Dagur - 20.01.1993, Blaðsíða 11

Dagur - 20.01.1993, Blaðsíða 11
I Miðvikudagur 20. janúar 1993 - DAGUR - 11 Iþróttir Halidór Arinbjarnarson Körfuknattleikur yngri ílokka: FjöUiðamót drengjaflokks haldið á Akureyri Laugardaginn 16. januar var fjölliðamót drengjaflokks í körfuknattieik haldið á Akur- eyri. Leikirnir voru í c-riðli íslandsmótsins. Fjögur lið voru skráð til leiks en Vals- menn mættu ekki. Það voru því 3 lið sem tóku þátt: Þórsarar, ÍBK-b og Týr. Fyrst léku ÍBK og Týr og sigruðu Keflvíkingar örugglega. Næst var leikur Þórs og ÍBK. hann var Staðan Körfubolti, 1. deild kvenna Staðan: Keflavík 11 110 819:614 22 ÍR 10 6 4 602:580 12 Tindastóll 14 5 9 714:874 10 KR 9 5 4 533:524 8 Grindavík 11 4 9 694:733 8 ÍS 9 2 7 426:490 4 mjög spennandi allan tímann en að lokum höfðu Keflvíkingar sigur, 70:66. Stig Þórs skoruðu: Eiður Pálmason 20, Hafsteinn Lúðvíksson 17, Haukur Kjartans- son 9, Þórður Steindórsson 9, Kristján Örnólfsson 9 og Guð- brandur Þorkelsson 2. Síðast var leikur Þórs og Týs. Hann var jafn framan af en í lokin sigu Þórsarar fram úr og sigruðu 84:70. Stig Þórs: Þórður Steindórsson 26, Kristján Ömólfs- son 19, Eiður Pálmason 17, Haf- steinn Lúðvíksson 12, Jón Guðnason 4, Haukur Kjartans- son 4 og Guðbrandur Þorkelsson 2. Það sem helst brást í þessum leikjum var skotnýting og víta- hittni en varnarleikurinn hafði batnað mikið frá síðasta móti sem var í nóvember. Um helgina var 8. flokkur Þórs einnig að leika fyrir sunnan. Strákarnir stóðu sig mjög vel en misstu naumlega af sæti í A-riðli. Frjálsar íþróttir: Valdís keppir fjTÍr UFA Valdís Hallgrímsdóttir, sem keppt hefur undir merkjum UMSE og verið ein fremsta frjálsíþróttakona landsins, hef- ur nú skipt yfir í UFA. Á Norðurlandsmótinu um síðustu helgi varð hún tvöfaldur Norðurlandsmeistari. Hún setti persónulegt met í 50 m grindahlaupi á tímanum 8.0. Hún hljóp 800 m á 2.24,6 sem er góður árangur og einnig bætti hún árangur sinn í kúluvarpi. Valdís er kærkomin lyftistöng fyrir UFA. UFA keppir í fyrsta sinn í 2. deild bikarkeppninnar í sumar og ekki þarf að efast um að hún mun þar hala inn mörg stig fyrir UFA. Um næstu helgi verður meistaramót íslands í atrennulausum stökkum og þar mun UFA eiga einn fulltrúa, Gunnar Gunnarsson, sem stóði sig mjög vel á Norðurlandsmót- inu. Valdís Hallgrímsdóttir. Chris Moore með Þór - leikur æfingaleik með liðinu í kvöld og síðan verður athugað með framhaldið I gær mætti hinn snjalli körfu- knattleiksmaður Chris Moore á æfingu með Þórsliðinu. í kvöld kl. 19.30 mun síðan fara fram æfingaleikur milli Þórs og UFA í Skemmunni og mun Moore spila með Þór. Moore var sem kunnugt er stigahæsti maður úrvals- deildarinnar þegar forráða- menn körfuknattleiksdeildar Tindastóls tóku þá ákvörðun að segja honum upp störfum. Moore hefúr dvalið hérlendis að undanförnu og m.a. fylgst meö sínum gömlu félögum úr áhorfendastúkunni. Þórsarar tóku þá ákvöröun að fá