Dagur - 19.08.1993, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 19. ágúst 1993
Fimmtudagur 19. ágúst 1993 - DAGUR - 7
Eyjafjörður:
Góð þátttaka á uppskeruhátíð hestamaima
Hestamenn í Eyjaflrði, héldu sína „árlegu“ uppskeruhá-
tíð um sl. helgi. Það eru hestamannafélögin Funi, Léttir
og Þráinn sem að hátíðinni stóðu og fór hún fram á Mel-
gerðismelum. Þátttaka var mjög góð og tókst fram-
kvæmd hennar í alla staði mjög vel en þó setti veðrið að-
eins strik í reikninginn á laugardeginum. Þátttaka í
barna- og unglingaflokkum var góð, auk þess sem þátt-
taka í kappreiðunum var mjög góð. Boðið var upp á fjöl-
breytta dagskrá og var mikið fjör bæði á kvöldvökunni
og á dansleiknum, þar sem hljómsveitin Namm lék fyrir
dansi. I kringum veðreiðarnar var starfræktur veðbanki
og voru margir sem freistuðu gæfunnar. Hér á eftir fara
úrslit í einstökum greinum á hátíðinni og með þeim fylgja
nokkrar myndir sem Brynjar Skarphéðinsson tók.
Sigurvegarar í A-flokki fullorðinna. F.v. sigurvegarinn Höskuldur Jönsson á Krika, Þór Jónsteinsson á Berki, Vignir
Sigurðsson á Frama, Ragnar Ingólfsson á Prinsessu, Svanberg Þórðarson á Krumma, Birgir Árnason á Stikiu, Ár-
mann Olafsson á Hrafni og Ágúst Andrésson á Fífu.
Sigurvegarar í 150 m skeiði. F.h. sigurvegarinn
Svanberg Þórðarson á Krumma, Matthías Eiðsson á
Meistara og Birgir Árnason á Hrafni.
Sigurvegarar í tölti fullorðina. F.v. sigurvegarinn Guðmundur Hannesson á
Gasellu, Höskuldur Jónsson á Þyt, Sigrún Brynjarsdóttir á Glitni, Ármann
Olafsson á Garði og Matthías Eiðsson á Svala.
Sigurvegarar í yngri flokki unglinga. F.v. sigurvegarinn Ninna Þórarinsdóttir á
Prúði, Agnar Snorri Stefánsson á Toppi, Þorbjörn Matthíasson á Skugga, Ásmundur
Gylfason á Kvisti og Þorsteinn Björnsson á Hrafntinnu.
Sigurvegarar í eldri flokki unglinga: F.v. sigurvegarinn Elvar Jónsteinsson á Skugga,
Hrafnhildur Jónsdóttir á Kólumbusi, Eygló Jóhannesdóttir á Þyt, Sandra Sigmunds-
dóttir á Hvassa og Elsa Ösp Þorvaldsdóttir á Drottningu.
Sigurvegarar í gæðingaskeiði. F.v. sigurvegarinn Ágúst Andrésson á Prins-
essu, Matthías Eiðsson á Meistara, Svanberg Þórðarson á Krumma, Magni
Kjartansson á Þokka og Birgir Árnason á Hrafni.
Sigurvegarar í tölti í eldri flokki unglinga. F.v. sigurvegarinn Elvar Jónsteinsson á Sigurvegarar í tölti í yngri flokki unglinga. F.v. sigurvegarinn Ninna Þórarinsdóttir
Skugga, Hrafnhildur Jónsdóttir á Kólumbusi, Auður Erlingsdóttir á Sorta og Albert á Prúði, Agnar Snorri Stefánsson á [Toppi, Þorbjörn Matthíasson á Glettu, Ásmund-
Þór Jónsson á Diddu. ur Gylfason á Kvisti og Sindri Páll Bjarnason á Röðli.
Minning
Ó dauði, taktu vel þeim vini mínum,
sem vitjað hefur þreyttur á þinn fund.
Oft bar hann þrá til þín í huga sínum
og þú gafst honum traust á
banastund.
