Dagur - 20.01.1993, Side 7
Miðvikudagur 20. janúar 1993 - DAGUR - 7
Minning
cjU Ingimar Eydal
U Fæddur 20. október 1936 - Dáinn 10. janúar 1993
Fagrar myndir ljóma af Ingimari
Eydal í blámóðu minninga
minna. Þær lýsa á skilnaðarstund
og fylla mig þakklæti fyrir að hafa
mátt njóta vináttu hans og verða
fyrir áhrifum af honum.
Við kynntumst á því viðkvæma
aldursskeiði í lífi mínu, þegar
heimurinn var hvítur eða svartur,
menn voru algóðir eða ómögu-
legir, fádæma dirfska birtist í að
vera með bítlakoll og maður
laumaðist til að leika eftir eyranu
og bæta bláum tónum, sjöundum,
níundum, og svolitlu „offbíti“ í
eyrnakonfektsuppskrift í annars
hefðbundnu tónlistarnámi.
í óvissunni um sjálfan mig,
rétta eða ranga tónlist, hvort hin-
ir heitu tónar sveiflunnar og
krydduðu hljómar þyldu dags-
birtu kom Ingimar inn í líf mitt.
Ég var formaður fyrir fámennu
tónlistarfélagi MA 1962-1965 og
við urðum okkur m.a. úti um
hljómplötur á Ameríska bóka-
safninu í Geislagötu til að færa út
landhelgi tónlistarheims okkar
félaga. Á safninu var djassinn og
klassísk tónlist í sömu rekkum á
ósköp jafnaðarlegu plani og
þessu áttum við ekki að venjast.
Jafnræði þessara jurtategunda
í lystigarði tónanna varð svo
endanlega innsiglað í huga mín-
um þegar Ingimar kynnti fyrir
okkur, lék alla stílana, talaði eins
og honum var einum lagið um
Ellington, Count Basie, Monk,
Coleman og alla hina svo vel að
maður gat búist við að mæta
þeim í kaupfélaginu næsta dag.
Ekki dugði að vera venjulegur
áheyrandi í viðurvist slíks manns
og fyrst maður blés ekki í lúður
og píanistum ofaukið, þá varð að
láta eigin barka hljóma.
Við stofnuðum kvartett sem
við vorum feimnir að gefa nafn,
því það hefur aldrei verið til
nema einn MA kvartett. Fljót-
lega nutum við aðstoðar Ingimars
og sveiflan fór að aukast.
„Hvernig líst ykkur á þetta
strákar; Deep river boys sungu
þetta svona um árið,“ svo fylgdi
hlómandi dæmi, fínt! Úsetningar
fæddust á staðnum, og hvort sem
það voru Djúpárdrengir eða
Glerárstrákar þá smitaði Ingimar
okkur af sannri söng- og lífsgleði
svo við urðum aldrei samir.
Þetta rifjaðist upp þegar við
tókum upp þráðinn á 25 ára
stúdentsafmæli okkar 1990, og
sungum á fyrstu MA90 hátíðinni
í íþróttahöllinni á Akureyri og
sem fyrr var Ingimar driffjöðrin.
Ingimar var ekki einhamur og
það var hreint með ólíkindum
hve vítt hans áhugasvið spann-
aði, en velferð fólks, umhyggja
fyrir náunganum og friður á jörð
tengdust oftar en ekki áhugamál-
um hans.
Þegar ég kom að utan frá tón-
listarnámi og hóf kennslu á
Akureyri þá var ég með eitt og
annað í farteskinu sem mér þótti
ekki beint árennilegt sem kennslu-
efni fyrir börn og unglinga.
Eitt af því var tónverk eftir
Krzysztof Penderecki er hann
samdi til minningar um þann
hildarleik, sem hlaust af atóm-
sprengju þeirri sem varpað var á
Hiroshima en þá ógn og skelfingu
málar hann nístandi tónalitum.
Ég átti bæði upptöku og nótur
af verkinu og vakti hvorutveggja
mikinn áhuga hjá Ingimari sem
kennsluefni fyrir nemendur í
Gagnfræðaskóla Akureyrar í
bland við bítlatónlist og kenndi
hann þetta efni með góðum
árangri í mörg ár.
Þar fann Ingimar að áhrif tón-
listarinnar eru ekki einasta gleði,
því þau spanna allt lífssviðið, og
geta jafnvel speglað og magnað
hið voveiflega og átt m.a. það
erindi að forða okkur frá hinu
illa.