hann til að æfa með liðinu. í kjölfarið af því á að athuga með hvort fram- hald verður á dvöl hans og jafn- vel hvort hann verður fenginn til að leika meö liðinu. Hann mun þó ekki geta leikið með liðinu á þessum vetri þar sem reglur banna erlendum leik- mönnum að spila með fleiri en einu liði á hverju tímabili. JÚdÓ: Aftnælismót hjá yngri flokkum KA Afælismót KA í júdó fyrir yngri flokka félagsins fór fram á Iaugardaginn. Keppendur voru 61 talsins og var baráttu- gleðin svo sannarlega í fyrir- rúmi. Markmiðið var að gera sitt besta og sýna góð tilþrif en fjölmargir áhorfendur fylgdust með keppninni. Á eftir var síð- an öllum boðið í kaffi sem for- eldrar sáu um. Þar fór einnig fram verðlaunaafhending og öllu þessu stjórnaði Jón Oðinn Oðinsson júdóþjálfari af mik- illi röggsemi. Keppendum er skipt í 3 aldurs- flokka og innan þeirra í styrk- leikaflokka þannig að saman glími þeir, eða þau, sem eru sem jöfnust að styrkleika. Þannig verður keppnin jafnari og meira spennandi. En þá eru það úrslit- in. 5-8 ára: 1. Svanur Steindórsson, 2. Róbert Davíðsson og 3. Gunnlaugur Guð- mundsson. 1. Steinar Grettisson og 2. Kris van de Ven. 1. Rick van de Ven, 2. Tómas Arn- grímsson og 3. Katrín Vilhjálmsdóttir. 1. Halldór B. Halldórsson, 2. Hólmar Sigmundsson og 3. Orri Júlíusson. 1. Eyþór Guðmundsson, 2. Ólafur Sig- urgeirsson og 3. Margeir Sigurðsson. 1. ÓlafurTorfason,2. SigurðurO. Jóns- son og 3. Steingrímur Jósepsson. I. Birgir Smárason, 2. Bjarni Steindórs- son, 3. Haukur Bjarnason og 4. Böðvar Valgeirsson. 1. Ástþór Árnason, 2. Halldór 0. Árna- íþróttamaður Norðurlands 1992: Reykvíkingur fékk verðlauiiin Forsenda þess að fjölmiðlar geti staðið fyrir marktæku kjöri á borð við kjör Dags á íþróttamanni Norðurlands er að lesendur taki virkan þátt í leiknum. Til að örva þátttök- Vinningshafinn, sem býr í Reykjavík, komst ekki til að taka við vcrðlaunum sínum og veitti Halldór Arinbjarnarson, íþróttafréttamaður Dags, þeim viðtöku fyrir hennar hönd. Hér afhendir Eiríkur Haraldsson hjá Radíónausti honum tækið. Á innfelldu myndinni dregur Freyr Gauti nafn vinningshafans úr bikarnum. Myndir: Robyn una ákvað blaðið að veita ein- hverjum einum, sem þátt tæki í að velja Iþróttamann Norður- lands, vegleg verðlaun. Var þetta gert í samvinnu við Verslunina Radíónaust Geisla- götu 14 á Akureyri. í boði var sambyggt hljóm- flutningstæki með geislaspilara, útvarpi og tvöföldu segulbandi af gerðinni Samsung RCD 1360, að verðmæti um 20 þúsund krónur. Eftir að úrslitin í kjörinu á laug- ardaginn höfðu verið kynnt, var innsendum atkvæðaseðlum kom- ið fyrir í farandbikarnum sem nafnbótinni fylgir. Freyr Gauti Sigmundsson, nýkjörinn íþrótta- maður Norðurlands, dró síðan einn seðil úr bikarnum. Eigandi seðilsins reyndist vera Reykvík- ingur, Jensína Óskarsdóttir og hlýtur hún því tækið. Dagur þakkar þeim fjölmörgu lesendum sem þátt tóku í kjöri blaðsins á íþróttamanni Norður- lands 1992. Sömu leiðis fær versl- unin Radíónaust hf. bestu þakkir fyrir hennar hlut í kjörinu. son og 3. Heiðar S. Þorvaldsson. 