Dagur - 14.01.1993, Síða 12
TT
XTT
REGNBOGA
FRAMKOLLUN
Akureyri, fímmtudagur 14. janúar 1993
Hafnarstræti 106 • Sími 27422
‘Tiítna
Wxr
Akureyrin veiddi rúm 4000 tonn á síðasta ári. Aflaverðmæti Akureyrinnar var rúmur hálfur milljarður króna.
Mynd: ÞB
Húsavík:
Nýting á slógi til
uppgræðslu í athugun
Húsavíkurbær hefur óskað eft-
ir því við Rannsóknastofnun
fískiðnaðarins að komið verði
á samstarfsverkefni um að nýta
slóg til áburðar og uppgræðslu.
Ekki hefur borist svar frá
stofnuninni við bréfí bæjar-
stjóra en verulegur áhugi fyrir
uppgræðslumálum er á Húsa-
vík.
Nýlega var haldinn fundur í
bæjarráði um umhverfis- og land-
græðslumálefni. Sveinn Runólfs-
son, landgræðslustjóri og Sveinn
Þórarinsson frá Krossdal mættu á
fundinn auk bæjarráðsmanna og
manna frá Húsgulli og Umhverf-
ismálaráði.
Rætt var um samstarfsverkefni
Afli og aflaverðmæti togara Samheija hf. á Akureyri:
Aflaverðmæti Akureyrirmar EA var
rnn hálfur milljarður á síðasta ári
- aflaverðmæti togara fyrirtækisins um 1,7 milljarður
og heildaraflinn rúm 14 þúsund tonn
Aflaverðmæti togaranna sex
sem Samherji hf. á Akureyri
gerir út, var rúmlega 1,7 millj-
arður króna á síðasta ári. Afla-
verðmæti togara fyrirtækisins
er gefið upp miðað við svokall-
að FOB verð en þá er búið að
draga frá kostnað við útflutn-
ing. Þorsteinn Már Baldvins-
son, framkvæmdastjóri Sam-
herja, sagðist í samtali við Dag
vera þokkalega ánægður með
þessa útkomu. „Miðað við það
sem ég átti von á í byrjun síð-
asta árs, þá er þetta ekki langt
frá lagi og ég er sæmilega
sáttur,“ sagði Þorsteinn Már.
Frystitogarinn Akureyrin EA
skilaði lanjmestu aflaverðmæti
einstakra togara fyrirtækisins,
eða um 496 milljónum kr. Akur-
eyrin EA fór í 15 veiðiferðir á
síðasta ári og skilaði á land rúm-
um 4.118 tonnum. Úthaldsdagar
togararans voru 307 og skipta-
verðmætið var rúmar 368 millj-
ónir kr. Árið 1991 var aflaverð-
mæti togararans um 600 milljónir
kr. og um 700 milljónir árið 1990
og hefur aflaverðmæti togarans
því lækkað um 200 milljónir á
tveimur árum.
Aflaverðmæti Víðis EA á síð-
asta ári var rúmlega 352 milljónir
kr. og skiptaverðmætið rúmlega
261 milljón kr. Afli Víðis var
rúmlega 3.700 tonn, togarinn fór
í alls 15 veiðiferðir og voru
VEÐRIÐ
Loksins virðist lægðarskömm-
in, sem hrellt hefur landsmenn
að undanförnu, vera að gefa
sig. í dag er spáð hægri norð-
vestanátt á Norðurlandi oa
frosti á bilinu 2-8 gráður. Á
morgun er spáð hægri
norðanátt, en um helgina gerir
Veðurstofan ráð fyrir hægri
breytilegri átt og kólnandi
veðri, frost verður á bilinu 5-15
stig.
úthaldsdagar 303,1.
Aflaverðmæti Margrétar EA
var tæpar 316 milljónir kr. og
skiptaverðmæti rúmar 230 millj-
ónir kr. Margrét EA fór í samtals
16 veiðiferðir á árinu og var bæði
á rækju- og bolfiskveiðum.
Úthaldsdagar voru 310 og
heildaraflinn um 2.160 tonn.
Rækjuaflinn var tæp 1.300 tonn
og aflaverðmætið um 170 millj-
ónir kr. Bolfiskaflinn var rúm-
lega 875 tonn og aflaverðmætið
tæpar 146 milljónir kr.
Aflaverðmæti Hjalteyrinnar
EA var tæpar 285 milljónir kr. en
togarinn var bæði á rækju- og
bolfiskveiðum. Heildaraflinn var
um 2.045 tonn í 19 veiðiferðum
og úthaldsdagar 293,8. Rækju-
aflinn var rúmlega 467 tonn og
aflaverðmætið tæpar 96 milljónir
kr. Bolfiskaflinn var rúmlega
1.577 tonn og aflaverðmætið tæp-
ar 189 milljónir kr. Heildar-
skiptaverðmætið var tæplega 209
milljónir kr.
Aflaverðmæti Oddeyrinnar
EA var rúmlega 235 milljónir
kr., aflinn rúmlega 2.112 tonn og
skiptaverðmætið rúmlega 174
milljónir kr. Oddeyrin EA fór 16
Forráðamenn rússneska útgerðarfyrirtækisins Udamik
væntanlegir í heimsókn:
Æfla að kynna sér þjónustu sem
í boði er fyrir sjávarútveginn
Undir lok þessa mánaðar er
von á framkvæmdastjóra rúss-
neska sjávarútvegsfyrirtækis-
ins Udarnik hingað til lands í
þeim erindagjörðum að kynna
sér þá þjónustu sem hér er í
boði fyrir sjávarútveg, þar á
meðal viðhald á skipum.
Udarnik er útgerðarfyrirtæki
samnefnds frystitogara sem
landaði afla sínum á Húsavík í
vikunni.
