Dagur - 10.07.1993, Blaðsíða 5
Fréttir
Laugardagur 10. júlí 1993 - DAGUR - 5
Reykjahreppur:
Hreppsnefnd
ósátt við
Húsnæðisstofliun
Hreppsnefnd Reykjahrepps
hefur enn ekki fengið já-
kvætt svar vegna umsókna
um ián til byggingar félags-
legra íbúða sem sótt hefur
verið um undanfarin þrjú ár
að sögn oddvita. í Reykja-
hreppi búa rúmlega 110
manns.
„Þaö er aö vísu ekki búiö aö
afgreiða allt þetta árið en við
höfum a.m.k. ckki fengið já-
kvætt svar cnnþá,“ sagði Þor-
grímur J. Sigurðsson, oddviti
Reykjahrepps, varðandi um-
sóknir hreppsneftidar til Hús-
næðisstofnunar ríkisins um lán
úr Byggingarsjóöi verkamanna
til byggingar félagslegra
íbúóa í hreppnum. „Lán til fé-
lagslegra íbúða veitir húsnæð-
ismálastjóm,“ eins og segir í
lögum.
„Þetta er þriðja árið í röð
scm vió fáum synjun,“ sagði
Þorgrímur og kvað hrepps-
nefnd ósátta við þá afgreiðslu.
GT
Flugleiðir:
Bergþór ráðinn
umdæmisstjóri
Bergþór Erlingsson hefur verið
ráðinn nýr umdæmisstjóri
Fiugleiða á Akureyri.
Bergþór hefur starfað hjá Flug-
leiðum frá árinu 1978, fyrst sem
afgreiðslumaður og afgreiðslu-
stjóri á Akureyrarflugvelli, en
síðastliðin tvö ár sem umdæmis-
stjóri á Egilsstöðum.
Bergþór er fertugur, kvæntur
Heiódísi Þorvaldsdóttur og eiga
þau fjögur börn. óþh
Refaskyttur ósammála um hvort fengitími frestast þegar kalt er í ári:
Þetta er tóm vitleysa
- segir Haraldur Skjóldal, grenjalægja, sem telur að tófan beiði á sínum tíma
hvað sem líður veðri og vindum
Minkur og tófa beiða og gjóta á
sama tíma á hverju ári - hvern-
ig sem árar, segir Ilaraldur
Skjóldal, sem hefur skotið mink
og tófu í hálfa öld. „Oft er vet-
urinn yndislegur þótt vorið sé
slæmt,“ segir Haraldur. Sveinn
Jónsson, sveitarstjóri, er á önd-
verðum meiði og segir það
vissulega rannsóknarefni hvers
vegna skepnurnar vita meira en
við mennirnir enda virðist þær
eðla sig seinna - og þar af leið-
andi leggja seinna þegar kalt er
í ári. Sveinn segir að yrðlingar
séu minni nú en í meðalári og
hefur hann upplýsingar sínar
frá reyndum veiðimönnum.
Einn þeirra, Haukur Sigfússon,
segir: „Maður veit það um
þessi dýr eins og önnur að þau
beiða ekkert öll sama dag.“
í síðustu viku birti Dagur frétt
af samræmdri minkaeyðingu við
Eyjafjörð. Þau orð sem standa
innan „gæsalappa“ eru auðvitað
tekin beint upp úr tilvísaðri heim-
ild en í fréttinni var m.a. haft eftir
Sveini Jónssyni: „Tófan lagði
heldur seint í vor út af kuldanum
og það er eins með minkinn.“
Haraldur Skjóldal, gömul
minkaskytta, hafói samband við
Dag og sagóist vilja útrýma þeim
misskilningi að minkar, tófur og
önnur dýr fjölguðu sér fyrr eða
seinna eftir árferði.
„Þessi vitleysa hefur loðað við
bændur síðan ég byrjaði í þessu
fyrir fimmtíu árum,“ sagði Har-
aldur og benti á aó dýrin gætu
ekki spáð um veðrið og yrðu að
fara eftir eðli sínu.
íslenska sjávarútvegssýningin 1993:
Norðlensk fvrirtæki sýna
Sjávarútvegssýningin Islenska
sjávarútvegssýningin 1993 verð-
ur haldin dagana 15.-19. sept-
ember í haust í Laugardalshöll-
inni í Reykjavík og munu um
300 fyrirtæki taka þátt í henni.
Þar af eru um þriðjungur ís-
lenskur og helmingur þeirra
framleiðslufyrirtæki. Þetta er í
fjórða sinn sem þessi sýning er
haldin og er fyrir löngu búin að
sanna gildi sitt á erlendum vett-
vangi. A sýningunni verða
kynntar allar helstu nýjungar í
veiðitækni, í fiskvinnslu á landi
og úti á sjó, vigtun og kælingu
sjávarafla, nýjungar í geymslu
og flutningi sjávarafurða,
gæðastjórnun, pökkun og um-
búðum o.fl.
