim degi og til dauðadags
hefur Oddur verið apótekari í
Akureyrar Apóteki.
Oddur Carl Thorarensen
tók þátt í félagsstörfum. Hann
var í stjórn Apótekarafélags
dreifbýlisins og átti sæti í
Lyfjamálanefnd. Þá var hann
framkvæmdastjóri og stjórn-
arformaður ýmissa fyrirtækja
á Akureyri.
Árið 1952 kvæntist Oddur
Margréti Ingólfsdóttur, sem
nú er látin. Börn þeirra eru
Ellen f. 1953, Gunnlaug f.
1956, Oddur Carl f. 1958,
Hildur Sólveig f. 1960 og Mar-
grét Steinunn f. 1964. óþh