Dagur - 14.01.1993, Side 5
Fimmtudagur 14. janúar 1993 - DAGUR - 5
Davíðshús á Kristnesi?
- athugasemd við ummæli Davíðs Á. Gunnarssonar,
forstjóra ríkisspítalanna, um Kristnesdeiluna
Eftir að nefnd um málefni Krist-
nesspítala lauk störfum í nóv-
ember sl., lá fyrir að helst mætti
spara í rekstri Kristnesspítala, ef
reksturinn yrði sameinaður Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Af þeim kostum sem fyrir lágu,
var skásti kosturinn að FSA gerði
samning um að yfirtaka rekstur-
inn og reyna að halda áfram
þeirri mikilvægu starfsemi, sem
fram fer á Kristnesi. Heilbrigðis-
ráðuneytið lagði til 100 milljónir
til starfseminnar í stað 140 millj-
óna áður. Með þessu fylgdi, að ef
FSA gengi ekki til samninga á
þessum nótum, yrði Kristnes-
spítali lagður niður eða samein-
aður fyrirhugaðri hæfingardeild á
Kópavogshæli. Pað hefði haft
með sér flutning endurhæfingar-
deildar úr héraði og niðurrif þess
starfs, sem undanfarið hefur ver-
ið komið á legg af mikilli nauð-
syn.
Orlofshús
í samningaviðræðum, sem nú
hafa staðið yfir um að Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri yfirtæki
rekstur Kristnesspítala, kemur sú
krafa frá Ríkisspítölum að þrjár
íbúðir starfsmanna á Kristnesi
verði teknar undir orlofsíbúðir
starfsmanna Ríkisspítalanna.
Annar fulltrúi Starfsmanna-
ráðs Ríkisspítala mun hafa lagt
þessa tillögu fram á fundi stjórn-
arnefndar að eigin frumkvæði og
án þess að fyrir lægju tillögur eða
samþykktir Starfsmannaráðs.
Starfsmannaráð spítala starfar
skv. reglugerð (sbr. Stjórnartíð-
indi B, nr. 413/1973) og í henni er
hlutverki starfsmannaráða lýst
tæmandi. Orlof og orlofshús
heyra undir kjaramál og eru ekki
í verkahring starfsmannaráða,
heldur hinna ýmsu verkalýðsfé-
laga.
Hluti starfsmanna Ríkisspítala
mun hafa stofnað félag um orlofs-
íbúðir og hafa til umráða slíkar í
Skorradal og á Suðurlandi. Um
400 starfsmenn greiða gjald til
þess félags.
Fulltrúi Starfsmannaráðs í
stjórnarnefnd Ríkisspítala á að
sjálfsögðu að vinna stofnuninni
allt það gagn, sem hann má og
koma í því sjónarmiðum starfs-
manna á framfæri. Sá fulltrúi á
hins vegar ekki að misnota að-
stöðu sína til að sölsa starfs-
mannaíbúðir í ríkiseign undir
orlofsíbúðafélag hluta starfs-
manna Ríkisspítalanna. Það er
fyrirgreiðslupólitík á lágu plani.
Þáttur Davíðs
Engu að síður sækir forstjóri
Ríkisspítalanna, Davíð Á.
Gunnarsson, þetta af meiri ákefð
en nokkuð annað mál, síðan hon-
um mistókst að leggja Kristnes-
Friðrik E. Yngvason.
spítala niður. FSA-Kristnes sam-
einað þarf á hverri einustu tutlu
að halda til að klára rekstur
næsta árs. FSA leigir og endur-
leigir íbúðir til þess að geta feng-
ið til starfa aðstoðarlækna og
sjúkraþjálfara ásamt fleira fag-
fólki. Starfsmannaíbúðir að
Kristnesi ráða oft úrslitum um
ráðningu fagfólks þangað. Að
leggja starfsmannaíbúð undir
orlofsgesti, er að spilla möguleik-
um þess að halda uppi þjónustu
við sjúklinga.
Þjónusta við sjúklinga hefur
hjá stjórnum FSÁ gengið fyrir
gælum við starfsfólk. Pannig hafa
tvö starfsmannahús FSA verið
lög fram og gjafir og söfnunarfé
breytt þeim í 30 rúma hjúkrunar-
deild, sem kallast Sel. Þegar
stjórn FSA talar um þjónustu við
sjúklinga, fagfólk og endurhæf-
ingu, talar forstjóri Ríkisspítal-
anna um þrjár orlofsíbúðir. Það á
ekkert skylt við heilbrigðisþjón-
ustu með knappar fjárveitingar.
Forstjóri Ríkisspítalanna lætur
síðan móðan mása á 2. síðu
Dags 9/1 ’93. Hann hefur áhyggj-
ur af því, að tengsl Landspítalans
við landsbyggðina muni rofna.
Það er vissulega mikið áhyggju-
efni ef Davíð sjálfur og toppar í
stjórn Ríkisspítalanna hætta að
sjást á hlaðinu á Kristnesi eins og
verið hefur, þegar þeir hafa feng-
ið gestaíbúð þar til afnota. Önn-
ur tengsl við deildir Landspítal-
ans eru hins vegar góð, byggja á
fagmennsku, gagnkvæmu trausti
og áhuga á bestu meðferð sam-
eiginlegra sjúklinga.
Hugmyndir Davíðs um að
orlofsíbúðir á Kristnesi veiti
möguleika á sérfræðiaðstoð til
FSA eru til þess eins að slá ryki í
augu fólks. Ef Davíð á við sér-
fræðilækna, virðist hann halda að
Norðlendingum sé næg slík þjón-
usta í orlofsferðalögum.
Ef stjórnendur Ríkisspítalanna
vilja umbuna sínum starfsmönn-
um í orlofsmálum, sem vel getur
verið maklegt, er rétti vettvangur
þess kjarasamningar.
Fað eru drambsamar kröfur og
ósæmilegar af Ríkisspítalanna
hálfu, sem nú hafa stöðvað samn-
inga um yfirtöku á rekstri Krist-
nesspítala.
Friðrik E. Yngvason.
Höfundur er formaður Læknaráðs FSA
og formaður Starfsmannaráðs FSA 1987-
1991.
Fatasöfnun
Fatasöfnun vegna bágstaddra í gömlu
Júgóslavíu verður fimmtudaginn 14. janúar.
Móttaka á fötum veröur í anddyri íþróttahallarinnar
frá kl. 14.00-22.00.
Æskilegt er að fötin séu flokkuð á eftirfarandi hátt:
A) karlmannsföt, b) kvenmannsföt, c) ungbarnaföt
0-4ra ára, d) föt á börn eldri en 4ra ára.
^ RAUÐt KROSS ÍSLANDS -
<JÍT HJÁLPARSTOFNUN
\jrJ KIRKJUNNAR
^ - mel þinnl þjálp
YAMAHA
VELSLEÐASYNING
Yamaha á Akureyri
Opið hús frá kl. 13-17
nk. laugardag og sunnudag
★ Reynsluakstur
Möldur hf.
söludeild, sími 21715, Tryggvabraut 10.
l
UTSALA JTSALA •UTSALA
★ Mikil verðlækkun
★ Komið og gerið I llerrabodiin
goð kaup ] I Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.