Dagur - 16.09.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 16. september 1993
ÍÍEIÐIKLÓ
Á niyndunum hér að ofan eru þcir Stcfán Sigurðsson (á efri myndinni) og
Sigmundur Ofeigsson með góða veiði úr Hafralónsá uin síðustu helgi.
aswmœmm
—
Tilboð
Þurrkryddaður lambahryggur
aðeins l<r. 598 kg
Ungaegg 198 kr. kg
Brazzi appelsínusafi 79 kr.
Allt til sláturgerðar t.d.
rúgmjöl 1 kg kr. 38
Chick-King kjúklingabitar
128 kr. stk.
Djúpsteiktar franskar kartöflur
'á skammtur ca. 1 kg kr. 300
'á skammtur ca. Á kg kr. 200
Nýtt kortatímabil
Matvöru-
markaðurinn
Kaupangi
Opið virka daga kl. 9-22
Laugardaga og sunnudaga kl. 10-22
Sími 21234
Veiðinni að ljúka í laxveiðiánum:
Fnjóskáin skilaði
um 400 löxum
- Hofsá í Vopnafirði nálægt því að ná 2000 fiska markinu
inn. Haraldur Jónsson, formaður
Veiðifélags Hofsár, sagði ána
fulla af fiski. „Veiðin hefur veriö
dræm frá síðustu mánaðamótum.
Menn hafa verið aó berja með
spún án árangurs en núna í vik-
unni fóru menn yfir í fluguna og
þá kom kippur. Það var fyrst þeg-
ar beitt var stórum túbflugum
sem eitthvað fór að gerast. Það er
því fluguveiðin sem gefur best
þessa dagana,“ sagói Haraldur.
„Eg veit að hér er vænn fiskur í
ánni og jafnvel nýgenginn smá-
fiskur. Ein stöngin tók kvótaiui,
eða átta laxa á seinni vaktinni á
þriðjudaginn, þannig að það kom
kippur í þetta eftir mjög daufan
tíma. Það eru því veiðimennimir
sem liafa klikkað en ekki fiskam-
ir því menn sjá mokandi lax um
alla á. Hér verður veitt til 20. sept-
ember og ef þessa daga verður
kropp þá er möguleiki á að ná í
2000 fiska markið,“ sagði Harald-
ur. ^ JÓH
Lesendahornið
Laxveiðinni á þessu tímabiii er
sem óðast að ljúka. I mörgum
ánna er veiðin í sumar heldur
minni en í fyrra eða í besta falli
svipuð. I færri tilfeilum hefur
orðið aukning milli ára. Meðal-
vigtin kemur þó til með að
verða víða góð í ár, t.d. í
Fnjóská en þar lauk veiðinni í
gær.
Ingvi Rafn Jóhannsson, söluað-
ili veiðileyfa í Fnjóská, sagði síð-
degis í gær að endanleg tala úr
ánni verði um 400 laxar. „Það
hefur verið ágæt veiði fram að
þessu. Þeir hafa verið að fá góða
laxa á síðustu dögunum og í vik-
unni fékk Jón Kr. Kristjánsson 21
punds lax á flugu og þá eru tveir
21 punds fiskar komnir úr ánni í
sumar," sagði Ingvi og bætti við
að líkast til hafi þessi fiskur verið
25-26 pund þegar hann gekk í ána
því hann var vel leginn þegar
hami kom á land. Hinn 21 punds
fiskinn veiddi Stefán Þórarinsson
fyrr á veiðitímabilinu en þetta eru
tveir stærstu fiskar sumarsins úr
Fnjóská. „Þeir hafa líka verið að
fá nýgenginn smálax á síðustu
dögunum t.d. einn sjö punda ný-
genginn 12. september sem náðist
langt upp í á. Það eru bókaðir
fleiri smáfiskar en annars hlýtur
meðalvigtin í ánni að verða há í
sumar því það kom mjög mikið af
12-14 punda fiski úránni.“
Hofsáin verður nálægt
2000 löxum
Fjórir dagar eru eftir af veiðitíma-
bilinu í Hofsá í Vopnafirði en í
allt surnar hefur áin verið á toppi
laxveiðiámia. I gær sögðu Vopn-
firðingar komna um 1900 fiska á
land þannig að ef úr rættist síðustu
dagana þá sé ekki útilokað að ná
2000 laxa markinu en þá þyrfti
reyndar að ganga snöggtum betur
heldur en síðasta hálfan rnánuð-
Þú nærð Rás tvö í Sjónvarpinu!
