Dagur - 19.11.1993, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 19. nóvember 1993
Spurníng víkunnar — sptirt á Husavfk
- Ætlar þú að mæta á kjörstað á laugardagínn?
Hjálmar Hjálmarsson:
Já, ég ætla að kjósa. Ég er
löngu ákveöinn hverju ég
svara.
Martha Dís Brandt:
Já, ég býst við því. Ég er ekki
ákveðin, en haÚast að því að
samþykkja því það verður
sameining fýrr eða síðar.
Baldvín Bjamason:
Það er vafasamt að ég geri
nokkuð. Mér fmnst ég ekki bú-
inn að fá nógu góðar upplýs-
ingar um hvernig þetta verkar
og veit því ekki beint um hvað
ég á að kjósa.
Stefán Steíngrímsson:
Já. Ég hef verið frekar hlynntur
sameiningunni og held að hún
sé af hinu góða. Það hefur
gengið í þá áttina undanfarið
að samstarf er um margt.
Sveitarfélögin eiga svo margt
sameiginlegt: skóla, sjúkrahús
og elliheimili.
Guðni Halldórsson:
Já, ég ætla að kjósa.
HVAÐ ER AÐ GERAST?
mma^m^mmm^^mmmmmmmmmmmmm^^^^mmmmm
LETTIH Hestamannafélagid Léttir
xzSkemmtikvöld
á vegum Hestamannafélagsins Léttis í tilefni af 65
ára afmæli félagsins verður í Laugarborg laugar-
daginn 20. nóv. kl. 22.00 ásamt stórdansleik með
hljómsveitinni Namm.
Húsið opnað kl. 21.30 en skemmtiatriði hefjast
stundvíslega kl. 22.00.
Söngur, grín og gleði langt fram á nótt.
Allir velkomnir.
Sætaferðir:
Frá Sunnuhlíð 12 kl. 21.00.
Frá Hrísalundi 5 kl. 21.10.
Frá bílastæði við Alþýðuhús kl. 21.20.
k Miðaverð aðeins kr. 1.500.
Skemmtinefnd Léttis.
Kynning!
Kynning!
Kynnum Maria Galland snyrtivörur
föstud. 19. nóv. kl. 13-18.
Einnig verður kynnt ný líkamskremlína.
10% kynningarafsláttur
Myndlist í Deiglunni
Guðrún J. Friðriksdóttir frá Vopna-
firði sýnir á morgun og sunnudag í
Deiglunni í Listagilinu á Akureyri kl.
14-19 báða dagana akrýlmálverk,
vatnslitamyndir, ámálaða tréhluti,
ámálað tau og boli og handunnin syk-
urblóm.
Flóamarkaður
Hjálpræðisherinn á Akureyri efnir til
flóamarkaðar í dag, föstudag, kl. 10-
17 aó Hvannavöllum 10. Mikið af
ódýrum fatnaði til sölu.
Peru- og jóladagatalasala
Lionsklúbburinn Huginn á Akureyri
stendur á morgun, laugardag, fyrir ár-
legri sölu á ljósaperum og jóladagatöl-
um. Að þessu sinni rennur ágóðinn af
sölunni til kaupa á ristilspeglunartæki
fyrir Fjóróungssjúkrahúsió á Akureyri.
Fólk er hvatt til að taka vel á móti
Lionsmönnum og styrkja gott málefni.
Köku- og laufabrauðs-
nasar
Jafnaðarmannafélag Eyjafjarðar held-
ur árlegan köku- og laufabrauðsbasar
að Gránufélagsgötu 4 (JMJ-húsinu) á
Akureyri á morgun kl. 14til 16.
Sala á kökum og laufa
brauði
A morgun kl. 15 veróur köku- og
laufabrauósbasar Hjálpræðishersins að
Hvannavöllum 10 á Akureyri. Einnig
verður selt kaffi og nýbakaðar vöfflur.
Annað kvöld veröur síðan kvöldvaka
með fjölbrevttri dagskrá. Böm, sem
sótt hafa fundi í vetur, munu syngja.
