Dagur - 22.01.1993, Page 1

Dagur - 22.01.1993, Page 1
Verulegt atvimmleysi á Hvairnnstanga - en vinna hjá Meleyri hefst brátt á ný Meleyri hf. á Hvammstanga var eitt þeirra fiskvinnslufyrir- tækja á Norðurlandi vestra sem sagði upp starfsfólki fyrir jólin. Til stóð að opna aftur kringum miðjan janúar, en vinnsla liggur enn niðri. Nálægt 70 manns eru á Afkoma ríkissjóðs: RekstrarhaDinn nam 7,2 miUjörð- umkróna Samkvæmt bráðabirgðatölum um afkomu ríkissjóðs nam rekstrarhalinn á árinu 1992 7,2 milljörðum króna. Á árinu 1991 nam hallinn 12,5 millj- örðum króna. Hrein Iánsfjár- þörf ríkissjóðs, en það er sú fjárhæð sem ríkissjóður þarf að taka að láni til að fjármagna halla á rekstri og útstreymi á lánareikningum, nam 7,2 miUj- örðum króna árið 1992. Árið 1991 var lánsfjárþörf ríkissjóðs helmingi meiri, eða 14,6 millj- arðar króna. Heildarútgjöld ríkissjóðs árið 1992 námu 110,6 milljörðum króna, eða tæplega 1 milljarði umfram fjárlög. Frávik frá fjár- lögum er 0,9% og þarf að leita langt aftur í tíma til að finna jafn lítið frávik. Útgjöld ríkissjóðs lækka að raungildi um 5,3 milljarða króna frá árinu 1991. Rekstrarkostnað- ur ríkisins lækkar um 2 milljarða króna, stofnkostnaður um 2,2 milljarða og vaxtakostnaður um 1,8 milljarða króna. Á móti veg- ur lítils háttar aukning í rekstrar- tilfærslum. Heildartekjur ríkissjóðs árið 1992 námu 103,4 milljörðum króna, eða 2,1 milljarði minna en í áætlun fjárlaga. Þetta er megin- skýringin á meiri halla ríkissjóðs en fjárlög gerðu ráð fyrir. Tekjur ríkissjóðs hækka að raungildi um 0,4 milljarða króna árið 1992. Skatttekjur ríkissjóðs lækka hins vegar um 0,5 millj- arða króna að raungildi árið 1992. ój Höfðahreppur og Skagstrendingur stofna Iðnaðarfélag Skagastrandar - líklega gengið frá samningum um kaup félagsins á vélum Striksins í næstu viku 1 gær var stofnað á Skaga- strönd félag til þess að stuðla að aukinni atvinnu í byggðar- laginu. Ekki hafði verið gengið endanlega frá nafngift félags- ins þegar Dagur hafði spurnir af í gærkvöld, en fastlega var gert ráð fyrir að það myndi fá nafnið Iðnaðarfélag Skaga- strandar. Að stofnun félagsins í gær stóðu annars vegar Höfðahrepp- ur og hins vegar útgerðarfyrir- tækið Skagstrendingur hf. Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri á Skaga- strönd, staðfesti í gær að leitað hafi verið til Verkalýðsfélags Skagastrandar um aðild að félag- inu og þess væri vænst að fleiri gerðust aðilar að því. Tilgangur félagsins er að sögn Magnúsar að fjölga atvinnutækifærum á Skagaströnd og má fastlega gera ráð fyrir að fyrsta verk stjórnar félagsins, sem í eru Magnús B. Jónsson og Adolf H. Berndsen, fulltrúar Höfðahrepps, og Óskar Þórðarson, fulltrúi Skagstrend- ings, verði að ganga frá samning- um við íslandsbanka um kaup á vélum þrotabús skóverksmiðj- unnar Striksins á Akureyri. Ósk- ar Þórðarson hefur öðrum frem- atvinnuleysisskrá á Hvamms- tanga, en fleiri eru án vinnu. Vinna hefur legið niðri hjá Meleyri hf. á Hvammstanga síð- an fyrir jól. Þar var sagt upp 32 starfsmönnum. Guðmundur Tr. Sigurðsson framkvæmdastjóri Meleyrar hf. sagði búið að ákveða að vinna hefjist á ný 1. feb. n.k.. Hann sagðist bjartsýnn á vinnsluna, svo fremi að veður gefi á sjó. Skráðir atvinnuleysisdagar í Hvammstangahreppi í desember voru 747, en á skrá voru 36 manns í lok mánaðarins. Um miðjan janúar voru 64 á atvinnu- leysisskrá. Hólmfríður Bjarna- dóttir, formaður Verkalýðs- félagsins Hvatar á Hvamms- tanga, sagði að 69 manns hefðu verið á skrá í desember. Það er að hluta til fólk sem er atvinnu- laust í nokkra daga. Hún sagði að mun fleiri séu án vinnu í raun, allt upp undir 100 manns. Það skýrist