Bjarni Þór Jónsson, skrifstofu-
stjóri Félags íslenskra iðnrek-
enda, sem sér um þátttöku ís-
lensku framleiðslufyrirtækjanna á
sýningunni segir að á sýningunni
verði um 50 íslensk framleiðslu-
fyrirtæki eins og norðlensku fyr-
irtækin Sæplast hf., DNG og
Slippstöðin Oddi hf. og einnig
verða þarna innflutningsfyrirtæki
eins og Hekla hf., Héðinn hf. ís-
lensku framleiðslufyrirtækjunum
hefur fjölgað frá síðustu sjávarút-
vegssýningu sem haldin var árió
1990. Islensku framleiðslufyrir-
tækin eru flest innan vébanda
Málms - samtaka fyrirtækja í
málm- og skipaiðnaði. Efnaverk-
smiðjan Sjöfn tekur þátt í sýning-
unni en fyrirtækið sýnir þar hrein-
lætisvörur fyrir fískiðnaðinn,
bæði háþrýstitæki og einnig
froðuhreinsiefni með litvísi og
einnig BARRA-sótthreinsiefni.
Einnig er stefnt að því að hafa á
boðstólum haldgóðar leiðbeining-
ar um þrifnað í fiskiðnaði og
kynnt verða þau efni sem Sjöfn
framleiðir fyrir vinnsludekkin en
verksmiðjan er nú með allt að
70% af þeim markaði. Fyrir vélar-
rúmió veróur kynnt handhreinsi-
krem og ýmis fituhreinsiefni.
Slippstööin Oddi hf. mun
leggja áherslu á þá þjónustu sem
fyrirtækió veitir í sambandi við
skipaviðgerðir og kælitækni og
kynnt verða erlend samstarfsfyr-
irtæki, m.a. danska fyrirtækið
Carnitech en það framleiðir alls
kyns vélar og tæki fyrir rækjuiðn-
aóinn og Semi Stál-, sem fram-
leiðir þvottavélar og ýmsan bún-
aö fyrir fiskikassa. Einnig mun
fyrirtækið Gram verða kynnt en
það hefur sérhæft sig í frystivél-
um og veiðarfærahlutum.
I fyrsta skipti munu öll ís-
lensku olíufélögin verða með
sýningarbás þar sem þau kynna
svokallað „fyrirbyggjandi pró-
gram“ sem þau hafa verið að þróa
fyrir fiskiskipaflotann.
Tveir 100 metra langir og 25
metra breiðir sýningaskálar verða
reistir við hlið íþróttahallarinnar
og munu þeir þrefalda gólfpláss
sýningarsvæðisins. Síðustu sýn-
ingu sóttu um 11 þúsund manns,
og þar af voru erlendir gestir um
600 talsins, en Bjarni Þór segir að
með tilliti til harðnandi tíma sé
varla hægt að búast við nema um
10 þúsund manns, en það sé að
sjálfsögðu mjög gott ef það næst.
GG
„Ég þorði nú ekki fyrst að reisa
mig við kallana," viðurkenndi
Haraldur, sem byrjaði í „bransan-
um“ sem unglingur á stríðsárun-
um. Hann hélt því fram að enginn
sem hefði lesið einhver náttúru-
að lokum og hélt síðan í síðustu
grenjaleit sumarsins upp Glerár-
dalinn.
Sveinn Jónsson, sveitarstjóri
Arskógshrepps, sagðist ekki al-
veg sammála Dalla, vini sínum,
Þessi mynd var tekin fyrir níu árum af Haraldi Skjóldal með sérstæðan
flekkóttan mink scm hann skaut í Glerárgili en Haraldur hefur nú skotið
mink í hálfa öld.
fræði gæti haldið slíku fram og
nú vissi hann betur af reynslu
sinni.
„Minkur og tófa beiða á sínum
tíma og geta hvorki beðið með
það né haldið í sér þó að kalt sé í
veðri,“ sagði Haraldur um eðlun-
arfýsi og meðgöngutíma minka
sem væri að sjálfsögðu óháður
veðri og vindum.
Haraldur taldi sig vita af hverju
misskilningurinn stafaði; þegar
kalt sé í veðri og snjór liggi yfir á
vorin leggi tófan e.t.v. á skjólbetri
stöðum en venjulegum grenjum.
