Dagur - 19.02.1993, Side 12
Akureyri, föstudagur 19. febrúar 1993
Flugleiðir:
Allra leiða leitað
til að lækka kostnað
Hádegisveröartilboð
Bautans
Pizzu- og pastahlaðborð í hádeginu
með hvítlauksbrauði
Kr. 850,-
Leikhústilboð
Smiðjunnar
Hvítlauksristaðar rækjur á íssalati
Lambahryggur kryddaður íslenskum
jurtum á rjómasoðnum kartöflum
Kaffi og konfekt- Kr. 1.990,-
Kolbeinn Arinbjarnarson,
forstöðumaður innanlands-
deildar Flugleiða, segir að leit-
að sé allra Ieiða til að lækka
Raufarhöfn:
Fiskur unninn í
dýrari pakkningar
Togarinn Rauðinúpur ÞH-160
frá Raufarhöfn landaði í heima-
höfn sl. mánudag 53 tonnum
eftir ríflega vikutúr. Sá afli
endist Fiskiðju Raufarhafnar
til vinnslu fram í næstu viku en
til að teygja vinnslutímann og
skapa jafnframt vinnu í landi
er aflinn unninn í dýrari pakkn-
ingar.
Rauðinúpur landar væntanlega
um miðja næstu viku en hann hóf
veiðar í gærkvöld um 40 mílur
suðaustur af Stokksnesi og var í
gærmorgun kominn með 4 tonn,
mestmegnis grálúðu. Á þessum
slóðum er fjöldi skipa enda hefur
aflast þar vel síðustu sólarhringa.
Síðdegis í gær var þar komið
vitlaust veður, 9 til 10 vindstig að
norðaustan. GG
kostnað við rekstur innan-
landsflugs félagsins, en ekki sé
gert ráð fyrir að þjónustan við
viðskiptavini skerðist á nokk-
um hátt.
Fyrir skömmu kynntu Flug-
leiðir sparnað í rekstri félagsins,
þar á meðal uppsagnir starfs-
fólks. Kolbeinn sagði að ekki
væru uppi nein áform um að
segja upp starfsmönnum Flug-
leiða á Ákureyri og hann vildi
ekki staðfesta að búið væri að
segja upp starfssamningi Flug-
leiða við Gísla Jónsson,
umdæmisstjóra félagsins á
Norðurlandi. Ekki væri til siðs að
ræða mál einstakra starfsmanna
fyrirtækisins.
Kolbeinn sagði að þessa dag-
ana væri verið að fara ofan í alla
rekstrarþætti í innanlandsflug-
inu, samninga jafnt sem aðra
kostnaðarþætti og þannig væri
reynt að leita allra leiða til sparn-
aðar. Nauðsynlegt væri að leita
sparnaðarleiða í öllum rekstri
félagsins, jafnt á Akureyri sem
Reykjavík. Mestur kostnaður
væri við reksturinn í Reykjavík
og þar yrði hægt að spara mest.
óþh
Grímsey:
Tvö hundruð tonn á
land frá áramótum
Grímseyjarbátar hafa aflað vel
í vetur þrátt fyrir rysjótta tíð.
Starfsmenn fiskverkunar
Kaupfélags Eyfírðinga hafa
tekið á mótið liðlega 200 tonn-
um frá áramótum, sem er
helmingi meiri afli en á sama
tíma fyrir ári.
Þorsteinn Orri Magnússon,
verkstjóri í Grímsey, segir uppi-
stöðu aflans þorsk og hann er
smár sem oft vill verða fyrir
Norðurlandi. Bátarnir róa með
línu utan Magnús EA, sem rær
með snurvoð.