Nú leggur hann það allt, sem var
hans auður,
sitt œviböl, sitt hjarta aðfótum þér.
Er slíkt ei nóg? Sá einn er ekki
snauður,
sem einskis hér á jörðu vœntir sér.
(Tómas Guómundsson).
I dag verður vinkona mín Frið-
rikka Jakobsdóttir (Dista) jarö-
sungin frá Akureyrarkirkju. Dista
var glæsileg kona sem færði sam-
feróarfólki sínu mikla gleði og var
glettni hennar einstök.
Fegurðarskyn hennar var mjög
fágað og bar heimili hennar og
Jóns aó Hvammshlíð 4 á Akureyri
þess merki að þar hafa tvær per-
sónur sameinað krafta sína til að
kalla allt þaó fegursta fram.
Það er ekki bara umgjörðin,
sem hefur hlíft þeim fyrir veðri og
vindum, sem ber þennan glæsi-
leika, þau hjónin hafa komið upp
þremur glæsilegum bömum. Fjöl-
skyldan hefur stækkaó, í hópinn
hefur bæst yndisleg tengdadóttir
og sonardóttir, lítil prinsessa, sem
hefur fært ömmu sinni og afa
ómælda gleði og hamingju.
Það var ánægjulegt að sjá hvað
hringingar hennar frá Akureyri á
Landsspítalann kveiktu mikla
gleði hjá Distu, þegar sú litla var
að tjá henni væntumþykju sína á
sinn hátt. Dista háði hetjulega bar-
áttu við sjúkdóm sem sigraði aó
lokum og læknavísindin hafa því
miður ekki enn náð að hemja. í
þessari baráttu stóð Dista ekki ein,
hún átti yndislega fjölskyldu sem
barðist með henni á leiðarenda.
Kæru vinir, ég bið góðan Guð
aó veita ykkur styrk í þessari
miklu sorg og gefa ykkur kjark til
þess aó takast á við framtíðina.
Hér situr minning mild og hrein
sem máttug gleðilind.
En manni og börnum brosir œ,
í brjósti hennar mynd.
(Fr. Fr.)
Ykkar vinur Björg.
- Hún Dista er dáin - hljómaði
fregnin sem mér barst að kveldi
10. ágúst. Burtu kvödd í blóma
lífsins.
Osjálfrátt reikaói hugurinn 40
ár aftur í tímann, þegar ég var
sendur í sveit að Stóruvöllum í
Bárðardal. Á Stóruvöllum voru
nokkur böm til sumardvalar, þar á
meðal rauðhærð hnáta úr Brekku-
götunni. Þetta var hún Dista.
Dista var elst í hópnum og bví
eðlilega foringinn. Hún tók okkur,
smápjakkana, í kennslustundir um
lífið, tilveruna og ástina, hoppaði
síóan upp á rakstrarvélina, hottaði
í Grána og söng nýjustu dægur-
lögin við raust. Smápjakkamir
störðu á opinmynntir.
Hún hét Friðrikka Fanney, en
þarna í sveitinni sagði hún okkur
að hún hefði alveg eins viljað
heita Helena Betty. Ég kallaði
hana gjama Helenu Betty þegar
mikið lá við og þá var Distu
skemmt. Seinna höguðu örlögin
því þannig að við hjónin hófum
okkar búskap í Lönguhlíóinni, í
íbúð við hliðina á Distu og eigin-
manni hennar, öðlingnum Jóni
Karlssyni. í húsinu okkar í Löngu-
hlíðinni var saman komið ungt
fólk, sem átti ekkert nema trúna á
lífið og bjartsýnina, en af henni
átti Dista alltaf nóg. Þrátt fyrir erf-
ið veikindi undanfarið sagói hún
við mig í síma fyrir rúmum mán-
uði: - Eg þarf endilega að fara að
komast noróur, svo við getum gert
eitthvað skemmtilegt í sumar. -
Þetta var Distu líkt.
