Dagur - 08.05.1993, Blaðsíða 23

Dagur - 08.05.1993, Blaðsíða 23
Laugardagur 8. maí 1993 - DAGUR - 23 í UPPÁHALDI „Legg Jagger og Domingo að jöfinf -Haraldur Ingi Haraldsson Haraldur Ingi Haralds- son var í vetur ráöinn forstöðumaður Lista- safns Akureyrarbæj- ar, sem nú er vcrið að koma upp í Mjólkursamlagshúsinu í Grófargili. Safnið verður opnað formlega á afmælisdegi bæjar- ins 29. ágúst. Haraldur Ingi er myndlistarmaður og hefur verið búsettur í Reykjavík síðustu ár, en eins og þcir sem hafa punga- próf í ættfræði vita er hann innfæddur Akureyringur. Hann er nú á kafi í undirbúnings- vinnu við Iistasafnið en gaf sér tíma til að segja okkur frá hugðarefnum sínum. Hvað gerirðu helst ífrístundum? „Ég les góðar bækur, hef alltaf verið bókaormur. Ég vil ekki telja það frístundir þó ég klessi upp einu og einu málverki því þctta cr fagið sem maður er mcnntaður í.“ Hraða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Ég er mikill matmaður og t.d. mjög hrifinn af austurlenskum mat. En þegar öllu er á botninn hvolft er það KEA-hangikjötið, iaufabrauðið og uppstúfið hjá niömmu á jólunum.“ Vppáhaldsdrykkur? „Kaldur bjór.“ Ertu hamhleypa til allra verka á heim- ilinu? „Þaó er kannski ekki alvcg hægt að orða það svo, en ég held að ég standi mig nokkuð vel. Ég er aó minnsta kosti slyngur í uppvaskinu.“ Haraldur Ingi Haraldsson. Spáirðu mikið í heilsusamlegt lífemi? „Já, nokkuð, en frekar af vilja cn mætti. Ég rcyni alltaf að stunda einhverjar íþróttir þótt það sé í minna mæli en ég óskaði.“ Hvaða blöð og tímarit kaupirðu? „Eins og cr kaupi ég Moggann og tölvublaðið PC Today." Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? „Náttborðið er reyndar í Reykjavík núna, en yfirleitt er ég alltaf með stóran stafla af bókum á því. Þær bækur sem ég var að lesa síðast eru Lygn streymir Don og Austan Eden, cn annars lcs ég mest af fræði- bókum.“ H vaða hljómsveit/tónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Ætli ég leggi þá Jagger og Domingo ekki að jöfnu. Eg hlusta cnn á rokkið en ég lærði að hlusta á óperur í Amster- dam þar sem ég var í námi. Það er svo mikið tónlistarlíf í borg- inni og ég smitaðist af því.“ Uppáhaldsíþróttamaður? „Það cr Alfrcð Gíslason, KA- tröll.“ Hvað horfirðu helst á í sjónvarpi? „Góðar kvikmyndir og fræðslu- þætti.“ Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? „A koinandi árum á ég mér þá ósk hcitasta að dá mcst þá stjómmálamcnn sem fara með fjárveitingarvald, hvort sem það er hér í heimabæ eða á landsvísu.“ Hvar á landinu vildirðu helst búa Jyrir utan heimahagana? „Ég vcró að segja Rcykjavík, mér líkaði ágætlega þar.“ Hvaða hlut eða fasteign langar þig mest til að eignast um þessar mundir? „Mig langar að eignast málverk eftir Miró.“ Hvernig langar þig til að verja sumar- leyfinu? ■ „Við ætlum að skreppa til ír- lands í sumar, það er ákveöið. Þar ætla ég að skoða bókina um Kólumkilla og fleira gott.“ Hvað œtlarðu að gera um helgina? „Mér cr boðið í afmæli til vin- ar míns á föstudagskvöldið (í gær) og síðan vonast ég til að geta stungið niður pensli og lokið við grein fyrir Dag í Mál- verk mánaðarins.“ SS EFST í HUGA Svavar Ottesen Það eru margir vel stæðir á Islandi Það er vor í lofti. Lóan er komin og krí- an er komin og fólk er farið að huga að nýgræðingnum í görðum sínum. Há- bjargræðistíminn er framundan og allir vona að sumarið verði gjöfult til sjávar og sveita. í mínum huga hefur vorið alltaf verið einhver dásamlegasti tími ársins, þegar gróðurinn vaknar af dvala eftir dimman vetur og það birtir í hug- um íslendinga þegar daginn tekur að lengja. Yfir mannlífinu hér á landi hvílir þó skuggi á þessu vori. Það eru viðsjár með íslensku þjóðinni. Minnkandi þjóö- artekjur og ekkert svigrúm til kjarabóta, klingir í eyrum fólks. Svartar skýrslur frá Þjóðhagsstofnun. Svartar skýrslur frá Hafrannsóknastofnun hvað