Dagur - 19.02.1993, Blaðsíða 11
Föstudagur 19. febrúar 1993 - DAGUR - 11
Halldór Arinbjarnarson
IÞRÓTTIR
íþróttir norðanlands um helgina:
Komast KA-stelpur í undanúrsKt í blaki?
- Tindastóll fær KR í heimsókn á sunnudaginn
Það verður mikið um að vera í
íþróttalífi Norðurlands um
helgina. Yngri flokkar verða á
ferð og flugi í mörgum grein-
um og ekki verður síður mikið
um að vera hjá þeim fullorðnu.
KA-stelpur leika 2 leiki við
stöllur sínar í HK og er vert að
vekja athygli á því að báðir
Ieikirnir verða í Iþróttahöllinni
en ekki KA-húsinu eins og venja
er. Fyrri leikurinn er í kvöld og
með honum ræðst hvort liðið
kemst í undanúrslit í bikarkeppn-
inni. Á morgun eigast liðin síðan
við að nýju og þá í 1. deildinni.
Þetta er ekki það eina sem er
um að vera á blaksviðinu um
þessa helgi því á Húsavík verður
2. og 3. flokkur karla og kvenna
að keppa. Liðunum hefur fækkað
nokkuð frá síðustu keppni og því
stefna Húsvíkingar á að klára
mótið á laugardaginn.
Ástæða þess að blakstelpurnar
geta ekki leikið í KA-húsinu er sú
að um helgina verður þar keppt í
íslandsmóti 4. flokks karla og
kvenna. Keppni stendur yfir alla
helgina og hefst í kvöld. Þá er
einnig vert að minna á íslands-
mót yngri flokka í íshokkí sem
fjallað er um annars staðar á síð-
unni.
Tindastólsstrákar eru komnir á
gott skrið í úrvalsdeildinni. í vik-
unni unnu þeir Valsmenn nokk-
uð auðveldlega og á sunnudaginn
jmætir annað Reykjavíkurstór-
veldi í Síkið á Sauðárkróki, en
það eru KR-ingar. Gengi liðanna
hefur verið mjög svipað það sem
af er í vetur og eru liðin með jafn
mörg stig. Hér ætti því að verða
|um hörkuleik að ræða. Víst er að
Tindastólsmenn ætla ekki að gefa
neitt eftir á heimavelli sínum og
|eru staðráðnir í að sýna tryggum
aðdáendum sínum sitt rétta
Gönguátak:
Gönguhópur á Brekkunní
Eins og greint var frá á íþrótta-
síðu Dags í gær hefur þegar
verið settur af stað gönguhóp-
Körfubolti, 1. deild:
Erflð helgi
hjáUFA
Leikmenn 1. deildar liðs UFA
í körfuknattleik eiga erfiða
helgi fyrir höndum. Þeir halda
suður yfír heiðar og leika þar 3
leiki á jafn mörgum dögum.
í kvöld leika þeir gegn Reyni,
toppliði A-riðils, í Sandgerði, á
morgun gegn Stúdentum og gegn
ÍR á sunnudag. Það er því ljóst
að menn verða að leggja sig alla
fram.
ur í Glerárhverfí. Á þriðjudög-
um verður einnig boðið upp á
gönguhóp á Brekkunni. Sá
hópur mun leggja af stað frá
íþróttahöllinni kl. 18. Þetta er
á vegum trimmnefndar ÍBA og
mun einhver frá nefndinni
leiða gönguna.
Þetta framtak er í framhaldi af
gönguári sem nú stendur yfir og
er sjálfsagt að hvetja fólk til að
taka þátt í þessari skemmtilegu
og ódýru líkamsrækt. Á eftir
göngunni er síðan upplagt að
bregða sér í sund og í því sam-
bandi vert að minna á kortin sem
hægt er að kaupa í sundlaugarnar
og er ódýr kostur. Gangan í
Glerárhverfi er sem sagt frá
Hamri kl. 20.30 á fimmtudögum
og á Brekkunni frá íþróttahöll-
inni kl. 18.00 á þriðjudögum.
Skíði, Húsavík:
Tækniþjónustan sigraði
í firmakeppni skíðamanna
Gunnar Sævarsson sigraði á
fírmamóti Skíðaráðs Völsungs
og Foreldrafélags skíðabarna
sem haldið var í Stöllum 6. feb.
sl. Gunnar keppti fyrir Tækni-
þjónustuna hf. en alls tóku 59
fyrirtæki þátt í mótinu.
Egill Olgeirsson frá Tækni-
þjónustunni tók við farandbikar
og grip til eignar sl. þriðjudags-
kvöld. Bikarinn var gefinn af
Birni Sigurðssyni sérleyfishafa,
og er þetta í þriðja sinn sem
keppt er um hann á allmörgum
árum, en mótin hafa fallið niður
á snjóléttum vetrum.