I margmenni var Dista fremur
fámál, en meðal fárra vina gat hún
verið óborganleg. Lét hún þá í
ljósi skoðanir sínar umbúðalaust,
því það var hennar stíll. Sama
hvaö um var rætt, menn, málefni.
skartgripi eóa húsgögn. Hitt vissu
fáir að hún var ágæt eftirherma og
marga kabarettana var hún búin
að leika í eldhúsinu hjá okkur. En
nú er Dista horfin á braut og
hennar er sárt saknað.
Við Stína sendum fjölskyldu
hennar innilegustu samúðarkveðj-
ur og þökkum Distu fyrir allar
ánægjustundirnar.
ívar.
Kveðja frá samstarfsfólki
„Dáinn, horfmn! ■ Harmafregn!
Hvílíkt orð mig dynur yfir!
en ég veit að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn. “
(Jónas Hallgrímsson)
Já, það er erfitt að sætta sig vió
dauðann, en eins og segir hér að
ofan þá trúum við því að Dista,
eins og við kölluðum hana, muni
lifa með okkur áfram.
Starfsfólk kemur og fer, - sum-
ir stoppa stutt við, - aðrir lengi og
var Dista ein af þeim. Vió erum
því margar, sem áttum því láni að
fagna aó kynnast henni náið.
Ymsar minningar koma upp í
hugann sem ylja okkur um hjarta-
rætur og við munum geyma. Lífs-
gleðin var aóalsmerki Distu og átti
hún oft frumkvæði að því að við
vinnufélagarnir gerðum eitthvað
skemmtilegt saman. Hún var fal-
leg kona og hafði næmt auga fyrir
umhverfi sínu. Ef setustofan okkar
hafói fengið nýtt yfirbragð og
blóm voru komin í vasa, vissum
við að þar hafði Dista komið við.
I starfi á Ieikskóla reynir á
margvíslega hæfni fólks til að tak-
ast á vió hina ýmsu erfióleika,
sem geta komið upp hjá bömun-
um. Þar sýndi Dista vel í verki
hversu næm hún var, umhyggju-
söm og hlý. Þennan eiginleika
fundu bömin og oft sáum við litla
hönd lauma sér í lófa hennar.
Minningin um góðan starfsfé-
laga og vinkonu lifir björt og fög-
ur eins og hún var.
Elsku Jón, Jakobína, Haukur,
Kalli, Sigga og litla Fanney Mar-
grét, við sendum ykkur hugheilar
samúðarkveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Kveðja frá samstarfsfólki
á leikskólanum Síðuseli.
Leiðrétting
I minningargrein um Engilráðu
Sigurðard. í Degi 17.8. stendur að
hún hafi verið fædd 1886 cn átti að
vera 96. Það misritaðist í handriti
og leiðréttist hér með.
Tónleikar í Safnaðar-
heimilinuáAkureyri
Guðrún Jónsdóttir og Ól-
afur Vignir Albertsson
halda tónleika í Safnað-
arheimilinu í kvöld,
fimmtudag, kl. 20:30 á
vegum Listasumars 93 á
Akureyri. Á efnisskránni
eru verk eftir: Mozart,
Puccini, Schumann,
Donizetti o. fl.
) Guðrún Jónsdóttir ætti að vera Akureyr-
ingum að góðu kunn því hún lék hlutverk Ad-
ele í óperettunni Leóurblökunni hjá Leikfé-
lagi Akureyrar síðastliðinn vetur.
i Guðrún Jónsdóttir er Isfirðingur og stund-
aði Hún fiðlunám um margra ára skeið við
Tönlistarskóla Isafjarðar og síðar við Tónlist-
arskólann í Reykjavík. Hún sneri sér alfarið
að söng og útskrifaðist sem söngkennari frá
Söngskólanum í Reykjavík vorið 1989. Aðal-
kennarar hennar við Söngskólann voru Sig-
rún Andrésdóttir, Jórunn Viðar og Þuríður
Pálsdóttir. Jafnframt námi sínu í Söngkenn-
aradeild sótti hún einkatíma í London um
nokkurra mánaða skeið hjá Vallery Haeth-
Davies. Síðastliðin þrjú ár stundaði Guðrún
framhaldsnám á Ítalíu hjá Rinu Malatrasi.
