Dagur - 01.04.1993, Blaðsíða 14

Dagur - 01.04.1993, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 1. apríl 1993 Iþróttir Opna alþjóðlega Pro Kennex mótið í badminton: Besta mótíð tíl þessa - keppni jöfn og spennandi í öllum flokkum Iilsa Nielscn vann sigur í einliðaleik kvenna eftir mikla baráttu. Myndir: Jón Hrói. Opna alþjóðlega Pro Kennex mótið í badminton var haldið dagana 26. og 27. mars sl. í Iþróttahöilinni á Akureyri. Þátttaka var mjög góð og á annað hundrað keppenda víðs- vegar að af landinu mættu til leiks. Flcstir aðkomumanna komu frá Reykjavík og erlend- ir spilarar voru 2 að þessu Akureyringurinn, Kristinn Jónsson, vann tvöfalt í öðlingaflokki. sinni. Þetta voru þeir Anthony Bush frá Bretlandi, sem kom sérstaklega á mótið og Huang Weicheng frá Kína, einn af þjálfurum TBR. Mótið tókst vel í alla staði og var keppni bæði spennandi og skemmtileg á að horfa í öllum greinum. Keppt var í einliða- og tvíliðaleik karla og kvenna, í A- og B-flokki, auk tvenndarleiks og í einliðaleik karla 40 ára og eldri. B-flokkurinn var fjölmennastur en litlu færri skráðir í A-flokk. Meistaraflokkurinn var vel sóttur og allt besta badmintonfólk landsins mætt til leiks og gamal- reyndir spilarar í flokki 40 ára og eldri. Mót þetta er orðið eitt stærsta og veglegasta badminton- mót landsins og fer fjöldi þátttak- enda vaxandi ár frá ári. Mótið hefur án efa haft mjög góð áhrif á þróun og uppgang badminton- íþróttarinnar á Akureyri sem nú er í uppsveiflu. í einliðaleik karla í meistara- flokki mættust Anthony Bush og Broddi Kristjánsson. Leið Bush í úrslitin var nokkuð greið þar sem Arni Þór Hallgrímsson meiddist í baki en Broddi átti erfiðan leik við Þorstein Pál Hængsson og sigraði í tveimur lotum eftir að hafa verið undir lengst af í þeirri síðari. Bush vann I. lotu úrslita- leiksins auðveldlega 15:7 og leit um tíma út fyrir að Broddi myndi ekki komast inn í leikinn eins og gerðist eftirminnilega í úrslitum mótsins 1992. Broddi mætti hins vegar einbeittur til leiks í næstu lotu og vann 15:9. í oddalotunni endurtók Bush leikinn frá fyrstu lotu og vann 15:8. Er þetta í 2. sinn á 5 vikum sem þeir félagar mætast, en Bush hafði einnig bet- ur í úrslitum á opnu móti í Bret- landi. í einliðaleik kvenna mættust Birna Petersen og Elsa Nielsen. Leikurinn var ákaflega jafn og spennandi og vel spilaður af beggja hálfu. Birna sigraði naum- lega í 1. lotu 12:11 og var yfir framanaf 2. lotu, en Elsa náði að knýja franr sigur í upphækkun, 12:10. Elsa var síðan mun sterk- ari í oddalotunni og sigraði 11:5. Pess má geta að litlu mátti muna að Elsa þyrfti að lúta í lægra haldi fyrir Guðrúnu Jónsdóttur í undanúrslitum. í tvíliðaleik karla unnu Þor- steinn Páll Hængsson og Ant- hony Bush sannfærandi sigur á íslandsmeisturunum Árna Þór og Brodda, 15:11 og 15:6. Var gam- an að horfa á hversu vel Þor- steinn-og Bush náðu saman þrátt fyrir að hafa aldrei leikið saman áður. Hins vegar virtust bak- meiðslin hrjá Árna Þór og munar um minna í jafn erfiðum úrslita- leik. í