Dagur - 21.10.1993, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 21. október 1993
FRÉTTI R
11-15 manna sveitarstjóm
Sveitarstjórnarmcnn á Hótel KEA sl. Jjriðjudagskvöld. Næst myndavélinni
eru bæjarfulltrúar og bæjarstjórinn í Oiafsfirði. Mynd: Robyn.
„Sá rammi sem þarna var lagð-
ur fram fékk mjög góðan hljóm-
grunn. Menn töldu að með
þcssu plaggi væri svarað mörg-
um þcirra spurninga sem menn
hefðu velt fyrir sér og væri
ásættanleg hugmynd þegar
horft væri til samciningar,“
sagði Sigurður J. Sigurðsson,
formaður samciningarnefndar
Héraðsnefndar Eyjafjarðar.
Síðastliðið þriðjudagskvöld
komu sveitarstjómarmenn af
Eyjafjarðarsvæðinu saman til
fundar á Hótel KEA á Akureyri
þar sem þeim vom kynntar hug-
myndir um uppbyggingu stjórn-
kerfis sameinaös sveitarfélags í
Eyjafirði. Þetta plagg vann svo-
kölluð Nefnd um sameiningu
sveitarfélaga í Eyjafirði, sem Hér-
aðsnefnd Eyjafjarðar skipaði á
sínum tíma.
„Menn gerðu ekki athugasemd-
ir við þær hugmyndir sem þama
komu fram og það tel ég mjög já-
kvætt. Þetta ætti að eyða mörgum
vangaveltum um ýmis fram-
kvæmdatriði,“ sagði Sigurður J.
Sigurðsson. „I beinu framhaldi af
þessu skilum við skýrslunni til
héraðsráðs og við leggjum áherslu
á að þeim upplýsingum sem þar
koma fram verði skilmerkilega
komið á framfæri við íbúa svæðis-
ins, með þeim fyrirvara að hér sé
einungis um að ræða hugmyndir
um hvemig stjómkerfi í samein-
uöu sveitarfélagi gæti litið út,“
sagði Sigurður.
11-15 í sveitarstjórn
En lítum nánar á þemian stjórn-
kerfisramma sameiningarnefndar-
innar. Ef fyrst er litið á sjálfa
sveitarstjómina, þá segir að hún
skuli fara með æðstu yfirstjóm
sveitarfélagsins og í hemú verði
11-15 fulltrúar. Hún yrði stefnu-
markandi fyrir sveitarfélagiö.
Fundir yrðu haldnir að jafnaði
einu simii í mánuði í samræmi viö
sveitarstjórnarlög.
Gert er ráð fyrir svokölluðu
byggðarráði, sem heyri beint undir
sveitarstjórn og verði það kosið
samkvæmt gildandi sveitarstjórn-
arlögum og hafi allt aö 7 fulltrúa,
sem væru jafnframt aóalfulltrúar í
sveitarstjórn. Fundir byggðarráðs
yrðu allt að vikulega. Byggóarráö
færi með æðsta vald sveitarfélags-
ins milli funda sveitarstjórnar og
geti skuldbundið sveitarfélagið
imian ramma fjárhagsáætlunar.
3ja til 5 manna
svæðisnefndir
Gert er ráó fyrir stofnun nokkurra
3ja-5 manna svæðisnefnda til að
Þvottavél
800 sn. vinda,
tromla og pottar úr ryðfríu
stáli.
14 þvottakerfi, eitt f/ull.
Sparnaðarrofi.
Verð kr. 53.580.
Gæði, góð þjónusta.
0KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
fjalla um málefni einstakra svæöa,
þar sem fjarlægð frá aöalþjónustu-
kjama eóa aðrar aðstæður krefóust
þess. Hlutverk svæðisnefnda yrði
fyrst og fremst að veita sveitar-
stjóm og byggðarráði ráðgjöf og
umsögn varðandi málefni viðkom-
andi svæða. Nefnt er í skýrslunni
aö til greina komi að sveitarstjóm
tilnefni formami svæðisnefndar,
en aðrir fulltrúar verði kosnir í al-
mennum kosningum.