„Hugsunin hjá okkur er sú að
selja þessum aðilum ýmsa þjón-
ustu og viðhald á skipum. Mér er
kunnugt um að þeir kaupa net og
annað slíkt í Noregi, en þau geta
þeir alveg eins keypt hér á landi,“
sagði Ásgeir Arngrímsson hjá
Fiskmiðlun Norðurlands á
Dalvík. „Ef framhald verður á
þessum viðskiptum tel ég raun-
hæft að þeir leiti eftir þjónustu
hér,“ sagði hann.
Udarnik landaði um 100 tonn-
um af bolfiski á Húsavík í vik-
unni og segir Ásgeir að þarna
hafi verið um að ræða ágætis fisk,
töluvert af aflanum hafi verið yfir
5 kílóa fiskur. Hluti aflans verður
saltaður en bróðurparturinn unn-
inn í blokk hjá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur.
Ásgeir segir að þegar allt er
talið hafi Fiskmiðlun Norður-
lands staðið fyrir kaupum á 1500
til 1600 tonnum af fiski úr rúss-
neskum frystitogurum. Verðið
hefur farið lækkandi og sé nú um
1500-1600 dollarar fyrir tonnið og
um 1700 dollarar fyrir tonnið af
stærsta fiskinum. Ásgeir segir
ekki ljóst um framhaldið, en
ýmislegt sé í deiglunni í þessum
efnum, jafnvel sala á þessum fiski
til annarra landa. „Framhaldið
veltur töluvert á verðþróuninni á
um landgræðslu í Húsavíkur-
landi, og hugsanlega vinnu fyrir
styrkþega Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs á komandi sumri. Tölu-
verð umræða varð um nýtingu
Húsavíkurlands til beitar og
hvort ekki sé nauðsynlegt að
endurskoða núgildandi reglugerð
um búfjárhald í bænum. IM
veiðiferðir á árinu og úthaldsdag-
ar voru 301,9.
Baldvin Þorsteinsson EA, hinn
nýi og glæsilegi frystitogari Sam-
herja hf., sem kom til landsins í
nóvember sl., fór eina veiðiferð á
síðasta ári og stóð hún í 26 daga.
Aflaverðmæti togarans í þeirri
ferð var um 28,5 milljónir kr.,
skiptaverðmætið rúmar 21 millj-
ón kr. og aflinn rúm 247 tonn.
Sem fyrr segir er brúttó-
aflaverðmæti togara Samherja
rúmlega 1,7 milljarður og
heildaraflinn rúmlega 14 þúsund
tonn. -KK
blokkinni í Bandaríkjunum og
hráefninu frá Rússunum,“ sagði
Ásgeir.
I grein í norska blaðinu
Fiskaren nýverið var fjallað um
kaup Norðmanna á fiski af rúss-
neskum frystiskipum og kom þar
fram að Norðmenn hafi ekki
keypt þennan fisk á liðnu hausti
vegna þess m.a. að hann hafi
ekki uppfyllt gæðakröfur. Ásgeir
segir að þetta komi ekki heim og
saman við þær upplýsingar sem
hann hafi. Fyrir stuttu hafi norsk-
ir aðilar m.a. keypt 1200 tonn af
þessum rússafiski.
Rússneska togaranum sem
landaði á Húsavík í vikunni var í
gær siglt áleiðis til Tromsö í Nor-
egi þar sem hann tekur veiðar-
færi. Þaðan verður haldið til
Murmansk í Rússlandi þar sem
áhöfn skipsins fær langþráð frí.
óþh
Raufarhöfn:
smábátahöfhina
Veður var mjög skaplegt á
Raufarhöfn í noröaustan-
áhlaupinu sem fór yfír land-
ið í vikubyrjuninni en
aðfaranótt þriðjudagsins
hvessti þó nokkuð og varð
nokkuð tjón í smábátahöfn-
inni er brimið gekk yfír
varnargarð og rauf skarð í
hann. Ekkert tjón varð á
bátum.
Nokkur snjór er í þorpinu
og var byrjað að moka í gær-
morgun helstu umferðargötur.
Umræður um fjárhagsáætlun
er skammt á veg komnar að
sögn Guðmundar Guðmunds-
sonar sveitarstjóra þvf beðið
hefur verið eftír endanlegri
afgreiðslu Alþingis á fjárlög-
um 1993, en fyrsti vinnufund-
ur á þessi ári um fjárhagsáætl-
un verður í næstu viku og
verður reynt að hraða þeirri
vinnu eftir föngum. Fjárfrek-
asta framkvæmd Raufarhafn-
arhrepps á nýbyrjuðu ári verð-
ur bygging fþróttahúss, sem að
vísu er háð samþykki Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga. Enn-
fremur verður unnið við að
færa Höfðabraut og leggja síð-
an varanlegu slitlagi, en hún
liggur frá aðalgötunni og út að
smábátahöfninni. Skólahús-
næðið þarfnast lagfæringar og
verður einhverjum fjármunum
varið f því skyni auk þess sem
lokið verður við að klæða
hótelið að utan en það verk
stendur yfir núna. GG
enn
Lögreglan á Siglufiröi hefur
yfirheyrt nokkra cinstakl-
inga vegna Lödu-málsins
svokaUaða, en eins og fram
kom í blaðinu í gær er engu
iíkara en að eigandi Lödu
Sport á Siglufírði sæti
ofsóknum.
Bíllinn hefúr ítrekað verið
skemmdur og aðfaranótt
þriðjudags eða á þriðjudags-
morgun var reynt að kveikja í
honum. Lögreglan sagði í gær
að málið væri ennþá til rann-
sóknar og varðist allra frétta.
Sagði þó að nokkrir hefðu ver-
ið yfirheyrðir vegna málsins.
óþh