Dagur - 10.07.1993, Side 6
6 - DAGUR - Laugardagur 10. júlí 1993
Landsliðs-
menn að
norðan
Leikmenn sem leikið hafa með Akur-
eyrarliðunum og hafa leikið A-lands-
leiki fyrir ísland:
Halldór Áskelsson Þór
Þorvaldur Örlygsson KA
Hermann Gunnarsson IBA
Jón Stefánsson IBA
Kári Ámason ÍBA
Friðrik Friðriksson Þór
Njáll Eiðsson KA
Hlynur Birgisson I»ór
Erlingur Kristjánsson KA
Magnús Jónatansson IBA
Steingrímur Bjömsson ÍBA
Guðni Jónsson ÍBA
Skúli Ágústsson ÍBA
Steingrímur Birgisson KA
Helgi Bentsson Þór
Hafþór Kolbeinsson KA
24
23
20
11
11
17
7
6
5
5
4
3
3
3
2
2
Elmar Geirsson KA
Bjami Jónsson KA
Siguróli Kristjánsson Þór
Ásbjöm Bjömsson KA
Bjami Sveinbjömsson Þór
Jakob Jakobsson IBA
Mark Duffieid KA
Ragnar Sigtryggsson IBA
Það skal tekið fram að sumir þessara
leikmanna léku einnig með öðmm
liðum á þeim tíma sem þeir léku með
landsliðinu.
„Langaði helst
til að verða eftir
í Luxemburg“
- Hlynur Birgisson landsliðsmaður úr Þór í knattspyrnu í helgarviðtali
Hlynur Birgisson hinn hægláti knattspymu-
maður úr Þór hefur að undanfömu verió að
festa sig í sessi sem landsliðsmaður í knatt-
spymu. Með frábærri frammistöðu, hvort
sem er með sínu félagsliði eða landsliðinu
hefur hann náð að vinna hug og hjörtu knatt-
spymuáhugamanna, hvort sem er noróan eða
sunnan heiða. Þessi 25 ára gamli Þórsari hef-
Mynd og texti:
Pjetur Sigurðsson
Hefur alla kosti
yfirburða knatt-
spyrnumanns
- segir Sigurdur Lárusson þjálfari 1. deildarliðs Þórs
Dagur innti þjálfara Hlyns Birgissonar,
síðustu þrjú árin, Sigurð Lárusson, um
kosti hans og galla sem leikmanns.
„Kostir Hlyns sem leikmanns eru
margir og góðir. Það er mjög gott að
hafa hann í liói sínu, því maður getur
látið hann leika hvar sem er á vellinum.
Hann var færður í vömina í fyrra og
það kom vel út. Hann hefur góða eigin-
leika í þá stöðu. Sterkur skallamaður,
meó góðan skrokk og það kemst enginn
framhjá honum. Þá er hann mjög góóur
í að losa sig við boltann úr vöminni og
spila honum þaðan, auk þeirra spretta
sem hann tekur upp völlinn með knött-
Sigurður Lárusson þjálfari Þórs.
inn. Hann hefur alla kosti til þess að
vera yfírburða knattspymumaður. Per-
sóna Hlyns er góð, hæglátur og það fer
lítið fyrir honum. Maður getur alltaf
treyst á hann og hann er cinn af þeim
leikmönnum sem maður þarf aldrei að
hafa áhyggjur af, hvort sem er utan
vallar eða innan. Hans helsti veikleiki
er sá að hann heldur stundum ekki
100% einbeitingu í leiknum. Það er það
eina sem hefur háð honum. Hann er svo
róleg týpa og sííkir leikmenn eiga oft í
erfiðleikum með að halda einbeiting-
unni, en að þessu leyti hefur hann batn-
að með hverju ári, enda er hann með-
vitaðurum þetta.“
Hversu mikilvægur er hann þessu liði
sem Sigurður hefur byggt upp síðustu
þrjú árin? „Já, ætli hann sé nú ekki einn
sterkásti hlekkurinn. Það er nú ekkert
annað en það. Náttúrulega er hann einn
af 11 einstaklingum, en hann er einn af
sterkari hlekkjunum í lióinu. Nú er
hann búinn að vinna sér fast sæti í
landsliðinu og ég sé hann fyrir mér þar.