Yfirmenn Hjálpræðishersins á Islandi
og Færeyjum, Anne Gurine og Daníel
Óskarsson, stjóma og tala. Einnig
verða veitingar og happdrælti. Allir
em hjartanlega velkomnir.
Kökubasar
Kvenfélagið Framtíðin heldur köku-
basar á morgun, laugardag, kl. 14.30 í
anddyri þjónustumiðstöðvarinnar í
Víðilundi á Akureyri. Fólk er hvatt til
að kaupa kökur til jólanna og styrkja
um leið gott málefni.
Bingó
Náttúrulækningafélag Akureyrar
stendur fyrir bingói í Húsi aldraóra á
Akureyri á sunnudaginn kl. 15. Agóð-
inn rennur til Kjamalundar.
Stórtónleikar í Ýdölum
Kvennakórinn Lissý og Karlakórinn
Hreimur í S-Þing. halda tónleika í
Ydölum í Aðaldal annað kvöld, laug-
ardag, kl. 21. Rúmlega 100 manns
koma fram á tónleikunum. Stjórnandi
Kvennakórsins Lissý er Ragnar L.
Þorgrímsson en Robert Faulkner
stjómar körlunum í Hreim. Undirleik-
ari beggja kóra er Juliet Faulkner. Ein-
söngvarar á tónleikunum em þeir
Rangárbræður Baldur og Baldvin Kr.
Baldvinssynir. í hléi standa kóramir
fyrir kaffisölu.
Emil ogAnna Sigga
Um helgina heldur sönghópurinn Emil
og Anna Sigga þrenna tónleika á
Norðurlandi. Hópinn skipa þau Anna
Sigríður Helgadóttir, Ingólfur Helga-
son, Skarphéðinn Þ. Hjartarson, Sig-
urður Halldórsson, Bergsteinn Björg-
úlfsson og Sverrir Guömundsson.
Píanóleikari og undirleikari er Daníel
Þorsteinsson. Efnisskrá er fjölbreytt;
dægurlög, djass, ensk þjóðlög o.fl.
Tónleikamir verða í sal Gagnfræða-
skólans á Akureyri á morgun kl. 16, í
Dalvíkurkirkju annaó kvöld kl. 21 og í
sal Tónlistarskólans á Sauóárkróki kl.
17 á sunnudag. Aðgangseyrir að tón-
leikunum er kr. 1000.
Karlakór Akureyrar
- Geysir á Dalvík
Karlakór Akureyrar - Geysir verður
með söngskemmtun í Dalvíkurkirkju
nk. sunnudagskvöld, 21. nóvember,
kl. 20.30. A söngskránni em lög eftir
innlenda og erlenda höfunda. Ein-
söngvarar með kórnum verða þeir
Ingvi Rafn Jóhannsson, tenór, og Egg-
ert Jónsson, bassi. Stjómandi kórsins
er Roar Kvam en um undirleik sér
Richard Simm. Ollum cllilífeyrisþeg-
um á Dalvík og nágrenni er boðinn
frír aðgangur að tónleikunum.
Heimspekifyrirlestur
Mikael M. Karlsson, dósent í heim-
speki við Háskóla Islands, flytur l'yrir-
lestur í stofu 24 í aðalbyggingu Há-
skólans á Akureyri á morgun, laugar-
daginn 20. nóvember, kl. 14. Fyrirlest-
urinn nefnist: Um aflhæfar forskrift-
ir og sérhæfar. Fyrirlestur Mikaels
fjallar um tvær tegundir af forskriftum
(normum), alhæfar og sérhæfar, og
sambandið á milli þeina. í daglegu lífi
lætur maður í ljósi alhæfar forskriftir
með algildum reglum eins og reglunni
um að aldrei megi svipta mann lífinu.
Sambandið á milli slíkra reglna eða
forskrifta og einstakra ákvarðana eóa
sérhæfra forskrifta er ekki eins einfalt
og virðast kann í fyrstu. I þessum fyr-
irlestri ætlar Mikael að sýna, hvernig
best er að skilja það samband. Öllum
er heimill aðgangur að fyrirlestrinum
á meðan húsrúm leyfir.
