Dagur - 05.05.1993, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 5. maí 1993
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐKR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGIV. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Það hálfa væri nóg
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur nú setið að
völdum í tvö ár, eða með öðrum orðum, hálft kjör-
tímabil sitt. Því miður bendir fátt til þess að hún
hyggist láta af völdum fyrr en kjörtímabilinu lýkur,
þótt hið hálfa væri nóg, miðað við frammistöðu
hennar til þessa. Embættisferill ríkisstjórnarinnar
er varðaður áföllum og hörmungum hvert sem lit-
ið er og henni hefur mistekist að ná fram öllum
þeim markmiðum sem hún setti sér í upphafi.
Vonbrigðin eru mörg og stór og skal hér fátt eitt
talið:
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar ætlaði að koma
samningunum um Evrópskt efnahagssvæði í höfn í
byrjun kjörtímabilsins. Henni hefur enn ekki tekist
það og hefur raunar sætt mikilli gagnrýni fyrir
meðferð sína á því máli öllu.
Ríkisstjórnin boðaði markvissari stjórn ríkisfjár-
mála og minnkandi ríkissjóðshalla. Það loforð hef-
ur hún enn ekki efnt. Útgjöld ríkissjóðs hafa farið
marga milljarða króna fram úr áætlun þau tvö ár
sem hún hefur setið við völd og yfirstandandi ár
verður metár í ríkissjóðshalla, ef fram heldur sem
horfir.
Ríkisstjórnin ætlaði að ljúka samningum um
nýtt álver á íslandi á fyrstu vikum valdaferils síns
en þeir samningar voru vel á veg komnir í tíð fyrri
ríkisstjórnar. Á tveggja ára afmæli ríkisstjórnar
Davíðs Oddssonar er ný stóriðja afar fjarlægur og
jafnvel langsóttur möguleiki.
Ríkisstjórnin lofaði að draga úr skattheimtu og
jafna byrðar þegnanna. Þau loforð hefur hún svik-
ið svo kinnroðalaust að skattbyrðin hefur aldrei
verið þyngri en nú og bilið milli ríkra og fátækra
aldrei breiðara.
Ríkisstjórnin lofaði að vinna markvisst að því á
kjörtímabilinu að draga úr atvinnuleysi. Þrátt fyrir
það hefur atvinnuleysi vaxið hröðum skrefum síð-
ustu tvö árin og aldrei verið meira en nú.
Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar var að hækka
vexti á ríkisverðbréfum. Frá þeirri stundu hefur
hún ekki ráðið neitt við neitt á vaxtasviðinu. ís-
lendingar búa nú við hæstu raunvexti í heimi; ok-
urvexti sem eru langt komnir með að sliga allt at-
vinnulíf í landinu. Eftir að hafa greitt atvinnulífinu
svo þungt högg, lýsti ríkisstjórnin því yfir að nú
yrði hver að bjarga sér. Trú þeirri yfirlýsingu hefur
hún látið hjá líða að taka á hrikalegum vanda at-
vinnulífsins, ekki síst sjávarútvegsins. Afleiðingar
„afskiptaleysisstefnu “ hennar eru gjaldþrot á
gjaldþrot ofan og illleysanlegur vandi margra
byggðarlaga, sem byggja afkomu sína á útgerð og
fiskvinnslu. Og þannig mætti lengi telja.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar er samnefnari fyr-
ir fyrir svikin loforð, brostnar vonir, hroka, „einka-
vinavæðingu" og vaxandi vanda á öllum sviðum
þjóðlífsins. Það hálfa væri svo sannarlega meira
en nóg. Þess vegna á vaxandi meirihluti þjóðar-
innar þá ósk heitasta að kjörtímabili ríkisstjórnar-
innar fari senn að ljúka. Þá frómu ósk ætti afmæl-
isbarnið að taka til gaumgæfilegrar athugunar.
BB.
MENOR - mennmgardagskrá í maí
TÓNLEIKAR |
Laugardagur 8. maí kl. 21.
Tjarnarborg í Ólafsfirði. Kirkju-
kór Ólafsfjarðar með tónleika.
Sunnudagur 9. maí kl. 16. Ljós-
vetningabúð. Kirkjukór Ólafs-
fjarðar.
Sunnudagur 9. maí kl. 21. Húsa-
víkurkirkja. Kirkjukór Ólafs-
fjarðar.
Sunnudagur 9. maí kl. 21:00.
Gítartónleikar í Akureyrar-
kirkju. Brottfarartónleikar Hall-
dórs Más Stefánssonar.
Mánudagur 11. maí. Tónleikar
gítardeildar í Tilraunasal í Gróf-
argili.
