Dagur - 05.05.1993, Blaðsíða 2

Dagur - 05.05.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 5. maí 1993 Fréttir Dalvík: Aíli aprílraánaðar 1157 tonn, sem er 5% sam- dráttur milli mánaða Sæmilegasti afli hefur verið hjá smærri bátunum á Dalvík að undanförnu en 8 bátar, sem ým- ist eru á iínu eða netum, hafa átt mjög stutt að sækja en afl- ann hafa bátarnir aðallega feng- ið á víkinni austan byggðarinn- ar. í aprílmánuði aflaði Valur Hauksson á Hauk EA-27, sém er Sómabátur, 12.185 kg en hann hefur verið á línu en hinir bátarn: ir eru ýmist á línu eða netum. I aprílmánuði var heildarmagn landaðs afla á Dalvík 1.157.362 kg, sem var 51.014 kg minni afii en í marsmánuói. Mestu var land- aö af slægðum þorski, 230 tonn- um, en síðan komu 214 tonn af úthafsrækju, 200 tonn af sporð- skorinni og hausaðri grálúðu, 190 tonn af slægðum þorski, 146 tonn af slægðum ufsa en minna af öðr- um tegundum. Ysuaflinn virðist heldur dragast saman, en af óslægði, slægóri og undirmálsýsu var landað 61 tonni. Aílamagni sumra tegunda er allt að því hægt að geta í stykkjatali, en 69 kg var landað af skötu og 3 kg af slitn- um humri og væri fróðlegt að vita hvar hann hefur verið veiddur. Þá tölu er kannski hægt aó taka með fyrirvara því skráning afla hjá Fiskistofu virðist stundum fara „í ferðalag" og má þar nefna að bát- ur af Eyjafjarðarsvæðinu var á sl. vetri skráður fyrir tugum tonna af innfjarðarrækju úr ísafjaróardjúpi án þess aó hafa þar nokkum tíma komið og því síður að vera með kvóta fyrir þeim veiðum. GG Smábátasjómenn á Dalvík eru ánægðir með hve stutt hefur þurft að sækja að undanförnu. Mynd: GG Aðalfundur Rafvirkjafélags Norðurlands: Krefst þess að hafín verði vinna við gerð samninga - heimild til verkfallsboðunar veitt Aðaifundur Rafvirkjafélags Norðuriands haldinn 30. apríl sl. átelur harðlega það ábyrgð- arleysi Vinnuveitendasam- bands íslands, að vilja ekki ljúka þeirri samningsgerð sem unnið hefur verið að, að undan- förnu. Fundurinn telur aó við þá AKUREYRARB/tR FRA FELAGSSTARFI ALDRAÐRA Handavinnusýning Sunnudaginn 9. maí kl. 14.00 veröur sýning í Félagsmiðstöðinni við Víðilund á ýmiskonar hannyrðum, myndlist o.fl. sem aldraðir hafa unnið í félagsstarfi í vetur. Einnig verður kaffisala og söluhorn með unnum munum. Takið eftir! Þeir sem vilja lána muni á sýninguna komi með þá fimmtudaginn 6. maí á milli kl. 10.00 og 17.00. AKUREYRARB/tR Frá grunnskólum Akureyrar Innritun 6 ára barna (fædd 1987) ferfram í grunn- skólum bæjarins fimmtudaginn 6. maí og föstudaginn 7. maí nk. kl. 10-12 f.h. Jafnframt verður könnuð þörf á gæslu yngri barna. Innrita má með símtali við viðkomandi skóla. Á sama tíma þarf að tilkynna flutning eldri nemenda milli skólasvæða. Nemendur sem flytj- ast í Giljahverfi skulu innrita sig í Glerárskóla. Símanúmer skólanna: Gagnfræðaskóli Akureyrar.... 24241 Barnaskóli Akureyrar........ 24172 Glerárskóli................. 12666 Lundarskóli ................ 24888 Oddeyrarskóli............... 22886 Síðuskóli................... 22588 Skólafulltrúi. kjarasamninga hafi verið haft að leiðarljósi, að atvinnumálin séu þýðingarmesta kjaraatriði launa- fólks í dag. Launakröfum var haldið í núllstöðu svo hægt væri að viðhalda stöðugleika og skapa fyrirtækjunum möguleika til eðli- legrar uppbyggingar. Með því að rifta samningsgerðinni nú er at- vinnumöguleikum þúsunda Is- lendinga stefnt í hættu og óróleika á vinnumarkaði boðið heim. At- vinnuleysi er bölvaldur sem legg- ur fólk, fjölskyldur og heimili í rúst og það er skylda okkar aó berjast gegn því með öllum til- tækum ráðum. Fundurinn felur samninganefnd RSI aö endurmeta kröfugerö raf- iðnaðarmanna í ljósi þeirrar stöðu sem afstaða VSI hefur sett samn- ingamálin í. Fundurinn krefst þess að nú þegar verði hafin vinna að gerð samninga og heimilar stjórn og trúnaðarráði að boða til verkfalls sé þess þörf til að knýja á samn- ingsgerðina. -KK Skák fslandsmót grunnskólasveita: Gagnfræðaskóli Ak- ureyrar í 2. sæti íslandsmót grunnskóiasveita (8.