Dagur - 11.05.1993, Page 5
Þriðjudagur 11. maí 1993 - DAGUR - £
Tónlist
Bamsskór að baki?
Kirkjulistaviku Akureyrarkirkju
lauk á tónleikum Kammerhljóm-
sveitar Akureyrar og Kórs Akur-
eyrarkirkju sunnudaginn 9. maí.
Stjórnandi hljómsveitar og kórs
var Guðmundur Oli Gunnarsson.
Kammerhljómsveitin hefur sett
rnark sitt á tónlistarlíf á Akureyri
að nokkru víðar á Norðurlandi
þau fimm ár, sem hún hefur starf-
að. Upphaf hennar var smátt og
geta hennar í byrjun ekki mikil, en
stórhugur aðstandenda hennar var
mikill. Þeir voru framar öðrum
kennarar og margir nemendur
Tónlistarskólans á Akureyri, þar
sem þáverandi skólastjóri, Jón
Hlöóver Askelsson, og Roar
Kvam, kennari við skólann, voru
óbugandi í því að halda hljóm-
svcitinni á floti hvað sem á bját-
aði.
Því er ekki að leyna, að nokkur
fyrstu árin mátti margt finna að
leik hljómsveitarinnar. Smátt og
smátt hefur henni þó verið aö
vaxa fiskur um hrygg. Vissulega
er enn ekki allt svo slétt og fágað,
sem best verður á kosið, en hljóð-
færaleikarar úr flokki heima-
manna hafa sannarlega náð sífellt
meira öryggi í samleik og hljóm-
sveitarstarfi og góðir liðsmenn
hafa bætst í flokk með brautryðj-
cndunum bæði til langs og
skamms tíma. Ráðist hefur veriö í
sífellt viðameiri verkefni og ióu-
lega hafa verið fengnir til gesta-
stjórnendur, sem hafa skilið eftir
sig spor og átt sinn hlut í því að
færa hljómsvcitina fram á veginn.
Núverandi fastastjórnandi
hljómsveitarinnar er Guðmundur
Oli Gunnarsson. Með honum
virðist vera að hetjast nýtt skeið á
ferli Kammcrhljómsveitar Akur-
eyrar. Hún virðist í þann veginn
að leggja barnsskóna á hilluna og
færast yfir á næsta stig í þroska-
ferli sínum: Nálgast það að verða
alvöru hljómsveit; hljómsveit,
sem getur farið að eygja það að
verða borin saman á jafnræðis-
grundvelli við það, sem gert er í
hinum stóra stað Reykjavík á sviði
hljómsveitarleiks.
A efnisskrá kammerhljómsveit-
arinnar og Kórs Akureyrarkirkju
voru Jeux D’Enfants eftir Georges
Bizet og tvö verk eftir Gabriel
Fauré: Pelléas et Melisande og
Requiem.
Undir natinni stjórn Guðmund-
ar Ola sýndi hljómsveitin á sér
skemmtilegar hliðar. Flutningur
vcrkanna var litríkur og í heild
fágaður. Einstakir hljóðfæraflokk-
ar komust almennt vel frá hlut-
verkum sínum. Afar sjaldan brá
fyrir þeim veikleika í strengjum,
sérstaklega fíðlum og lágfiólum,
sem því miður hefur iðulega Verið
citt helsta lýtið á leik kammer-
sveitarinnar. Einstakar einleiks-
strófur tókust vel, svo sem óbó-
leikur Gunnars Benediktssonar
og flautuleikur Völvu Gísladóttur
í Pelléas et Mélisande. Blær túlk-
unar var almennt yfirvegaður og
samband stjórnanda við hljóm-
,sveitina greinilega gjöfult. Þá var
eftirtektarvert, hve góð tengsl
voru á milli Bjöms Steinars Sól-
bergssonar, organista, sem lék á
aðalorgel kirkjunnar í Requiemi
Faurés, og hljómsveitarstjórans.
Fáeinum sinnum hefði bragur
mátt vera dálítið annar. Svo var til
dæmis í fyrstu köflum Requiems-
ins, sem voru nokkuð þyngslaleg-
ir, en í heild tekið var margt
prýðilega gert jafnt í samleik vió
kórinn og einsöngvara sem í
hljómsveitarverkum.
Hlutur Kórs Akureyrarkirkju
var einnig góður. Víða náðist góð
fylling í sönginn og ióulega naut
sín sá þróttur, sem svo fjölmennur
Lesendahornið
Ryksugupokiog
KEA á Lónsbakka
Christel Waltersdóttir skrifar.
