Dagur - 22.04.1993, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 22. apríl 1993 - DAGUR - 11
aðstoðar. Fyrsta aðstoðin barst í
líki mótorhjólamanns, sem fús-
lega flutti veiðimanninn til
þorpsins. Vinur okkar æddi inn á
bifreiðaverkstæðið næstum mál-
laus af taugaæsingi og gat komið
eigandanum í skilning um að
hann hefði sett í lax, en kynni
engin ráð til þess að ná honum á
land. Eigandinn góðhjartaði
greip samstundis ífæru, snaraðist
upp í bifreið sína og ók á feikna
hraða með vin okkar niður að
ánni. Þegar þangað kom voru 20
mínútur liðnar frá því að „veiði-
maðurinn“ lagði frá sér stöngina.
Laxinn hafði gert sér það til
afþreyingar að synda nokkrar
hringferðir um hylinn. Dregið
hafði hann út nokkra faðma af
línunni, sem flækst höfðu í gróðri
árbakkans og trjágreinum sem
slúttu út yfir ána. Vinur okkar
hafði frá þeirri stundu, er hann
fann fyrir laxinum, verið dauð-
hræddur um að hann myndi slíta.
Þess vegna tók hann viðnáms-
takkann á hjólinu úr sambandi,
en sú ráðstöfun átti sinn þáttí því
sem á eftir gerðist. Næsti stund-
arfjórðungur fór í að losa línuna
af þyrnum, runnum og greinum.
Vissulega varð að gæta þess eins
vandlega og unnt var, að laxinn
yrði ekki á nokkurn hátt var við
það sem fram fór.
Svo vildi til að botn hylsins var
sléttur, þar voru engar nybbur
eða steinar, sem línan gat flækst
um. Og þegar félagarnir höfðu
undið inn á hjólið sem þurfti,
kom í Ijós að laxinn var á. Tíu
mínútur liðu og laxinn lá sprikl-
andi á bakkanum.
Við vorum í miðri máltíð þeg-
ar vinurinn kom heim með
laxinn. Nokkrir vantrúaðir veiði-
menn voru kallaðir út til þess að
sjá dýrðina með eigin augum. Ég
held að við höfum allir þóst
heppnir, að opinbera ekki „fá-
visku“ okkar daginn áður, með
því að segja vini okkar að énginn
lax væri í ánni! Hann kenndi
sýnilega í brjósti okkur aumingj-
ana, sem ekkert höfðu fengið
annað en urriðatitti.
Þegar vinur okkar mætti
hvorki í kaffi eða kvöldverð
spurðum við, hvort hann hefði
farið aftur niður að á til að veiða
annan lax. Öllum til mikillar
undrunar sagði hótelstjórinn, að
hann hefði farið strax eftir hádeg-
ið, afsalað sér herberginu og
haldið rakleiðis heim til að sýna
konu sinni laxinn, sem vegið
hafði átta pund.
Sagan er ekki öll. Árið eftir
hafði vinur okkar viðkomu á bif-
reiðaverkstæðinu til að kaupa
bensín. Verkstæðiseigandinn
spurði hann þá, hvernig laxinn
frægi hefði smakkast. „Heldurðu
að lax sem þessi hafi verið borð-
aður? Nei, ég lét setja hann upp í
glerskáp og hann hangir yfir arn-
inum í stofunni hjá okkur“.
Náttúran Ijóðar til
veiðimanna
Um enga skepnu hefur verið rit-
að eins mikið og laxinn. Þegar
Rómverjar sáu hann fyrst, annað
hvort í Rín eða í ám á Englandi,
gáfu þeir honum nafnið salmo,
sem þýðir stökkvari. Friður vor-
næturinnar er á næstu grösum,
þegar laxinn leitar æskuslóðanna
í stökkum um fossa og flúðir. Já,
nú sem fyrr mun náttúran ljóða
til veiðimanna og þá er að bregð-
ast rétt við. Gleðilegt sumar og
góða veiði. ój
>
Aðalfundur Ættfræðifélagsins:
Útgáfa manntalsms 1910 í undirbúningi
- á sjötta hundrað manns í félaginu
Aðalfundur Ættfræðifélagsins
1993 var haldinn fyrir skömmu.
Starfsemi félagsins er mjög góð,
félagsfundir eru einu sinni í mán-
uði yfir veturinn og þá haldnir
fyrirlestrar um ýmis ættfræðileg
efni.
