Dagur - 19.02.1993, Síða 3

Dagur - 19.02.1993, Síða 3
Föstudagur 19. febrúar 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Blönduós: Gáfii bænum steinasafn og öll eintök Týlis Russarnir sem dvelja á Akureyri næstu þrjá mánuði að tilhlutan Atvinnumálanefndar Akureyrar heimsóttu í gær Útgerðarfélag Akureyringa hf. og Slippstöðina Odda hf. Á myndinni sjást þeir ræða við forsvarsmenn Slippstöðv- arinnar Odda hf. en með þeim í för var Ásgeir Magnússon framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Vinstra megin við borðið sitja Þórhallur Bjarnason, Ásgeir Magnússon og Torfi Guðmundsson en hægra megin Alexandr Nikolaev aðstoðarframleiðslustjóri togaraflota Murmansksvæðisins, Konstantin A. Suvorov skipstjóri á Arkch- angelskrubprom og Sergev Kuzminykh markaðsstjóri hjá Sevrybkholodflot. Mynd: Robyn á hátíðarfundi bæjarstjórnar Á hátíðarfundi bæjarstjórnar Blönduóss, sem jafnframt var sá eitt hundraðasti, hlaut bær- inn merkilega gjöf frá hjónun- um Elísabetu Sigurgeirsdóttur og Sverri Kristóferssyni. Elísabet hefur safnað steinum í Húnavatnssýslu allt frá 1950. Hún á orðið safn hvers konar steinategunda og það safn færði hún, ásamt manni sínum, bænum að gjöf. Safnið er um 70-80 sýni, samtals um 100 steinar. Það er þó ekki allt safnið, en verið er að ganga frá hinu. Einnig gáfu þau Jhjónin þrjár innbundnar bækur með tímaritinu Týli, sem fjallar Atvinnuleysið eykst stöðugt: Er nú 5% af mannafla á landinu öllu um jarð- og náttúrufræði og kom út um 15 ára skeið á Akureyri. Bækurnar innihalda öll eintök tímaritsins og fylgja steinasafn- inu, að sögn Elísabetar. „Það var nú lengi draumur minn að koma upp veglegu nátt- úrufræðisafni hér við skólann og ég á fleiri hluti sem geta farið þangað," sagði Elísabet, þegar hún var spurð um ástæðu þess að hún gaf bænum steinasafnið. Safnið mun þó í fyrstu geymt á Héraðsbókasafninu. Elísabet kveðst hafa safnað steinum víðs- vegar um sýsluna, fyrst og fremst austursýsluna og hafa fengið aðstoð jarðfræðings við að þekkja steinana. Hún kveðst ætla að halda áfram að safna steinum, en hún safnar fleiru, m.a. tölum. Elísabet hefur umsjón með félagsstarfi aldraðra á Blönduósi og sér einnig um Heimilisiðnað- arsafnið. sþ - Norðurland í öðru og þriðja sæti hvað atvinnuleysi varðar Um 890 manns voru að meðal- tali skráðir atvinnulausir á Norðurlandi eystra í janúar mánuði og er það mesta atvinnuleysi sem mælst hefur. Rúmlega 370 voru skráðir atvinnulausir á Norðurlandi vestra á sama tíma og er það einnig mun meira atvinnuleysi en verið hefur á þessum árstíma. Atvinnuástand á Norðurlandi eystra er nú það næstversta á landinu, aðeins Suðurnesin standa verr að vígi hvað það varðar. Atvinnu- ástand er einnig orðið mjög Sunna SI fer á tveggja trolla rækjuveiðar í dag Gert er ráð fyrir að Sunna SI, fjölveiðiskip Þormóðs ramma á Siglufirði, fari í dag á tveggja trolla rækjuveiðar, en slíkar veiðar hafa aldrei áður verið reyndar hér við land. Sunna hefur verið bundin við bryggju undanfarnar vikur á Siglufirði á meðan starfsmenn Vélaverkstæðis Jóns og Erlings hafa unnið að ýmsum endurbót- um á skipinu. Sú vinna fór heldur illa af stað því eldur kom upp í skipinu. Skemmdir urðu sem bet- ur fer ekki verulegar og endur- bæturnar hafa síðan gengið vel. Þeim átti að ljúka í gær. Ólafur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma, sagði að skipið færi væntanlega á veiðar í dag og þá yrðu í fyrsta skipti reyndar svokallaðar tveggja trolla rækjuveiðar hér við land. Ólafur sagði að vissulega væru menn spenntir að sjá hvern- ig til tækist. óþh BSRB: Atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls Á fundi formanna aðildarfé- laga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja í vikunni var sam- þykkt samhljóða að beina því til aðildarfélaga BSRB að undirbúa allsherjaratkvæða- greiðslu um boðun verkfalls 22. mars nk. Orðrétt segir í samþykkt fundarins: „Fundur formanna aðildarfélaga BSRB sem samflot eiga í samningum beinir því til aðildarfélaga að hefja undirbún- ing allsherjaratkvæðagreiðslu um boðun verkfalls 22. mars nk. Fundurinn hvetur allt launafólk á íslandi til samstarfs og samstöðu í komandi kjarasamningum.