„Eg vil leyla mér aö koma á
framfæri kvörtun vegna þcirrar
ákvörðunar forráðamanna Kaup-
félags Eyfirðinga að flytja út á
Lónsbakka þær vörur sem áður
voru á jarðhæó aðalhúss KEA við
Hafnarstræti. Mér fínnst það með
öllu óþolandi að þurfa aó fara 5
km út fyrir bæinn til þess að t.d.
að kaupa ryksugupoka. Þó að ég
vilji styðja kaupfélagið, þá sætti
ég mig ckki viö aö þurfa að fara 5
km leið út fyrir bæinn til þess að
nálgast ryksugupoka og ýmsar
aórar smávörur, t.d. nagla.
Því má ekki gleyma að því fer
víðs fjarri að allir hafi yfir bíl að
ráða og þessi vöruflutningur
norður fyrir Lónsá kemur því fólki
afar illa. Eg er ansi hrædd um að
Þýsk-íslcnska eigi eftir að taka
töluvcrð vióskipti frá KEA þegar
það opnar byggingavöruverslun
sína í Reynishúsinu!
Einnig ætla ég aó kvarta yfir
því að KEA skuli ekki hafa lengur
litla matvörubúó á miðbæjarsvæð-
inu. Auðvitaó fylgir því mikið
óhagræði fyrir fólk sent ekki hefur
yfir bíl að ráða að þurfa að fara
annað hvort út í KEA-Nettó cða
Hagkaup til þess aö kaupa ýmsar
smávörur."
[j|j EHGIH HIÍS ÁH HITA jjjj
Vortilboð
Hreinlætistæki ★ Blöndunartæki
Sturtuklefar ★ Sturtuhorn.
Sýnum einnig flísar á gólf og veggi og
Nomaco baöinnréttingar.
WSÖ
ÐRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Verslið við
fagmann.
HREINLÆTISTÆKI
STURTUKLEFAR OG HURÐIR
BLÖNDUNARTÆKI
ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA
JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
kór sem þessi á að búa yfir. Þann-
ig komu fram áhrifamikil og vel
unnin ris í til dæmis Sanctuskafla
og kaflanum Libera mc. Einna
best sunginn af kórsins hálfu var
kaflinn Agnus Dei, þar sem vel
tókst að ná fram blæbrigðum í
brag og styrk.
Einsöngvarar í flutningi Requi-
ems Faurés voru þau Margrét Bó-
asdóttir, sópransöngkona, og Mic-
hael Jón Clarke, bariton. Bæði
geróu sínum hlutverkum góð skil.
Michael Jón söng af þrótti og til-
finningu, sem hann stillti smekk-
víslega í hóf, og Margrét söng arí-
una Pie Jesu af sérlegri natni og
innileika, sem næst aldrei bar
skugga á.
Það er óhætt að fullyrða, að
þessir tónleikar Kammerhljóm-
sveitar Akurcyrar og Kórs Akur-
eyrarkirkju voru öllunt þcim, sem
að stóðu til mikils sóma. Þeir cru
án efa á meðal allra best unnu
fjöldaverkefna í tónlistarflutningi í
höndum heimamanna, sem undir-
ritaður hefur átt kost á að heyra.
Stundum hefur verið rætt, svo
að undirritaður hefur heyrt, að rétt
væri að breyta nafni Kantmer-
hljómsveitar Akureyrar og þau
rök færð fyrir þeirri hugmynd, að
þau vcrk, sem hljómsveitin flytur
og skipan hennar, séu ekki í sam-
ræmi við nafn hennar. Þetta er
rétt. Nú bætist það við, að unnt er
að gera sér vonir um, að bernsku
hljómsveitarinnar sé að ljúka. Hví
ekki aó marka þau tímamót með
nýju nafni, sem betur hæfir því,
sem mctnaður aðstandenda
Kammcrhljómsveitar Akureyrar
stendur til.
Haukur Agústsson.
Otsala
LOPI - BAND
Teppi ★ Peysur ★ Jakkar
Verksmiðjuverslun
Gleráreyrum, sími 11167
m
Afmœlistilbo
20% afsláttur
af öllum húsgögnum.
Ath. Stendur aðeins til 18. maí.
ÖRKIN
HANS
NÓA
GROÐRARSTÖÐIN
ÍKJARNA
Plöntusalan opin
Kl. 8-18 mánud.-fimmtud. Kl. 8-19 föstud. Kl. 10-17 laugard.-sunnud.
Skógarplöntur - Skjólbeltaplöntur — Skrautrunnar
Rósir — Garðtré, ýmsar stærðir — Berjarunnar
Garðyrkjuáhöld — Áburður, mold, grasfræ, jarðvegsdúkur o.fl.
Fjölbreytt úrval, yfir 100 tegundur trjáa og runna.
GERUM TILBOÐ I STÆRRI VERK.
★ Sendum um allt land ★
GRÓÐRARSTÖÐIN í KJARNA
Símar 96-24047 og 24599.
UPPLÝSINGAR, RAÐGJÖF, ÞJONUSTA