Dagur - 04.05.1993, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 4. maí 1993
LITSTÆKKUN
Prentum myndína þína á bol
^Pedío myndir7
Skipagata 16 • 600 Akureyri • Sími 96 - 23520
Akureyri:
Sextán rúður brotnar
Fjölmargar gluggarúður voru
brotnar á Akureyri um helgina
og varð Gagnfræðaskóli Akur-
eyrar verst úti í þessum látum,
en þar voru 13 Iitlar rúður
mölvaðar. Rannsóknarlögregl-
an hefur málið til meðferðar og
er þaðóupplýst.
Um svipað leyti og rúðumar
voru brotnar í Gagnfræðaskólan-
um var gluggi spenntur upp í
íþróttahúsinu við Laugargötu og
reynt aö fara þar inn um læstar
dyr. Greinilegt samhengi er á milli
þessara mála aó sögn Gunnars Jó-
hannssonar, rannsóknarlögreglu-
fulltrúa.
Þá var brotin rúða hjá Möl og
sandi svo og í Akureyrarapóteki
og Bókabúðinni Eddu í Hafnar- •
stræti.
Að öðru leyti var helgin hefð-
bundin hjá lögreglunni á Akur-
eyri. Þrír gistu fangageymslur,
einn var tekinn vegna gruns um
ölvun við akstur og tveir árekstrar
voru tilkynntir. SS
Skíðagöngugarparnir á Grænlandsjökli:
Óheppnir með veður
Sinfóníuhljómsvcit íslands undir stjórn Páls P. Pálssonar hélt tónlcika i Akureyrarkirkju sl. sunnudag. Hljómsveit-
in flutti þrjú verk, eftir Haydn, Jeremiah Clarke og Mendelssohn. Listafólkinu var klappað lof i lófa í lok tónleik-
anna. Mynd: Óskar Þór Halldórsson.
Akureyrarkirkja:
Fjölbreytt Kirkjulistavika
- vonast til að fréttist af þeim í kvöld
Kirkjulistavika í Akureyrar-
kirkju, sú þriðja í röðinni, var
formlega sett í Akureyrarkirkju
sl. sunnudag.
í setningarávarpi sagði Guðríð-
ur Eiríksdóttir, formaður sóknar-
nefndar, að kirkjulistavika væri
vonandi komin til að vera. „Nú á
dögum hraða og tæknivæðingar
finnst ef til vill einhverjum
áhrifamáttur kirkjunnar vera á
undanhaldi og því er þaó ekki
bara þörf heldur nauðsyn á slíkum
menningargjafa sem kirkjulista-
vikan er. Það er eins og þurfi átak
á borð við þetta menningarfram-
lag til að hefja okkur úr viðjum
vanans, vekja okkur til umhugs-
unar og Iotningar á þeim sköpun-
armætti sem alls staðar er,“ sagði
Guðríður m.a. í ávarpi sínu.
Að formlegri setningu lokinni
var opnuð sýning á kirkjumunum,
sem hagleiksfeðgarnir Hallgrímur
Jónsson og Jón Hallgrímsson frá
Mývatnssveit:
Gæsaskytta
drap 10 fugla
Lögreglan á Húsavík tók gæsa-
skyttu fyrir ólöglegt athæfi sl.
laugardag. Það lágu tíu gæsir í
valnum eftir veióiferð mannsins
og voru fuglanir gerðir upptækir
ásamt tveimur byssum sem hann
var með. IM
Q VEÐRIÐ
Enn virðist sumarið ætla
að hiksta og vetrarlægð
átti að hrella okkur í nótt. í
dag spáir Veðurstofan
suðvestan átt, víða all-
hvassri. Slydduél verða
vestanlands en það léttir
til norðaustanlands. Á
miðvikudag verður suð-
vestan strekkingur, bjart
á Norðurlandi, hiti 1-7 stig
og hlýjast á Norðaustur-
landi. Á fimmtudag og
föstudag verður hæg suð-
læg átt og hlýnandi veður.
