Dagur - 16.09.1993, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 16. september 1993
Islenska sjávarútvegssyningin 1993
íslenska sjávarútvegssýningin 1993, THE ICELANDIC FISHERIES
EXHIBITION var opnuð í Laugardalshöllinni í Reykjavík í gær-
morgun af Þorsteini Pálssyni, sjávarútvegsráðherra. Þetta er í fjórða
sinn sem þessi sýning er haldin á íslandi. Það er breskt fyrirtæki,
Reed Exhibitions, sem stendur fyrir sýningunni nú sem fyrr í sam-
vinnu við íslenska aðila. Á sýningunni er lögð áhersla á alls konar
vörur, vélar, tæki, tækni- og hugbúnað, sem tengist veiðum og
vinnslu á sjó og í landi. í sýningunni taka þátt um 480 innlend og er-
lend fyrirtæki og stofnanir frá 24 þjóðlöndum og þar af eru íslensk
*
framleiðslu- og þjónustufyrirtæki um 140 talsins. Islendingar teljast í
hópi fremstu og þróuðustu fiskveiðiþjóða heims og margar nýjungar,
- ávöxtur íslenskrar atorku, menntunar og hugvits, hafa náð alþjóða
viðurkenningu og útbreiðslu. Það er ekki síst eftir þátttöku í Islensku
sjávarútvegssýningunni, sem hróður íslenskra fyrirtækja hefur farið
víða. Búist er við miklum fjölda erlendra og innlendra gesta en á
tólfta þúsund manns sóttu sýninguna árið 1990. Það sem er einna at-
hyglisverðast við þessa sýningu er hið vaxandi vægi hugbúnaðar sem
notaður er til sjós og lands. Einnig er athyglisverð hin öra þróun í
alls konar tæknibúnaði, sem allur stefnir að því að auka vinnslu sjáv-
arafurða og auka og bæta geymslu fisks á sjó. Stærsti erlendi þjóðar-
básinn að þessu sinni er sá norski en einnig vekur athygli mikil þátt-
taka þýskra framleiðslufyrirtækja. Þó nokkur fyrirtæki frá fyrrum
Austur-Þýskalandi eru meðal þátttakenda. Á sýningunni verða
kynntar allar helstu nýjungar í veiðitækni, fiskvinnslu í landi og úti á
sjó, vigtun og kælingu sjávarafla, nýjungar í geymslu og flutningi
sjávarafurða, gæðastjórnun, pökkun og umbúðum og þannig mætti
lengi telja. Sýningarsvæðið í og við Laugardalshöll er um 8 þúsund
fermetrar. Tveir 100 metra langir og 25 metra breiðir sýningarskálar
hafa verið reistir við hlið sýningarhallarinnar, sem þrefaldar sýning-
arsvæðið.
Fjórir norð-
lenskir þátt-
takendur
Eins og á fyrri sýningum er þátt-
taka íslenskra framleiðslu- og
þjónustufyrirtækja mikil. Sum
þeirra kynna byltingakenndar nýj-
ungar, ekki síst í vigtun, kælingu
og geymslu afla. Félag íslenskra
iðnrekenda, sem er einn aðstand-
enda sýningarinnar, hefur í sam-
vimiu við Málm, samtök fyrir-
tækja í málm- og skipaiðnaði,
unniö að sameiginlegum undir-
búningi fyrir þátttöku íslenskra
framleiðslufyrirtækja og munu
þau sýna á sameiginlegu sýningar-
svæði með samræmdu útliti sýn-
ingardeilda.
Fjögur norölensk fyrirtæki eru
meðal þátttakenda á sjávarútvegs-
sýningunni; Efnaverksmiðjan
Sjöfn, Slippstöðin Oddi hf. og
DNG rafeindaiðnaður hf. á Akur-
eyri og Sæplast hf. frá Dalvík.
