Dagur - 17.08.1993, Side 1

Dagur - 17.08.1993, Side 1
V LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599^ Hertar innheimtuaðgerðir hjá sýshimannsembættinu á Akureyri: Þijú fyrirtæki innsigluð -17 gjaldþrotabeiðnir sendar héraðsdómi Embætti sýslumannsins á Akur- eyri hefur hert innheimtuað- gerðir vegna vangoldins virðis- aukaskatts. I lok síðustu viku voru þrjú fyrirtæki á Akureyri innsigluð, en það eru bifreiða- verkstæði og byggingafyrirtæki sem eru einstaklingsfyrirtæki og fyrirtæki í prentiðnaði. í bígerð eru áframhaldandi innheimtu- aðgerðir vegna virðisaukaskatts, staðgreiðslu og tryggingagjalds og mun atvinnustarfsemi tíu aðila verða stöðvuð í þessari viku geri viðkomandi ekki skil eða semji um greiðslu á gjald- Bárðardalur: Fjörug hross ofan úr Fjölmennt Iiðmanna kom ríð- andi ofan í Bárðardal úr Laugafelli um helgina. Um var að ræða hóp á vegum íshesta; mest útlendinga. Tryggvi Hösk- uldsson, bóndi á Mýri í Bárðar- dal, ætlaði sér að mæta hópn- um og reið til móts við hann cina 15 kílómetra. „Ég ætlaði mér að taka á móti hópnum og ríða meó honum til baka, en hann fór aðra leið en ég hafði reiknað með og sá því ekki til stóðsins fyrr cn ég var kominn hérna heim undir túnfótin. Að- spurður hvort hér væri ekki um að ræða langa Ieið að ríða sagði Tryggvi þctta vera um 70 kíló- metra og víst væri það langt en þó ekki lcngra cn það sem farió er á einum hesti í göngur. „Þctta er góó ieið að ríða og ég fékk ekki betur séð en að hrossin væru fjörug þegar þau komu inn á graslendið eftir langa reió í grjót- inu. Menn þurftu að halda vel í taumana og það var gaman aó sjá aó sum þcirra virtust ekki blása úr nös eftir rcið ofan úr Laugafelli,“ sagði Tryggvi. Heyskapur í Bárðardal hefur gengið mcð afbrigðum illa að sögn Tryggva. Gras er víða vel sprottið og menn þurfa aó fá góða viku til þess að ná því sem liggur flatt í hús „Ég er sjálfur búinn að slá allt en á eftir að hirða u.þ.b. fjórðung og hlýt að ná því í hús áður en fer að snjóa,“ sagði Tryggvi Hösk- uldsson, bóndi á Mýri í Báröar- dal. SV föllnum skuldum. Sl. mánudag voru Héraðsdómi Norðurlands eystra sendar 17 gjaldþrotabeiðnir vegna aðila sem eru í vanskilum hjá sýslumanns- embættinu vegna virðisaukaskatts og staðgreióslu og er þar bæði um að ræða einstaklinga og fyrirtæki. Vanskilaaðilum virðist fjölga nú miðað við þann fjölda sem var á lista í vor. Þeir gjaldendur sem lenda í vanskilum fá nú styttri frest til að ganga frá sínum mál- um. Um lcið og sýslumannsemb- ættió fær álagninguna frá skatt- stofunni er viðkomandi gjaldanda sent innheimtubréf þar sem hon- um er gefinn sjö daga frestur og fljótlega eftir þaó má búast við lokunaraðgerðum. Þessi frestur hefur verið styttur verulega frá því sem var fyrr á árinu. Þeir sem lenda í vanskilum þurfa að greiða verulega upphæð í aukakostnað, í virðisaukaskatti bætist við 20% á höfóustól þ.e. 2% á dag fyrstu 10 dagana og í staógreiðslu er það 1 % á dag fyrstu 10 dagana. GG Mynd: BS Eyjafjörður: Uppskeruhátíð hestamanna Hestamannafélögin Funi, Léttir og Þráinn héldu sína „árlegu“ uppskeruhátíð á Melgerðismel- um um sl. helgi. Fjölmargir áhugamenn voru mættir, þótt veðrið liafi sett svip á hátíðina á laugardag. Dagskrá hátíðarinnar var fjölþætt og verða henni gerð nánari skil í Degi síðar í vikunni. A myndinni eru sigurvcgarar í B-fiokki gæðinga, ásamt Matthí- asi Eiðssyni, sem afhenti vcrð- launin. F.v. sigurvcgarinn Guó- mundur Hannesson á Gasellu, Höskuldur Jónsson á Þyt, Ar- mann Olafsson á Garöi, Birgir Arnason á Indjána, Sigrún Brynjarsdóttir á Glitni, Agúst Andrésson á Þráni, Vignir Sig- urósson á Hita og Magnús Arna- son á Djákna. Framhald hráefiiiskaupa úr Barentshafí gæti komið í veg fyrir lokun fískvinnslustöðva - segir í yflrlýsingu verkalýðsfélaga á Norður- og Austurlandi Sjö norðlenskir togarar hafa haldið til veiða í Barentshaf norðan við tvö hundruð sjó- mílna landhelgi Norðmanna, en það eru Akureyrin frá Akur- eyri sem væntanlega hefur hafið veiðar í morgun, Drangey frá Sauðárkróki, Siglfirðingur frá Siglufirði, Sigurbjörg frá Ólafs- firði, Kolbeinsey frá Húsavík, Stakfell frá I»órshöfn og Rauði- núpur frá Raufarhöfn. I>essar veiðar í „Smugunni“, en svo nefnist þetta veiðisvæði, valda auknum titringi í samskiptum íslendinga og Norðmanna á sjávarútvegssviðinu en þess má m.a. geta