Naustum gerðu. Síðdegis á
sunnudag hélt Sinfóníuhljómsveit
Islands tónleika í Akureyrar-
kirkju. I gærkvöld frumflutti
Blásarakvintett Reykjavíkur og
Margrét Bóasdóttir, sópran, nýtt
verk eftir Jón Hlöðver Askelsson.
I kvöld veróur fyrri sýningin á
„Hallgrími“ - dagskrá í tali og
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
var um 10 milljóna króna
hagnaður fyrir skatta af rekstri
Utgerðarfélagi Akureyringa hf.
Þetta kom fram á aðalfundi ÚA
sl. föstudag. Þetta er töluvert
betri afkoma en fyrstu þrjá
mánuði síðasta árs.
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri ÚA, segir að skýringin á
betri afkomu fyrstu þrjá mánuði
ársins miðað við sama tíma í
fyrra sé aukin framleiðsla og
meiri veiði frystiskipa félagsins.
Samtals veiddu skip ÚA 4972
tonn fyrstu þrjá mánuðina á móti
4638 árið 1992. Afli ísfisktogar-
anna er svipaður milli ára, en afli
frystitogara félagsins er umtals-
vert meiri. Þannig var framleiðsla
þeirra 1053 tonn fyrstu mánuði
þessa árs en 570 tonn á sama tíma
í fyrra. Framleiðslan í frystihús-
inu þessa fyrstu þrjá mánuði var
1707 tonn á móti 1284 tonnum á
sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur
fyrstu þrjá mánuðina að frádregn-
um eigin afla eru 670 milljónir á
móti 503 milljónum á sama tíma í
fyrra. „Það má segja að þessi út-
koma sé nokkum veginn í sam-
ræmi við þær áætlanir sem við
gerðum í upphafi ársins. En af-
koman er ekki viðunandi, hún
þyrfti að vera betri. Hins vegar ber
þess að geta að til þess að halda
úti svo mikilli framleiðslu og
sama aflastigi, þá höfum við þurft
að bregóast við með því aó kaupa
varanlegar aflaheimildir og afla-
tónum um æviferil og skáldskap
Hallgríms Péturssonar. Síðan rek-
ur hver dagskrárlióurinn annan,
en Kirkjulistaviku lýkur með tón-
leikum Kórs Akureyrarkirkju og
Kammerhljómsveitar Akureyrar í
Akureyrarkirkju nk. sunnudag.
heimildir innan ársins. Aflaheim-
ildir innan ársins fara á rekstrar-
kostnað, en kaup á varanlegum
aflaheimildum hafa aukió okkar
afskriftir. Afskriftimar eru mun
meiri núna en í fyrra og árin þar
áður. Fyrstu þrjá mánuðina erum
við með afskriftir upp á rúmlega
70 milljónir, en á sama tíma í
fyrra voru þær innan við 60 millj-
ónir króna. Svo miklar afskriftir
hafa áhrif á afkomuna,“ sagði
Gunnar.
Gunnar Ragnars sagði á aðal-
fundinum að rekstur Mecklenbur-
ger Hochseefisherei, sem ÚA á
meirihluta í, hafi gengið sam-
kvæmt áætlun. Þegar hafa tvö
skipa félagsins landað afla sínum
á Akureyri og von er á tveim
skipum til viðbótar um næstu
helgi meó samtals um 600 tonn af
frystum flökum. óþh
Síðastliðinn fostudag varð bíll
frá Gámaþjónustu Norðurlands
fyrir miklum skemmdum á leið-
inni frá Dalvík til Akureyrar.
Sævar Freyr Ingason, lögreglu-
þjónn á Dalvík, kann að greina
nánar frá þessu óhappi.
„Bíllinn var rétt sunnan við
Dalvík með gám á gaflinum
framan á. Bílstjórinn þurfti að
Grænlandsjökulfararnir Ingþór
Bjarnason, Haraldur Örn Ól-
afsson og Ólafur Örn Haralds-
son hafa verið frekar óheppnir
með veður í upphafi ferðar sinn-
ar og spáin hljóðar upp á norð-
an storm. Ekki hefur heyrst frá
þeim síðan á fimmtudag í síð-
ustu viku en Sigurður Aðal-
steinsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Norðurlands og
tengiliður göngugarpanna,
bjóst við að frétta af þeim í
kvöld.