-10. bekkur) var haldið í Reykjavík um síðustu helgi og kepptu 14 sveitir um Islands- meistaratitilinn. Tefldar voru 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Sveit Gagnfræðaskóia Akur- eyrar stóð sig vel að vanda og varð í 2. sæti. Sveit Æfingaskóla Kennarahá- skóla Islands sigraði, fékk 22 1/2 vinning af 28 mögulegum. Gagn- fræðaskóli Akureyrar varó í 2. sæti með 20 vinninga og Hlíðar- skóli í Reykjavík í 3. sæti með 18 vinninga. Páll Þórsson tefldi á 1. borði og fékk 3 vinninga af 7. Gestur Ein- arsson á 2. borði fékk 5 1/2 vinn- ing og sömuleiðis Halldór I. Kárason á 3. borði. Einar Jón Gunnarsson á 4. borði fékk 6 vinninga. Varamaður var Baldur H. Sigurðsson en hann kom ekkert vió sögu. Fararstjóri var Magnús Aðalbjörnsson, aðstoðarskóla- stjóri. Gagnfræðaskóli Akureyrar á glæstan feril að baki í Islandsmóti grunnskólasveita. Fyrst var keppt árið 1985 og þá varð sveit GA í 5. sæti. Næstu tvö árin náði sveit- in 2. sæti, 3. sæti 1988, 4. sæti 1989 og 2. sæti 1990. Stóra stundin rann upp 1991 og 1. sætið varð staðreynd. A síðasta ári var sveit GA í 3. sæti og sem fyrr segir hreppti sveitin 2. sætið í Is- landsmótinu 1993. SS Skákfélag Akureyrar: Rúnar Sigurpálsson efstur á stigamótiuium Um síðustu helgi fór fram sjö- unda og síðasta 15 mínútna stigamótið hjá Skákfélagi Akur- eyrar. Tefldar voru 7 umferðir eftir Monrad-kerfi og varð Rún- ar Sigurpálsson hlutskarpastur. Rúnar fékk 6 1/2 vinning en næstir komu Þórleifur K. Karls- son og Olafur Kristjánsson með 5 1/2 vinning hvor. Þegar fímm bestu mót hvers keppanda höfðu verið reiknuó til stiga kom í ljós hvaða þrír kepp- endur voru efstir, en þeir fá pen- ingaverðlaun. 1. Rúnar Sigurpáls- son 44 stig. 2. Jón Björgvinsson 34 stig. 3. Gylfi Þórhallsson 20 stig. Þeir unglingar sem tóku þátt í þessum mótum kepptu sín á milli. Þrír efstu fá verðlaunapeninga og bækur: 1. Einar Jón Gunnarsson 47 stig. 2. Bjöm Finnbogason 35 stig. 3. Davíð Stefánsson 22 stig. SS Lögreglan á Húsavík: Gæsir vaktaðar Lögreglan á Húsavík hyggst vera á ferð næstu daga og gefa því auga hvort gæsaskyttur eru að veiðum, sem eru aifarið bannaðar á þessum árstíma. Gæsaskytta með 10 fugla var tekin í Mývatnssveit á laugardag, eins og greint var frá í Degi í gær. Lögreglan sagði að ekki heðfi ver- ið mikið um kvartanir yfir gæsa- skyttum, en margir bændur væru þó langþreyttir á yfirgangi veiði- manna. Það væru þó tiltölulega fá- ir veiðimenn sem settu svartan blett á hópinn með yfirvöðslu sinni. Lögreglan sagði að þó gæsa- veióar væru bannaðar á vorin, gætu bændur sjálfir sótt um leyfi til að skjóta gæsir til Umhverfis- málaráðuneytisins, en þau leyfi giltu þó aóeins til 1. maí. IM ■ Á fundi félagsmálaráðs var lagður fram undirskriftalisti 125 foreldra þar sem mótmælt er að tekið hefur veriö fyrir svokallaða nestistíma á gæslu- völlum, en undirskriftalisti þessi var afhentur forseta bæj- arstjómar 25. apríl sl. og hon- um vísað til félagsmálaráðs. Miklar umræður urðu um þetta mál á fundinum en afgreiðslu þess frestað. ■ Með erindi dags. 13. apríl sl. frá Haraldi Sveinbjörnssyni, sótti hann f.h. Þyrpingar hf. í Reykjavík (Hagkaup) um lóö- arstækkun til austurs að Hjalt- eyrargötu. Meirihluti bygg- inganefndar samþykkti lóðar- stækkunina á fundi sínum 21. apríl sl. með vísan til fundar- gerðar skipulagsnefndar 17. descmbcr sl„ sem bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 19. janúar sl. í bókun bygginga- nefndar 21. apríl sl. segir að endanleg lóðamörk og lóóar- stærð verði nánar ákveðin af tæknideild bæjarins, þegar fullnaðarhönnun á breyttri legu Hjalteyrargötu austan Hagkaups liggi fyrir. Áskilið er að lóðarumsækjandi greiði áætlaðan kostnað vegna færslu götunnar og breytinga á lögn- um scm bæjarráð mun taka af- stöðu til þegar fullnaðarhönn- un götunnar liggi fyrir. Fyrir- vari er gerður um tímasetn- ingu framkvæmda og afhend- ingu lóöaraukans. Greiósla gatnagerðargjalds og tengi- gjalda er áskilin. ■ Á fundi skólanefndar 28. apríl sl. var lögó fram umsókn frá Kristni G. Jóhannssyni um endurráðningu í starf skóla- stjóra Bröttuhlíöarskóla næsta skólaár. Skólanefnd mælti með þvi að Kristinn verði endur- ráðinn skólastjóri. ■ Skólanefnd mælir með að eftirtöldum kennurum verði veitt launalaust leyii næsta skólaár: Elínu E. Magnúsdótt- ur, Glerárskóla, Valgerði Hrólfsdóttur, Lundarskóla, Kristínu Haraldsdóttur, Síðu- skóla, Mörtu A. Hinriksdóttur, Síðuskóla og Ásdísi Sigur- vinsdóttur, Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hins vegar getur skólanefnd ekki mælt með um- sókn Dagnýjar Annasdóttur, Bamaskóla Akureyrar, um launalaust lcyfi, en hún sækir um launalaust leyfi þriðja árið í röð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.