Dagur - 10.07.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 10. júlí 1993
Fréttir
Hér má sjá flutningabifreið fulliestaða af rotþróm leggja í hann frá Dalvík, enda eftirspurn eftir þeim mikii.
Mynd: Pjetur.
Sæplast hf. á Dalvík:
Selur rotþrær og vatns-
tanka fyrir 20 milljónir
Þórir Matthíassn, sölustjóri
hjá Sæplasti hf. á Daivík, segir
mikla vakningu vera í notkun
rotþróa, enda þau mál í mikl-
um ólestri og það megi líkja því
við „rotþróasprengju“. Gera
má ráð fyrir að sala á rotþróm
og vatnstönkum frá Sæplasti
nemi um 20 milljónum á ár-
inu, en þetta er aðeins annað
árið sem fyrirtækið framieiðir
þessar vörutegundir.
Framleiðslan hófst seint á síó-
asta ári og þá voru seldar um
100 rotþrær, sem fór langt fram
úr björtustu vonum þeirra hjá
Sæplasti, en sala á þessu ári
verður þó mun meiri. „Salan hef-
ur gengið mjög vel og menn
viróast hafa mikinn áhuga á því
aó bæta þessi mál, sem víðast
hvar eru í miklum ólestri. Við
fengum strax og við hófum fram-
leiðsluna, fjölmargar fyrirspurnir
og það er alls staðar sama sag-
an,“ sagði Þórir Matthíasson í
samtali við Dag.
Þórir segir aó fyrirtækió hafi
þegar gert samning við sex
hreppa í Borgarfjarðarsýslu í vor
og sumar, um sölu á rotþróm, en
hrepparnir sjá sjálfir um söluna.
„Þeir virðast vera að taka sig al-
veg gríðarlega á í þessum mál-
um,“ sagði Þórir. Einnig sagði
hann að Ljósavatns- og Háls-
hreppur hefðu gert samning um
kaup á rotþróm. PS
Úttekt sýnir mörg dæmi um slæmt neysluvatn á landinu:
Gott ástand á Eyjafjarðarsvæðinu
Akureyri:
Bæjarmálapunktar
■ Á fundi bæjarráðs Akureyrar
sl. fimmtudag var staðfestur
kaupsamningur (afsal) um lóð-
ina Strandgata 29B, sunnan
götunnar. Seljandi er Verk-
smiðjan Vífilfell hf. Kaupveró
er fasteignamatsverð kr. 787
þúsund krónur. Fjárveitingu til
kaupanna var vísað til endur-
skoðunar fjárhagsáætlunar
1993.
■ Bæjarlögmaður kynnti bæjar-
ráði samkomulag við umboðs-
mann Borghildar Sigurðardóttur
dags. 2. júlí sl. um kaup Akur-
cyrarbæjar á efri hæð húseign-
arinnar Eyrarlandsvegur 3, Sig-
urhæðir. Kaupverð er
3.020.000. Bæjarráð samþykkti
kaupin, en fjárveitingu var vís-
að til endurskoðunar fjárhags-
áætlunar.
■ Á bæjarráðsfundinum var
fjallað um kaup á nýjum stræt-
isvagni, en bæjaryfirvöld höfðu
samþykkt að kaupa strætisvagn
af gerðinni Volvo. Á fundinn
kom Stefán Baldursson, for-
stöðumaöur Strætisvagna Ak-
ureyrar. Hann greindi bæjar-
ráðsmönnum frá bréfi dags. 2.
júlí sl. frá Brimborg, umboðsað-
ila Volvo- verksmiðjanna. I því
kemur fram að ekki sé unnt að
afgreiða strætisvagn til Akur-
eyrarbæjar fyrr en í nóvem-
ber/desember nk. í stað ág-
úst/september, sem tilskilið
hafði veriö. Jafnframt var kynnt
nýtt tilboð frá Ræsi um kaup á
strætisvagni af gerðinni Merce-
des Benz, en vagninn hefur um
eins árs skeið verið notaóur
sem sýningarvagn og gæti verið
til afgreiðslu eftir 2-3 vikur.
Bæjarráð samþykkti að halda
vió fyrri ákvörðun sína um kaup
á Volvo-vagni, en fól bæjar-
verkfræðingi að taka upp við-
ræður við Brimborg hf. vegna
breytts afgreióslutíma.
