Dagur


Dagur - 22.04.1993, Qupperneq 6

Dagur - 22.04.1993, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 22. apríl 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Harðindavetur á enda Nú er sumarið komið eftir langan og strangan vetur. Mikil harðindi settu svip sinn á nýliðinn vetur, þó ekki í veðurfarslegu tilliti. Reyndar var snjóþungt á tímabili og óveðurskaflar hrelldu menn og málleysingja, en þessar aðstæður eru ekkert öðruvísi en íslendingar eiga að venjast. Mestu frosthörkurnar og erfiðustu áhlaupin urðu í efna- hags- og atvinnumálum þjóðarinnar og þar urðu meiri harðindi en fólk hefur upplifað í áratugi. Ekki þarf að fara mörgum orðum um ótíðina sem launafólk hefur þurft að búa við. Á nýliðnum vetri náði tilfinnanlegt atvinnuleysi að festa sig í sessi hér á landi og það virðist komið til að vera næstu árin. íslandsmet í atvinnuleysi var sett í marsmán- uði og spakir menn hafa jafnvel kinkað kolli og sagt að visst atvinnuleysisstig sé þjóðhagslega hagkvæmt. Þá eru menn greinilega ekki að hugsa um fólkið sem þessar tölur standa fyrir, fólkið sem sér síst af öllu eitthvað hagkvæmt við það að eigra um án atvinnu. Þeir sem enn halda atvinnu hafa þurft að þola skattpíningu, nýjar og auknar álögur, lækkun skatt- leysismarka, minnkandi vinnu og þar af leiðandi minni ráðstöfunartekjur. Veturinn hefur sett mark sitt á þetta fólk. Það horfir frostbitnum augum mót hækkandi sól og vonar að geislar hennar nái að bræða klakann. En það getur reynst erfitt að halda í vonina þegar fjölskyldan getur ekki brauðfætt sig, atvinnuöryggið er ekkert og heimilið á leið undir hamarinn. Talsmenn launþega höfðu hátt síðastliðið haust og sumir þeirra eru orðnir hásir eftir veturinn. Árangurinn er hins vegar enginn, enn sem komið er. Ætlunin var að semja fljótt og vel, sækja aftur það sem af hafði verið tekið. Margir höfðu trú á því að verkalýðsforystunni tækist að standa uppi í hár- inu á ríkisstjórninni en hvað blasir við? Langar og strangar samningalotur hafa reynst gagnslausar og það eina sem verkalýðsforystan annars vegar og ríkisstjórnin og vinnuveitendur hins vegar virðast sammála um er að friður og stöðugleiki megi áfram ríkja. Víst eru þetta falleg hugtök en það hlýtur að mega bæta kjör þeirra sem verst eru settir án þess að friðurinn fari út um þúfur. Þótt ef til vill sé réttmætt að gagnrýna verkalýðs- forystuna dylst þó varla nokkrum að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar ber mesta á ábyrgð á því hvernig komið er. Þaðan eru helstu fárviðri vetrarins komin. Þaðan eru harðindin sprottin, að minnsta kosti í augum launafólks. Fjármagnseigendur og þeir sem hæstu tekjurnar hafa lofa sennilega einstaklega mildan vetur. Meðan fjölmargir endar eru lausir í þjóðfélaginu er rifist á Alþingi um ráðningu starfsmanns hjá opinberri stofnun. Það mál, þótt rotið sé, er varla tímans virði, nema það verði til þess að stjórnin klofni og fari frá. Þá fengi almenningur góða sumar- gjöf. Dagur óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars með von um að „bráðum komi betri tíð með blóm í haga“. SS Skólaselið í Reykjahlíð er fyrir löngu orðið of lítið til að hýsa þá starfsemi sem því er ætlað. Skýrsla Fræðsluskrifstofunnar um skólafyrirkomulag í Skútustaðahreppi: Fá kennslufræðileg rök f\TÍr kennslu í einum skóla á tveimur stöðum Á fundi skólanefndar Skútustaða- hrepps þann 5. maí 1992 var ákveðið að fara þess á leit við Fræðsluskrifstofu Norðurlands- umdæmis eystra að á vegum skrif- stofunnar yrði gerð úttekt á skóla- fyrirkomulagi í Skútustaðahreppi og á fundi sveitarstjómar Skútu- staðahrepps þann 14. maí s.á. var tekið undir þá ákvörðun. Formleg beiðni barst Fræðsluskrifstofunni síðan ekki fyrr en með símbréfí 20. október 1992 þar sem farið var fram á að fræðsluskrifstofan ann- aðist faglega úttekt á skólamálum í Skútustaðahreppi og gerði tillög- ur um framtíðarskipan þeirra. í dag háttar svo til í Skútu- staðahreppi að þá er aðalskóli skilgreindur að Skútustöðum en útibú (skólasel) í Reykjahlíð. 