Ég sé hann líka fyrir mér sem atvinnu-
mann í framtíðinni. Ef hann heldur
áfram á þeirri braut sem hann er á nú,
sé ég ekkert því til fyrirstöðu að hann
geti orðið atvinnumaður, ef hann hefur
áhuga á því sjálfur. Hann hefur alla
kosti sem þarf til aö standa í atvinnu-
mennsku, metnaðarfullur, með mikið
þrek og góðan vilja. Að vísu er erfiðara
fyrir vamarmenn en aðra að komast í
atvinnumennsku, en hann er það sterk-
ur að ég sé hann alveg fyrir mér þar.
Þessi árangur Hlyns með landsliðinu
hefur ekki komið mér neitt á óvart og
ég var hissa að hann skyldi ekki komast
í liðið í fyrra.“
ur nú leikið sex A-landsleiki fyrir íslands
hönd og ef að líkum lætur eiga þeir örugg-
lega eftir að veróa fleiri.
fíldrei annað til greina en Þór
En hvers vegna gerðist Hlynur Þórsari?
„Það kom aldrei neitt annað en Þór til
greina, því ég bjó náttúrulega í þorpinu og á
þeim árum var þetta meira skipt. Þeir sem
bjuggu í Þorpinu voru Þórsarar. Þar að auki
var Þórsvöllurinn við hliðina á skólanum og
því lá það beint við að fara þangað.“
Nú hefur þú leikið flestar stöóur á vellin-
um, nema í markinu. Hvar hefur þú fundið
þig best?
„Ætli ég verói ekki að segja að varnarhlut-
verkið hafi skilað mér mestu núna, en fram-
herjastaðan er mér alltaf ofarlega í huga, því
ég lék þar í mörg ár. Mér gekk vel í þeirri
stöðu í yngri flokkunum og fyrstu árin í
meistaraflokki, en var svo færður aftar á völl-
inni. Ætli ég hafi bara skorað nógu mikið, því
fyrstu árin náöi ég að skora á bilinu 5-7
mörk í i. deild, en undir það síðasta voru þau
orðin 2-3, sem þykir ekki nógu gott af fram-
herja aó vera. Eftir þetta fór ég fyrst á miðj-
una, síðan á kantinn og að lokum í vörnina."
Hvert var stefnan tekin hjá ykkur Þórsur-
um fyrir sumarið?
„Þaó var tvímælalaust á efsta sætið og mér
fannst það raunhæfur möguleiki að stefna á
það. Við sýndum það í fyrra að við höfðum
alla möguleika á að ná því og í ár erum við
með breiðari hóp. Hins vegar gerði maður sér
ekki grein fyrir því hve Bjami Sveinbjörns-
son skildi eftir sig stórt skaró í lióinu, það
gerði enginn sér grein fyrir því að það yrði
svona stórt og menn vonuðu að þetta myndi
bjargast. Ég tel að það að missa Bjarna geti
verið það öðru fremur sem yrði til þess að
við ættum ekki möguleika á meistaratitlin-
um.“
Leikum ekki áferðarfallegustu
knattspyrnuna
Nú hefur Þórsliðið verið gagnrýnt af ýmsum
fyrir að leika ekki nógu mikla knattspyrnu
og hún hafi oft þurft að lúta í lægra haldi fyr-
ir „karlmannlegum" leik. Hverju svarar þú
slíkri gagnrýni?
„Jú, ég get alveg fallist á það að við leik-
um kannski ekki áferóarfallegustu knatt-
spyrnuna í deildinni, en þetta er bara sú leik-
aðferó sem Sigurður Lárusson, þjálfari, legg-
ur upp. Að leika sterkan varnarleik með
skyndisóknum. Þetta gafst vel í fyrra og því
ekki að reyna aftur í ár. Mér finnst það rétt-
lætanlegt að beita þessari leikaðferð. Mióað
við hvernig hópurinn er samansettur, þá er
auóvitað notuð sú leikaóferð, sem nær mestu
út úr mannskapnum. Við erum með góða
varnarmenn í lióinu og síðan erum við með
sóknarmenn sem eru fljótir fram og geta gert
usla.“
Nú hefur Þórsliðið breyst talsvert á síóustu
árum. Liðið lék aðeins fyrir tveimur árum í
annarri deild og hefur komið sterkt upp í 1.
deild. Hver er breytingin frá því sem áður
var?