1. Magnús S. Smárason, 2. Páll Ingvars- son og 3. Jón H. Gústafsson. 9-11 ára: 1. Jón K. Rögnvaldsson, 2. Atli Stefáns- son, 3. Leó Magnússon og 4. Davíð Benediktsson. 1. Daníel Christenson, 2. Brynjar Kára- son og 3. Lúðvík L. Lúðvtksson. 1. Baldvin Þorsteinsson, 2. Arnar Lúð- víksson og 3. Ágúst Fannar Ágústsson. 1. Valgarður Reynisson, 2. Þorleifur Thorlacius og 3. Styrmir Hauksson. I. Ómar Ö. Karlsson, 2. Karles Ólafs- son og 3. Jóhann Guðbjörnsson. 12-14 ára: 1. Arnar Þ Sæþórsson, 2. Helgi M. Sig- urðsson og 3. Brynjar H. Benediktsson. 1. Björn Harðarson, 2. Valur Alberts- son, og 3. Elmar Dan Sigþórsson. 1. Jóhann Kristinsson, 2. Hilmar H. Sig- fússon og 3. Valbjörn Viðarsson. 1. Steinar Ólafsson, 2. Jóhannes Gunn- arsson og 3. Brynjar Ásgeirsson. 1. Jón K. Sigurðsson og 2. Ólafur Snæ- dal. 1. Bima Baldursdóttir og 2. Björn Davíðsson. 1. Sverrir M. Jónsson og 2. Amþór Örlygsson. = 2. -fyrirþlg ogþína fjölskyldu! leikvíkd Stórí bróðir náði að vinna sigur I slðustu viku mættust áhafnir tveggja Samherjaskipa, Baldvins Þor- steinssonar og Akureyrinnar. Áhöfn hins glæsilega skips Baldvins Þorsteinssonar hafði betur, en mjótt var á mununum. Baldvinsmenn voru með 9 rétta en Akureyringar 8. Þar með var 2. sigur Baldvins I höfn, en áhafnarmeðlimir unnu það frækilega afrek að vinna get- raunakónginn Loga Má Einarsson. Leikurinn berst áfram um skip ( eigu Samherja og nú mætir áhöfn Oddeyrinnar EA 210 til leiks. Bæði skipin eru að veiðum en menn gáfu sér þó tfma til að spá (get- raunirnar. ( síðustu viku var einn (slendingur með 13 rétta. Miðinn var keyptur á Eyrarbakka og fékk sá heppni tæpar 1,3 milljónir I sinn hlut. Hann, eða hún, ætti þvl ekki að vera f vandræðum með jóla- reikningana. Getraunasala hefur farið vel af stað á nýju ári og í slð- ustu viku var salan hér á landi u.þ.b. 8,7 milljónir króna. Samstarf (s- lenskra og sænskra getrauna hefur reynst mjög vel og velta ls- lenskra getrauna þrefaldaðist á stðasta ári, miðað við næsta ár á undan. Hagnaðurinn jókst enn meira en hann fjórfaldaðist milli ára og var 70 milljónir á slðasta ári. Þátttakendur ráða I raun sjálfir hvert hagnaðurinn fer, því hagnaðarhluti félaganna fer eftir þv( hversu margir hafa merlrt við félagsnúmer þess á seðlinum. Baldvin EA Oddeyrin ‘<TJ Q- V) C 'n. 1. Crewe-Blackburn 2 2 2. Huddersfield-Southend 21 X 3. Manch. Utd-Brighton 1 1 4. Nottingh. For-Middlesbro 12 12 5. QPR-Manch. City 2 12 6. Rotherham-Newcastle 2 2 7. Sheff. Utd-Hartlepool 12 1 8. Swansea-Grimsby 1X 2 9 Tranmere-lpswich 12 12 10. Portsmouth-Brentford 1 1 11. Plymouth-Fulham 12 1 12. Preston-Bradford 1X 1X 13. WBA-Stoke 2 1X Upplýsingar um rétta röð og vinningsupphæðir: Lukkulínan ,99-1000 • Textavarpið síða 455 Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.