Dagur - 17.08.1993, Blaðsíða 7

Dagur - 17.08.1993, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 17. ágúst 1993 - DAGUR - 7 Knattspyrna, 2. deild karla: KA-menn gefa hvergi eftir - ívar Bjarklind skoraði bæði mörk liðsins í 2:0 sigri á Tindastóli KA heldur sigurgöngu sinni áfram í 2. deildinni í knatt- spyrnu. Eftir aðeins einn sigur úr fyrstu 8 umferðum Islands- mótsins hefur liðið unnið 5 leiki í röð, bætt 15 stigum í sarpinn og heldur betur skipt um stað í deildinni. A föstudagskvöldið mættust KA og Tindastóll á Sauðárkróki í leik þar sem harkan var í fyrirrúmi og dóm- arinn í aðalhlutverki. KA sigr- aði með 2 mörkum Ivars Bjark- lind og nú bíður ekkert annað en hörð fallbarátta Sauðkræk- inga sem enn eiga 15 stig inni í þeim slag. Hcimamenn voru heldur sterk- ari í fyrri hálfleik undan norðan strckkingnum. Þeir fengu besta færi hálflciksins þegar Sverrir Svcrrisson var einn fyrir opnu ntarki en gaf boltann í staó þess að skjóta sjálfur og færið rann út í sandinn. I byrjun seinni hálfleiks var fjandinn laus. KA-ntcnn mættu grimmir til leiks og Ivar Bjarklind kom þeim yfir mcó góðu marki þegar 5 mínútur voru liðnar. Skömntu síðar fékk Þórður Gísla- son Tindastólsmaður, sem þegar hafói fengið gult spjald fyrir að mótmæla dómi, annað mjög vafa- samt spjald og var þar með útilok- aður frá leiknum. Stólarnir létu skapið hlaupa með sig í gönur og stuttu síðar leit Sigurjón Sigurðs- son rauöa spjaldið fyrir að mót- mæla dómi og var Pétur Péturs- son heppinn aö fylgja ekki í kjöl- farió. KA-menn voru nú tveimur fleiri og sóttu stíft. A 25. mínútu síðari hállleiks galopnaðist vörn Tindastóls. Ivar Bjarklind fékk sendingu inn fyrir og skoraði fram hjá Gísla Sigurðssyni. Stól- arnir börðust vel el'tir þetta en náðu ekki að skapa sér veruleg marktækifæri og 2:0 sigur KA var staðreynd. Bestu menn KA voru Bjarki Bragason sem hélt Sverri Sverris- syni vel niðri, Halldór Kristins- son, Ivar Bjarklind, Gauti Laxdal og Ormarr Orlygsson. Hjá Stól- unum stóöu sig best Peter Pisan- ck, Guðbjartur Haraldsson, Sverr- ir Sverrisson og Smári Björnsson. Dómari leiksins, Kristján Guð- mundsson, hafði ekki nægilega góð tök á honum. I fyrri hálfleik beitti hann spjöldunum of lítið og þróaðist leikurinn því í mikla hörku. Atti hann afar slakan dag og eyðilagði í raun leikinn. ÞA Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson: Enn ein skrautfjöðurin - dæma í Suður-Kóreu Enn ein skrautfjöðurin er nú að bætast í hatt handknattleiks- dómaranna Stefáns Arnalds- sonar og Rögnvald Erlingsson- ar. Þeir hafa þekkst boð um að dæma á sterku móti kvenna- landsliða í Seoul í Suður-Kóreu um næstu mánaðamót. Þeir félagar hafa fest sig í sessi sem eitt besta dómarapar hcims og því til sönnunar var aðeins tveim- ur dómarapörum frá Evrópu boðið á mótið. Auk liðs Suður-Kóreu keppa lið frá Rússlandi, Banda- ríkjunum, Hollandi, Kína og Rúmeníu á mótinu, sem að sögn er haldið til að minnast þess að lið heimastúlkna hefur tvívegis orðið ólympíumeistari. Stefán Arnaldsson