Dagur - 08.05.1993, Blaðsíða 11

Dagur - 08.05.1993, Blaðsíða 11
Fjórtán reyklausir dagar Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur farið þess á leit við Dag að blaðið birti leió- beiningar til þeirra sem hættu að reykja á „Reyklausa daginn" svonefnda 29. apríl sl. Leið- beiningar þessar taka til fyrstu 14 daganna. Hér á eftir fara ráðleggingar sem gilda fyrir tí- unda, ellefta og tólfta daginn, þ.e. laugardaginn 8. maí, sunnudaginn 9. maí og mánu- daginn 10. maí. Tíundi dagur Löngunin í reyk er trúlega ekki með öllu horfin en hún ætti að hafa verulega minnkað og vera orðin aó lítilfjörlegum óróleika sem oft hverfur alveg. Það ætti ekki að vera þér erfitt aó láta tóbakið liggja á milli hluta jafn- vel þótt freistingin sé ekki með öllu úr sögunni. Hafðu ætíð á takteinum eitthvað sem grípur hugann og notaðu nokkrar mínútur til að lesa bækling um sjúkdóma sem eru fylgifiskar reykinga. Gerðu það aftur og aftur. Það hressir upp á ásetn- ing þinn um að standa þig, ein- mitt nú þegar þú ert í þann veginn að sigra í orrustunni. Ellefti dagur Ef þú byrjar nú aftur að reykja þá muntu verða fyrir nákvæm- lega sömu reynslunni og þegar þú tókst fyrsta sígarettureykinn - ógleði, öðrum óþægindum og alls engri fullnægju. En nikótín- ið er svo lævíst að löngunin blossar samstundis upp aftur. Margir telja aö það sé sál- fræðilega óráölegt að lofa sjálf- um sér því að snerta ekki tóbak um aldur og ævi. Þú þarft ekki heldur að gera það. Þú getur látið þér nægja að heita sjálfum þér aó snerta ekki sígarettu nógu lengi til þess aó hin ósjálfráða reykingahvöt sé horfin, það eru einar átta til tíu vikur í viðbót. Með hverjum deginum sem líður verðurðu hressari og nærð betra valdi yf- ir sjálfum þér. Svo geturðu tek- ið málið upp aftur þegar þú hefur náð þér að fullu og ert oróin frjáls til þess að taka var- anlega ákvöróun. Nú kostar það yfirleitt ekki lengur neitt átak aó vera innan um fólk sem reykir. Þú hefur jafnvel efni á aó láta þaó verða vart við ofurlitla meðaumkun. En vertu samt ósmeykur við að vióurkenna fyrir öðrum að þú sért hættur að reykja og viljir helst forðast of miklar freisting- ar. Það ætti ekki aö vera til of mikils ætlast að biðja vini og kunningja aó sitja ögn á reyk- ingalönguninni á þessu tíma- bili. Það gæti komió dálítió við þig ef einhver færi að kveikja sér í sígarettu eða öðru tóbaki einmitt á þeirri stundu sem þú fyndir skyndilega til löngunar í að reykja. Tólfti dagur Þegar hér er komið munu lang- flestir hafa lifað dag sem var að mestu laus við þá tilhugsun að fá sér reyk. Til öryggis skaltu þó lesa vandlega yfir listann þinn þar sem þú sérð af hverju þú ákvaðst að hætta að reykja. Þaó skaóar ekki aó minna sjálfan sig á hver plága tóbakið hefur verið í lífi manns, og sjá í leiðinni hvaö það er margt sem vinnst við að leggja þaó alveg á hilluna. Tímaritið „Heimili og skóli“ Nýlega kom út í Reykjavík tímaritið „Heimili og skóli“ og mun það framvegis koma út tvisvar á ári. Margir minnast eflaust blaós mcó sama nafni en Kennarafélag Eyjatjarðar stóö fyrir útgáfu þess á árunum 1942-1976, lengst af undir dugmikilli ritstjórn Hannes- ar J. Magnússonar skólastjóra. Dynheimabridds: Síðbúin úrslit Eftirfarandi cru úrslit í Dynheima- bridds 18. og 25. apríl og 2. maí sl.: 18. apríl: 1. Armann Helgason- Hjalti Bergmann 143 2. Sigurbjörn Þorgeirsson- Skúli Skúlason 143 3. Ormarr Snæbjörnsson- Svcinbjörn Jónsson 137 4. Jón Svcrrisson- EinarPálsson 125 25. apríl: 1. Armann Helgason- Hjalti Bergmann 142 2. Jónína Pálsdóttir- Una Sveinsdóttir 131 3. Tryggvi Gunnarsson- Örn Einarsson 131 4. Hermann Huijbens- Jón Sverrisson 126 2. maí: 1. Sveinbjörn Sigurðsson- Sverrir Haraldsson 206 2. Jón Sverrisson- Hermann Huijbens 197 3. Magnús Magnússon- Stefán Stefánsson 193 4. Sigurbjörn Þorgeirsson- Skúli Skúlason 176 Kvennabridds: Ólína og Ragn- heiður sigruðu Spilaöur var kvennabridds 19. apríl sl. Urslit uróu sem hér segir: 1. Ólína Sigurjónsdóttir- Ragnheiöur Haraldsdóttir 125 2. Jónína Pálsdóttir- Una Sveinsdóttir 122 3. Gissur Jónasson- Hólmfríður Eiríksdóttir 117 4. Soffía Guömundsdóttir- Júlíana Lárusdóttir. 