Um síðustu helgi fóru ungling-
ar frá Húsavík á skíðamót á Dal-
vík og gekk ljómandi vel. Um
næstu helgi verður haldið skíða-
mót fyrir 12 ára og yngri á Húsa-
vík og hefst það í Stöllum kl. 11 á
laugardag. Um 100 krakkar
munu taka þátt í mótinu, þar af
nær helmingur frá Dalvík. IM
Egill Olgeirsson frá Tækniþjónustunni, til hægri, fær afhentan farandbikar
af Gunnari Sævarssyni sem sigraði í firmakeppninni. Mynd: im
andlit.
Af skíðasviðinu ber hæst
bikarmót á ísafirði. Þar verður
bæði keppt í fullorðinsflokki og
flokki 15-16 ára. Síðan er að
vona að veðurguðirnir verði
landsmönnum hliðhollir, en setji
ekki alla keppni úr skorðum eins
og svo oft hefur gerst í vetur.
Björgvin Reynisson er einn af ungu strákunum hjá Tindastóli og á svo sann-
arlega framtíðina fyrir sér. Mynd: pib
HM í Falun:
Ólafur Bjömsson
bætist í hópinn
- 30 km ganga á morgun
I gær hófst keppi á HM í
Norrænum greinum í Falun.
íslendingarnir keppa fyrst á
morgun þegar Haukur Eiríks-
son og Sigurgeir Svavarsson
taka þátt í 30 km göngu með
hefðbundinni aðferð. Nú hefur
ein keppnisgrein enn bæst við
hjá íslendingunum, en það er
4x10 km boðganga.
Fjórði maður í sveitinni verður
Ólafsfirðingurinn Ólafur Björns-
son sem nú býr í Lillehammer í
Noregi og mun hann aðeins
keppa í boðgöngunni sem fer
fram 26. febrúar. Alls munu því
keppendur frá íslandi taka þátt í
5 greinum á mótinu. Auk þeirra
sem hér hafa verið nefndar eru
það 10 km með hefðbundinni
aðferð mánudaginn 22. febrúar
og 15 km frjáls aðferð 24. febrúar
með svokölluðu „jaktstarti", þar
sem menn taka í raun með sér
tímann úr 10 km göngunni. Sá
sem er fljótastur í 10 km göng-
unni fer þá fyrstur af stað og hef-
ur forskot sem nemur því sem
munar á tíma hans og þess sem
var í 2. sæti. Þannig gengur þetta
koll af kolli og allir reyna að elta
juppi fyrsta mann. í þessum 2 grein-
um verða Haukur, Sigurgeir og
Daníel Jakobsson. Síðan mun
Haukur taka þátt í 50 km göngu
jþann 28. og jafnvel einnig Sig-
urgeir.
Íshokkí:
íslandsmót hjá yngri flokkum
haldið á Akureyri um helgina
- einnig leikið í fullorðinsflokki
Það verður líf og fjör á félags-
svæði Skautafélags Akureyrar
um helgina en þá fer þar fram
íslandsmót yngri flokka í
íshokkí. Keppt verður í fjórum
aldurshópum. Þátttakendur
verða um 100 talsins frá þrem-
ur félögum, samtals 11 Iið.
Einnig fer fram leikur í
íslandsmótinu hjá fullorðins-
flokki milli SA og Bjarnarins
kl. 13.00 á laugardag.
Mótið hefst kl. 9 á morgun
laugardag og verður spilað til
hádegis. Þá fer fram leikur milli
SA og Bjarnarins í fullorðins-
flokki, þ.e. Bauerdeildinni. Mót-
ið heldur síðan áfram að þeim
leik loknum og til kvölds en kl.
20.30-23.00 verður diskótek á
svellinu sem er öllum opið. Á
sunnudaginn verður þráðurinn
tekinn upp að nýju kl. 10 og mót-
inu lýkur með úrslitaleikjum eftir
hádegi á sunnudag.
Þessar upprennandi skautastjörnur voru á listhlaupsnámskeiði hjá Liisu
Johanson um síðustu helgi. Þær verða væntanlega meðal áhorfenda á leik
SA og Bjarnarins á morgun kl. 13.00. Mynd: ha
íþróttir helgarinnar
BLAK:
1. deild kvenna Fösludagur:
KA-HK kl. 20.30 f íþróttahöllinni.
Laugardagur:
KA-HK kl. 13.30 í íþróttahöllinni.
2. og 3. flokkur karla og kvenna á
Húsavík.
HANDKNATTLEIKUR:
íslandsmót 4. flokks karla og kvenna:
Keppni hefst f KA-húsinu í kvöid kl.
18 og lýkur á sunnudag.
ÍSHOKKÍ:
Laugardagur: SA-Björninn kl. 13.00
Laugard.-sunnud. fslandsmót yngri flokka. KÖRFUBOLTI:
Föstudagur: 1. deild karla: Reynir-UFA kl. 20.00
Laugardagur: 1. deild karla: UMFB-Þór kl. 14.00
ÍS-UFA kl, 17.00
Sunnudagur: Úrvalsdeild: Tindastóll-KR kí. 20.00
1. deild karla: ÍR-UFA kl. 17.00