Dagur - 21.01.1993, Blaðsíða 16
NÝ NÁMSKEIÐ
1 f r h r ú (J r - I S m ij i
i n n r i t u n / s i ni a
hlutateiknun
módelteiknun
andlltstelknun
málun og lltameðferð
v atn s í Ita m á I u n
grafísk hö n nu n
skrlft og leturgerð
bútasaumur
te Ikn u n. málun, mótun
fyrlr b ö rn
Fannbarðir á ferð.
Mynd: Robyn
Léleg sfldveiði og engin loðnuveiði
- fyrsti síldarfarmur ársins til Þórshafnar í gær
Raufarhöfn:
Vélarbilun
í Rauðanúp
Væntanlega heldur togarinn
Rauðinúpur frá Raufarhöfn til
veiða í dag en skipið kom inn
vegna bilunar á þriðjudag með
8-10 tonn af fiski.
Það var strokklok á vélinni
sem gaf sig, en varahlutir voru til
á staðnum og álitið að viðgerð
lyki það snemma að togarinn
kæmist til veiða á ný í dag. Þegar
bilunin varð var togarinn í sinni
annarri veiðiferð frá áramótum.
Hann er að ísfiskveiðum. IM
Akureyri:
Skiptimynt og
hvítvíni stolið
Aðfaranótt miðvikudags var
brotist inn í Straumrás sf. við
Furuvelli á Akureyri og stolið
þaðan skiptimynt, auk þess
sem hinn óboðni gestur hafði á
brott með sér nokkrar létt-
vínsflöskur sem þar voru
geymdar.
Að sögn Gunnars Jóhannsson-
ar, fulltrúa hjá rannsóknarlög-
reglunni á Akureyri, er talið að
upphæðin sem hinn fingralangi
komst yfir hafi verið um 20 þús-
und krónur. Að auki var nokkr-
um flöskum af hvítvíni stolið.
Einnig var átt við peningaskáp en
ekki voru neinir peningar geymd-
ir í honum. Málið er í rannsókn.
SS
Norðurland:
Versnandi
færð á vegum
Versnandi færð var á vegum
norðanlands í gær vegna skaf-
rennings og ofankomu. Á
Öxnadalsheiði var orðið mjög
þungfært fyrir fólksbfla og
fólki ekki ráðlagt að leggja á
hana nema á jeppum og stærri
bflum.
Fært var frá Akureyri til Dal-
víkur en ófært milli Dalvíkur og
Ólafsfjarðar vegna veðurs.
Leiðinlegt veður var á leiðinni til
Grenivíkur og samkvæmt upplýs-
ingum frá Vegagerðinni stóð
jafnvel til að hætta mokstri þar í
gær.
Reynt var að halda Víkur-
skarðinu opnu í gær en mjög
leiðinlegt veður var á milli Víkur-
skarðs og Húsavíkur og seinni-
partinn var búist við að hætt yrði
að halda leiðinni opinni. Fyrir
austan Húsavík var skafrenning-
ur og aðeins jeppafæri. SS
O VEÐRIÐ
[ dag verður norðlæg átt meðj
éljum á Norðurlandi og 4-10
stiga frost. Á föstudag spáir
Veðurstofan fremur hægri
vestan eða norðvestan átt,
með áframhaldandi éljagangi
og aðeins vægara frosti. Síð-
an er búist við að vindur snúist
til suðurs á laugardaginn og
þá hlýnar nokkuð í veðri.
Engin sfldveiði var í fyrrinótt
en nokkrir bátar fengu smá-
slatta aðfaranótt þriðjudags-
ins en í gær var komin norð-
austan átt og bræla á miðunum
á Berufjarðarál og því frekar
þungt hljóð í sfldarsjómönn-
um.
