Dagur


Dagur - 30.11.1993, Qupperneq 7

Dagur - 30.11.1993, Qupperneq 7
Þriójudagur 30. nóvember 1993 - DAGUR - 7 JÚdÓ: Glæsilegur árangur Vernharðs - glímdi til úrslita á Opna Skandinavíska meistaramótinu Knattspyrna, Erlingur og Steingrímur þjálfa KA: Erfitt en spennandi Júdómaöurinn Vernharð I>or- leifsson úr KA náði þeim glæsi- lega árangri um helgina að glíma til úrslita á Opna Skand- inavíska meistaramótinu í júdó, sem fram fór í Stokkhólmi. Mótið er hið sterkasta á Norð- urlöndunum ár livert og sýnir svo ekki verður um villst að Vernharð er að skipa sér í fremstu röö á alþjóðlegan mæli- kvarða. í úrslitaglímunni átti Vernharð, sem keppir í -95 kg. flokki, í höggi við Þjóðverja. Hann var 7 stigum yl’ir (wasari) allt þar til undir blá lokin að Þjóóverjinn náði góðu bragói og tryggði sér sigur. Vcrnharð kcmur því heim mcö silfrið. Allt fram á síóustu stundu Icit út l'yrir að hann yrði að sitja hcima þar sem peningar feng- ust ekki til fararinnar. Veitinga- húsið Bing Dao hljóp þá undir bagga og borgaði ferðina. Vern- harð cr nýlega kominn heim frá Hollandi þar sem hann dvali við æfingar og keppni undir stjórn hollenska landsliðsþjálfarans. Sú för hefur sýnilega nýst vel cnda kappinn í gcysilega góöu formi um þcssar mundir að sögn Jóns Oðins Oðinssonar, júdóþjálfara hjá KA. Vernharð Þorleifsson stóð sig vel í Stokkhólmi og krækti í silfurverðlaun á stcrkasta júdómóti, sem haldiðcr á Norðurlöndunum. Magnús Aðalstcinsson og félagar hans í KA skelltu Stúdcntum í KA-húsinu á sunnudagskvöldið og hafa nú unnið tvö af bestu liðum deildarinnar hvort á eftir Öðru. Mynd: Robyn. Blak, 1. deild karla: Stúdentar voru KA auðveld bráð Veðurguðirnir settu svo sannar- Iega mark sitt á íþróttir helgar- innar og röskuðu nokkuð fyrir- hugaðri dagskrá. M.a. þurfti að fresta leik KA og ÍS í 1. deild karla í blaki, sem vera átti á föstudagskvöld, fram til sunnu- dagskvölds. Ekki virtist það hafa fariö vel í topplið Stúdenta sem náði sér engan veginn á strik í KA-húsinu í fyrrakvöld og var því heimamönnum til- tölulega auðveld bráð. Lokatöl- ur urðu 3:1. Ekki ber þó svo að skilja að sigur KA hall vcriö alvcg án l'yrir- hafnar. A köllum lcku bæði lið ágætis blak cn mótspyrna IS, sér- staklega í tveim fyrstu hrinunum, var fremur lítil. IS byrjaði þó leik- inn bctur og hafði yfir framanaf fyrstu hrinu. KA náði að jafna 7:7, scig síðan örugglcga l'ramúr og sigraði 15:8. Liðió hélt síðan upp- tcknum hætti í næstu hrinu sem cndaði 15:10 eftir að ÍS halði náð að klóra í bakkann um miöbik hcnnar. Þriðja hrina gekk í nokkrum sveiflum. KA byrjaói beturcn síð- an náði IS að jafna. I stööunni 9:8 kom alleitur kalli hjá KA og ÍS brcytti stöðunni í 14:8 með því að skora 6 stig í röð. KA vaknaði aft- uren of seint og IS vann 15:12. Staðan var nú oröin 2:1 fyrir KA og í 4. hrinunni var allt í járn- urn lcngi framanaf. KA náöi síðan tvcimur góðum leikköilum þar sem staðan var fyrst 7:4 og síðan 13:7. 