Sjöfn kynnir
hreinsiefiii
fyrir
fiskiðnaðinn
Efnaverksmiðjan Sjöfn mun
kynna hreinsiefni fyrir frystiiðn-
aóinn og háþrýstitæki er fyrirtæk-
ið hefur verið að setja upp víós
vegar um landið, sem hentar fisk-
viimslustöövum mjög vel. Einnig
verða kynnt gólfefni fyrir vinnslu-
dekkin í fiskiskipunum. Hreinsi-
efnin eru FANTUR með litvísi en
það virkar þannig að þegar efninu
er sprautað á veggi situr liturinn
eftir í eggjahvítuefnunum og þá er
til muna auðveldara að sjá hvar
óhreinindin liggja og fjarlægja
þau. Einnig verður kynnt AFVIS-
IR, sem er mjög sterkt hreinsiefni,
sem notað er þegar ekki gengur aö
ná burt óhreinindum með froðu-
hreinsi. BARRI, sem er bakteríu-
drepandi efni, kom á markaðinn
fyrir um ári síðan og nýtur vax-
andi vinsælda. Honum er úðað yf-
ir vinnustaðinn að loknum vinnu-
degi og er ekki nauðsynlegt að
„spúla“ hann af daginn eftir áður
en vinna hefst í vinnslusalnum.
„Við hugsum einnig til þeirra
sem starfa í vélarrúmum skipanna
því við munum kynna hand-
hreinsikrem, MET, sem er mjög
hentugt fyrir þá sem mikið vinna
við óhreinindi sem myndast af
olíu. Einnig kynnum viö URET-
AN-QUARTZ, sem er mjög vin-
sælt á gólf og veggi þar sem fisk-
vinnsla er. Kymúng verður á
E-22, sem er eiginilega emelering
á veggi og hefur þann fágæta eig-
inleika að vera alltaf hvítt. Þátt-
taka á svona sýningu skilar alltaf
ómetanlegri kynningu sem ekki er
alltaf hægt að meta til fjár því
þama koma menn úr fiskiðnaðin-
um og ræða við okkar sölumenn á
sýningunni. Það hefur verið stíg-
andi í sölu á þessum efnum hjá
okkur á þessu ári, bæöi til sjós og
lands, og ég á von á því að það
aukist eftir sjávarútvegssýninguna.
Þótt við séum nú að beina sjón-
um okkar að sjávarútveginum þá
eru þessi efni okkar ekki síður
notuö í sláturhúsum og kjötvinnsl-
um og öðrum greinum matvæla-
iðnaðar,“ segir Aðalsteinn Jóns-
son, forstjóri Efnaverksmiðjunnar
Sjafnar.
Nýjar,
nettari
færavindur
fráDNG
DNG rafeindaiðnaður hf. mun á
sjávarútvegssýningunni kymta
nýja kynslóð af færavindum sem
heitir C-6000 en hún er væntan-
legur arftaki 5000 kynslóðarinnar
í færavindunum, sem getið hafa
sér mjög gott orð víða um heim.
Þessar færavindur verða ekki
komnar í sölu fyrr en seint á næsta
ári og veróa þær því sýndar í eins
konar þróunarútgáfu.
Kristján Eldjárn Jóhannesson,
forstjóri DNG hf., segir að þátt-
taka í sýningu sem þessari hafi
ævinlega skilað miklu í sölu, þ.e.
það hafi verið fyllilega þess virði
aó taka þátt í þeim.
„Þessi sýning leggst mjög vel í
mig og ég á von á mikilli umferð
um sýningarbásinn okkar,“ segir
Kristján Jóhannesson.
Slippstöðin
kynnir
vinnslu- og
kælibúnað
Þátttaka Slippstöðvarinnar Odda
hf. mun að mestu leyti byggjast á
að kynna það sem fyrirtækið hefur
fram að færa, þ.e. skipaviðgerðir
og almenna þjónustu við sjávarút-
veginn. Þá má einnig nefna
vinnslu- og kælibúnað og kæli-
kerfi um borð í veiðiskipum og þá
alhliða þjónustu sem fyrirtækið
hefur veitt um árabil. Þessi kynn-
ing verður ekki síður með mynd-
rænum hætti.
