Dagur - 16.09.1993, Blaðsíða 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Áfgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
íslenska sjávarútvegssýningin:
Slökkviliöið á Akureyri var kvatt að Strandgötu 39 á sjöunda tímanum í gær - skömmu eftir að slökkvi-
liðsmenn höfðu flutt sig í nýjar höfuðstöðvar við Arstíg. Eldur var laus bak við húsið og allmikill reykur á
götuhæð þess þar sem húsgagnabólstrun er til húsa. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en nokkrar skemmd-
ir urðu af reyk - einkum á götuhæðinni. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins á Akureyri leikur grunur á
að um íkveikju hafi verið að ræða. Mynd: r<obyn
Fjögur norðlensk fyrir-
tæki meðal 480 annarra
ASÍ mótmælir
aðgangseyri að
heilbrigðiskerfinu
Miðstjórn Aiþýðusambands
Islands hefur mótmælt öllum
áformum ríkisstjórnarinnar
um að selja aðgang að heil-
brigðiskerfinu en heilbrigðis-
og tryggingaráðherra hyggst
beita sér fyrir því að selja
fólki aðgangskort að heilsu-
gæslustöðvum og sjúkrahús-
um.
I áformum ráðherrans felst
meðal annars aö þeir sem ekki
kaupi aðgangskort verði að
greiða ákveóið gjald vió komu
á heilbrigðisstofnanir; kr. tvö
þúsund við komu á heilsu-
gæslustöð og kr. tíu þúsund
vegna innlagnar á sjúkrahús.
Miöstjóm ASI segir að gjald-
taka með þessum hætti bitni
þyngst á þeim sem miiuia megi
sín og kostnaði við hcilbrigðis-
kerfið verði að mæta með auk-
inni skatthcimtu. ÞI
frá 24 þjóðlöndum
Fjögur norðlensk fyrirtæki taka
þátt í Islensku sjávarútvegssýn-
ingunni 1993, sem opnuð var í
gær af Þorsteini Pálssyni, sjáv-
arútvegsráðherra. Um 480 fyr-
irtæki frá 24 þjóðlöndum taka
þátt í sýningunni, og þar af eru
140 íslensk.
Sýiúng tveggja norðlensku fyr-
irtækjanna hefur þegar vakið
nokkra athygli en þau eru að
kynna nýjungar. DNG rafeinda-
búnaður hf. í Glæsibæjarhreppi
kynnir nýja færavindu, C-6000,
sem kemur á markaðimi síðla
næsta árs og Sæplast hf. á Dalvík
umhverfisvæn fiskker, en fyrir-
hugað er að hefja framleiðslu á
þeim á næsta ári. Slippstöðin Oddi
hf., sem reyndar sýiúr með Akur-
eyrarhöfn og Jóni Amari Pálma-
syni, kyiuúr víðtæka þjónustu fyr-
irtækisins á sviði skipaviðgerða
og einiúg vinnslu- og kælibúnað
og kælikerfi fyrir veiðiskip. Ak-
ureyrarhöfn kymúr þjónuslu hafn-
arinnar en Jón Amar Pálmason
hausingar- og kinnavél, sem hann
hefur hannað og smíöað og er
þegar til staðar í nokkrum togur-
um. Efnaverksmiðjan Sjöfn kyiui-
ir hreinsiefni fyrir fiskiðnaðinn
og háþrýstitæki. A bls. 8 og 9 í
blaöinu í dag er fjallað frekar um
sjávarútvegssýninguna. GG
Ólafsfjörður:
Aðveituæðinni fram Skeggja-
brekkudal skipt úr plasti í stál
- allar gangstéttir með hitalögn
Á vegum Ólafsfjarðarbæjar er
lokið við að jafna út hæðir og
hóla á skíðasvæðinu ofan bæj-
arins en þessir hæðir koma
fljótt upp úr snjónum á vorin
og því óskaði skíðadcild íþrótta-
félagsins Leifturs cftir því að
svæðið yrði jafnað til þess að
lcngja skíðatímann og auka
notkunargildi svæðisins. Fram-
kvæmdirnar eru fjármagnaðar
af bæjarsjóði. Árið 1989 var
einnig jafnað svæði og útbúinn
hefur verið hóll utan við skíða-
lyftuna sem safnar snjó á svæð-
ið.
Aö sögn Þorsteins K. Bjöms-
sonar, tæknifræðings Olafsfjaröar-
Umferðarátak á Norðurlandi:
Ástand öku-
tækja misjafnt
- 80 áminningar og 13 kærur
gefnar út á tveimur dögum
Nú stendur yfir umferðarátak á
vegum lögreglunnar á Norður-
landi. Á tveimur fyrstu dögum
átaksins voru 144 ökumenn
stöðvaðir. Gefnar voru út 80
áminningar og 13 kærur vegna
umferðarlagabrota og vanbú-
inna ökutækja.