Þremenningamir lögðu af staö
frá þorpinu Isertoq þriðjudaginn
27. apríl og fóru með hundasleð-
um upp að jökulröndinni. Mynda-
tökumaður Sjónvarpsins fylgdi
þeim þangað og eins og áhorfend-
ur sáu var snjókoma um þetta
leyti. Þeir hófu síðan gönguna og
ætla að ganga á skíðum um 600
kílómetra leið yfir Grænlandsjök-
ul.
Múlagöng hafa oftlega verið
vettvangur ólöglegrar iðju. Þar
hefur verið stundaður hrað-
akstur, skemmdarvargar hafa
fengið útrás á símum og öðru
lauslegu og nú virðist sem með-
ferð skotvopna hafi bæst á
þennan lista.
Að sögn Jóns Konráðssonar,
lögregluþjóns í Ólafsfirði, leikur
grunur á að skotið hafi verið af
lækka hann til að komast undir
rafmagnslínu en lækkaði hann of
mikið, fór niður í götu og allt í
steik. Bíllinn er hálfónýtur að
framan og ottadekkið á veginum
rifnaði upp,“ sagði Sævar Freyr.
Af öðrum tíðindum nefndi
hann númeraklippingar. Klippt
voru númer af 11 bílum sem láðst
hafði verið að færa til skoðunar á
tilsettum tíma. SS
Að sögn Sigurðar var mjög
slæmt veður á jöklinum miðviku-
daginn 28. apríl. Síðdegis á
fimmtudaginn kom staðsetning
frá þremenningunum gegnum
Grönlandsfly, sem var í talstöóv-
arsambandi við þá. Staðarákvöró-
unin sýndi að þeir voru komnir
um 12 km inn á jökulinn og í 600
metra hæð. Veðrið hafði þá skán-
að.
„Síðan höfum við ekkert frétt,
sem er í sjálfu sér eðililegt. Grön-
landsfly flýgur þama á laugardög-
um og þriðjudögum en það er
ckkert víst að þeir nái alltaf sam-
bandi við vélamar. Ég á þó von á
aó heyra frá þeim í kvöld. Veðrið
hefur verið sæmilegt yfir helgina,
eftir veðurkortum að dæma, en
það er útlit fyrir norðan hvass-
viðri í dag. Þeir hafa því ekki ver-
ið heppnir með veður en eins og
þeir sögðu sjálfir þá hafa þeir
nægan tíma og eru vel útbúnir,"
sagði Sigurður. SS
riffli í göngunum. Greinilegt skot-
gat er á einu skilti.
„Það er hættulegur leikur ef
menn eru famir að senda kúlur
þama í myrkrinu,“ sagði Jón og
hann vonaðist til að göngin yrðu
ekki notuð fyrir slíkt athæfi í
framtíðinni. SS
Akureyri:
Krían komm
Krían er komin í Eyjaíjörðinn
eftir flugið langa frá Suður-
heimskautslandinu.
Þorsteinn Þorsteinsson, sund-
laugarvörður á Akureyri, sem
fylgist grannt með fuglalífi við
Eyjafjörð, sá kríuna í fyrsta sinn á
þessu vori sl. laugardag. Segja má
að krían hafi lent á Akureyrarflug-
vclli, því til hennar sást sunnan
flugskýlanna í og yfir votlendinu
sem þar er. Fleiri farfuglar hafa
komió á síðustu dögum. Þorsteinn
tilgreindi hrossagaukinn og stein-
depilinn, sem komu um miðja síð-
ustu viku. ój
óþh
Sjá nánar á blaðsíðu 5.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Um 10 milljóna hagn-
aður fyrstu 3 mánuði ársins
Dalvík:
Gámabíll skemmdist
Ólafsfjörður:
Skotið af riffli
í Múlagöngum