„Magnús EA fékk 30 tonn í
janúar, en illa hefur gengið nú í
febrúar. Á þriðjudaginn lönduðu
bátarnir 18 tonnum, þar af var
Þorleifur EA með 4 tonn. Afli
Þorleifs frá áramótum eru góð
100 tonn. í janúar fengu karlarnir
60 tonn og það sem af er febrúar
eru tonnin liðlega 40. Atvinnu-
leysi þekkist ekki í Grímsey. Öll-
um líður vel og hér eru 12
aðkomumenn til að létta okkur
störfin,“ sagði Þorsteinn Orri í
Grímsey. ój
Börnin á Bestabæ á Húsavík brugðu sér út milli élja í vikunni, svona rétt til að viðra fóstrurnar sínar. Mynd: im
Málflutningur í Híbýlismálinu
í Hæstarétti 26. febrúar nk.
Málflutningur í máli þrotabús
byggingafyrirtækisins Híbýlis á
Akureyri gegn Akureyrarbæ
vegna íbúða í grænu blokkinni
svokölluðu við Helgamagra-
stræti á Akureyri verður í
Hæstarétti 26. febrúar nk.
Dómur féll í málinu í undirrétti
12. júlí 1990 og í ágúst sama ár
áfrýjaði þrotabú Híbýlis mál-
inu til Hæstaréttar. Hreinn
Pálsson, lögfræðingur á Akur-
eyri, flytur málið fyrir hönd
Akureyrarbæjar en Sveinn
Sveinsson, Iögfræðingur í
Reykjavík, fyrir hönd þrota-
bús Híbýlis.
Byggingafyrirtækið Híbýli var
tekið til gjaldþrotaskipta haustið
1989. Þá var fyrirtækið með
grænu blokkina svokölluðu við
Helgamagrastræti í smíðum.
Akureyrarbær gerði á sínum
tíma kröfu um að fá 15 íbúðir í
blokkinni utan skuldaraðar á
þeirri forsendu að um þær væru
gildir verksamningar og því ætti
bærinn þessar tilteknu íbúðir í
því ástandi sem þær voru við
gjaldþrotið. Þessari kröfu var
hafnað af hálfu bústjóra og í ljósi
þeirrar afstöðu höfðaði bærinn
mál í undirrétti og þar féll dómur
Akureyrarbæ í vil. Að fenginni
niðurstöðu undirréttar áfrýjaði
Brynjólfur Kjartansson, hrl.,
bústjóri þrotabúsins, málinu til
Hæstaréttar. Skiptum í þrotabúi
Híbýlis hefur ekki verið hægt að
ljúka vegna þess að þessi angi
málsins er enn til meðferðar í
Hæstarétti.
Ljóst er að í þessu máli er um
að ræða mikla hagsmuni fyrir
Akureyrarbæ. Til marks um það
hljóðaði krafa Akureyrarbæjar á
sínum tíma upp á um 27 milljónir
króna, sem var sú upphæð sem
bærinn hafði borgað inn á verk-
samninga vegna íbúðanna, þegar
Híbýli var lýst gjaldþrota. Tapi
Akureyrarbær málinu verður
bænum væntanlega gert að greiða
Hugmynd um byggingu flotkvíar á Akureyri:
Raunveruleg leið til að gera
eitthvað arðbært og varanlegt
- segir Hákon Hákonarson, formaður Félags málmiðnaðarmanna
Málmiðnaðarmenn á Akureyri
eru hrifnir af þeirri hugmynd
sem kom fram á fundi atvinnu-
málanefndar nýlega, þess efnis
VEÐRIÐ
í dag mun hlýna lítillega í
veðri, fyrst suðvestanlands.
Suðaustan kaldi eða stinnings-
kaldi verður norðvestanlands í
dag og snjókoma þegar líður
á daginn. Á Norðausturlandi
verður allhvasst og snjókoma
fram eftir morgni en léttir síð-
an til með vestan golu.
að nefndin leiti eftir samstarfí
við hafnarstjórn og Slippstöð-
ina Odda hf. um skipan starfs-
hóps sem athugi möguleika á
byggingu flotkvíar á Akureyri.
Nokkurt atvinnuleysi hefur
verið á meðal málmiðnaðar-
manna á Akureyri að undan-
förnu og rétt eftir síðustu mán-
aðamót voru 28 málmiðnaðar-
menn atvinnulausir.