Sæplast kynnir
ný umhverfis-
vænfiskker
Á íslensku sjávarútvegssýning-
unni 1993 mun Sæplast hf. á Dal-
vík m.a. bjóða sýningargestum að
kynnast nýju efni, en vonir standa
til að hægt verði að hefja fram-
leiðslu á fiskkerum úr því á næsta
ári. Sæplast hf. hefur um nokkurn
tíma umiið að frekari þróun í
framleiðslu á hverfissteyptum af-
urðum. Fyrirtækið hefur um árabil
veriö eimi fremsti framleiðandi í
heiminum á einangruðum fiskker-
um. Sífellt háværari kröfur um
mögulega endurvinnslu á umbúð-
um, hefur leitt til þess að fram-
leiðendur fiskkera hafa leitað ann-
arra leiða til einangrunar á kerun-
um. I nánu samstarfi viö hollenska
plastframleiöandann DSM Polym-
ers Inlernalional bv. hefur Sæ-
plast hf. unnið að því aö þróa nýtt
efni til einangrunar á fiskkemm.
Hér er um að ræða einangrunar-
efni úr polyethylen, sem er sama
efni og er í ytra og innra byrði
keranna. Ymislegt vinnst með
þessu nýja efni, má þar t.d. nefna
að auðveldara verður að nýta
plastið úr kerunum til endur-
vinnslu. Þá er ljóst að ker fram-
leidd með hinni nýju einangrun
munu verða mun sterkari en þau
ker sem eru á markaðnum í dag
þar sem ker og einangrun munu
mynda eina órjúfanlega heild.
„Síðast, en ekki síst, má gera
ráð fyrir að hin nýju ker muni eiga
mun meiri möguleika í fiskvinnslu
og öðrum matvælaiðnaði, þar sem
sífellt meiri kröfur em gerðar til
tækjabúnaðar og íláta sem notuð
em í matvælavinnslu í heiminum í
dag,“ segir Kristján Aðalsteins-
son, framkvæmdastjóri Sæplasts
hf.
Auk fiskkeranna mun Sæplast
hf. sýna trollkúlur en sala á þeim
hefur aukist mjög mikið innan-
lands og hefur fyrirtækið náð
mjög sterkri markaðsstöðu. Lítil
aukning er á sölu trollkúla erlend-
is en unnið er að frekari markaðs-
setningu á þeim á erlendri gmnd.
Þórunn Sveinsdóttir VE-401 við
bryggju á Akureyri. Smíði skipsins
undirstrikar hæfni starfsmanna
Slippstöðvarinnar Odda hf. til að
taka að sér nýsmíðaverkefni og
leysa þau svo vel að athygli
vekur.
Akureyrarhöfn
og Jón Pálma-
son í bás
Slipp-
stöðvarinnar
„I sýningarbás okkar verður
einnig kynnt hausunar- og kinna-
vél, eða flökunarvél, sem Jón Am-
ar Pálmason á Akureyri hefur
hannað og framleitt en sú vél er
komin um borð í nokkra togara.
Einnig munum við kynna pressur
frá GRAM, sem er danskt sam-
starfsfyrirtæki Slippstöðvarinnar
Odda hf. í kælibúnaði og kynntur
verður vinnslubúnaður fyrir frysti-
skip frá CARNITEK í Danmörku,
sem einnig er samstarfsfyrirtæki
okkar þar í landi,“ segir Þórhallur
Bjamason, tæknifræðingur hjá
Slippstöðinrú Odda hf.
Akureyrarhöfn verður með að-
stöðu í sýiúngarbás Slippstöðvar-
iimar Odda hf. og þar verður
kymit með auglýsingamyndum og
bæklingum sú þjónusta sem Akur-
eyrarhöfn býður innlendum sem
erlendum skipum upp á. GG
MYNDLISTASKOLINN
Á AKUREYRI
Kaupvangsstræti 16
C/
?IU
Allar nánari upplýsingar
og innritun í síma 24958
milli kl. 13 og 18 virka daga