Fimm megin svið
Lagt er til að einstakir málaflokk-
ar skiptist í fimm megin svið og
nefndir kosnar til að fjalla um þá:
1. Atviiuiumálasvið og undir
þaó heyri m.a. atvinnumálanefnd
og landbúnaðarnefnd.
2. Félags- og fræðslusvió og
undir það heyri m.a. félagsmála-
nefnd, skólanefnd og húsnæðis-
nefnd.
3. Fjármála- og stjómsýslusvið
og undir það heyri m.a. kjörstjóm
og kjarasamninganefnd.
4. Tækiú- og umhverfissvið og
undir það heyri m.a. byggingar-
nefnd, skipulagsnefnd og um-
hverfisnefnd.
5. Orku- og veitnasvið og undir
það heyri t.d. stjóm veitustofnana.
Gert er ráð fyrir að hvert þess-
ara fimm fagsviða skiptist í ein-
stakar fagdeildir, að svo miklu
leyti sem slíkt telst heppilegt, og
verði þá deildarstjóri yfir hverri
deild og heyri hann undir viðkom-
andi sviðsstjóra
Framkvæmdastjóri
yfirmaður daglegs reksturs
Miðað er við að framkvæmda-
stjóri verði yfirmaður daglegs
reksturs sveitarfélagsins og heyri
haiui undir sveitarstjóm og byggð-
arráó. Sviðsstjórar áóumefndra
fimm megin sviða heyri undir
framkvæmdastjóra og séu yfir-
menn viókomandi málaflokks.
Þá er þess aó geta aó lagt er til
að heimilt verði að stofna sérstak-
ar þjónustudeildir eða þjónustu-
skrifstofur til að veita svokallaða
nándarþjónustu í einstökum hlut-
um sveitarfélagsins, eftir því sem
þörf verói talin á, m.a. vegna fjar-
lægðar frá aðalþjónustukjarna
sveitarfélagsins. Þjónustudeildim-
ar hafi m.a. með höndum daglega
umsjón tæknimála á viðkomandi
svæði, s.s. snjómokstur, sorphirðu
og rekstur ýmissa staðbundiiuia
véla og tækja.
Fjallskilin
Varðandi fjallskilin er lagt til í
skýrslu sameiningarnefndar að í
Eyjafirði verði eitt fjallskilaum-
dæmi. Ekki er gert ráð fyrir breyt-
ingum á þeirri skiptingu í fjall-
skiladeildir sem eru samkvæmt
núverandi sveitarfélagaskipan.
Sveitarstjóm ákveði takmörk
deilda og hafi á hendi yfirstjórn
allra afrétta- og fjallskilamála í
fjallskilaumdæminu samkvæmt
gildandi lögum um afréttarmál,
fjallskil og fleira. Sveitarstjórn
geti skipað fjallskilanefnd í hverri
fjallskiladeild, sem fari með stjórn
og framkvæmd fjallskilamála í
viðkomandi deild.
Hvenær tæki
sameining gildi?
I skýrsluiuti er korrúð inn á þá
spumingu hvenær ný sveitjar-
stjórn tæki við í sameinuðu sveit-
arfélagi í Eyjafirði. Orðrétt segir:
„I nefndinni komu fram tvö sjón-
arnúð um hvenær kosið yrði til
nýrrar sveitarstjómar og samein-
ing tæki gildi, ef lillaga umdæma-
nefndar verður samþykkt 20. nóv-
ember. Aiuiars vegar var rætt um
að kosið yrði til nýrrar sveitar-
stjórnar í sveitarstjórnarkosning-
unum vorið 1994 og tæki ný sveit-
arstjórn vió að nokkrum vikum
liðnum. Eimiig kom fram þaö
sjónarmið að sækja skyldi um
heinúld um að seinka sveitar-
stjórnarkosningum. Þannig fái nú-
verandi sveitarstjónúr setið áfram
um nokkurra mánaða skeið iiui á
næsta kjörtímabil, eftir því hversu
tímafrek sameining verður.“
Orkufyrlrtæki
rekin sjálfstætt
I kafla skýrsluiuiar um eignir,
skuldir og fyrirtæki sveitarfélaga
segir að allar eignir sveitarsjóða
verði eignir sameiginlegs sveitar-
sjóðs. Lagt er til að skuldir sveit-
arsjóða og skuldir fyrirtækja
þeirra með sjálfstæóan fjárhag,
þ.m.t. orkufyrirtækja verði sund-
urgreindar þaiuiig að einungis
skuldir sveitarsjóðaiuia teljist
skuldir hins nýja sveitarfélags.