Pláhnetan í Sjallanum
og á Húsavík
Hljómsveitin Pláhnetan leikur í kvöld
á Húsavík og annaö kvöld í Sjallanum
á Akureyri. Pláhnetuna skipa þeir
Stefán Hilmarsson, Ingólfur Sv. Guð-
jónsson, Friðrik Sturluson, Sigurður
Gröndal og Ingólfur Sigurðsson. I
kvöld veróur hins vegar Kvartett Karls
Örvarssonar í Sjallanum. I Kjallaran-
um verða Rúnar Þór og félagar í kvöld
og annað kvöld.
Amma Dýrunn á Uppanum
Hljómsveitin Amma Dýrunn leikur á
Uppanum í kvöld, föstudag. Herbert
Guðmundsson kynnir lög af nýútkom-
inni hljómplötu sinni „Being Human“.
„Happy hour“ verður á milli kl. 23 og
24. Boðið verður upp á eldbakaðar
pizzur á 700 kr.
Skákfélagið með barna-
og unglingamót
Skákfélag Akureyrar stendur fyrir
haustmóti bama- og unglinga á morg-
un, laugardag, kl. 13.30 í húsnæði
Skákfélagsins við Þingvallastræíi.
Teflt verður í þrem flokkum; IJokki
13-15 ára, 12 ára og yngri og
telpnaflokki.
Blómarósir í Ólafsfirði
Leikfélag Ólafsfjarðar frumsýnir í
kvöld kl. 21 í Tjamarborg í Ólafsfirði
Blómarósir eftir Ólaf Hauk Símonar-
son. Leikstjóri er Þómnn Magnea
Magnúsdóttir. Önnur sýning verður á
sunnudagskvöld kl. 21. Miðapantanir í
síma 62352.
Næstsíðasta sýning á
Afturgöngum
Næstsíðasta sýning LA á Aft-
urgöngum veróur annað kvöld kl.
20.30. Síðasta sýning á Ferðinni til
Panama verður á sunnudag í Sam-
komuhúsinu á Akureyri kl. 16.
Skemmtikvöld Léttis
Skemmtikvöld Hestamannafélagsins
Léttis á Akureyri í tilefni af 65 ára af-
mæli félagsins verður í Laugarborg í
Eyjafjarðarsveit annað kvöld kl. 22.
Aö skemmtun lokinni sér hljómsveitin
Namm um fjörið. Sætaferðir frá
Sunnuhlíð 12 kl. 21, Hrísalundi 5 kl.
21 og bílastæðl við Alþýðuhús kl.
21.20. Miðaverð kr. 1500.
Bólumarkaðurinn
Bólumarkaðurinn Eiðsvallagötu 6 á
Akureyri verður opinn á morgun kl.
11-15. Sérstök athygli er vakin á því
að Gallerý Bardúsa á Hvammstanga
verður meó söluaöstöðu. Boðið verður
upp á handunnin jólakort, lax, silung,
brauó, fatnað, keramik, postulín, jóla-
dúka, kerti o.fl.
Bótin-markaður
Bótin-markaöur að Óseyri 18 á Akur-
eyri verður opinn á morgun kl. 11-17.
Aö venju verða söluaðilar með fjöl-
breyttan vaming á boöstólum, matvör-
ur, fatnað og ýmislegt lleira.
Sýning á Nissan Terrano
Á morgun og sunnudag kl. 14-17
verður Bifreiðaverkstæði Sigurðar
Valdimarssonar á Akureyri með sýn-
ingu á Nissan Terrano II jeppanum.
Einnig veröa á sýningunni Nissan
Micra, Subaru Legacy og fleiri gerðir
af Nissan og Subaru bílum.
Sýning á Hyundai Sonata
Á morgun, laugardag, kl. 10-17 verð-
ur sýning hjá Bílavali á Akureyri á
hinum vinsæla bíl Hyundai Sonata.
Að sýningunni standa auk Bílavals
(sem er söluaðiii á Akureyri) Þórs-
hamar hf. (umboðsaðili) og Bifreiðar
og landbúnaðarvélar (innflutningsað-
ili).