Dagur - 20.01.1993, Blaðsíða 6

Dagur - 20.01.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 20. janúar 1993 Spurning VIKUNNAR Ertu sátt(ur) við lyktir EES málsins, afgreiðsluna á Alþingi og undirskrift forseta Islands? Þorgeir Magnússon: Ég er ekki sáttur við það, hvorki afgreiðsluna á Alþingi né afstöðu forsetans. Ég hefði vilj- að láta þjóðina segja sitt álit á þessu. Gunnar Hafdal: Nei, ég er ekki sáttur, ekki við afgreiðsluna á Alþingi og taep- lega við afstöðu forsetans. Eg var alveg á móti og vildi endi- lega að það yrði þjóðar- atkvæðagreiðsla. Kristín Baldursdóttir: Nei, ég vildi ekki EES samning- inn. Ég veit ekki hvort ég vildi þjóðaratkvæðagreiðslu, en ég vildi að þingmenn hefðu metið þetta betur og forsetinn staðið sig. Þorgrímur Sigurðsson: Ég er ekki sáttur. Ekki við afgreiðsluna á Alþingi, en ég veit ekki hvort átti að láta málið brjóta á forsetanum, svo ég er sáttur við hennar afstöðu. Ég er frekar á móti án þess að hafa kynnt mér alla þætti málsins, hef ekki tíma til að setja mig inn í það sem skyldi. Ég vildi þjóðaratkvæði, ekki síst vegna þess að þá hefði málið verið kynnt vel. Þorgerður Kjartansdóttir: Ég er ekkert sátt við það. ( fyrsta lagi finnst mér að mátt hefði bera þetta undir þjóðar- atkvæði, eins og farið var fram á, og svo held ég að við séum að gera einhverja vitleysu. Ég vil ekki selja landið okkar. Tónlist Fiðla og píanó Miðvikudaginn 14. janúar efndu erlendir tónlistarmenn til tón- leika í Safnaðarheimili Akureyr- arkirkju. Hér voru á ferð tveir Pólverjar: Krzysztof Smietana, fiðluleikari, sem nú starfar í Bretlandi og kennir við Guildhall School of Music and Drama auk þess sem hann kemur fram á tón- leikum, og Jerzy Tosik-Warszaw- iak, píanóleikari, sem í vetur starfar við Tónlistarskóla Borg- arfjarðar, en á sér glæsilegan feril í heimalandi sínu. Báðir þessir menn eru margfaldir verðlauna- hafar hvor á sínu sviði tónlistar- flutnings. Því miður kom undirritaður ekki á tónleikana alveg við upp- haf þeirra og voru listamennirnir að leika síðasta hluta fyrsta verksins á efnjsskránni, Allegro molto þáttinn í Sónötu í a-moll ópus 23 eftir L. v. Beethoven. Þó ekki væri tækifæri til þess að hlýða á meira af verkinu en þessu nam, mátti þegar greina, að hér voru á ferð listamenn, sem full ástæða er til að veita athygli og láta ekki fram hjá sér fara, þegar tækifæri gefst til þess að heyra á. Annað verkið á efnisskrá tón- listarmannanna var 5 melódíur ópus 35 eftir S. Prokofieff. í þess- um smálögum leiðir tónskáldið saman píanóið og fiðluna á skemmtiíega fjölbreyttan hátt og gerir strangar kröfur til samleiks og nákvæmni. Hvert smálagið var öðru betur leikið, svo að unun var á að hlýða. Legenda ópus 17 eftir H. Wieniawski var næst á tón- leikaskránni. 