116 Síðar tók Kennarasamband Noróurlands eystra upp þráðinn og gaf blaðið út allt fram til 1988 að það var formlega lagt niður. Nú eru það Landssamtök foreldra bama í grunnskólum, Heimili og skóli skóli, sem standa að útgáfunni en ritstjóri er Sigurður Þ. Salvarsson. Meóal efnis í þessu fyrsta tölu- blaði má nefna grein um heima- nám eftir Hrólf Kjartansson; Brynjólfur Brynjólfsson skólasál- fræðingur skrifar um einelti; Stcinunn Jóhanncsdóttir skrifar um hlutverk Námsgagnastofnunar og Steinunn Helga Lárusdóttir skólastjóri skrifar um vinnutíma kennara. Einnig er fjallað um lest- ur, kynnt ýmis rit um skólamál, sagt frá starfi foreldrafélaga og birt ljóð eftir grunnskólanemend- ur. Tímaritið hefur verið sent fé- lagsmönnum í Heimili og skóla en þeir eru rúmlega 9000 talsins hvaðanæva af landinu. Foreldrar barna í grunnskólum geta gengið í samtökin Heimili og skóla en aórir áhugamenn um endurvaMð skóla- og uppeldismál geta gerst styrktarfélagar og fá þá tímaritið og fréttabréf samtakanna. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Heimilis og skóla í Sigtúni 7 í Reykjavík eða í síma 91-627475. Menor-fréttir: Tónleikar í V.-Húnavatnssýslu Laugardaginn 8. maí heldur Kirkjukór Hólmavíkur tónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga kl. 16 og sama dag syngur Kirkju- kór Hólmavíkur í Grunnskólan- um á Borðeyri kl. 20. Sunnudaginn 9. maí vcrða vor- tónleikar nemenda við Tónlistar- skóla Vestur- Húnavatnssýslu haldnir í Vesturhópsskóla kl. 14.30 og í Félagsheimilinu á Hvammstana kl. 17. Miðvikudaginn 12. maí verða nemendur tónlistarskólans síðan á ferð með vortónleika í Bama- skóla Staðarhrepps Jd. 14. Tilboð óskast Vátryggingafélag íslands hf., Akureyri, óskar eft- ir tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Mazda E 2000 pallbíil .. árgerð 1992 Suzuki Swift 4x4 árgerð 1990 Fiat Tempra SX árgerð 1990 Mazda 323 árgerð 1989 Mazda 323 árgerð 1988 Daihatsu Charade TX .. árgerð 1988 Subaru Justy J12 árgerð 1987 Peugeot 505 GR árgerð 1982 MMC Colt árgerð 1988 Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoðunarstöð VÍS að Furuvöllum 11, Akureyri, nk. frá kl. 9.00 til 16.00. mánudaginn 10. maí Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16.00 sama dag. VATRYGGIINGAFELAG SÍei ÍSLAIMDS HF Akureyri. Laugardagur 8. maí 1993 - DAGUR - 11 Sumarbúðir kirkjunnar við Vestmannsvatn Börn • Unglingar • Aldraðir INNRITUN STENDUR YFIR virka daga frá kl. 16-18. Síminn er 96-27540. Einnig upplýsingar og innritun á öðrum tímum í símum 96-26179, 96-61685, 96-43545. Sundlaug Akureyrar SundnámskeiðJ" og sundleikskóli Sundnámskeið fyrir 6 og 7 ára börn hefst 24. maí og stendur til 16. júní. Námskeiðið verður 15 tímar. Gjald verður kr. 3000 og greiðist í fyrsta tíma. Á sama tíma verða sérstakir sundtímar fyrir eldri grunnskólanemendur. Sundleikskóli fyrir börn á aldrinum 3ja til 5 ára verður á þriðjudögum og fimmtudögum eftir kl. 16.00, frá 7. júní til 1. júlí. Sundskólinn verður 8 tímar. Gjald kr. 2.000. Innritun fer fram í Sundlaug Akureyrar, sími 12532. Sumaropnun hefst 15. maí. Opiö mánud. til föstud. frá kl. 07.00-21.00. Laugard. og sunnud. frá kl. 8.00-18.00. Gæðastjórnunarfélag Norðurlands Aðalfundur - Fundarboð Aðalfundur Gæðastjórnunarfélags Norðurlands verður haldinn mánudaginn 10. maí 1993 kl. 20.30 í húsnæði Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar félagsins. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun, ásamt ákvörðun félags- gjalda. 4. Kosning stjórnar og endurskoðenda. 5. Önnur mál. I tengslum við aðalfundinn verður haldinn fræðslu- fundur þar sem Gunnar Aspar, framleiðslustjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, mun sýna dæmi um myndun liðs þar sem vandamál er leyst með sjö þrepa aðferð. Nýir félagar velkomnir. Kaffiveitingar. Stjórnin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.