Dagur - 30.11.1993, Blaðsíða 10

Dagur - 30.11.1993, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 30. nóvember 1993 EN5KA KNATTSPYRNAN ÞORLEIFUR ANANÍASSON Allt samkvæmt venju í Úrvalsdeildinni - Sigur Man. Utd. í Coventry - Arsenal hafði betur gegn Newcastle - Swindon í vanda Það var fátt um óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni á laugar- daginn og meistarar Manchest- er Utd. halda ótrauðir áfram á sigurbraut sinni og auka jafnt og þétt forskot sitt í deildinni. Manchester-liðið stígur vart rangt niður fæti á meðan helstu keppinautar þeirra eru að tapa stigum hér og þar. En hvað um það, enn er langt þar til Eng- landsbikarinn verður afhentur í vor og margt getur enn átt eftir að gerast í deildinni. En eins og staðan er í dag virðist ekkert lið komast með tærnar þar sem Man. Utd. hefur hælana og því vandséð hvernig titillinn verður af þeim tekinn. En lítum nánar á leiki laugardagsins. ■ Sjónvarpsleikurinn milli Arsen- al og Newcastle var einn besti leikurinn úr ensku knattspyrnunni, sem við höfum fengið aó sjá í langan tíma. Bæði lið voru ákveð- in í að Ieika sóknarleik og buðu áhorfendum uppá stórgóða knatt- spyrnu og spennandi leik þar sem mörkin hefóu hæglega getaö oróið mun fleiri. Heimamenn voru sterkari aóilinn og sigruðu 2-1 og hefði sá sigur hæglega getað oróið stærri, en markveróir beggja liða, þeir David Seaman hjá Arsenal og Mike Hooper hjá Newcastle, áttu báðir góóan leik og komu í veg fyrir fleiri mörk. Andy Cole, skæóasti sóknarmaðurinn í hinu unga og efnilega liði Newcastle, Úrslit í vikunni Úrvalsdeild Chelsea-Manchester City 0:0 Blackburn-Coventry 2:1 Everton-Leeds Utd. 1:1 Aston Villa-Southampton 0:2 Manchester Utd.-Ipswich 0:0 Newcastle-Sheffield Utd. 4:0 Sheffleld Wed.-Oldham 3:0 Swindon-Q.P.R. 1:0 Tottenham-Wimbledon 1:1 West Ham-Arsenal 0:0 1. deild Bolton-Crystal Palace 1:0 U.E.F.A. keppnin 3. umferð, fyrri leikur Norwich-Inter Milan 0:1 Um helgina Úrvalsdeild Arsenal-Newcastle 2:1 Coventry-Manchester Utd. 0:1 Ipswich-Blackburn 1:0 Leeds Utd.-Swindon 3:0 Manch. City-Sheff. Wed. 1:3 Oldham-Norwich 2:1 Q.P.R.-Tottenham 1:1 Sheffield Utd.-Chelsea 1:0 W imbledon-E verton 1:1 Liverpool-Aston Villa 2:1 Southampt.-West Ham mánudag 1. deild Barnsley-Bolton 1:1 Birmingham-T ranmere 0:3 Derby-Southend 1:3 Leicester-Wolves 2:2 Luton-Stoke City 6:2 Middlesbrough-Charlton frestað Millwall-Grimsby 1:0 Peterborough-Bristol City 0:2 Sunderland-Nott. For. 2:3 W.B.A.-Portsmouth 4:1 Notts County-Oxford 2:1 Watford-Chrystal Palace 1:3 hafði haft um þaó mörg oró að hann ætlaði að skora gegn sínum gömlu félögum í Arsenal, en þaó tókst honum þó ekki og varð aö sætta sig vió aö Ian Wright mið- herji Arsenal stæli af honum sen- unni að þessu sinni. Wright náði forystu fyrir Ar- senal á 15. ntín. með góðum skalla eftir hornspyrnu Steve Morrow og það var greinilegt að leikmenn Arsenal höfðu æft vel hornspyrnurnar því á 60. mín. bætti Alan Smith vió öóru rnarki Arsenal með skalla, nú eftir horn- spyrnu frá Paul Merson. Aðeins mín. síðar lagaði Peter Beardsley stöðuna fyrir Newcastle meó góðu