“ -KK slæmt á Norðurlandi vestra og á það við um öll stærri sveitar- félögin og einnig mörg þeirrá minni. Á Akureyri voru 516 atvinnulausir í janúar á móti 466 í janúar1992, og á Sauðár- króki voru 90 atvinnulausir á móti 74 á sama tíma fyrir ári. Atvinnuleysi hefur heldur minnkað á Húsavík ef miðað er við janúar á síðasta ári. Þá voru 194 atvinnulausir á móti 157 í janúar á þessu ári. í janúar voru alls skráðir rúm- lega 136 þúsund atvinnuleysis- dagar á landinu öllu, um 74 þús- |und dagar hjá körlum og rúmir 62 þúsund dagar hjá konum. Samkvæmt þessum tölum, sem Vinnumálaskrifstofa Félagsmála- ráðuneytisins hefur gefið út, hef- ur skráðum atvinnuleysisdögum fjölgað um 4500 frá því í desem- ber 1992 en alls um 49 þúsund ef miðað er við janúar á síðasta ári. Þessi fjöldi skráðra atvinnuleysis- daga er sá mesti sem mælst hefur í einum mánuði hér á landi og jafngildir því að um 6300 manns hafi verið án atvinnu að meðaltali í mánuðinum. Þessi fjöldi svarar til um 5% atvinnuleysis ef tekið er mið af áætluðum mannafla á vinnumarkaði samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Atvinnuleysi síðustu tólf mánaða mælist 3,1% en atvinnuleysi ársins 1992 mæld- ist um 3%. Mest atvinnuleysi mældist á Suðurnesjum eða 9,3% í janúar. Næstmesta atvinnuleysið var á Norðurlandi eystra eða 7,5%. Norðurland vestra kemur á hæla Norðausturlands með 7,3% atvinnuleysi og Austfirðingar búa við 6,7%. A Vesturlandi er atvinnuleysi nokkru minna eða 4,5% og 4,1% á höfuðborgar- svæðinu. Vestfirðir skera sig nokkuð úr hvað atvinnulíf varðar. í janúar mældist aðeins 1,9% atvinnuleysi þar en þess ber að geta að þessar tölur mæla ástandið áður en stöðvun meg- inhluta atvinnulífs í Bolungarvík varð að veruleika. Ef litið er á hlutfallslegt atvinnuleysi á land- inu öllu á síðustu tólf mánuðum kemur í ljós að það náði 3,1% í mars en lækkaði síðan niður í 2,5 til 2,9% eftir mánuðum. í nóvember var það komið í 3,4% og hefur farið hækkandi síðan og er nú eins og að framan greinir 5%. ÞI löja, félag verksmiöjufólks, á Akureyri, auglýsir hér með eftir listum varöandi kjör stjórnar og trúnarðar mannaráðs fyrir 1993 aö viðhafðri allsherjar- atkvæðagreiðslu. Ber samkvæmt því að skila listum skipuðum fimm aðalmönnum og fjórum til vara í stjórn og varastjórn. Átta aðalmönnum í trúnaðar- mannaráð og fimm til vara. Fimm mönnum í samn- inganefnd. Tveimur endurskoðendum og einum til vara. Allt miðað við fullgilda félagsmenn. Hverjum lista skulu fylgja skrifleg meðmæli 80 fullgildra félagsmanna. Listunum ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, eigi síðar en kl. 17.00, þriðju- daginn 2 mars. Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs liggur frammi á skrifstofu Iðju, Skipagötu 14. Akureyri, 19. febrúar 1993. Kjörstjórn. V GLERÁRGÖTU 36 SÍMI 11500 Á söluskrá: * Núpasíóa: Mjög falleg 3 herb. raðhús- íbúð um 92 fm. Áhvílandi húsn.lán um 4.5 millj. Laus fljótlega. + HHsalundur: Mjög góð 2 herb. íbúð á 3. hæð um 62 fm. Gengið inn af svölum. Laus strax. * Vantar: Gott 3-4 herb. raðhús, helst í Lundar- eða Gerðahverfi, í skiptum fyrir einbýlishús við Mýrarveg. * Dalsgerði: 5 herb. raðhús á tveimur hæðum um 127 fm. Skipti á 3 herb. eign á Brekkunni koma til greina. * Hamarsstígur: 5 herb. neðri hæð tæpl. 140 fm. Áhvílandi húsn.lán um 3.3 millj. Laus í vor. Skipti á eign f Reykjavfk koma til greina. * Einholt: 5 herb. raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr sam- tals um 147 fm. Skipti á minni eign í Reykjavík eða á Akur- eyri koma til greina. FASTÐGHAS (I SKIMSAUSSZ HORDURUMDS O Glerárgötu 36, síml 11500 Opið virka daga frá kl. 10-12 og 13-17. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaöur: Benedikt Ólafsson hdl. íf

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.