að ákvörðun um heildarloðnukvóta er tekin sam- eiginlega af íslendingum, Norð- mönnum og Grænlendingum. Norðmenn hafa í þessum um- ræðum vitnað til alþjóða hafrétt- arsáttmálans, sem undirritaður var 1982, en þriója hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna, sem fram fór í New York og Genf, hafði þá staðið staðið í tíu ár. Norðmenn hafa ekki fullgilt sáttmálann, en einu Evrópuþjóðirnar sem það hafa gert eru Malta, Kýpur, Júgó- slavía og Island. Verkalýðsfélögin á Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopna- firói, Eskifirði og Stöðvarfirði hafa lýst yfir fullum stuðningi við fiskvinnslustöðvar á félagssvæði félaganna vegna kaupa á fiski af togurunum sem veiða á alþjóð- legum hafsvæðum. I yfirlýsingunni segir m.a.: „Aflasamdráttur og niðurskurður fiskveiðihcimilda að undanförnu hefur valdið miklum erfiðleikum og atvinnuleysi í sjávarplássum landsins. Hráefniskaup af togurum sem stundað hafa veiðar á alþjóð- legu hafsvæði í Barentshafi hafa því verið kærkomin búbót á þess- um erfiðu tímum. Ef framhald verður á þessum viðskiptum gæti Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra: Smæð heimavistar hamlar íjölgun Eitthvað á fimmta hundrað nemendur munu koma til með að sækja Fjölbrautaskóla Norð- urlands vestra á komandi miss- eri. í mörg ár hefur staðið til að heljast handa við smíði viðbygg- ingar heimavistarinnar og nú er Akureyri Níu teknir, en enginn á sviptingarhraða Árni Magnússon, varðstjóri hjá lögreglunni á Ákureyri, sagði helgina hafa verið tiltölulega ró- lega og þannig hefði það verið síðan hrinan gekk yfir um verslunarmannahelgina. Þó voru níu ökumenn teknir fyrir of hraóan akstur á Akureyri og nágrenni. Þeir voru þó ekki á neinum ofsahraða eða því sem þeir hjá lögreglunni kalla svipt- ingahraða. Það er þegar menn eru 40 km eða meira yfir leyfilegum hámarkshraóa, en þá eru þeir sviptir ökuprófinu. Hins vegar er sektum beitt á aðra sem keyra of hratt. Þeir níu ökumenn sem voru teknir um helgina fá sektir, mishá- ar eftir því hve hratt þeir keyrðu. Einnig var tilkynnt um 3 rúðu- brot í bænum og þar að auki braut ölvaður maður 3 rúður í húsi í miðbænum. Hann fékk að sofa úr sér í fangageymslum lögreglunn- ar. Þar var í sömu erindagjörðum annar, sem hafði líka farið heldur geyst í drykkjuna. IS svo komið að stærð heimavist- arinnar ræður því hversu marga nemendur skólinn getur tekið. „Það hefur staðið til um árabil aó byggja vió heimavistina en mál af þessu tagi þurfa að fara í gegn- um flókið ferli. Þar reynir á við- nám og mótstöðu og alls óvíst á þessari stundu hvaða afdrif þetta mál fær,“ segir Jón Hjartarson, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Hann sagði heimavistina geta tekið 160 nem- endur og smæð hennar vera það sem haldi aftur af fjölgun í skól- anum. Nemendur skólans í vetur verða eitthvað á fimmta hundrað og er það heldur fleira en á liðn- um vetri. SV það komið í vcg fyrir lokun fisk- vinnslustöóva, víða á Noróur- og Austurlandi, sem ella þyrftu að loka vegna hrácfnisskorts. Afieió- ing slíkra lokana er fjöldaatvinnu- leysi á þcssum stöðum og cr af- koma verkafólks og fiskvinnslu- stöðva því í húfi.“ Svava Árnadóttir, formaður Verkalýóslclags Raufarhafnar, segir aó frystihús staðarins, hafi fengið fisk úr Barentshafi, bæói frá Þórshöfn og Húsavík, og það hafi alveg bjargaó atvinnuástand- inu því togarinn Rauðinúpur hafi verió frá veiðum um margra vikna skcið vcgna aðalvélarskipta. Afii hafi einnig borist frá smærri bátum þegar gcfið hefur, en gæft- ir hafi hins vegar verið mjög stiró- ar á Norðausturlandi í sumar. „Sjávarútvegsráðherra hel'ur lýst því yfir aó þcssar veiðar séu ekki ólöglegar, þannig að okkur finnast yfirlýsingar formanns Sjó- mannasambandsins, sern ganga í þveröfuga átt, skjóta nokkuð skökku við og ef við eigum aö fara aó hugsa um það hvernig Norðmenn vilja haga þessum veiðum þá erum við komin út á hálan ís. Ég trúi því ekki aó ís- lensk stjórnvöld grípi til þess að banna þessar veiðar á sama tíma og erlendir togarar eru á veiðum rétt utan tvö hundruð mílna land- helgi íslands og þar með eru tald- ir togarar frá Noregi,“ segir Svava Árnadóttir. Á ríkisstjórnarfundi sem hefst í dag, þriðjudag kl. 9.30, munu veiðar íslenskra togara í „Smug- unni“ verða á dagskrá. GG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.