Unnandi Rásar 2 hringdi og
sagðist vilja benda á lausn til
handa þeim sem eru óánægðir
meö aö missa af dagskrá Rásar 2
þann tíma sem svæðisútvarpið
yfirtekur dagskrá hennar.
„Eg uppgötvaði það fyrir til-
viljun cinn morgunimi aö dagskrá
Rásar 2 er auðvitað send út gegn-
um Sjónvarpið allan daginn,
þ.e.a.s. svo lengi sem stillimyndin
er á skjánum. Þeir sem eru
óhressir með að missa af dagskrá
Rásar 2 þann tíma sem svæðisút-
varpið yfírtekur útsendingu henn-
ar á morgnana, geta því einfald-
lega kveikt á sjónvarpinu og hlust-
að á það!
Þetta er einföld og góð lausn á
vandamáli, sem margir hafa gert
mikió úr. Gallinn við hana er hins
vegar sá að hún kemur ekki að
Áhorfendur sjáifum sér
og félaginutil skanunar
Stefán Gunniaugsson hafði sam-
band við Dag og var frekar óhress
meó tvo áliangendur KA í knatt-
spymu. Taldi hann það bæði fólk-
inu, ákveðinni konu og manni og
félaginu í heild, til skammar
hvemig það hagaði sér á vellinum.
Nú síóast á leik KA og Fram í
úrslitaleik bikarkeppninnar í 2.
flokki. Fólkið lét þá öllum illum
látum og talsmátinn hafi verið
þvílíkur að öðmm áhorfendum
hafí hreinlega blöskrað. Taldi
hann miklu nær að þetta fólk héldi
sig heima, þar sem það hefði
greinilega ekkert garnan af því að
horfa á skemmtilega knattspyrnu.
Of mikill öku-
hraðiá
Kona á Eyrinni hringdi og lýsti
yfir áhyggjum sínum vegna þess
hve ökumenn fara geyst eftir
þröngum götum á Oddeyrinni.
Nefndi hún sérstaklega Grenivelli
og Eyrarveg í því sambandi. Hún
sagöi að göturnar líktust stundum
kvartmílubraut og þetta athæfi
væri stórhættulegt. Hún sagðist
Eyrmni
vera með lífið í lúkunum vegna
skólabarnamia sem þarna væru á
ferö og vildi endilega hvetja bíl-
stjóra að hugsa sinn gang. Einnig
benti hún á þá mögleika að setja
upp hraðahindranir eða þrenging-
ar eða jafnvel lækka hámarkshrað-
ann niður í 35 km til að halda
hraðanum niðri.
notum seimúpart dagsins, þegar
svæðisútvarpið yfirtekur dagskrá
Rásar 2 að nýju, því þá er eiginleg
útsending myndefnis hafin í Sjón-
varpinu. En lausnin er góð engu
að síður fyrir forfallna „fíkla“
Rásar 2, ekki satt?“
Mynd: Robyn
Moldar-
haugar á
gangstétt
Ibúi í Innbænum hringdi og
kvartaði yfir moldarahaugum á
gangstéttinni í Hafnarstræti fyrir
neðan skátaheimilið Hvamm.
Haiui sagði að skátamir hefðu
verið að snyrta lóðina hjá sér, sem
væri hið besta mál, en því miður
heföi mikið af rnold og grjóti fall-
ið niður á gangstéttina og götuna
og ekki verið þrifið upp.
Hann sagði að þetta hefði gerst
urn verslunarmannahelgina og
haugamir væm enn á stéttimii.
Ljósmyndari Dags fór á stúfana
og sá þá að þetta var rétt. Gang-
stéttin er mjög torfær á þessum
slóðum og haugarnir langt frá því
aö vera augnayndi.