10. bekkur grunnskóla hefur ekki ver- ið starfræktur í sveitinni undanfar- in ár og því hafa nemendur þurft að sækja nám í síðasta bekk grunnskóla burtu úr hreppnum og hafa flestir þeirra sótt nám í Laugaskóla í Reykjadal. En nú hefur sveitarstjóm samþykkt að á næsta skólaári skuli starfræktur 10. bekkur og þannig komið til móts við óskir fjölda nemenda og foreldra að nemendur fái tækifæri til að ljúka grunnskólanámi í sveitinni og vera sem lengst í for- eldrahúsum. Á komandi skólaári munu nemendur 10. bekkjar verða 12 talsins. í ár er nemendadreifing 1. til 10. bekkjar í Skútustaðahr- eppi sú að í norðurhluta sveitar- innar, þ.e. á svæðinu frá og með Vogum að og með Vindbelg, er nemendafjöldi 62 en í suðurhluta sveitarinnar, þ.e. sunnan áður- nefnds svæðis, er nemendafjöld- inn 29. í spá um nemendafjölda allt fram til aldamóta er gert ráð fyrir svipaðri skiptingu nemenda, þ.e. að um 65% þeirra komi frá norðursvæðinu en 35% frá suður- svæðinu. í skýrslu Fræðsluskrif- stofunnar er reynt að bera saman á hlutlægan hátt kosti og galla þess að hafa fámennan skóla tvískiptan eða ekki og þar segir m.a. um samvinnu kennara og sérþekk- ingu: „Margir kennarar í fámennum skólum kvarta undan faglegri ein- angrun og hversu krefjandi það er að þurfa að kenna svo margar greinar sem raun ber vitni. Einnig er það ótvíræður kostur fyrir skólastarfið ef kennarar og annað starfsfólk vinnur mikið og náið saman. Við sameiningu kennslu- staða eru skapaðar forsendur fyrir aukna samvinnu og það að sér- þekking kennara nýtist betur fyrir skólastarfið í heild. Kennarar virð- ast sjá marga kosti við fámennið en vilja ekki samkennslu. Það má því fullyrða að fjölmargir kennar- ar fámennisskóla vilja hafa fá- mennan árgangaskipta skóla sem er eins og „lítill stór skóli“ en lúti ekki eigin skipulagsmálum út frá innri og ytri aðstæðum". Kennslustundakvóti Samkvæmt 74. grein laga urn grunnskóla skal miða fjölda kennslustunda sem ríkissjóður greiðir við heildarfjölda nemenda er stunda nám samtímis í grunn- skólum hvers skólahverfis. Á þeim forsendum að ekki væri til í Skútustaðahreppi skólahúsnæði sem rúmaði alla nemendur á sama stað hefur fram til þessa verið heimilað, með samþykki mennta- málaráðuneytisins, frávik frá þess- ari meginreglu og kennslumagni úthlutað eins og um tvo skóla væri að ræða. Með tilkomu skólahúss- ins í Reykjahlíð eru ofangreindar forsendur ekki lengur til staðar og má því reikna með að framvegis verði tímamagni til skólahverfis- ins úthlutað samkvæmt megin- reglunni, enda muni kvótinn nýt- ast betur miðað við einn kennslu- stað og það opnar einnig fleiri möguleika varðandi stærð og skipan námshópa og fjölbreytni í kennsluháttum. f niðurstöðum segir að fá kennslufræðileg rök styðji það að halda uppi kennslu á tveimur stöð- um í einum skóla, en hins vegar geti annars konar rök hugsanlega mælt með því. Rekstur tveggja skólahúsa er einnig talinn líklegri til að valda því að hvorugt skóla- húsið verði vel búið eða annað líði fyrir hitt. Hins vegar benda flest rök til þess að sameining á einn kennslustað muni skapa þær að- stæður sem þarf og þess vegna er mælt með því í skýrslunni að ár- göngum verði ekki skipt á tvo kennslustaði. Einn skóli í Reykjahlíð eða...? I fljótu bragði virðist vera hægt að sjá fimm líkön af skólastarfi í Skútustaðahreppi og má jafnvel vera að þau séu fleiri. Þau eru í fyrsta lagi óbreytt fyrirkomulag; í öðru lagi aðalskóli í Reykjahlíð, skólasel að Skútustöðum; í þriðja Lesendahornið Óþolandi tillitsleysi á rúntimim Haraldur hringdi og vildi kvarta undan því sem hann nefnir „óþolandi tillitsleysi ökumanna, aðallega hinna yngri, sem keyra „rúntinn" í miðbæ Akureyrar“. „Það virðist einhver tíska meðal ungra ökumanna að stoppa bílinn á miðri götu og spjalla í rólegheituin við öku- mann bifreiðar sem er að fara í gagnstæða átt. Á meðan er öll umferð um miðbæinn stopp og maður kemst ekki leiðar sinnar, þótt lífið liggi við, fyrr en hinum kjaftaglöðu og tillitslausu öku- mönnum hentar! Mér finnst að lögreglan eigi að herða eftirlit í miðbænum og uppræta þessa ósvífni.“ Samkomuhúsið: Starfsfólkið leggur í bestu bflastæðin Leikluisáhorfandi hringdi: „Ég fór nýlega með eldra fólk á sýningu á Ledurblökunni hjá Leikfélagi Akureyrar. Þetta gamla fólk getur ekki gengið langt og engin bflastæði að fá fyr- ír íram Samkomuhúsið vegna þess að starfsfólk og leikarar LA, sem er fólk á besta aldri, tekur upp öll bílastæðin þar. Það skap- ar hreinasta vandræðaástand þegar um gamalt fólk er að ræða og væri mjög miður og til vansa fyrir starfsfólkið ef gamla fólkið veigrar sér við að sækja sýningar vegna ótta við að þurfa að ganga langar leiðir sem það hefur jafn- vel ekki þrek til. Mér þætti vænt um ef starfsfólk LA tæki þetta til gaumgæfilegrar athugunar."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.