„Ég vil meina það að Sigurður Lárusson
eigi stærstan þátt í þessum breytingum.
Hann hefur barið í menn trúna á liðið. Þá vil
ég meina að Sveinbjörn Hákonarson og
Lárus Sigurðsson hafi verið happdrættisvinn-
ingur fyrir liðið. Við vorum gífurlega heppn-
ir með þá og það spilar mikió inní, auk þess
sem Siggi hefur verið að gera stöðubreyting-
ar á liðinu sem hafa gefist vel. Hann hefur
breytt hugarfarinu hjá félaginu, en ég vil
meina að það vanti enn upp á það. Mér finnst
vanta trúna hjá mönnum að vió getum náð
alla leið. Síðan ég byrjaði með meistaraflokki
Þórs, höfum vió þrívegis verið hársbreidd frá
því að ná Evrópusæti og tvívegis leikið í und-
anúrslitum í bikarkeppninni, en alltaf þurft
að lúta í lægra haldi. Ég tel að þama sé
vandamál í höfðinu hjá okkur, það vanti
trúna á að við getum þetta.“
Hefur hugurinn aldrei leitaó í annað félag
hér á landi. Nú varstu orðaður við Fram í
vetur?
„Jú, ég get alveg viðurkennt það að hugur-
inn stefndi þangað um tíma og þá helst
vegna þess að einn af mínum uppáhaldsknatt-
spyrnumönnum, Ásgeir Sigurvinsson, er aö
þjálfa liðið, en ég hafði hins vegar mikla trú á
Þórsliðinu eftir síðasta keppnistímabil og að
við ættum möguleika á aó vinna deildina í
sumar. Þá þekki ég ekki annað og þaó er erf-
itt að slíta sig frá því þegar liðið á einhverja
möguleika. Einnig spilar það inní að Sigurður
er besti þjálfari sem ég hef haft og ég tel mig
skulda honum ýmislegt. Það var því erfitt
fyrir mig aó fara frá félaginu“
Helgi og fírnar erfiðastir
Hvern eða hverja telur þú þína erfiðustu and-
stæðinga?
„Sem varnarmaður tel ég marga erfióa, en
ég vil meina aó Helgi Sigurðsson í Fram sé
erfiður. Hann er geysilega öflugur og góður
knattspyrnumaður og þá var Arnar Gunn-
laugsson, sem lék með IA í fyrra, mjög erfið-
ur. Þetta eru þeir tveir sem eru mér ofarlega í
huga, þó að margir fleiri séu einnig mjög erf-
ióir.“
Ertu hjátrúarfullur, þegar knattspyrnan er
annars vegar?
„Nei, ég get ekki sagt það. Það hefur hins
vegar verió mikil hjátrú ríkjandi hjá Þór, sér-
staklega þegar Jóhannes Atlason þjálfaöi lió-
ið. Reyndar er Sigurður Lárusson líka dálítið
hjátrúarfullur og tekur upp á ýmsum uppá-
komum fyrir leiki. Sem dæmi má nefna, fyr-
ir leik okkar gegn Valsmönnum að Hlíðar-
enda, þar sem vió höfðum aldrei unnió áður,
þá lét hann plástur á bakið á öllum leikmönn-
um og sagói okkur að þegar ekki gengi allt
sem skyldi þá ættum við að muna eftir
plástrinum. Leiknum lyktaói með sigri okkar
0-3. Ég veit ekki hvort plástrarnir skiptu þar
máli, en Siggi þakkar þeim örugglega og vió
að sjálfsögðu líka. Hann bryddar upp á ýms-
um slíkum hlutum og það er ekkert annaó en
jákvætt.“
Landsliðsmaðurinn Hlynur Birgisson
Hlynur lék sinn fyrsta landsleik gegn Kuwait
árið 1987 og hafði áður en árið 1993 gekk í
garð leikið tvo landsleiki. Hann lék landsleik-
inn gegn Bandaríkjamönnum ytra í vor og
stóð sig þar með ágætum. Fyrsti leikur hans í
alþjóðlegu móti var landsleikur gegn Luxem-