1 samræmi við nafnið ber verkið blæ þjóðsögunnar. Það er hugljúft og fagurt, fullt af unaði og ástríðu, sem kom vel til skila í fagurmótuðum hendingum fiðlunnar og ekki síður í undir- leik og túlkun píanósins, sem ætíð var í góðu samræmi við flutning einleikarans. Síðasta verkið fyrir hlé var Dans úr ballettinum Harnasie eftir K. Szymanowski. Upphaf verksins er seiðandi og allt að því friðsælt, en er á það líður eykst þróttur þess og spenna þar til það rís langa og glæsilega kadensu. Verkið krefst mikillar næmni flytjenda og skorti hana ekki hjá tónlistarmönnunum tveim. Eftir hlé fluttu Krzysztof Smietana og Jerzy Tosik-Warsz- awiak hina þekktu Sónötu í A- dúr eftir César Frank. Þetta glæsilega verk virtist vaxa og auk- ast í flutningi listamannanna. Það hlaut víddir, sem sjaldan heyrast, en búa í verkinu, þegar þeir um fjalla, sem vel kunna til blæ- brigða hljóðfæra sinna, þekkja styrk þeirra og nýta hann til náinnar túlkunar. Lítils háttar skugga bar á í síðasta hluta verksins; Allegretto poco mosso, en þar kom fyrir þar sem styrkur varð mestur í hinum volduga flygli Tónlistarfélags Akureyrar, að fiðlan mátti sín ekki sem skyldi í innkomum sínum. Tónleikar Krzysztofs Smietan- as og Jerzys Tosik-Warszawiaks voru glæsilegir. Áheyrendur, sem voru allmargir, klöppuðu lista- mönnunum verðugt lof í lófa en þeir fluttu tvö aukalög. Þeir tón- listarunnendur, sem af einhverj- um ástæðum urðu af þessum at- burði, mega naga sig í handar- bökin. Þeir misstu af verulega góðum tónlistarviðburði. Haukur Agústsson. Kvikmyndarýni Þegar nefið fer ofan í rangan kopp Borgarbíó sýnir: Patriot Games. Leikstjóri: Phillip Noyce Aðalhlutverk: Harrison Ford, Anne Archer og Patrick Bergen. Paramount 1992. Hrun Sovétríkjanna kann að koma sem himnasending fyrir æsta frjálshyggjumenn, sem telja sig þar með hafa fengið óræka sönnun þess að kommúnisminn sé kerfi hins glataða málstaðar. Og gott betur því að í sömu andránni spyrða þeir saman alla jafnaðar- stefnu, hverju nafni sem hún nefn- ist, og segjast hafa óhrekjanlegar sannanir fyrir því að hún sé eins og kapall þar sem ásamir finnast ekki enda hafi þeir aldrei verið í spilastokknum. Aðrir eru hófsamari í ánægju sinni yfir falli Berlínarmúrsins. Rithöfundar, eins og til dæmis John Le Carr og Tom Clancy, neyðast til að finna sér annan og spónnýjan söguvettvang - oftar en ekki verða hryðjuverkamenn af ýmsu tagi fyrir valinu. Afleiðingin verður sú að í Hollywood hafa menn nú á allra síðustu tímum tekið að átta sig á tilvist öfgasam- taka sem svífast einskis til að ná fram vilja sínum. Þetta er kannski svolítil tímaskekkja þar sem sein- asti áratugur 20. aldarinnar getur varla, að minnsta kosti ekki enn- þá, kallast blómatími kaldlyndra hugsjónamanna. Og ég spái því að þeir munu ekki ganga í endumýj- un lífdaganna fyrr en á næstu öld þegar sjokkið vegna falls Sovét- rfkjanna verður byrjað að fjara út og augu vinstrisinna að opnast fyrir því að hugsjónin þarf ekkert endilega að deyja þó fyrsta til- raunin mistakist. Hversu mörg af- hroð hefur ekki kristin trú beðið og lifir þó enn? Einn er sá staður í Evrópu sem nærir og viðheldur í hryllilegum stöðugleika öllum skelfingum terrorismans eins og hann gerist verstur. Um það sjá frændur okkar írar. Þetta ástand hefur Tom Glancy fært sér í nyt og skrifað um það bók sem kvikmyndin Patriot Games er sprottin upp af. Engu að síður er sögusviðið bandarískt en með bresku og írsku