marki eftir skemmtilega samvinnu viö Cole, en lengra komust liðin ekki þrátt fyrir góð færi á báða bóga, sérstaklega var Wright óheppinn að ná ekki að bæta við marki. ■ Eftir mjög gott gengi Q.P.R. undanfarnar vikur kom bakslag hjá liðinu í vikunni gegn Swindon og á laugardag varð liðið að sætta sig við jafntefli á heimavelli gegn Tottenham. Les Ferdinand náði þó forystu fyrir Q.P.R. strax á 2. mín. með góðu skallamarki eftir horn- spyrnu frá Ian Holloway og það virtist ætla aó duga liðinu til sig- urs. Darren Anderton, leikmaður Tottenham, kom mikió við sögu í Ieiknum og rétt fyrir hlé var dæmt af honum mark vegna rangstöóu. I síðari hálfleik var síðan dæmd vítaspyrna á Darren Peacock mið- vöró Q.P.R. fyrir brot á Darren Caskey, en Anderton skaut frant- hjá úr vítaspyrnunni og þar með virtist möguleiki Tottenham á stigi úr sögunni, en er 3 mín. voru til leiksloka náói Anderton að jafna fyrir Tottenham með góðu skoti úr teignum og tryggja liói sínu jafntefli. ■ Manchester Utd. heldur áfram að hala inn stig og eykur hægt og örugglega forskot sitt í deildinni. Liðið varð þó aó gera sér marka- laust jafntefli á heimavelli gegn Ipswich aó góðu í vikunni og margir bjuggust því við erfiðum leik hjá liðinu á útivelli gegn Co- ventry. Sú reyndist einnig raunin, meistararnir léku illa og áttu í hinu mesta basli meó leikmenn Coventry sem voru hættulegir, sérstaklega Mick Quinn, sem tví- vegis lét Peter Schmeichel mark- vörð Man. Utd. verja vel frá sér úr Eric Cantona tryggði Man. Utd. sigurinn gegn Coventry og Chris Bart Williams skoraði frábært mark fyrir ShcfT. Wed. í lciknum gegn Man. City. góðum færum. En það fær fátt stöðvað Utd.-liðið þessa dagana og þaó er styrkleikamerki að leika illa, en sigra samt og það gerði liðið í þessum leik. Eric Cantona skallaói inn sigurntark Utd. og eina mark leiksins á 15. mín. síð- ari hálfleiks eftir góða sendingu Dennis Irwin fyrir markið. ■ Stuart Barlow, hinn ungi sókn- armaður Everton, náði forystunni fyrir lið sitt með glæsilegu skalla- marki eftir sendingu Andy Hinchcliffe í leik liðsins á útivelli gegn Wimbledon. En eins og fyrri daginn voru þeir Wimbledonmenn ekki tilbúnir til uppgjafar og Greg Berry náði að jafna fyrir liðið á 48. mín. af stuttu færi eftir aó Ne- ville Southall markvörður Everton hafði misst frá sér skot Dean Holdsworth. ■ Hið léttleikandi lið Chelsea nær ekki þeim árangri sent leikur liðs- ins verðskuldar og enn eitt tapið bættist við á laugardag er liðió tapaói með eina marki leiksins á útivelli gegn Sheff. Utd. Það var Willie Falconer sem tryggði Sheff. Utd. sigurinn mcð skalla- marki á 32. mín. og þar við sat þrátt fyrir að þeir Frank Sinclair og Neil Shipperley ættu skot í stöng og þverslá fyrir Chelsea. Bæði þessi lió standa illa í deild- inni og mega taka sig verulega á ef ekki á illa aó fara. ■ Það tók Leeds Utd. langan tíma aó brjóta ísinn í leik sínum á heimavelli gegn Swindon og fyrsta markið kom ekki fyrr en 10 mín. fyrir leikslok. Gordon Stra- chan lék nú aó nýju með Leeds Utd. eftir að hafa misst úr nokkrar vikur vegna meiðsla og það var eftir