tvíliðaleik kvenna sigruðu Birna Petersen og Guðrún Júlíus- dóttir Vigdísi Ásgeirsdóttur og Aðalheiði Pálsdóttur nokkuð auðveldlega, 15:3 og 15:11 og komu þau úrslit ekki á óvart. I tvenndarleik sigruðu svo Guðrún Þorsteinn Páll Hængsson og Ant- hony Bush unnu tvfliðaleikinn. og Árni Þór þau Þorstein og Elsu Nielsen. Árni náði sér vel á strik í þessum síðasta leik mótsins þrátt fyrir meiðslin og Guðrún átti einnig frábæran leik. Það var því aldrei spurning hvernig færi enda voru lokatölur 15:4 og 15:4. Hér á eftir fylgja síðan úrslit í öðrum flokkum. Dagur kann þeim Einari Jóni Einarssyni og Jóni Hróa Finnsyni bestu þakkir fyrir aðstoð við myndatökur og annað. A-flokkur: Einliðaleikir: Skúli Sigurðsson vann Njörð Lúð- víksson í úrslitum 10:15, 15:4 og 15:9. Brynja Pétursdóttir vann Margréti Dan Þórisdóttur 11:1 og 11:8. Tvíliða/tvenndar: Sigfús Ægir Árnason og Gunnar Björnsson unnu Skarphéðinn Garð- arsson og Valgeir Magnússon 15:7 og 15:3. Brynja Pétursdóttir og Irena Ósk- arsdóttir unnu Margréti Dan og Magneu Magnúsdóttur 15:2, 8:15 og 15:7. Sigfús Ægir og Hanna Lára Köhler unnu Skúla Sigurðsson og Margréti Dan 15:4 og 15:5 B-flokkur: Einliðalcikir: Sveinn Logi Sölvason vann Reyni Georgsson 15:12 og 15:11. Ágústa Arnarsdóttir vann Hrund Guðmundsdóttur 11:4 og 11:15. Tvíliða/tvenndar: Sveinn Logi Sölvason og Hængur Þorsteinsson unnu Sigurð Þorsteins- son og John H. Grant 15:1 og 15:4. Áslaug Hinriksdóttir og Ágústa Arnardóttir unnu Sigríði Sigurðar- dóttur og Gunnhildi Stefánsdóttur 15:1 og 15:6. Reynir Georgssoa.og Irena Óskars- dóttir unnu Svein Loga og Ágústu Arnardóttur 17:14 og 18:15. 40 ára og eldri: Kristinn Jónsson vann Hauk Jóhannsson 15:11 og 15:9 og þeir saman unnu Karl Davfðsson og Steinar Petersen í tvíliðaleik 15:8 og 15:5. íslandsmótið í vélsleðaakstri í Mývatnssveit: Menn og sleðar í sól og blíðu íslandsmeistaramót í vélsleða- akstri var haldið í Mývatns- sveit um síðustu helgi. Kepp- endur komu víða að af landinu og fjöldi manns kom á vélsleð- um sínum yfir hálendið. Keppnin var nú haldin í 11. sinn á 14 árum, en þrívegis, þar af tvö síðustu ár, hefur hún fallið niður sökum snjóleysis. Nú var hins vegar nægur snjór. Veður var fremur þungbúið á föstudag, en þá var keppt í fjalla- Vilhelm Vilhelmsson vann bæði braut og spyrnu á 650 sleða sínum. ralli og spyrnukeppni. Á laugar- daginn, þegar brautarkeppnin fór fram, var hins vegar stafalogn, sólskin og hiti rétt um frostmark. Að öllum líkindum besta veður sem völ er á til útiveru yfir vetrar- tímann. Skemmtu fjölmargir áhorfendur sér konunglega yfir tilþrifum ökumanna. Mótshaldið var sem fyrr í öruggum höndum Mývetninga. Vélsleðakeppnir í Mývatnssveit eru einhver best skipulögðu akstursíþróttamót Gunnar Hákonarson á Polaris XCR vann þrefalt. sem fram fara hérlendis og mættu sumir aðrir taka þau sér til fyrir- myndar. Fjallarallið er erfiðasta grein mótsins og þar er keppt í þriggja manna sveitum og 40 km eknir á sem skemmstum tíma. Sigurveg- ari varð sveit Polarisumboðsins og 