er í fremstu röð handknattleiksdómara í heiminum. Hér ræða þcir málin hann og Arnar Kristinsson handknattleiksdómari en þeir félagar dæmdu saman síðari leik KA og Bodö á föstudagskvöldið. Mynd: Halldör Sverrir Sverrisson og félagar hans hjá Tindastóli máttu lúta í lægra haldi fyrir KA, en hér stígur hann léttan dans með Jóni Hrannari Einarssyni KA-manni í Icik liðanna á KA-vcllinum fyrr í sumar. Mynd: Robyn Knattspyrna, 2. deild karla: Óheppnir Leiftursmenn - gerðu jafntefli við ÍR fyrir sunnan Ólafsfirðingar heimsóttu ÍR- inga sl. laugardag í 2. deildinni í knattspyrnu. Lciftursmenn voru óheppnir. Þeir voru betri aðilinn í leiknum alveg frá upp- hafi, flest færi voru í þeirra eigu en þeir sofnuðu á verðinum. Helst virtist sem meiri grimmd vantaði í liðið til þess að klára dæmið. Leikurinn var markalaus allt þar til á 37. mínútu. Þá fengu Leiftursmenn hornspyrnu sem Gunnlaugur Sigursveinsson tók og Pétur Björn Jónsson afgreiddi boltann á netið. Fyrri hálfleikur var algerlega eign Leiftursmanna og ÍR-ingar fengu ekki eitt ein- asta færi. Lciftur hóf síðari hálfleik með Gunnar Már Másson er sem fyrr í toppbaráttunni með Leiftri eftir jafntcfli um hclgina. Mynd: Halldör látum og tvisvar á fyrstu 5 mínút- unum var Gunnar Már Másson í dauðafæri en ntarkvörður IR varði frábærlega. Um miðjan síðari hállleik jafnaðist leikurinn nokkuó og á endasprettinum reyndust IR- ingar stcrkari. Bragi Björnsson átti þrumuskot í slá á 80. mínútu eftir stífa sókn og markahrókur- inn Tryggvi Gunnarsson fylgdi vel á eftir og skallaði í netið, en Tryggvi var nýkominn inná. Úr- slit leiksins uröu því 1:1. Leiftursliðið var mjög agað en ÍR-liðió ekki og komst upp með nokkuð kjaftbrúk og leiðindabrot, sem virtist hafa þau áhrif að Leift- ursmenn gáfu heldur eftir. Með meiri grimrnd hefðu e.t.v. öll stig- in verið þeirra. HB Knattspyrna, 1. deild kvenna: Dökkt útlit hjá Í6A - liðið í neðsta sæti og tveir erfiðir leikir eftir Enn dökknar útlitið hjá 1. deild- ar liði IBA í knattspyrnu. Um helgina máttu stelpurnar þola tap fyrir Stjörnustúlkum í Garðabæ, 2:1. Þar með er liðið enn í neðsta sæti deildarinnar með 7 stig, en eitt lið fellur úr deildinni í haust. Nú á liðið 2 leiki eftir og báða mjög erfíða, gegn KR og UBK heima. IBA stelpur byrjuðu leikinn við Störnuna vel og Hjördís Úlfars- dóttir kom þcim yilr með marki úr vítaspyrnu þegar um 20 mínútur voru liðnar af leiknum. Skömmu fyrir leikhlé náði Stjarnan að jafna meó marki Guónýjar Sveins- dóttur. Allt leit út fyrir að jafn- tefli yróu úrslit leiksins en skömmu fyrir leikslok skoraði Heiða Sigurbergsdóttir sigurmark Stjömunar eftir að hafa lagt bolt- ann snyrtilega fyrir sig mcó hcnd- inni. „Vió börðumst vel í leiknum og ég tel aó jafntcfli hefðu verió sanngjörn úrslit og við hefðum vel getað sætt okkur við það. Auðvit- að vcrður þetta erfitt en við höf- um ekki lagt árar í bát og ætlum okkur að ná í fleiri stig,“ sagði Arndís Ólafsdóttir, leikmaður ÍBA.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.