af því að fastir starfsmenn Meleyrar sem eru án atvinnu eru ekki enn komnir á skrá, þar sem þeir hafa 2-3 mánaða uppsagnar- frest. Að sögn Hólmfríðar fá þeir laun þar til uppsagnarfresturinn rennur út, þá fá þeir atvinnu- leysisbætur. íbúafjöldi Hvammstanga- hrepps árið 1992 voru 692, þar af 408 manns á aldrinum 16-66 ára. Það er því ljóst að um verulegt atvinnuleysi er að ræða. Það horfir væntanlega til einhverra bóta þegar vinna hefst á ný hjá Meleyri. sþ, Ótrúlega mikið tjón varð í brunanum í Búgarði. Mynd: Robyn Akureyri: Eldur laus í tilraunastofu Ræktunarfélags Norðurlands skemmdir á tækjum og innviðum vegna hita og sót: ið Akureyrar var kall- arssonar, slökkviliðsstjóra á strik. ■kknn 7.40 ■ oaprmm-o- Akurevri. varð eldsins ekki vart ..Svrumælinnn er ón\ Slökkvilið Akureyrar var kall- að út klukkan 7.40 í gærmorg- un að Oseyri 2, þar sem eldur var laus í tilraunastofu Rækt- unarfélags Norðurlands. Vel gekk að ráða niðurlögum elds, en skemmdir á innviðum og tækjum eru verulegar vegna hita og sóts. Að sögn Tómasar Búa Böðv- arssonar, slökkviliðsstjóra á Akureyri, varð eldsins ekki vart fyrr en starfsmaður kom til vinnu snemma í gærmorgun. Slökkvilið var þegar kallað til. Er að var komið var ekki um mikinn eld að ræða. Kviknað hafði í sýrumæli, en tilraunir voru í gangi um nótt- ina. Ljóst er að eldurinn hafði kraumað lengi, en ekki náð sér á strik. „Sýrumælirinn er ónýtur sem nokkur önnur tæki. Innviðir rannsóknarstofunnar eru illa farnir vegna hita og sóts. Bóka- safnið er trúlega illa farið, en þær skemmdir á eftir að kanna. Já, tjónið er ótrúlega mikið miðað við hversu eldurinn var lítill,“ sagði Tómas Búi Böðvarsson. ój Suður-Þingeyjarsýsla: Bændur fá 160 kr. fyrir Færeyjakjötið „Bændur eru í sjálfu sér ekki ánægðir en verða að sætta sig við þetta verð. Við erum í harðri samkeppni við kjöt frá Hjaltlandi og Nýja-Sjálandi en fáum heldur hærra verð því Færeyingar telja okkar kjöt betra,“ sagði Jón Benedikts- son frá Auðnum í Laxárdal, formaður Félags sauðfjár- bænda, aðspurður um lamba- kjötsölu til Færeyja. Síðan í sláturtíð í haust hefur verið selt út kjöt sem er umfram greiðslu- mark til bænda. Guðmundur Halldórsson heildsali á Húsa- vík hefur veríð umboðsmaður bænda við kjötsöluna. Skilaverð í heilum skrokkum eftir gengisfellinguna hefur verið 159,40 kr. fyrir kg og hefur þá all- ur kostnaður og sjóðagjöld verið greidd. Jón sagði að salan á kjötinu hafi verið dræm og ekki sé séð hvað markaðurinn taki við miklu magni við þær aðstæður sem núna eru í Færeyjum. Hann sagði að nokkurt magn hefði verið sent út og Færeyingar staðið við sitt hvað greiðslur varðaði, en þeir ættu í erfiðleikum með að kaupa umsamið magn vegna sölutregð- unnar sem skapaðist af efnahags- ástandinu. Jón sagði að ekki væri gott að spá um áframhald kjöt- sölunnar en það kæmi líklega í ljós á næstu vikum hvernig hún þróaðist. „Magnið sem sent hefur verið er minna en til stóð en greiðslur standa fullkomlega. Markaður- inn hefur einfaldlega dregist saman,“ sagði Jón. IM ur unnið að gerð samninga f.h. Skagstrendinga við íslandsbanka að undanförnu og að öllu óbreyttu verður endanlega geng- ið frá þeim í næstu viku. Árni Pálsson, lögfræðingur íslands- banka, segir að fyrir liggi sam- komulag um verð á vélum þrota- bús Striksins og aðeins sé eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum og pappírum. Iðnaðarfélag Skagastrandar kaupir allar vélar þrotabús Striksins og gert er ráð fyrir að það sjái um að selja lager Striks- ins áður en skóframleiðsla hefst á Skagaströnd, sem væntanlega verður fyrir vorið, hugsanlega í mars. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.