Það er svo margs að minnast
og margt að þakka.
Samstarf í stjórn Tónlistarfé-
lagsins um áraraðir, kaffiumræð-
ur og alla bollana sem boðnir
voru en ekki tími til að drekka.
Hér verður numið staðar, en
lífið heldur áfram og mikið erum
við rík hér á Akureyri að hafa átt
svo gefandi þegn sem Ingimar
Eydal, þess mun lengi finna stað.
Við þökkum forsjóninni að
mega deila með öðrum þeirri
hamingju að hafa átt Ingimar að
vini.
Við gamlir söngkvartettfélag-
ar: Haukur Heiðar, Jóhannes,
Jón Hlöðver og Valtýr, kveðjum
Ingimar í söknuði en með þakk-
læti fyrir ljúfar samverustundir.
Blessuð sé minning hans og
nýir vegir. Góður Guð styrki og
huggi ástvini hans.
Innilegar kveðjur frá
Jóni Hlöðver, Löllu
og fjölskyldu.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Farþú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Elsku Ásta, Guðný, Inga, Ingi-
mar, Dísa og fjölskyldur. Okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Gugga, Fía, Inga og Ragna.
Okkur langar að fara hér nokkr-
um orðum um fyrrverandi kenn-
ara okkar og vin Ingimar Eydal,
sem svo oft kemur upp í hugann
þegar maður minnist áranna í
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Þetta er kannski ekki vel samið
en þetta er vel meint.
Það var eitt sinn sem oftar,
þegar fór að vora, að margir ung-
ir drengir fóru að þrá sveitasæl-
una. Því miður gleymdist að gera
ráð fyrir þessari staðreynd á próf-
töflu Gagnfræðaskólans þetta
vorið þannig að síðasta prófið
(sem svo heppilega vildi til að var
tónfræði) kom niður á mánudegi.
Sáum við fram á að þarna mundi
heil helgi fara í súginn og fórum
að bera okkur illa við Baldvin
skólastjóra út af því. Hann sagði
okkur hins vegar að eina leiðin
fyrir okkur væri að semja beint
við Ingimar tónfræðikennara.
Ingimar tók okkur vel eins og
fyrri daginn og hlýddi okkur öll-
um (átta strákum) bara munn-
lega yfir fræðin strax að loknu
•prófi á föstudegi á sinn miskunn-
sama og einlæga máta.
Einnig er minnisstætt þegar við
félagar í Gagnfræðaskólanum
vorum að koma á fót skólahljóm-
sveit og bráðvantaði texta af
ýmsu tagi. Barst þetta í tal við
Ingimar. Sagði hann ekkert sjálf-
sagðara en að við kæmum bara á
næstu æfingu hjá hljómsveit hans
niðri á Hótel KEA og fengjum að
ljósrita texta upp úr textamöpp-
unni þeirra og þáðum við það.
Nokkrum dögum seinna þegar
hljómsveit Ingimars var að spila
fyrir fjölmenni í Laugardalshöll
kom hins vegar í ljós að ekki
höfðu allir textarnir ratað á sinn
stað aftur og hófst þá mikil leit að
þeim fram og til baka í miðju
spileríi. Ingimar gerði hins vegar
bara gott úr þessari uppákomu og
hló dátt þegar hann sagði okkur
frá þessu.
Það var sama hvort það vant-
aði undirspil, ábendingar og
aðstoð við skemmtiatriði eða
annað, alltaf var hægt að semja
við Ingimar. Enda vantaði mikið
þegar Ingimar gat ekki verið með
í árshátíð skólans í fyrra, sökum
veikinda. Er það sjálfsagt ein af
fáum árshátíðum þar sem krafta
Ingimars naut ekki við á einhvern
hátt.
Aðstandendum og öllum þeim
sem voru svo heppnir að fá að
kynnast Ingimari og gátu leitað
til hans vottum við samúð okkar.
Lýður og Rúnar Þór.
Kveðja frá Mennta-
skólanum á Akureyri
Margt gæti ég sagt um Ingimar
Eydal, tónlistarmann frá Akur-
eyri, og ekkert nema gott. Hann
var góðsemin holdi klædd. Hann
var góðviljaður og góðlyndur,
gamansamur, einlægur og hrekk-
laus. Við vorum skoðanabræður,
báðir íhaldssamir þjóðernissinn-
ar og töldum okkur framsóknar-
menn, og gott var að eiga Ingimar
að samherja og vopnabróður.