sendingu frá honum sem Bri- an Deane náði forystunni fyrir lið- ið með skoti af stuttu færi. Og gamli maðurinn hafói ckki sagt sitt síðasta orð í leiknum því á 86. ntín. sendi hann langa sendingu innfyrir vörn Swindon þar sem Rodney Wallace tók við boltanum og skoraói annað rnark liðsins og aðeins mín. síóar kont þriója mark Leeds Utd. og enn eftir undirbún- ing Strachan, en nú var það Gary Speed sem rak endahnútinn á sóknina með góðu skoti úr teign- um. Með sigrinum komst Leeds Utd. í annaó sæti deildarinnar mcð hagstæðari markatölu en Arsenal. ■ Þaó var markalaust í hálfleik í viðureign Man. City á heimavelli gegn Sheff. Wed., en í síðari hálf- leik fóru hlutirnir aö gerast. Ryan Jones náöi forystu fyrir Sheff. Wed. á 66. mín. og Chris Bart- Williams bætti öðru ntarki liðsins við á 75. mín. eftir glæsilegan cin- leik þar sem hann afgreiddi alla vörn City og markvöróinn áður cn hann skoraói. Nigel Jemson kom liðinu síðan í 3-0 með fallegu skallamarki á 84. mín., en 2 mín. síðar skoraði Mike Sheron eina mark Man. City með góóu skoti frá vítateig. ■ Chris Makin, bakvörður Old- ham, var áberandi í leik liðsins gegn Norwich þar sem hann skor- aði sigurmark Oldham mcö góðu skoti á 60. mín., en var síðan rek- inn af velli skömmu síóar eftir aö hafa fengið tvær áminningar. Gra- eme Sharp hafði náð forystu lyrir Oldham á 2. mín. síðari hálfleiks með laglegu marki, en Chris Sut- ton jafnaði fyrir Norwich eftir aukaspyrnu frá Ian Crook. ■ Það var hörkuleikur milli Ips- wich og Blackburn, þar sem Ips- Spenna á Anfield er Iiverpool lagði Aston \Ula Á sunnudaginn léku Liverpool og Aston Villa í sjónvarpsleik á Anfleld Road í Liverpool. Bæði þessi lið eru að gæla við topp- sæti í deildinni og leikurinn því mikilvægur fyrir báða aðila. Og áhorfendur voru ekki sviknir af því sem þeir fengu að sjá, því leikurinn var bæði spennandi og vel leikinn. Eftir heldur daufa byrjun lifn- aði heldur betur yfir Ieiknum undir lok fyrri hálfleiks. Þá náöi Liver- pool forystunni í leiknum er Robbie Fowler skallaöi aftur fyrir sig sendingu frá Dontinic Matteo og boltinn fór yfir Mark Bosnich hinn snjalla markvöró Aston Villa. En heimamenn voru heppnir rétt á eftir þegar skot Dean Saunders hafnaði í þverslá, en hann hefói örugglega ekkert haft á móti því að skora gegn sínum gömlu félög- um. Það var ekki langt lióið á síð- ari hálfleikinn er Villa náói að jafna leikinn. Steve Nicol, vamar- manni Liverpool, urðu þá á mistök er hann ætlaði að skalla boltann til markvarðar, en Dalian Atkinson komst í milli og skoraði af öryggi. Þaö var síðan nokkuö gegn gangi leiksins er Jamie Redknapp skor- aði sigurmark Liver-pool er um 20 rnín. voru til leiksloka er hann slapp í gegnum vörn Villa eftir góða sendingu frá Fowler og náói aö skjóta milli fóta Bosnich í markinu. Lokakallinn var spennandi og bæói lið fengu góð færi á að skora. Bruce Grobbelaar varði frá- bærlega gott skot frá Atkinson og Garry Parker átti hörkuskot í þverslána á Liverpool-markinu. En heimamenn fengu einnig sín færi, Matteo lét Bosnich hirða boltann af tám sér eftir að vcra korninn