Guðrún söng hlutverk Gianettu í Ástar-
drykknum eftir Donizetti í nemendauppfærslu
Söngskólans. Hún söng einnig í uppfærslu
Óperusmiójunnar á óperunni Sour Angelica
eltir Puccini. Guðrún hefur starfað meó kór
Islensku óperunnar. I október sl. söng hún á
konsert í Veróna á Ítalíu ásamt Kristjáni Jó-
hannssyni tenór, Brunu Baglioni mezzo-sópr-
an og Bonaldo Giaoitti bassa.
Fréttatilkynning.
Uppskeruhátíð hestamanna:
Urslit í einstökum greinum
A-flokkur fullorðinna Úrslit: Hestur: Eigandi: Knapi:
l.sæti Kriki HöskuldurJónsson Eigandi
2. sæti Börkur Þór Hjaltason Þór Jónsteinsson
3. sæti Frami Ríkharður G. Hafdal Vignir Sigurðsson
4. sæti Prinsessa Pálína Skarphéðinsdóttir Ragnar Ingólfsson
5. sæti Krummi Svanberg Þórðarson Eigandi
6. sæti Stikla Sigurbjöm Sveinsson BirgirÁmason
7. sæti Hrafn Bergur Erlingsson Magn. Ám./Árm. Ólafs.
8. sæti Fífa Jens Berg Guðmundsson Ágúst Andrésson
B-flokkur fullorðinna
Úrslit: Hestur: Eigattdi: Knapi:
1. sæti Gasella Guðmundur Hannesson Eigandi
2. sæti Þytur Höskuldur Jónsson Eigandi
3. sæti Garður Ármann Ólafsson Eigandi
4. sæti Indjáni Þórhallur Þorvaldssor Birgir Ámason
5. sæti Glitnir Sigrún Brynjarsdóttir Eigandi
6. sæti Þráinn Sigurður Snæbjömsson Ágúst Andrésson
7. sæti Hiti Armann Olafsson Eig./Vignir Sigurðsson
8. sæti Djákni Magnús Ámason Eigandi
Eldri flokkur unglinga
Urslit: Knapi: Hestur:
l.sæti Elvar Jónsteinsson Skuggi
2. sæti Hrafnhildur Jónsdóttir Kólumbus
3. sæti Eygló Jóhannesdóttir Þytur
4. sæti Sandra Sigmundsdóttir Hvassi
5. sæti Elsa Ösp Þorvaldsdóttir Drottning
Yngri flokkur unglinga
Urslit: Knapi: Hestur:
1. sæti Ninna Þórarinsdóttir Prúður
2. sæti Agnar Snorri Stefánsson Toppur
3. sæti Þorbjöm Matthíasson Skuggi
4. sæti Ásmundur Gylfason Kvistur
5. sæti Þorsteinn Bjömsson Hrafntinna
Tölt - fullorðinsflokkur
Úrslit: Kttapi: Hestur:
I. sæti Guðmundur Hannesson Gasella
2. sæti Höskuldur Jónsson Þytur
3. sæti Sigrún Brynjarsdóttir Glitnir
4. sæti Ármann Ólafsson Garður
5. sæti Matthías Eiðsson Svala
Tölt - unglingaflokkur
Urslit: Knapi: Hestur:
1. sæti Elvar Jónsteinsson Skuggi
2. sæti Hrafnhildur Jónsdóttir Kólumbus
3. sæti Auóur Erlingsdóttir Sorti
4. sæti Albert Þór Jónsson Didda
Tölt - barnaflokkur
Úrslit: Knapi: Hestur:
I .sæti Ninna Þórarinsdóttir Prúður
2. sæti Agnar Snorri Stefánsson Toppur
3. sæti Þorbjöm Matthíasson Gletta
4. sæti Ásmundur Gylfason Kvistur
5. sæti Sindri Páll Bjamason Röðull
Gæðingaskeið
Urslit: Knapi: Hestur: Stig:
1. sæti Ágúst Andrésson Prinsessa 85,2
2. sæti Matthías Eiðsson Meistari 82,5
3. sæti Svanberg Þórðarson Krummi 64,5
4. sæti Magni Kjartansson Hnokki 58,0
5. sæti Birgir Ámason Hrafn 57,0
Egils kappreiðar: 150 m skeið Úrslit: Hestur: Eigandi: Knapi: Tími:
1. sæti Krummi Svanberg Þórðarson Eigandi 15,3 sek.