Skuldir fyrirtækjanna mcó sjálf-
stæðan fjárhag fylgi þeim í sam-
rænú við marknúð um rekstur
þeirra. Abyrgðir núverandi sveit-
arsjóða verði ábyrgóir sveitarsjóðs
hins nýja sveitarfélags.
Tekið er fram að fyrirtæki í
eigu núverandi sveitarfélaga,
þ.m.t. orkufyrirtæki, verði rekin
sjálfstætt. Rckstrarmarkmið l'yrir-
tækja scm þjóna íbúunum skuli
vera að tekjur og gjöld standist á
og þjónustan þaniúg veitt á kostn-
aðarverói hjá hverju einstöku fyr-
irtæki. Hlulafjáreign sveitarsjóða
skuli varðveitt í hlutafjársjóði
sveitarfélagsins. Farið verði með
arð af hlutafjáreign samkvæmt
ákvörðun sveitarstjórnar hverju
siiuú. óþh
Sameining sveitarfélaga í Suður-Pmgeyjarsýslu:
„Ég tel aö þessar tiIIÖgur geti
vcl vcrið góður grunnur tU að
byggja á stjórnunarramma í
sameinuðu sveitarfélagi, ef íbú-
arnir samþykkja samciningu.
Ég vil þó Icggja áherslu á, cf
íbúarnir velja að sameina þessi
sveitarfélög, að menn hugsi
málið og byggi upp hið nýja
svcitarféiag sem eitt sameinað
svciturfélag, en hugsi ekki mál-
in eins og áður cn samcining
átti sér stað. Allt byggist þetta
þó á að íbúarnir sjálfir sam-
þykki sameiningu, það er »
þeirra valdi,“ sagði Einar
Njálsson, biejarstjóri, um hug-
myndir að stjórnskipun fyrir
sameinað sveitarfélag í Þing-
eyjarsýslu, sem Dagur sagði að
hluta til frá í gair.
Kynningarfundur
30. október
Hugmyndirnar voru kynntar á
fundi í Bæjarstjórn Húsavíkur sl,
þriójudag, en ákveðið er aó al-
mennur kynningarfundur á veg-
um Umdæmisnefndar verði hald-
inn 30. október á Husavík.
Bæjarfulltrúar ræddu hug-
myndirnar og hugsanlega^ sam-
einitigu á fundinum. Jón Ásberg
Salómonsson (A) sagöist óákvcó-
inn hvernig hann greiddi atkvæói
en ræddi kosti og galla saraein-
ingar. Þorvaldur Vestmann (D)
sagöi að menn yróu að hugsa sig
mjög vel um áður en þeir höfn-
uöu þessurn kosti. Hann taldi aó
íbúfir myndu í raun lítiö fiiuia
fyrir breytingu viö samciningu.
Bjarai Aðalgeirsson (B) sagðí
sameiningu núkið tilfinningamál
í núnrú sveitarfélögunum. Hamt
lýsti yfn þeim vilja sínum að ef
tíl sameiningar kæmi nytu íbúar
sveitarfélagsins betri^ þjónustu
eltir en áóur. Krislján Ásgeirsson
(G) taldi aö sveitarstjómir heföu
stjórn á þjónustumálunum fyrir:
„Eg scgi öllum að Húsavík cigi
að fella tillöguna," sagöi Krist-
Hcraðsncfnd lýstí vilja sínum
fyrir aö stjómunarramnú í nýju
sveitarfélagi yrði byggöur á
framkomnum hugmyndum þar
um, á fundi sl. mánudag.