Umferðarátakiö nær frá Hrúta-
firði og austur á Langanes og mið-
ar einkum að því að fylgjast með
ástandi ökutækja nú í haustbyrjun.
Að sögn lögreglunnar í Ólafsfirði,
sem hefur umsjón með átakinu, er
ástand ökutækja misjafnt og hafa
áttatíu ökumenn verið ámimitir
um hluti sem betur megi fara. Þá
hafi 13 kærur verið gefnar út á
fyrstu tveimur dögum átaksins,
seni stendur fram að helgi. ÞI
bæjar, er lokið að meginhluta við
endurbætur á aðveituæð hitaveit-
unnar, þar sem hún liggur um
Skeggjabrekkudal, en hún
skemmdist verulega sl. vetur í
geysilegu snjófióði sem hljóp
fram dalinn. Til að verja aðveitu-
æðina betur er lokið að mestu við
að skipta um lögnina úr plasti yfir
í stál nema þar sem aðveituæðin
liggur yfir ána á Skeggjabrekku-
dal, en það verður gert á allra
næstu dögum. Kostnaður vió
þessar endurbætur gæti numið allt
aö einni milljón króna.
Sá hluti aðalæðar Hitaveitu Ól-
afsfjarðar sem liggur um Ólafsveg
var í sumar endumýjaður en þar
er um 120 metra langa lögn að
ræða. Einnig var um 150 metra
langur spotti af aðalæðinni til bæj-
arins endumýjaður og er þar með
búið að endumýja lögnina gegn-
um flugvöllinn, en síðasti áfang-
inn í þessari endumýjun er spöl-
urimi frá flugvelli og upp að tank-
inum við Laugarengi. Þeim
áfanga lýkur væntanlega næsta
sumar.
Túngata var malbikuð og verið
er að ljúka viö að steypa gang-
stéttir við þá götu. I allar gang-
stéttir í Ólafsfirði eru lagðar hita-
lagnir en fyrir því er samþykkt
bæjarstjómar. Kostnaðarauki
vegna hitalagna í gangstéttir er um
2 þúsund krónur á fermeter. Ver-
ið er að hefja framkvæmdir vió
jarðvegsskipti og skipti á öllum
lögnum í Brimnesvegi. Það verk
var boðið út og á því að ljúka í
októberlok, en verktaki er Ár-
steinn hf. í Ólafsfirði. huian
tveggja ára veröur lagt slitlag á
Brimnesvegimi. I sumar hefur ver-
ið unnið að lagningu göngustíga
frá miðbænum og aö íþróttasvæð-
inu og barnaskólanum og fyrir
komandi vetur verður gengið frá
bílastæði við barnaskóla, íþrótta-
hús og sundlaug en fyrirhugað er
að ljúka malbikunarframkvæmd-
um í næstu viku, sem jafnframt
verða þær síðustu í Ólafsfiröi á
þessu sumri. Hombrekka, heimili
aldraðra, hefur verið tengt bæn-
um með göngustíg um áhorfenda-
svæðið ofan íþróttasvæðisins. Aö
sögn bæjartæknifræðings núða
þessar framkvæmdir að því að
gera miðsvæöi bæjarins og næsta
nágrenni umhverfisvænna. Yfir
90% af öllum götum í Ólafsfirði
em nú með bundnu slitlagi.
Vegagerð ríkisins er að láta
sandblása og mála gömlu brúna
sem liggur yfir Ólafsfjarðará
norðan Aðalgötu en samkvæmt
aðalskipulagi bæjarins er fyrir-
hugað að byggja ný brú töluvert
neðar í ósnum, norðan Strandgötu.
Þessar framkvæmd kostar um 400
þúsund krónur. Á nýendurskoð-
aðri vegaáætlun, sem gildir til árs-
loka 1996, er ekki gert ráð fyrir
þessari brúarsmíði en áætlunin
verður endurskoðuð á árinu 1995
og því er ekki öll nótt úti um aó
þeim framkvæmdum verði hrað-
að.
Verið er að koma upp lista-
verki við Sparisjóð Ólafsfjaróar
sem heitir Flœði, og er eftir Ól-
afsfirðingiiui Kristinn Hrafnsson.
Slökkvilið Akureyrar flutti í gær úr Ráðhúsi Akureyr-
arbaejar í nýtt húsnæði við Árstíg 2 á Glerárcyrum þar
sem áður var Heildverslun Valdimars Baldvinssonar
hf. Slökkviliðsmenn óku bifreiðum liðsins í fylkingu
með fullum ljósuin og hljóðmerkjum frá Gcislagötu að
Árstíg. Á stærri myndinni má sjá hluta af tækjum
slökkviliðsins fyrir framan hinar nýju bækistöðvar en á
innfelldu myndinni eru slökkviliðsmcnn í fulluni
skruða. Mynd Roby.'i.