1 báðum tilfellum var tckiö leikhlé sem aðeins sló KA út af laginu um tíma. Eftir mikinn barn- ing í stöðunni 13:7 innbyrti KA síðustu 2 stigin og tryggði sér þar með sigur í lciknum 3:1. Sigur KA var sanngjarn og nokkuð ör- uggur þó hvorugt liðanna hafi náó að sýna sitt besta. Stig KA: Bjarni Þórhallsson 14, Magnús Aóalsleinsson 13, Stefán Magn- ússon 6, Hafsteinn Jakobsson 4, Pétur Ólafsson 2, Davíð Búi Halldórsson 1, Haukur Valtýsson I og Áki Thoroddsen I. Stig IS: Viggó Sigsteinsson 6, Þor- varóur Sigfússon 5, Guðmundur Þ. 5, Zdravko Deminov 5. Jón Bergþórsson 4, Ólafur Viggósson 3 og Kári Kárason 2. Um helgina var gengið frá ráðn- ingu Erlings Kristjánssonar og Steingríms Birgissonar sem þjálfara meistaraflokks KA í knattspyrnu og taka þeir við af Njáli Eiðssyni. Báðir þekkja vel til hjá félaginu enda tveir leikja- hæstu menn þess frá upphafi og Steingrímur verður áfram í eld- línunni í sumar. Erlingur lék um árabil með KA og var fyrir- Iiði liðsins, m.a. þegar það varð Islandsmeistari 1989. Hann hef- ur auk þess þjálfað ýmsa yngri flokka félagsins í handbolta og fótbolta í mörg ár. Erlingur sagði þetta verkefni án efa verða erfitt. „Sjálfsagt vcrður hvað erfiðast að eiga við hugarfar- ið og allar þær sögur sem farið hafa á kreik aö undanförnu. Okkar fyrsta verkefni verður að koma hópnum saman og tclja mönnum trú um að ýmislegt sc hægt að gera með þennan cfniviö. Við tók- Handbolti: Leikjum frestað Fresta þurfti Ieik Völsungs og Selfoss í 16 liða úrslitum bikar- keppninnar sem vera átti um heígina. Nú stendur sem kunn- ugt er fyrir dyrum landsleikur og því ekki hægt að spila í þess- ari viku. Stefnt er á að leikurinn fari fram nk. mánudagskvöld. Þar scm landsliðið kemur ekki heim fyrr en á fimmtudag hcfur þremur lcikjum sem vera áttu á ÍÖstudaginn veriö frestað til sunnudagskvölds. Þar á mcðal er leikur KA og FH í KA-húsinu. Einnig leikjum ÍBV-Stjörnunnar og Selfoss-UMFA. Þeir fara fram á sunnudagskvöld kl. 20.00. um þctta að okkur því vió töldum þetta virkilcga spennandi verk- efni. Fclagið hefur eignast sterkan yngri kjarna og við verðum að gera eitthvað með hann. Ef vel tekst til á framtíóin að geta oróið björt." Hann sagði ckki í bígerð aó styrkja liðið eða kaupa mcnn eins og hann oróaði það. „En ef stcrkir leikmenn sýna áhuga á að koma til okkar þiggjum við það að sjálf- sögðu." Erlingur er scm kunnugt er á fullu mcó 1. deildar liði KA í handknattlcik. Steingrímur mun því stjórna æfingum meira frarn eftir vetri en Erlingur síóan taka nteira við í sumar, enda Stein- gríntur þá að spila á l'ullu. Erling- ur kvaðst hins vegar engin áform hafa um að taka fram skóna að nýju. Hann hafði einnig tekiö aö sér yfirumsjón meö allri þjálfun yngri llokka KA í knattspyrnu og mun sinna því áfram, a.m.k fyrst um sinn. Sem fyrr segir þckkja þeir báð- ir vel till allra mála hjá KA og hafa leikið meó þeim strákum sem nú eru í liðinu. Erlingur sagðist hal'a veriö að fara í gegnum gamla pappíra frá árinu 1985 og þá séð að það ár þjálfaði hann 5. llokk KA, þar sem m.a. voru ívar Bjark- lind og Þorvaldur Sigbjömsson, sem nú eru lykilmenn meistara- fiokks. Hann hefur því tekiö við þeim aö nýju eftir nokkurt hlé. Stcingrímur Birg-^ isson, f'yrirliói og nú annar af þjálfurum KA, hampar hér sig- uriaununum í Akur- eyrarmótinu sl. sum- ar. Hann verður sem fyrr kjölfcsta hins unga og efnilega KA- liös.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.