Sveitarfélaginu skipt í fimm
þjdnustusvæði
í hugmyndunum, scm Valtýr Sig-
urbjamarson hjá Byggóastofnun
vann, er gert ráð fyrír að sveitar-
félaginu verði skipt í fiinm þjón-
ustusvæði og aö svæðisnefndir
skuli kjörnar ohlutbundinni kosn-
ingu, jafnhliða sveitarstjónar-
kosningum. Ei‘ ncfndunum ætlaö
aó veita sveitarstjórn og byggðar-
ráði ráðgjöf og urnsögn varðandi
málefm í þjónustusvæðmn sveit-
arfélagsins. Sveitarstjóm felur
svæóisnefndum að annast rekstur
cftirtaliima málítílokka: Land-
búnaöamiál, Mcnningarmál,
Rekstur mannvirkja, Rekstur fyr-
irtækja í eigu sveitarfélagsins,
Rckstur grunnskóla, Rekslur lcik-
skóla, Rekstur tónskóla, Snjó-
mokstur.
11 manna sveitarstjórn
Ekki virðist lengur þörf fyrir
Héraösnefnd og ýmsar nefndir og
ráð scm starfa á hennar vegum.
Svcitarstjóri t sameinuðu
svettarfélagi heyrir undir 11
mttnna svcitarsljóm og 5 mtutna
byggóarráö. Sviösstjórar sex
meginsviða heyra undir sveitar-
stjóra og cru ylirmenn viðkom-
andi málaflokka.
Þjónustuskrifstofur verða á
hvcrju þjónustusvæöi til aö veita
nærþjónustu, þar verða þjónustu-
fulltrúar, ráðiur af sveitarstjórn.
„Þingcyjarsveil" skal vcra eitt
fjallskilafélag, sem skiptist í
deildir meó sama hætti og nú og
ekki er gert ráð fyrir breytingum
á núvcrandi fyrirkomulagi.
Tekjur voru samtals um
435 milljónir króna
Skatttckjur, tckjur samkvæmt
lögum um lekjuslofna sveitarfé-
laga, voru samtals tæplega 435
milljónir króna á síðasta ítri, sam-
tals í þcim sveitarfélögum sem
tiliagan gerir ráð fyrir aö sam-
cina. Tekjur á hvcm íbúa voru
tæplega 103 þúsund, eða vel yfir
landsmcðaltali sem er tæplcga 99
þusund. Hæstar tckjur voru á
íbúa í Skútustaðahreppi, eöa
rúralcga 124 þúsund og lægstar á
Tjörnesi eóa um 62,5 þúsund á
íbúa. Greiðslubyrði af lánum er
þyngst á Húsavík, eöa 12,8 þús-
und á íbúa, en í Rcykdælalircppi
eru tekjur af þcssum lió 17,2 þús-
und. Meðaltal á svæðinu er
grciöslubyröi sem ncmur læplcga
6,4 þúsundum á íbúa.
Hugmyndir þessar
kynntar ítarlega
Gert er ráö l'yrir aö allar cignir
núverandi sveitarsjöða veröi
eignir sameiginlegs sveitarsjóðs.
Til stendur að brcyta reglugerö
Jöl'nunarsjóós sveitarfélaga þann-
ig að hún verki hvetjandi til sam-
einingar svcitarfélaga og að þau
tapi ekki fjárhagslega á aó sam-
einast. Skuklir sveitarsjóða og
skuldir fyrirtækja þcirra með
sjálfstæðan íjái'hag verða sundur-
greindar þannig að einungis
skuldir sveitarsjcxlanna teljist
skuldir hins nýja svcitarfclags.
Fyrirtæki í eigu núverandi sveit-
arfélaga verða rekin sjálfstætt.
Þessar hugmyndír munu veröa
kynntar ítarlega fyrir íbúum
svæðisins, tíl að þeir hafi eitthvað
í höndunum þegar þeir þurfa að
taka ákvörðun fyrir kosningamar
um sameiiúngu sveitarfélaganna.
IM