Þriðjudagur 11. maí. Tjamar-
borg. Tónleikar Söngdeildar
Tónlistarskóla Eyjafjarðar kl.
21.
Miðvikudagur 12. maí kl.
20:30. Vortónleikar eldri nem-
enda í Safnaðarheimili Akureyr-
arkirkju.
Fimmtudagur 13. maí kl. 19:00.
Tónleikar strengjasveita í Gler-
árkirkju.
Laugardagur 15. maí kl. 14:00.
Vortónleikar yngri nemenda í
Glerárkirkju.
Laugardagur 15. maí. Galgopar
í Freyvangi. Dansleikur eftir
tónleika.
Sunnudagur 16. maí kl. 16:00.
Tónleikar Blásaradeildar í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju.
Miövikudagur 19. maí kl.
21:00. H vammstangakirkja.
Marteinn H. Friðriksson með
tónleika.
Laugardagur 22. maí kl. 17:00.
Skólaslit í Akureyrarkirkju.
LEIKLIST
Þriðjudagur 4. maí kl. 20:30.
Kveðið í Dalnum. Melar í Hörg-
árdal. Samantekin dagskrá eftir
Hörgdælinga flutt af Leikdeild
Umf. Skriðuhrepps.
Leðurblakan í Samkomuhúsinu
Akureyri. Miðasala opin frá kl
14:00 - 18:00 alla daga nema
mánudaga.
MYNDLIST
Nú stendur yfír málverkasýning
Elíasar B. Halldórssonar list-
málara í Listhúsinu Þingi. A
sýningunni eru 30 olíumálverk.
Sýningin er opin virka daga kl.
14-19 og umhelgarkl. 14-22.
Gallerí Allrahanda, Grófargili,
Kaupangsstræti sími 21580. Op-
ið kl. 13:00-18:00 virka daga.
Kl. 10:00-12:00 laugardaga.
KIRKJULISTAVIKA
í AKUREYRARKIRKJU
Þriðjudagur 4. maí. Kl. 20:30.
Leiklesin dagskrá í Akureyrar-
kirkju á vegum Leikfélags Ak-
ureyrar. Dagskrá til heiðurs
Hallgrími Péturssyni í saman-
tekt Hannesar Amar Blandon.
Sungið verður úr Passíusálmum
séra Hallgríms. Flytjendur eru
félagar úr Kór Akureryarkirkju
og Jón Þorsteinsson tenór. Tón-
listarstjóri er Bjöm Steinar Sól-
bergsson.
Mióvikudagur 5. maí. Kl. 10:00.
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Rósa Júlíusdóttir mynd-
listarkona og kennari við Mynd-
listaskólann á Akureyri ræðir
um gildi þess að kenna ungum
börnum myndlist.
Kl. 20:30 Leiklesin dagskrá um
Hallgrím Pétursson, önnur sýn-
ing.
Fimmtudagur 6. maí. Kl. 15:00.
Opið hús. Séra Hannes Örn
Blandon heldur fyrirlestur um
Hallgrím Pétursson. Jón Þor-
steinsson tenór syngur.
Kl. 17:15. Fyrirbænaguósþjón-
usta í Akureyrarkirkju.
Föstudagur 7. maí. Kl. 18:00.
Aftansöngur í Akureyrarkirkju.
Kammerkór Akureyrarkirkju
syngur undir stjórn Bjöms
Steinars Sólbergssonar organ-
ista kirkjunnar.
Laugardagur 8. maí. Kl. 12:00
Hörður Askelsson organisti
Hallgrímskirkju heldur hádegis-
tónleika í Akureyrarkirkju. A
þessu ári eru liðin 100 ár frá
fæðingu dr. Páls Isólfssonar og
flytur Hörður orgelverk eftir
Pál. Auk þess flytur hann Snert-
ur eftir Þorkel Sigurbjömsson.
Kl. 14:00. Málþing í Safnaóar-
heimilinu þar sem yfirskriftin er
Tónlist í kirkjunni. Fundarstjóri
er séra Þórhallur Höskuldsson.
Erindi flytja Hörður Askelsson
organisti, Þorkell Sigurbjöms-
son tónskáld og séra Kristján
Valur Ingólfsson rektor Skál-
holtsskóla. Eftir að erindum
lýkur verða pallborðsumræður
en í þeim taka þátt Bjöm Steinar
Sólbergsson, Jón Hlöðver As-
kelsson, og Haukur Guðlaugs-
son söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar.
Sunnudagur 9. maí. Kl. 14:00.
Hátíðarmessa í Akureyrarkirkju.