ívafi. Banda- rískur háskólaprófessor, og fyrr- verandi CIA-maður (Harrison Ford), er komin til London að flytja fyrirlestur. Þar verður hann vitni að tilraun hryðjuverkamanna til að ræna aðalsmanni og fær um leið tækifæri til að sanna karl- mennsku sína og bjarga fómar- lambinu frá illum örlögum. í leið- inni drepur hann einn illvirkjanna og kemur öðmm á kné. Svo illa vill til að um bræður er að 'ræða og sá sem eftir lifir sver sig heldur betur í ætt við íslenska fommenn og hugsar upp frá því ekki um annað en að ná sér niðri á Banda- ríkjamanninum. Og þar hafið þið stef myndarinnar. Til að fá meira og stærra hljómsveitarverk er slegið á sí- gildar nótur. Bandaríkjamaðurinn lifir einföldu og hamingjusömu fjölskyldulífi, er heiðarlegur og góður í ýtrasta skilningi þess orðs. Hann ræktar garðinn sinn en er ekki sífellt að skattyrðast við ná- grannann yfir óræktinni í garði hans. Engu að síður hefur þessi bandaríski almúgamaður sterka réttlætiskennd, svo sterka að hann hikar ekki við að tefla lífi sínu í tvísýnu ef honum finnst brotið á samferðarmönnum sínum. Svo ég tali nú ekki um þau ósköp er ger- ast ef einhver gerist svo fífldjarfur að ógna fjölskyldu gæðablóðsins. Þegar litið er á Patriot Games í stærra samhengi sést þar meira en örla á hugmyndinni um einhvers- konar yfirþjóðlegan lögreglumann sem getur auðvitað ekki verið nema bandarískur vegna allra framantaldra kosta er prýða hinn venjulega Bandaríkjamann. Handverkshópur milli heiða: Bárðdælskar konur á myndlistanámskeiði Kvenfélagið Hildur í Bárðardal stóð fyrir námskeiði um síð- ustu helgi þar sem þátttakend- um var kennt að teikna og fara með liti. 8 konur tóku þátt í námskeiðinu sem teljast verð- ur allgott í ekki stærra sveitar- félagi. Það var Kristjana Arndal lista- maður á Akureyri sem leiðbeindi konunum í Bárðardal í teikni- æfingum, litaæfingum, gerð óhlut- bundinna myndverka, gerð hlut- bundinna myndverka o.fl. Það er þó ekki alveg nýlunda að haldið sé myndlistanámskeið í Bárðar- dal, því listamaðurinn Örn Ingi hefur komið þar áður og kannski kveikt þann neista sem smám saman hefur orðið að svolitlu báli. í fyrra var markaði Hand- verkshóps milli heiða hleypt af stokkunum, sem hefur rekið markað með handunnar vörur á Fosshóli yfir háferðamannatím- ann á sumrin. Þetta myndlista- námskeið er því gott innlegg í það að auka fjölbreytni í því vöruvali sem ferðamönnum stend- ur til boða í verslun handverks- hópsins á Fosshóli. Guðrún Sveinbjörnsdóttir á Mýri, for- maður Kvenfélagsins Hildar, seg- ir það nauðsynlegt að geta stöðugt boðið upp á eitthvað nýtt á mark- aðnum og þetta námskeið hafi'. vissulega örvað sköpunargleði kvenna í Bárðadal en vetrartím- inn er notaður til að framleiðslu og undirbúnings fyrir sumar- vertíðina. Markaðurinn var ekki auglýstur sl. sumar í neinum ferðabæklingum enda var hug- myndin sú að sjá hvernig til tæk- ist áður en teknar yrðu ákvarðan- ir um frekara framhald og mót- tökurnar í sumar hafa vissulega hvatt konurnar til þess. Hand- verkshópurinn hélt jólamarkað sem gekk mjög vel. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.