2. sæti Meistari Matthías Eiðsson Eigandi 15,7 sek.
3. sæti Hrafn Bergur Erlingsson Birgir Stefánss. 16,0 sek.
4. sæti Fífa Ragnar Ingólfsson Eigandi 16,3 sek.
250 m skeið
Úrslit: Hestur: Eigandi: Knapi: Tími:
1. sæti Meistari Matthías Eiósson Eigandi 25,6 sek.
2. sæti Krummi Svanberg Þórðarson Eigandi 26,3 sek.
3. sæti Tenór Ragnar Ingólfsson Eigandi 27,2 sek.
300 m brokk
Úrslit: Hestur: Eigandi: Knapi: Tími:
1. sæti Hnokki Jón Hólmgeirsson Sandra Sigurjónsd. 42,8 sek.
2. sæti Draumur Jón Ólafur Sigfússon Eigandi 42,8 sek.
3. sæti Gletta Erlendur Ari Oskarss. Eigandi 49,4 sek.
250 m stökk
Úrslit: Hestur: Eigandi: Knapi: Tími:
1. sæti Bára Magni Kjartansson JónB. Arason 19,3 sek.
2. sæti Elding Daníel P. Víkingsson Siguróur Ingvarss. 19,9 sek.
3. sæti Vinur Ólafur Kjartansson Albert Jónsson 20,8 sek.
4. sæti Sara Fél.b. Litla-Garði Hafdís Sveinbjömsd. 20,9 sek.
350 m stökk
Úrslit: Hestur: Eigandi: Knapi: Tími:
1 .sæti Kólfur Ágúst Ásgrímsson Eigandi 26,3 sek.
2. sæti Gletta Matthías Eiðsson Þorbjöm Matthíass. 27,1 sek.
3. sæti Kjói Hulda Sigurðardóttir Eigandi 28,5 sek.
Sveitarstjórnarmenn,
forsvarsmenn fyrirtækja,
félaga og stofnana
Alþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra verða
til viðtals dagana 30. ágúst til 1. september sem hér
segir:
Raufarhöfn mánudaginn 30. ágúst kl. 13.30.
Húsavík þriðjudaginn 31. ágúst kl. 9.00.
Akureyri miðvikudaginn 1. sept. ki. 9.00.
Þeir sem óska að nýta sér þetta hafi samband við
skrifstofur Raufarhafnarhrepps, Húsavíkurbæjar
eða Akureyrarbæjar eftir því sem við á og panti tíma
eigi síðar en föstudaginn 27. ágúst nk.
Alþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra.
AKUREYRARAPOTEK
Kynning á
ALLOE VERA
snyrtivörum
í Akureyrarapoteki,
föstudaginn 20. ágúst frá kl. 10-18
Kjörið tækifæri til að kynnast hinum frá-
bæru eiginleikum, lækningajurtarinnar,
ALLOE VERA
JUuteegtarApvlek
____Samviiniiiferllir-Laiiilsýicz
Okkar vinsœlu
haustferðir
beint frá Akureyri
DUBLIN
Brottför: 5. október 4 ncetur,
9. október 3 nœtur, 22. október 2 nœtur.
Verð frá kr. 26.805,-.
INNIFALIÐ í VERÐI: Flug frá Akureyri, gisting á hinu glœsi-
lega Burlington hóteli með fararstjórn og akstri af og á
flugvöll, írskur morgunverður, allir skattar.
Boðið upp á fjölbreyttar skoðunarferðir, afsláttur fyrir
hópa.
RIMINI Á ÍTALÍU
7 dagar í sólinni, 30. ágúst.
Verð frá kr. 39.705,- með öllu.
SaiaviaaaferúlrLanilsýal
Ráðhústorgi 1, Akureyri, sími 27200.