Sr. Pétur Sigurgeirsson fyrrv.
biskup predikar. Sr. Bolli Gúst-
avsson vígslubiskup, sr. Birgir
Snæbjömsson og sr. Þórhallur
Höskuldsson þjóna fyrir altari.
Flytjendur tónlistar: Kór Akur-
eyrarkirkju, Jón Þorsteinsson
tenór og Dóróthea Dagný Tóm-
asdóttir orgelleikari. Stjómandi
og organisti er Bjöm Steinar
Sólbergsson.
Kl. 17:00. Tónleikar Kammer-
hljómsveitar Akureyrar og Kórs
Akureyrarkirkju undir stjóm
Guðmundar Öla Gunnarssonar
skólastjóra Tónlistarskólans á
Akureyri. Kór og hljómsveit
flytja Requiem eftir Gabriel
Fauré. Einsöngvarar veróa
Margrét Bóasdóttir sopran og
Michael Jón Clark bariton.
Einnig verður flutt Pelleas og
Mélisande eftir Fauré. Stjórn-
andi kórs Akureyrarkirkju er
Bjöm Steinar Sólbergsson.
Fiórtán reyklausir dagar
Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis hefur farið þess á
leit við Dag að blaðió birti leið-
beiningar til þeirra sem hættu
aó reykja á „Reyklausa daginn"
svonefnda 29. apríl sl. Leið-
beiningar þessar taka til fyrstu
14 daganna. Hér á eftir fara
ráóleggingar sem gilda fyrir
sjöunda daginn, þ.e. mióviku-
daginn 5. maí.
Sjöundi dagur
Heil vika án reyks - hve langt
er síóan þú hefur upplifað ann-
að eins? Aó minnsta kosti hef-
urðu nú sannfært sjálfan þig
um að tóbakió er ekkert alls-
herjar yfirvald yfir tilveru þinni,
þú getur verið án þess ef þú
vilt. Erfióasta tímabilið er að
baki. Frá þessum degi verður
hver dagurinn ofurlítið auðveld-
ari en sá næsti á undan. Þó
máttu gera ráó fyrir að verða
fyrir óskýranlegri löngun í
tóbak. Til þess að þér takist að
stíga skrefið til fulls frá því að
vera reykingamaður og til þess
að vera fyrrverandi reykinga-
maður þá er mikilvægt aó þú
gleymir ekki að endurtaka meó
sjálfum þér hvers vegna þú
ákvaðst að verða fyrrverandi
reykingamaður.
Það er ekki eingöngu vegna
þess að tennurnar verða hvít-
ari, litarhátturinn frískari, skap-
Athafnafólk í Strandasýslu kom
saman á sumardaginn fyrsta.
Tilefnið var að ræða hvort
áhugi væri fyrir að fara út í
framleiðslu á ýmsum smávarn-
ingi, bæði til að selja heima-
mönnum og þeim sem eiga leið
um.
Mikill áhugi er fyrir slíkri
starfsemi, enda mikið af hagleiks-
og listafólki á svæðinu. Stefnt er
að því að vera með markað í
sumar og ef vel tekst til er stefnan
að gera meira af því í náinni fram-
tíð.
Miðvikudagskvöldið 5. maí er
ætlunin að hafa opið hús í Kven-
félagshúsinu á Hólmavík kl.
20.00. Þar er athafnafólki gert
ið betra og bjartara yfir tilver-
unni að þú lætur sígarettuna
eiga sig. En þetta er hluti laun-
anna sem þú hefur fengið
greidd fyrir að ganga í hóp
þeirra sem reykja ekki.
Ef til vill hefurðu aldrei hug-
leitt á kerfisbundinn hátt hvaða
tjón sígarettan hefur unnið á
líkama þínum. Nú skaltu gefa
þér tíma til þess einmitt þegar
þú er laus við skaðvaldinn.
kleift að koma saman og vinna
fjarri erli heimilisins. Öllum er
velkomið að líta í kaffi enda eru
opnu húsin ekki síóur hugsuð sem
vettvangur til að koma saman og
ræða málin og sjá hvað er verið
að sýsla. Ef áhugi reynist fyrir
jiessum opnu húsum þá mun
veróa framhald þar á.
Fleiri hópar munu vera starf-
andi í Strandasýslu eða um það
bil að hefja starfsemi. Þeim sem
hafa áhuga eða vilja kynna sér
starfsemina er bent á að hafa
samband við Önnu Margréti Val-
geirsdóttur í síma 13210, eða Sól-
rúnu Jónsdóttur í síma 31882.
AMV
Strandasýsla:
Steftit að því að
vera með markað í sumar