þorskinn varðar. Við lifum jú aðallega á þorskin- um, íslendingar. Það er viðvarandi at- vinnuleysi á íslandi, ekki tímabundið eins og oft var. Þrátt fyrir hækkandi sól og blóm í haga. Mánuðum saman hafa borist fréttir af því í fjölmiðlum að svokallaðir aðilar vinnumarkaðarins væru að gera kjara- samninga í Reykjavík og ríkisvaldið, sem er stærsti vinnuveitandi landsins, þarf auðvitað að ræða við sitt fólk. Þessar fréttir eru farnar að hljóma eins og slitin plata í útvarpinu, síendurtekin dag eftir dag, en ekkert gerist. Stað- reyndin er sú að það er ekki um neitt aö semja og það hefur ekki staðið til að semja um kjarabætur. Þess vegna er ekki hægt að tala um kjarasamninga nú. í mesta lagi verður um samkomulag að ræða milli aöila vinnumarkaðarins, sem enginn getur litið á sem eðlilega kjara- samninga og auðvitað eru verkalýðsfor- ingjarnir, margir hverjir, tregir til að setja nafnið sitt undir svona samkomu- lag. Það sem er alvarlegast við ástandið hér á landi í dag er það, að sex til átta þúsund manns eru atvinnulausir. Þá er það ekki síður alvarlegt að um 42 þús- und manns hafa undir 50 þúsund krón- ur til að lifa af á mánuði og um 22 þús- und hafa laun á bilinu 50- 75 þúsund. Samtals 64 þúsund manns. í þessum hópi eru elli- og örorkuþegar, náms- menn og fólk í hlutastörfum. 13-15 þús- und manns, sem eru í fastri vinnu, hafa innan við 75 þúsund í mánaðarlaun. Það er alvara málsins. Um 6.400 manns hafa 250 þúsund eða meira í mánaðar- laun. Það eru þó nokkuð margir vel stæðir á íslandi, það er öruggt. Þess vegna er það ekki óeðlilegt að almenn- ingur, sem lifir við sultarmörk, geri þær kröfur að skipting þjóðarteknanna verði réttlátari. Um það vill verkafólkið að samið verði. Fóstrur athugið! Leikskólastjóra vantar á Leikbæ, Árskógs- strönd, frá og með 16. ágúst nk. Nánari upplýsingar gefur Erna Rós, leikskólastjóri, í síma 96-61971. Leikarar Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir fastráðnum og lausráðnum leikurum fyrir leikárið 1993-94. Leikárið hefst 15. ágúst 1993 og lýkur 15. júní 1994. Laun og kjör skv. samningum FÍL og LA. Umsóknir sendist til Leikfélags Akureyrar, pósthólf 522, 602 Akureyri, fyrir 23. maí nk. LEIKFÉLAG AKUREYRAR. LeikfelaR Akureyrar LUNDARSKOLI Lundarskóli Akureyri Sérkennara vantar að skólanum næsta skólaár Megin viðfangsefni hans verður, í samvinnu við bekkjarkennara, að þróa kennsluaðferðir sem hæfa mjög fötluðum nemanda sem kemur í 1. bekk skól- ans í haust. Frekari upplýsingar veitir skólastjóri í símum 96-24888 og 96-21749 utan skólatíma. Umsóknarfrestur er til 24. maí. Eyjafjarðarsveit Verkstjóra vantar við vinnuskóla Eyjafjarðar- sveitar í sumar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Eyjafjarð- arsveitar, sími 31335. Umsóknarfrestur er til 13. maí. Sveitastjóri. d Hjartkær móöir mín og dóttir, ERNA JAKOBSDÓTTIR, aðstoöar lyfjafræðingur, Kotárgerði 10, Akureyri, andaöist fimmtudaginn 6. maí. Útförin verður auglýst síöar. Ólöf Jakobína Þráinsdóttir, Margrét Jónsdóttir. RAGNHEIÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR, Holtagötu 4, Akureyri, sem andaðist 4. maí, veröur jarðsungin frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 11. maí kl. 13.30. Bryndís Björnsdóttir, Halldór Pétursson, Gyöa Huld Björnsdóttir, Jón Ágústsson og fjölskyldur þeirra. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, SIGURPÁLS SIGURÐSSONAR, Mólandi, Hauganesi, Árskógsströnd. Inga Sigurpálsdóttir, Reynir Valdimarsson, Guðmundur Sigurpálsson, Sigurrós Pétursdóttir, Sævar Sigurpálsson, Róslín Tómasdóttir, Ásdís Sigurpálsdóttir, Árni Þorsteinsson, Matthías Sigurpálsson, Agla Sigurðardóttir, Sigurður Kristján Sigurpálsson, Sveinfriður Sigurpálsdóttir, Kristinn Bjarnason, Arndís Slgurpálsdóttir, Örn Grant, Óskar Sigurpálsson, Þorbjörg Guðmundsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.