3T, en hana skipuðu Arnar Val- steinsson, Gunnar Hákonarson og Finnur Aðalbjörnsson. Þeir óku allir á Polaris Indi 440 XCR. Sveit Ski-doo varð í 2. sæti, þá Greifasveitin og sveit Bifreiða og landbúnaðarvéla varð 4. í brautarkeppninni var keppt til úrslita í tveimur samhliða brautum og einnig var keppt í snjókrossi þar sem margir sleðar keppa í einu. Hér á eftir fylgja úrslit þriggja efstu í hverri grein. Til áréttingar skal þess getið að skammstöfunin AC stendur fyrir Arctic Cat, Pol. fyrir Polaris Indi, Ski. fyrir Ski-Doo Formula og Yam. fyrir Yamaha. Spyrnukeppni: Opinn flokkur yflr 600 cc: 1. Ingólfur Sigurðss., AC Wildc. 1100 9,01 2. Heimir Ásgeirsson, Pol. 650 9,34 3. Rúnar Gunnarsson, Ski. Mac IX 9,59 Opinn flokkur undir 600 cc: 1. Guðlaugur Halldórsson, Pol. XLT 9,42 2. Þór Daníelsson, Pol. XLT 9,82 3. Sigurður P. Jónsson, AC EXT 11,23 Flokkur T/S: 1. Kristján I. Bragason, Pol. Storm 9,01 2. Finnur Aðalbjörnsson, Pol. Storm 9,11 3. Sigurður Gylfason, Ski. Mach 1 9,11 Flokkur AA: 1. Ingólfur Sigurðsson, AC Wildc. EFI 9,56 2. Ríkarður Kristinsson, AC Wildc. 9,65 3. Haraldur Grétarsson, Ski. Mac 1 9,70 Flokkur A: 1. Sigurður Sigþórsson, Pol. XLT 9,97 2. Halldór J. Einarsson, Pol. XLT 9,98 3. Þórir Ófeigsson, Ski. Plus X 10,02 Flokkur B: 1. Tryggvi Aðalbjörnss., AC EXT sp. 10,21 2. Ingólfur Sigurðsson, AC EXT sp. 10,21 3. Gunnar Hákonars., Pol. 440 XCR 10,50 Flokkur C: 1. Arnar Valsteinsson, Pol. 440 XCR 10,32 2. Björn Óli Ketilsson, Ski. MX Z 10,33 3. Jónmundur Guðmundss., Ski. MX Z 10,54 Brautarkeppni: Opinn flokkur yfír 600 cc: 1. Heimir Ásgeirsson, Pol. 650 3:43,83 Nýju ZR sleðarnir frá Artic Cat hafa verið sigursælir erlendis og Jóhannes Reykjalín ók ZR 580 til sigurs í brautarkeppninni í flokki A. Myndír: ua 2. Rúnar Gunnarsson, Ski. Mac IX 3:48,67 3. Ingólfur Sigurðss., AC Wildc. 1100 4:02,00 Opinn flokkur undir 600 cc: 1. GuðlaugurHalldórssonPol. XLT 3:42,10 2. Hjörleifur Harðars. Yam. Exciter 3:53,27 3. Þór Daníelsson, Poi XLT 3:55,66 Flokkur T/S: 1. FinnurAðalbjörnsson Pol. Storm 3:39,27 2. Árni Grant AC 440 ZR 3:47,27 3. Halldór Jóhannesson, Pol. Storm 4:02,10 Flokkur AA: 1. Vilhelm Vilhelmsson, Pol. 650 3:44,79 2. Halldór Bárðarson, Pol. 650 3:54,16 3. Kristmundur Þórisson, AcWildc. 3:58,72 8ki-doo IVIX-Z sleðar urðu í 2. og 3. sæti í sínum flokki í spyrnu. Flokkur A: 1. Jóhannes Reykjalín, AC 580 ZR 3:52,67 2. Stefán Álfsson, Pol. XLT 3:56,19 3. Þórir Ófeigsson, Skí. Plus X 4:01,51 Flokkur B: 1. GunnarHákonars., Pol. 440XCR 3:51,79 2. Samúel Einarsson, AC EXT sp. 3:53,20 3. Jón Ingi Sveinsson, Pol. 500 3:55,66 Flokkur C: 1. Jóhann Eysteinss., Pol. 440 XCR 3:50,75 2. Viðar Sigþórsson, AC 440 ZR 3:50,84 3. Amar Valsteinss., Pol. 440 XCR 3:52,47 Snjókross: Flokkur 550 cc og yfir: 1. Gunnar Hákonarson 2. Marinó Sveinsson i 3. Sveinn Sigtryggsson 4. Viðar Sigþórsson Flokkur 551 cc og yfír: 1. Vilhelm Vilhelmsson 2. Sigurður Gylfason 3. Halldór Bárðarson 4. Finnur Aðalbjörnsson

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.