„Við höfum verið að reyna að
veiða síld en það hefur gengið
mjög treglega. Við erum komnir
með um 150 tonn og færðum
okkur þegar tilkynningin um lok-
unina á Lónsbugt kom en við
erum nú úti í Berufjarðarál. Það
er sami dauðinn og djöfullinn á
loðnunni, þar er lítið að sjá því
hún þéttir sig ekkert og stendur
yfirleitt mjög djúpt. Ég held að
það verði engin veiði fyrr en hún
kemur upp á grunnið til að
hrygna en þá þéttist hún og það
getur farið að gerast hvenær sem
er,“ segir Ásgeir Gíslason stýri-
Talsverðar umræður urðu á
fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks sl. þriðjudag um tillögu
bæjarráðs um hámark á niður-
fellingu fasteignaskatts hjá 70
ára og eldri. Voru m.a. teknar
til umræðu bókanir tveggja
fulltrúa minnihlutans um
málið.
Tillögurnar sem samþykktar
voru í bæjarráði voru tvær. Ann-
ars vegar þess efnis að hámark
niðurfellingar fasteignaskatts 70
ára og eldri verði 25 þús. krónur
og bundin því skilyrði að við-
komandi búi sjálfur í húsnæðinu.
Hin tillagan er um að niðurfelling
fasteignaskatts verði tekjutengd
frá árinu 1994 og m.v. 67 ára og
eldri.
Anna K. Gunnarsdóttir (G)
maður á Helgu II frá Siglufirði.
Helga II hefur fengið tæp 10 þús-
und tonn af loðnu sem fengust
fyrir áramót en að undanförnu
hefur skipið verið að veiða síld út
á kvóta sem fékkst frá Hrað-
frystistöðinni á Þórshöfn. Lík-
lega mun Helga II ianda síldinni
á Þórshöfn.
Björg Jónsdóttir ÞH landaði í
gær 50 tonnum af síld til bræðslu
á Þórshöfn en það tekur aðeins
um þrjá tíma að bræða það
Harðbakur EA, einn togara
Útgerðarfélags Akureyringa
bókaði á fundi bæjarráðs að hún
teldi ekki rétt að auka álögur á
aldraða „nú þegar kreppt er að
öldruðum og sjúkum af hálfu
ríkisstjómar“. Stefán L. Haralds-
son (B) lét bóka að hann teldi
fyrirvarann of stuttan og tók und-
ir það sjónarmið að aldraðir þoli
nú þegar mikla skerðingu á
afkomu sinni. Bæði töldu fráleitt
að samþykkja tekjutengingu árið
1994 „án þess að fyrir liggi nánari
útfærsla á því“, eins og segir í
bókun Stefáns. Greidd voru
atkvæði sérstaklega um þennan
lið fundargerðar bæjarráðs og
voru tillögur bæjarráðs sam-
þykktar með naumum meiri-
hluta, 5 atkvæðum gegn 4. Síðan
var fundargerðin afgreidd á
venjulegan hátt. sþ
magn. Þetta er fyrsta síldar-
löndunin á Þórshöfn á þessu ári,
en í byrjun ársins landaði Björg
Jónsdóttir ÞH 400 tonnum af
loðnu á Þórshöfn.
Klukkan þrjú í gærdag tók í
gildi skyndilokun á Lónsbugt
vegna mikillar smásíldar sem þar
hefur veiðst að undanförnu en
samkvæmt upplýsingum Haf-
rannsóknastofnunar hefur þar
verið að veiðast síld sem mælst
hefur allt niður í 28 cm að stærð.
hf., kom til heimahafnar í
gærmorgun eftir gagngerar
breytingar í PóIIandi. Ellefu
karlar fóru utan til að ná í
togarann og hrepptu vonsku-
veður á heimleiðinni.
Að sögn Jóns Jóhannessonar
skipstjóra Harðbaks EA var siglt
frá Póllandi með viðkomu í
Þýskalandi þar sem fiskikassar
voru teknir. Frá Þýskalandi var
haldið heim á leið þann 14. janú-
ar. Vonskuveður var í Eystrasalti
og er komið var í Skagerak byrj-
aði gauragangurinn fyrir alvöru.
Sl. sunnudag náði veðrið
hámarki við Hjaltlandseyjar og
þar var haldið sjó.