■ Sigríður Stcfánsdóttir, for-
maður bæjarráðs, sem sæti á í
samstarfshópi um samkeppni
um endurbætur og nýbyggingu
við Sundlaug Ákureyrar,
greindi bæjarráói frá starfi
hópsins og niðurstöðum. Jafn-
framt voru lögð fram tvö bréf
frá þátttakendum í samkeppn-
inni, annað frá Fanneyju Hauks-
dóttur o.fl.v en hitt frá Finni
Birgissyni. I bréfunum eru gerð-
ar athugasemdir og sett fram
gagnrýni á niðurstöðu sam-
starfshópsins. Málið var rætt í
bæjarráði en afgreiðslu frestað.
■ Tekin var fyrir áskorun frá
starfsmönnum Rekstrarfélags
íslensks skinnaiðnaðar hf, sem
lögð var fram á síðasta fundi
bæjarráðs. Bæjarráð fól bæjar-
stjóra að fylgjast með málinu og
gera bæjarráði grein fyrir fram-
vindu þess.
■ Með bréfi dags. 29. júní sl.
frá Valgeiri Guðjónssyni í
Reykjavík var Akureyrarbæ
boðin aðild að gerð sjónvarps-
þáttaraðarinnar „Scandinavia"
fyrir Public Broadcasting Serv-
ice, sem sýnd verður í Banda-
ríkjunum og víðar um heim
næstu 10 árin. Bæjarráð sam-
þykkti að hafna þátttöku.
í nýrri samantekt Sigríðar Á.
Ásgrímsdóttur, verkfræðings
Neytendasamtakanna, kemur
fram að víða á landsbyggðinni
er neysluvatn óhæft til drykkj-
ar vegna saurmengunar. Að
mati forstöðumanns Heilbrigð-
iseftirlits Eyjafjarðar er ástand
neysiuvatns á svæðinu víðast
gott en nú vanti á að uppfylla
ný reglugerðarákvæði um svo-
Það verður mikið um að vera á
Minjasafninu á Akureyri á
morgun, sunnudag, í tilefni
þjóðminjadags og þess að 30 ár
eru síðan sýningar safnsins voru
opnaðar. Ný sýning er í kjallara
norðurhúss safnsins og í Lax-
dalshúsi verður opin sýning um
húsavernd. Einnig verður boðið
upp á gönguferð um Fjöruna
undir leiðsögn.
Þjóðminjadagur verður haldinn
í fyrsta sinn nk. sunnudag og er
hann hugsaóur sem kynningardag-
ur safna. Um þessar mundir, miój-
an júlí, vill svo til að liðin eru 30
ár frá því að sýningar Minjasafns-
ins voru opnaðar. Safnið var
stofnað formlega 1962. Þá um
haustið voru sýningar í tilefni 100
afmælis Akueyrarbæjar en árið
eftir voru fastasýningarnar opnað-
ar.
„Okkur finnst við hæfi að
minna á þetta og það verður frítt
kölluð vatnsverndarsvæði.
Valdimar Brynjólfsson segir að
samkvæmt reglugerðinni skuli
umhverfís vatnsból vera vemdar-
svæði sem ekki skuli nýta til ann-
ars. „Sveitarstjórnum er skylt að
ákvaróa þetta vatnsverndarsvæði
en það er ekki gert nema eftir
jarðfræðikönnun og að tilhlutan
Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar
geröi Héraðsnefnd Eyjafjarðar
inn á safnið á sunnudaginn í til-
efni dagsins," segir Guðný Gerður
Gunnarsdóttir, safnvörður Minja-
safnsins. „Það hafa staðið yfir
endurbætur á safninu, bæði í vetur
og fyrravetur. Anddyrið hefur ver-
ió endurnýjað með það fyrir aug-
um að bæta aðstöðu fyrir gesti og
svo höfum við opnað nýja sýningu
á neðri hæðinni í norðurhúsinu.
Þar er sýning á áhöldum sem
tengjast gömlu sveitastörfunum,
bæði inni og úti. Á sunnudaginn
ætla tvær konur aö sýna tóvinnu í
tengslum vió þessa sýningu."
Minjasafnió rekur Laxdalshús
eins og undanfarin ár og um helg-
ina verður opnuð sýning frá Þjóð-
minjasafni Islands um húsvernd á
Islandi. Sýndar verða myndir af
húsum og byggingum og sögð
saga og viógerðasaga þcirra.
Myndband um gömlu Akureyri
veróur í gangi og einnig kaffisala
eins og endranær.
rammasamning við Náttúrufræði-
stofnun Norðurlands um þessa
könnun. Sveitarfélögin geta síðan
gengió inn í þann samning og var
Akureyrarbær fyrstur til að gera
það,“ sagói Valdimar.