„Mannvirkin í Slippnum eru
orðin gömul og þau eru mjög tak-
mörkuð og takmarka starfsemi
fyrirtækisins á margan hátt, t.d.
taka þau ekki okkar stærstu
skip,“ sagði Hákon Hákonarson,
formaður Félags málmiðnaðar-
manna í samtali við Dag.
Hákon segir að hugmyndir um
flotkví eða þurrkví hafi verið inni
í myndinni þegar menn voru að
tala um bætta aðstöðu við Slipp-
stöðina og að fyrirtækið yrði orð-
inn 500-600 manna vinnustaður
um aldamót. „í dag er staðan ein-
faldlega sú að það er mjög þröngt
á vinnumarkaðnum og eins eru
mannvirkin í Slippnum sem not-
uð eru við upptöku skipa orðin
léleg og því finnst mér þessi hug-
mynd vera mjög kærkomin. Þetta
er að okkar mati eitt besta málið
sem komið hefur upp í bæjar-
stjórn lengi.“
Hákon segir að Atvinnuleysis-
tryggingasjóður hafi verið að
breyta sfnum vinnubrögðum í
sumum tilfellum. „Og ég bara
spyr hvort ekki sé betra að nota
þessa peninga sem greiddir eru í
atvinnuleysisbætur í dag til þess
að gefa fólki kost á því að vinna
að einhverjum arðbærum verk-
efnum eins og að endurbæta
hafnarmannvirki Slippstöðvar-
innar, í stað þess að senda full-
frísku fólki peningana heim fyrir
að gera ekki neitt. Þarna er líka
verið að tala um raunverulega
leið til að gera eitthvað arðbært
og varanlegt, sem styrkir um leið
bæði í nútíð og framtíð, stöðu
fyrirtækis sem er einn af máttar-
stólpum bæjarins.“ -KK
þrotabúinu þessa fjármuni auk
vaxta. Vinni bærinn hins vegar
málið fær hann staðfestan ráð-
stöfunarrétt yfir íbúðunum í
grænu blokkinni. óþh
Rannsóknastofnun
Háskólans á Akureyri:
Staða framkvæmda-
stjóra auglýst
- ný staða við skólann
Háskólinn á Akureyri hefur
auglýst lausa til umsóknar
stöðu framkvæmdastjóra
Rannsóknastofnunar skólans.
Þetta er ný staða við Háskól-
ann og er ein af fjórum nýjum
stöðum sem hann fékk á fjár-
lögum 1993. Umsóknarfrestur
um stöðuna er til 15. mars nk.
Rannsóknastofnun Háskólans
á Akureyri var formlega stofnuð
á sl. sumri og hefur Jón Þórðar-
son, forstöðumaður sjávar-
útvegsdeildar skólans, sinnt
framkvæmdastjórn Rannsókna-
stofnunar í hlutastarfi. Þrátt fyrir
ungan aldur hefur stofnunin þeg-
ar tekið að sér nokkur athygl-
isverð verkefni, t.d. úttekt á
rækjuiðnaðinum í landinu, og
fyrir skömmu stóð hún fyrir
ígulkeraráðstefnu á Akureyri,
sem vakti mikla athygli.
Kristján Kristjánsson, formað-
ur stjórnar Rannsóknastofnunar
Háskólans á Akureyri, segir að
stofnunin hafi einnig staðið fyrir
opnun svokallaðs þróunarseturs
að Glerárgötu 34, en þar hafa
skrifstofu Pétur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda og Ólaf-
ur Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Fiskeldis Eyjafjarðar.
Einnig er þar skrifstofa sem ætl-
uð er fyrir svokallaðan gesta-
fræðimann.
Áskilið er að umsækjendur um
framkvæmdastjórastarf Rann-
sóknastofnunar hafi háskólapróf
og umsóknum skulu fylgja skýrsl-
ur um vísindastörf, ritsmíðar og
rannsóknir viðkomandi. óþh