„Togarinn er sem nýr. Skrokk-
urinn var sandblásinn, áður en
skipið var málað, sem og milli-
dekkið. í togarann er komin ný
aðgerðarlína og togdekk, renna
og skutur voru endurnýjuð.
Byggt var yfir lunningar og
slingubrettum komið fyrir.
Togarinn er nú búinn nýjum tog-
og gilsavindum og gagngerar
breytingar voru gerðar í brú.
Krani verður settur í togarann
hér heima á næstu misserum og
við höldum til veiða að nokkrum
dögum liðnum," sagði Jón
Jóhannesson. ój
Heilsugæslustöðin
á Akureyri:
Inflúensu ekkí
orðið vart
- heldur vírussýkingar
með svipuðum einkennum
Inflúensa hefur ekki greinst á
Akureyri enn sem komið er. I
bænum gengur þó pest sem
hefur öll sömu einkenni og sú
inflúensa sem nú gengur í
Reykjavík.
Áð sögn Magnúsar Ólafssonar,
yfirlæknis Heilsugæslustöðvar-
innar á Akureyri, gætir pestar á
Akureyri, sem lýsir sér með
háum hita í nokkra daga, höfuð-
verk, beinverkjum og hósta. Sýni
hafa verið send til rannsóknar í
Reykjavík og af niðurstöðum
rannsókna má ráða að ekki er um
inflúensu að ræða.
„Inflúensa sú sem nú gengur í
Reykjavík og nágrenni er af B-
stofni, en oftar eru þær af A-
stofni. Vírussýking með áþekk-
um einkennum og inflúensan hef-
ur einnig slegið sér niður fyrir
sunnan og þeirrar sýkingar gætir
hér á Akureyri. Fjarvistir í skól-
um eru ekki umtalsverðar, en
þeim fer þó fjölgandi t.d. í;
Menntaskólanum,“ sagði Magnús
Ólafsson. ój
^ ÁTVR á Akureyri:
Áfengiogtóbak
selt fyrír 950
milljónir króna
Hjá útsölu Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins á Akureyri
var selt áfengi fyrir 597,3 millj-
ónir króna á árinu 1992, sem er
7,53% af heildarsölu á land-
inu. Þá var selt tóbak á Akur-
eyri fyrir 351,3 milljónir eða
8,36% af heildarsölunni.
Á Sauðárkróki var selt áfengi
fyrir 138,4 milljónir (1,74%) og
tóbak fyrir 108,4 milljónir
(2,58%). Á Húsavík tókst
ÁTVR að hala inn 83,3 milljónir
með sölu áfengis (1,05%) og 64,4
milljónir með tóbakssölu
(1,53%). Fjórði útsölustaður
ATVR á Norðurlandi er á Siglu-
firði. Þar var selt áfengi fyrir 50,9
milljónir (0,64%) og tóbak fyrir
38,1 milljón (0,91%).
Akureyri er annar stærsti
útsölustaður ÁTVR á eftir
Reykjavík en Siglufjörður sá
minnsti, samkvæmt hlutfallstöl-
um. SS
Sauðárkrókur:
Klippur á lofú
Lögreglan á Sauðárkróki
stendur í „áramótahreingern-
ingu“ þessa dagana. Búið er að
klippa númer af tuttugu ólög-
legum bifreiðum og mega
menn eiga von á frekari klipp-
ingum.
Frá áramótum hafa númer ver-
ið klippt af tuttugu bílum á Sauð-
árkróki, óskoðuðum eða sem
komnir eru fram yfir endurskoð-
unarfrest. Að sögn lögreglu er
þessari herferð ekki lokið og
mega menn eiga von á því að
missa númer bíla sinna hvar og
hvenær sem er ef bílarnir eru
ekki löglegir. sþ
Sauðárkrókur:
Auknar álögur á
aldraða samþykktar
- þak á niðurfellingu fasteignaskatts
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Harðbakur EA tíl heimahaftiar
eftir gagngerar breytingar