Hann segir að vandamál hafi
komið upp varðandi neysluvatn á
svæðinu þegar skortur sé á vatni
en slíkum tilfellum fari fækkandi.
JÓH
Á sunnudaginn kl. 14.00 verð-
ur gönguferð undir leiósögn um
Fjöruna. Gengið verður um gömlu
kaupstaðarlóðina. Farið verður frá
Laxdalshúsi og gengið inn að
Minjasafni, þar verður Svalbarðs-
kirkja, Minjasafnskirkjan, sýnd og
fólki boðið upp á að skoða safnið.
KR
Ekki er hægt að segja að Leiff
ur frá Ólafsfirði hafi dottið í
lukkupottinn þegar dregið var
í 8 liða úrslitum Mjólkurbikar-
keppninnar í gær. Leifturs-
menn fengu útileik gegn Kefl-
víkingum, en þeir slógu einmitt
Þór frá Akureyri út úr keppn-
inni sl. fimmtudagskvöld í
Keflavík.
Sala málningar
á Akureyri:
Grænir
litir
vinsælir
- en allt litakerfið í
gangi
Sala á útimálningu á Akureyri
hefur gengið þokkalega í sumar
að sögn málningarsérfræðinga
þriggja verslana í bænum.
Nokkur litagleði virðist ríkja í
vali á málningu en helst eru það
grænir eða grænleitir litir sem
eru vinsælastir þetta sumarið.
Úrval lita hefur aukist til muna
þar sem verslanir eru farnar að
bjóða upp á blöndun málningar
í hinum ýmsu tónum.
Hjá Kauplandi fengust þau
svör að grænblár litur væri vinsæll
þar á bæ. „Það hafa verið rykkir í
málningarsölunni í sumar, veðrátt-
an sér um það. Salan hefur samt
verið ótrúlega drjúg,“ sagði Árni
Ketill Friðriksson hjá Kauplandi.
Helgi Eyþórsson hjá verslun-
inni Skapta sagði mikla litadýrð
ríkja. „Það eru gjarnan teknir
dökkir litir á þak, þakskegg,
glugga og hurðir og þá ljósari litir
sem tóna vió á veggina. Það eru
engar formúlur, allt litakerfið er í
gangi. Kringum 70-80% af okkar
málningarsölu eru sérlagaðir litir.“
Helgi sagði sölu á útimálningu
hafa verið góða miðað viö aðstæð-
ur.
„Það eru helst þessir grænu,
gömlu litir sem eru vinsælir,"
sagði Baldvin Þór Heiðarsson hjá
Byggingavörudeild KEA. „Pa-
stellitirnir eru að detta út og hlý-
legri litir að taka við. Þetta gengur
í bylgjum eins og annað.“ Baldvin
sagði fólk farið að verða mun
opnara fyrir litum en hvítt væri
alltaf vinsælt og þá meó dekkri lit-
um. Hann sagói söluna hafa verið
ágæta undanfarið en veðrió hafi
óneitanlega spillt fyrir. KR
Listasimiar '93
Laugardagur 10. júlí: Iþrótta-
skemman kl. 17. Öpnunarleik-
sýning. Fenris - samnorræni
leikhópurinn. Café Karólína.
Myndlistarsýning. Laufey
Margrét Pálsdóttir.
Sunnudagur 11. júlí: Við
Pollinn kl. 22. Djasstónleikar.
Tómas R. Einarsson, Óskar
Einarsson og Árni Ketill.
Iþróttaskemman kl. 17. Leik-
sýning. Fenris. Akureyrar-
kirkja kl. 17. Sumartónleikar.
Ókeypis aðgangur.
Mánudagur 12. júlí: Safn-
aðarheimilið kl. 20.30. Tón-
leikar. Ólafur Árni Bjarnason
og Ólafur Vignir Albertsson.
Skrifstofa Listasumars er í
Kaupvangsstræti 23. Allar
upplýsingar í síma 12609.
Forsala aðgöngumiða á skrif-
stofu.
Aðrir leikir í átta liða úrslitum
verða sem hér segir: Fylkismenn
taka á móti Valsmönnum í Ár-
btenum, Skagamenn fá Víkinga í
heimsókn og Vestmannáeyingar
sækja KR-inga heim í Vesturbæ-
inn.
Allir leikirnir í 8 liða úrslitun-
um fara fram 19. júlí nk. óþh
Minjasafnið á Akureyri:
Mikið um að vera á morgun
- þjóðminjadagur haldinn í fyrsta sinn
og 30 ár frá opnun safnsins
8 liða úrslit Mjólkurbikarsins:
Leiftur gegn ÍBK