Ingimar Eydal kynntist ég fyrir
meira en fjórum áratugum þegar
við bjuggum báðir á Norður-
brekkunni á Akureyri. Við, sem
þá vorum að reyna að spila eftir
nótum í Tónlistarskólanum á
Akureyri, töldum hann undra-
barn í tónlist og vorum ekki í
neinum vafa um að hann fetaði
hinn torsótta og krókótta stíg
konsertpíanistans. En það varð
ekki. Þó efast ég um að margir
íslenskir tónlistarmenn hafi miðl-
að fleirum af tónlistargáfu sinni
og Ingimar Eydal.
Vil ég þakka honum sérstak-
lega það sem hann gerði fyrir
Menntaskólann á Akureyri og
nemendur hans bæði fyrr og
síðar. Ingimar vann lengi með 24
MA félögum og ávallt brást hann
vel við þegar hann var beðinn að
leika á djasskvöldi í setustofu
heimavistar með góðum félögum
sínum. í þeirri tónlist var bæði
bít og sterk tilfinning. Ingimar
Eydal spilaði á skóladansleikjum
í MA árutugum saman en ógleym-
anlegastur verður mér hann við
stúdentaveislur að kvöldi 17da
júní í Sjallanum og íþróttahöll-
inni meira en tvo áratugi. Þar
spilaði hann og skemmti og sagði
gamansögur og lék á als oddi,
síðast á liðnu sumri þá orðinn
sjúkur. Um miðnætti tók Ingimar
á móti okkur þegar við komum
frá þvx að marsjera með ný-
stúdentum á Ráðhústorgi og
dansa hókí-pókí og hann var
glaður og reifur og gerði að
gamni sínu eins og ávallt.
Skarð Ingimars Eydals, tónlist-
armanns frá Akureyri, verður
vandfyllt. Ágætri konu hans,
Ástu Sigurðardóttur, og börnum
þeirra hjóna vottta ég samúð
mína.
Tryggvi Gíslason,
skólamcistari MA.
Námskeið til
aukinna ökuréttinda
verður haidið á Akureyri í febrúar.
Upplýsingar og innritun hjá Kristni Jónssyni,
símar 96-22350 og 985-29166, og hjá Hreiöari
Gíslasyni, símar 96-21141 og 985-20228.
Ökuskólinn á Akureyri.
Ökukennarafélag íslands.
Nýársleikur \||«l
Radíónausts 1N f* L
Spennandi leikur um góðar vörur á frábæru verði
Nípsíu sex vikur verk viS mei stórkostlegt vörutilM sem steniur yfir viku í senn (fimmlud -
fimmtud.}.
Ef f)ú kemur og verslar þessar tilboisvörur, þú lendir nafn þitt í lukkupotti.
Föstudaginn 5. mars kl. 17.00 veriur dregii út ai viislöddu fjölmenni í verslun okkar eitt
nafn og feer viikomandi endurgreidda f>d vöru sem keypt var d einkverju þessara vörutilboia.
PHILIPS AWG 729
AUDIOSONIC TBS-9270
Tllboðsverð kr. 49.900 s^r
eða kr. 3260 á mánuði í 18
mánuði án vaxta.
Vinduhraði 120-900 snúningar.
Stiglaus vinduhraði. 2I þvotta-
kerfi. Ullarprógramm. Sparnað-
arrofi. Afarhljoðlát
Tilboðsverð kr. 5.770 sl*r'
Stereo hljómburður. Tvöfalt kassettutæki.
Langbylgja, miðbylgja og FM. Tvöfaldur hraði á
upptöku. Tengi fyrir héymartól. Hljóðnemi fyrir
Mundu eftl r því ai dregii veriur úr
lukkupottinum föstudaglnn 5. mars kl. 17.00
Þú gætir fengið endurgreitt
S'. RðDIORSfiUST
kjör Geislagötu 14 • Sími 21300
El
NY NAMSKEIÐ
■i f i- h r ii o r - /5 m <i í
i n n r i t n n i s r m n
hlutatelknun
módeltelknun
andlltstelknun
mólun og lltameðferð
vatnslltamðlun
graflsk hönnun
skrlft og leturgerð
bútasaumur
telknun, mðlun, mðtun
fyrlr börn