Síðan fari tófan með yrðlingana í
gamla grenið þegar vori - eftir að
grenjalægjur hafi vitjað grenisins
árangurslaust. „Þá halda þeir aö
tófan hafi lagt seinna út af veðr-
inu en hún beiðir á sínum tíma og
meðgöngutíminn er auðvitað alltaf
sá sami,“ sagði Haraldur Skjóldal
Mynd: ESE
og staðhæfói að minkur og tófa
eðluðu sig ekki á sama tíma ár
hvert vegna þess að grenin væru
full af klaka þannig að tófan gæti
ekki lagt. „Það er rétt hjá Haraldi
að þá leitar hún nær byggð,“
sagði Sveinn um skýringu Har-
aldar á tómum grenjum en Harald-
ur telur tóm minkagreni sjaldgæf-
ari en tófugreni enda haldi mink-
urinn sig nær sjávarmáli en tófan.
Máli sínu til staðfestingar vís-
aði Sveinn í Friðrik Magnússon á
Hálsi, sem hefur verið refaskytta í
tugi ára: „Hann segir aó það Iíti
út fyrir - þótt engin sönnun sé á -
að þegar illa árar þá séu hvolparn-
ir minni en hins vegar er það ekki
alveg algilt. Hann segir að þegar
hann vinni t.d. tvö greni á sama
tíma þá geti munað mörgum vik-
um á stæró hvolpanna.“ sagði
Sveinn.
Að undirlagi Sveins - sem seg-
ist enginn sérfræðingur - hafði
Dagur einnig samband vió Hauk
Sigfússon, grenjalægju, sem stað-
festi skilning Sveins. Haukur
sagði að allir yrólingarnir í tveim-
ur tófugrenjum sem þeir fundu í
vor hefðu verið óvenjulitlir.
„Ég rak mig reyndar enn hast-
arlegar á þetta fyrir nokkuð
mörgum árurn hvað yrðlingarnir
eru misstórir; ég hugsa aó það
hafi verið alveg mánaðarmunur á
yrðlingum í tveimur grenjum. Þeir
voru næstum jafn stórir foreldr-
unum í öðru cn pínulitlir í liinu.
Það cr talsvert misjafnt hvenær
tófan gýtur - hver sem ástæðan cr
- það er alveg á hreinu,“ sagði
Haukur um mögulega skýringu.
„Hins vegar skal ég ekkert
segja urn orsakir; það getur verið
pörunin og ýmislegt annað,“ sam-
sinnti Sveinn.
„Þetta vil ég einmitt rökræða
við hann,“ sagði Sveinn, aðspurð-
ur um þá staðhæfingu Haraldar að
rninkur og tófa yrðu að eðla sig á
sama tíma - sama hvernig árferöi
væri. „Þarna virðast skepnurnar
vita meira en við,“ sagði Sveinn
og bætti við að auðvitað væri
meögöngutíminn sá sami hvernig
sem áraði.
„Ég cr ekki að staðhæfa að
það geti ekki verið misstórir
hvolpar á sama tíma,“ sagði
Sveinn og bcnti á að sá tími sem
minkurinn beiddi og gyti gæti
verið einstaklingsbundnum tilvilj-
unum háður.
„Tófu- og minkaskyttur hafa
talað um það við mig að þeim
virðist yrðlingarnir vcra minni
núna. Það cr engin ástæóa hugs-
anlcg önnur cn að það hafi vcrið
gotið seinna því annars væru yrð-
lingarnir jafn stórir og venjulega,
þ.e. ef skcpnurnar mjólka eðlilega
- og fæóuframboð ætti jú að vera
svipaó hvort sem vor cr kalt cóa
hlýtt,“ sagði Sveinn að lokum. GT
Til eigenda að
Sendar hafa verið út ávísanir til eigenda skyldusparnaðarreikninga í innlánsdeild
Byggingarsjóðs ríkisins, sem eiga 30 þús. króna innistæðu eða lægri, í samræmi við
ákvæði nýsettra laga um niðurfellingu á skyldusparnaði ungmenna.
Nokkuð er um að ávísanir hafi ekki komist til skila, þar sem heimilisföng eru röng eða
hlutaðeigandi sparandi búsettur erlendis samkvæmt upplýsingum í þjóðskrá.
Skyldusparendur eða umboðsmenn þeirra, sem telja sig eiga innistæðu er nemur 30
þús. kr. eða lægri fjárhæð og ekki hafa fengið ávísanir sendar, eru hér með hvattir til
að hafa samband við veðdeild Landsbanka íslands, Suðurlandsbraut 24, Reykjavík,
í síma 60 60 55.
CSg húsnæðisstofnun ríkisins
SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVÍK. SÍMI69 69 00 (kl. 8-16). BRÉFASÍMI68 94 22