Dagur - 08.05.1993, Blaðsíða 13

Dagur - 08.05.1993, Blaðsíða 13
Flugan Laugardagur 8. maí 1993 - DAGUR - 13 Kolbeinn Gíslason Menn setja saman flugur af ótrú- legustu tilefnum. Siguröur Jó- hannsson hnýtti flugu 1987 af einu slíku. Kona nokkur sem kom á heimili hans var ákaflega skrautlega klædd að honum fannst og skrifaði hann litina í fatnaði konunnar niður og hnýtti Frúna um kvöldið. Flugan var reynd daginn eftir í Selá og gaf þrjá laxa. Frúin hefur verið reynd víða með góðum árangri og hefur Sigurður fengið á hana í Laxá í Þingeyjarsýslu og Fnjóská. I einni veiðiferð í Eyjafjarðará sá Siguróur lax í Torfufellshylnum sem lét ekki bjóða sér Frúna tvisvar heldur aðeins einu sinni F v ú i n og eftir stutta viðureign lá sex punda hrygna í valnum. Frúin hefur reynst Sigurði best við veióar á nýgengnum laxi Eins og sést á flugunni sem Sigurður hnýtti sjálfur eru heilar Blue Jay fjaðrir settar yfír íkoma- hárin og eru fjaðrimar snyrtar til þess að fá vængjaútlitið. Uppskrift: Tvíkrækja nr. 6-12. Stél: Hausfjöður af gullfashana. Búkur: Hamrað silfur. Skegg: Rauð hanahálsfjöóur. Vængur: Nokkur svört íkomahár og þar yfir Biue Jay fjaðrir. Haus: Svartur. Gróðrarstöðin Réttarhóll Svalbarðseyrl. Opnum laugardaginn 8. maí kl. 10. 10% opnunarafsláttur þann dag. Plöntur í garðinn og sumarbústaðalandið. Opið verður í sumar laugardaga og sunnudaga frd kl. 10.00-18.00, virka daga fró kl. 20.00-22.00. Sími 11660. Framsóknarmenn á Akureyri OPIÐ HÚS í Hafnarstræti 90, iaugardaginn 8. maí ki. 10.00-12.00. Rætt um bæjarmál o.fl. Heitt á könnunni. Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins. Burtfarartónleikar gít- arleikarans Halldórs Más Stefánssonar: Fyrstur gítar- leikara til að ljúka 8. stigi við Tónlistarskólann áAkureyri Burtfararprófstónleikar Hall- dórs Más Stefánssonar verða í Akureyrarkirkju sunnudaginn 9. maí nk. kl. 21.00. Halldór hefur stundað tónlistanám frá 8 ára aldri, fyrst á blokkflautu en síðan á píanó og trommur. Síð- an 1986 hefur hann lagt stund á klassískan gítarlcik við Tónlist- arskólann á Akureyri. Halldór hefur tekið þátt í opn- um námskeiðum, m.a. hjá Einari Kristjáni Einarssyni, Kristni Arna- syni og Arnaldi Arnarsyni og fengið mjög góða dóma fyrir leik sinn. Hann hefur nýlokið 8. stigs prófí með ágætum og er fyrsti gít- arnemandinn frá Tónlistarskólan- um á Akureyri sem náð hefur þeim áfanga. Hann mun væntan- lega útskrifast af tónlistarbraut Menntaskólans á Akureyri í vor og stefnir á framhaldsnám við Luthier tónlistarskólann í Barce- lona á komandi hausti. Kennari Halldórs er Örn Viðar Erlendsson en á efnisskránni eru verk eftir Leo Brouwer, Manuel Ponce, J.S. Bach, J. Dowland, Femando Sor og H. Villa-Lobos og er aðgangur að tónleikunum ókeypis. GG Til Reykjavíkur frá: Akureyri 6.230 Húsavík 7.010 Sauðárkróki 5.630 Miðað er við að greitt sé fyrir báðar leiðir, fram Fokker 50flyturpig og til baka, með a.m.k. tveggja daga fyrirvara og að á fljúgandiferð milli Reykjavtkur dvalið sé lengur en þrjár nætur. Bókunum er ekki hægt og níu áfangastada að breyta. Flugvallarskattur, 330 krónur, er inni- áíslandi á ótrúlegu APEX verði falinn og sætaframboð er takmarkað. Það hefur aldrei verið jafnhagstætt að fljúga innanlands. FLUGLEIDIR jmt þjóðbraut innanlands *

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.