í félaginu eru á sjötta hundrað
manns. Ættfræðifélagið er áhuga-
mannafélag og er hlutverk þess
að stuðla að auknum áhuga á ætt-
fræði, ættfræðirannsóknum og
útgáfu frumheimilda og hjálpar-
gagna svo sem manntala, fyrir þá
sem stunda þau þjóðlegu fræði
sem ættfræðin er.
Félagið hefur gefið út manntöl-
in 1801, 1816 og 1845 og hefur
þau til sölu. Nú vinnur það að
undirbúningi á útgáfu manntals-
ins 1910 í samvinnu við Erfða-
fræðinefnd og Þjóðskjalasafn.
Það er alltaf að aukast áhugi á
ættfræði, bæði í vísindaskyni og
meðal einstaklinga. Fólk er farið
að hugsa meira um hvaðan það er
komið, sést það best á því unga
fólki, sem núna er að leita að
uppruna sínum erlendis.
Ættfræðifélagið gefur út frétta-
bréf og eru þar birtir fyrirlestrar
og aðsent efni frá félögum. Þeir
sem áhuga hafa á ættfræði og
vilja ganga í félagið, geta hringt í
einhvern úr stjórninni, en hana
skipa: Hólmfríður Gísladóttir,
formaður, sími 91-74689; Guð-
mar Magnússon, varaformaður,
sími 91-625864; Klara Kristjáns-
dóttir, gjaldkeri, sími 91-51138;
Guðfinna Ragnarsdóttir, ritari,
sími 91-681153; Kristín Guð-
mundsdóttir, meðstjórnandi,
sími 91-25287.
í varastjórn eru: Kristín H.
Pétursdóttir, sími 91-12937; Ólaf-
ur G. Vigfússon, sími 91-34912.
HÁSKÓUNN
A AKUREYHI
Fyrirlestur um
fiskihagfræði
Tími: Laugardaginn 24. apríl kl. 14.00.
Staður: Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti,
stofa 25.
Efni: Markaðsbúskapurog sjávarútvegur.
Flytjandi: Dr. Rögnvaldur Hannesson, prófessor í
fiskihagfræði við Verslunarháskólann í
Björgvin, Noregi.
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm
leyfir.
Óska öllum viðskiptavinum mínum
gleðilegs sumars og þakka viðskiptin
undanfarin ár.
Sérstakar þakkir til Stefnisbílstjóra sem og
annars starfsfólks hjá bifreiðastöðinni Stefni.
ÞÓRIR ÁSKELSSON,
seglasaumari.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Aðstoðarlæknir a Geðdeild:
Reyndur aðstoðarlæknir óskast til starfa á Geðdeild
F.S.A. frá 1. júlí 1993 til 6 mánaða og frá 1. janúar
1994 til 6 mánaða.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf, skulu sendar yfirlækni deildarinnar, sem gefur
nánari uplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1993.
Læknafulltrúi á Geðdeild:
Læknafulltrúi óskast í 50-75% starf á Geðdeild frá 1.
júlí 1993. Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu sendaryfirlækni deildarinnar, sem
ásamt læknafulltrúa gefur nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1993.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 96-30100.
Kynningar
Föstudaginn 23. apríl lcynnum við:
Morgunkorn frá Gott fæði kl. 15
Trimmbrauð frá Brauðgerð KEA kl. 15
Barilla pasta frá Sláturfélagi Suðurlands kl. 15
Hreinan epla- og appelsinusafa og pastarétti frá Sól kl. 15
Laugardaginn 24. apríl kynnum við:
Hreinan epla- og appelsínusafa og pastarétti frá Sól kl. 13
ísostar heilsudrykk og Wasa hafrarískökur frá Karli Karlssyni kl. 13
Nivea snyrtivörur frá J.S. Helgasyni kl. 13
AB mjólk frá Mjólkursamlagi KEA kl. 13
Allar vörur á kynningunum
verða á kynningarverði
Hjá okkur verður stödd í versluninni á föstudag
frá kl. 16-18 og laugardag frá kl. 15-19
Júlía Linda Ómarsdóttir sem er hjúkrunarfræðingur
að mennt og mun hún leiðbeina fólki um innkaup
og matreiðslu með hollustu að leiðarljósi,
einnig mun Júlía Linda kynna bókina „í toppformi"
eftir Harvey og Marlyn Diamond