einn í gegn og Bosnich varói tvívegis frábærlega frá Mark Walters, sem kontið hafði inná scm varamaóur. Það var hins veg- ar Parker sem kom Bosnich til hjálpar er hann bjargaði á línu hörkuskoti Fowler undir lokin. Jafnteili hefði sennilega verið sanngjarnari úrslit, bæði lió léku vel, en Liverpool-menn nýttu tækifærin betur og um það snýst leikurinn. ■ Chrystal Palace lagaði stöðu sína við topp 1. deildar meó 3-1 sigri á útivelli gegn Watford, þar sem Gareth Southgate, Paul Willi- ams og John Salako skoruóu rnörk liðsins. Þ.L.A. wich hafði aó lokum betur eftir jafnan leik og harðan. Gamli jaxl- inn John Wark lék sem aftasti maður í vörn Ipswich og náði að halda hinunt hættulega miðherja Blackburn Alan Shearer í skefj- um. Eina mark leiksins skoraði Eddie Youds fyrir Ipswich á 41. mín. eftir að Tim Flowers í marki Blackburn hafði misst frá sér bolt- ann eftir skot Ian Marshall. Ann- ars átti Flowcrs góöan leik í marki Blackburn eins og Craig Forrest í markinu hjá Ipswich. Heimamcnn fengu gullið tækifæri til aó bæta vió öðru marki er dænid var vítaspyrna á klunnalegt brot Dav- id Batty á Stuart Slater, en Paul Mason lét Flowers verja frá sér vítaspyrnuna. 1. deild ■ Stoke City hóf leikinn vel gegn Luton og komst tvívegis yfir með mörkum Dave Regis og sjálfs- rnarki, en Luton tók síðan öll völd og sigraði 6-2, þar sem Kerry Dix- on skoraöi þrennu. ■ Steve Bull kom Wolvcs í 2-0 á útivelli gegn Leicestcr, en það dugði þó ekki til sigurs því Leic- ester náði að jafna 2-2. ■ Sunderland rak í vikunni fram- kvæmdastjórann, Tcrry Butcher, en það kont ekki að notum í heimaleiknum gegn Nottingham For. Martin Gray og Martin Smith skoruóu fyrir Sunderland, en Scott Gemmill og tvö mörk Stan Colly- rnore tryggðu Forest sigurinn. Þ.L.A. Staðan Úrvalsdeild Man. Utd 17 14 2 1 34:13 44 Leeds 17 8 6 3 29:18 30 Arsenal 17 8 6 3 17:9 30 Blackburn 17 8 5 4 22:16 29 Aston Villa 17 8 S 4 19:1529 Newcastle 17 8 4 5 32:17 28 Norwich 16 7 6 3 25:17 27 QPR 17 8 3 6 29:23 27 Liverpool 16 8 2 6 25:14 26 Tottenham 17 5 7 5 22:1822 Wimbledon 17 5 7 5 19:24 22 Everton 17 6 3 8 19:23 21 Ipswich 17 5 6 6 16:22 21 Sheff.Wed 17 4 7 5 27:25 20 Coventry 17 4 8 5 17:2020 West Ham 16 5 5 6 11:1620 Manch. City 17 3 7 7 16:20 16 Sheff. Utd 17 3 6 8 18:2815 Chelsea 17 3 5 9 11:19 14 Southampton 16 4 2 1018:2614 Oldham 17 3 5 9 12:28 14 Swindon 17 1 6 10 15:39 9 1. deild: Charlton 1810 5 3 23:14 35 Tranmere 19104 5 31:2134 Chrystal Pal 17 10 34 34:1833 Southend 18 10 3 5 34:22 33 Leicester 17 9 3 5 26:18 30 Millwall 19 8 6 5 27:25 30 Derby 18 8 2 7 29:30 29 Bristol City 19 8 5 6 28:22 29 Portsmouth 18 7 7 4 27:27 28 Stoke 17 7 3 7 26:31 27 Nott. Forest 18 7 5 6 28:24 26 Wolves 18 5 9 4 29:21 24 Middlesbro 17 6 5 6 25:20 23 Bolton 18 6 5 7 24:25 23 N, County 18 7 2 9 24:30 23 Grimsby 18 4 8 6 22:21 20 Luton 18 6 2 10 23:26 20 Birmingham 18 5 5 8 19:27 20 WBA 17 5 4 8 28:2919 Watford 17 5 4 8 24:33 19 Oxford 18 5 4 9 24:33 19 Sunderland 18 5 2 11 18:3017 Barnsley 17 4 41123:36 16 Peterboro 17 3 6 8 15:24 15

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.