Dagur - 21.12.1993, Blaðsíða 5
FRETTI R
Þriðjudagur 21. desember 1993 - DAGUR - 5
Þessi mynd var tekin við afhendingu gjafarinnar í fyrri viku.. Á myndinni
eru fulltrúar endurhæfingadeildar, þau Stefán Yngvason, læknir, Gígja
Gunnarsdóttir, dcildarstjóri, og Olöf Lcifsdóttir, yfiriðjuþjálfi, Vignir
Sveinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri FSA, Linda Ragnarsdóttir, formaður
Lionessukiúbbsins Aspar, Aðalheiður Inga Mikaclsdóttir, gjaldkcri klúbbs-
ins, og Ester Steindórsdóttir, ritari. Mynd: Robyn.
Lionessuklúbburinn Ösp á Akureyri:
Gefur endurhæfingadeild
Kristnesspítala tölvubúnað
Fulltrúar Lionessuklúbbsins
Aspar á Akureyri aíhentu í síð-
ustu viku forráðamönnum end-
urhæfingadeildar Kristnesspít-
ala að gjöf þjálfunarbúnað í
iðjuþjálfun, sem er tölvubúnað-
ur frá Haftækni hf., umboðsað-
ila Apple á Akureyri, og tilheyr-
andi skrifstofubúnað frá Penn-
anum. Gjöfin er afrakstur ár-
legrar plastpokasölu Aspar-
kvenna.
Notkun tölvubúnaðar í endur-
hæfingu hefur farið vaxandi á
undanförnum árurn. Notkunar-
gildið er fjölþætt. Má þar nefna
þjálfun sjúklinga með heilaskaóa,
þar sem einkenni geta verið með
ýmsum hætti, t.d. minnistap, lcstr-
artrullanir, hugtakabrcnglun, skert
skipulagshæfni eða sjónsviðs-
skerðing. Einstaklingar meö stoð-
kerfisvandamál fá leiðsögn í lík-
amsbeitingu og vinnustellingum.
Þegar fötlun af völdum slyss eða
sjúkdóms veldur því að einstak-
lingur getur ekki snúið til fyrri
starfa er tölvukunnátta oft góó leió
til aó komast aftur út á vinnu-
markaðinn.
Endurhæfingadeildin á Krist-
nesi er eina deildin sinnar tegund-
ar utan suðvesturhorns landsins.
Starfsemin hefur vaxið frá stofnun
deildarinnar, haustiö 1991. Yfir
eitt hundrað einstaklingar hafa
dvalist á deildinni á þessu ári.
Sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun eru
buróarásar þeirrar þjálfunar sem
veitt cr, en auk þcss starl'a þar
læknir, talmeinafræóingur og
hjúkrunarfólk legudeildar. óþh
Minnihluti Efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis:
Vill lækka vsk
FuIItrúar Framsóknarflokks og
Kvennalista í Efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis hafa lagt
fram níu veigamiklar breytinga-
tillögur við svokallaðan skatta-
bandorm ríkisstjórnarinnar.
Flutningsmenn telja að tillögurn-
ar þjóni betur því markmiði að
jafna tekjur en „þær hroðvirkn-
islegu aðgerðir sem ríkisstjórnin
boðar“, auk þess sem tillögurnar
styrki stöðu innlendrar matvöru
gagnvart innfluttri.
Fulltrúar Framsóknarllokks og
Kvennalista mynda 2. minnihluta
Efnahags- og viðskiptanefndar.
Minnihlutinn vill að haldió verði
áfram að endurgreiða virðisauka-
skatt af matvælum, svo sem gert
hefur verið seinni hluta þessa árs. I
öðru lagi verði almenna VSK-pró-
sentan lækkuð úr 24,5% í 23%.
Talið er að þessar tvær aðgerðir
skili launafólki sömu nióurstöðu
hvað varðar tekjujöfnun og tvö
mishá skattþrep virðisauka myndu
gcra.
Til frekari tekjujöfnunar fyrir þá
lægst launuóu vill minnihlutinn
verja 200 milljónum króna í aukn-
ar vaxtabætur og 350 milljónum í
barnabótaauka. Hann vill einnig
hætta við aó hækka tryggingar-
gjald á atvinnulífið upp á 0,35%,
sem hefði kostað atvinnulífið 560
milljónir króna og færi aó verulegu
leyti út í verðlagið. Loks vill
minnihlutinn aó hætt verði við aó
taka upp virðisaukaskatt á ferða-
þjónustu en greinin greiði áfram
sama tryggingargjald og aðrar
greinar. Talið er aó þessi liður
kosti ríkissjóó um 250 milljónir
króna.
Til að mæta þeirri tekjuskerð-
ingu sem fólgin er í ofangreindum
tillögum cr lagt til að tekjuskattur
ielaga verði hækkaður úr 33% í
35% (sem gefur 150 milijónir í
tekjur); að engar breytingar verói
gerðar á vörugjöldum (sem bætir
stöóu ríkissjóðs um 165 milljónir)
og að fjármagnseign verði gerð
skattskyld eins og aórar eignir.
Jafnframt verði skattleysismörk
eignaskatts hækkuð um sem svarar
einni milljón hjá hjónum og hæra
þrepið afnumið en þar er um að
ræða hinn umdeilda „ekknaskatt".
Talið er að þessi aógerð gefi ríkis-
sjóði um 800 milljónir króna í
auknar tekjur.
I ákvæði til bráðabirgða er lagt
til að skipuð verói nefnd allra
þingflokka á Alþingi, aðilja vinnu-
markaðarins og fjármálaráðherra.
Nefnd þessi kanni kosti og galla
tveggja þrepa virðisaukaskatts og
aðrar aðgeróir í skattamálum sem
geta lcitt til tekjujöfnunar.
Fulltrúar minnihlutans telja til-
lögur sínar þjóna betur því mark-
miði aó jafna tekjur en skattaband-
ormur ríkisstjórnarinnar gerir. Aö
mati Þjóðhagsstofnunar yrðu verð-
lagsáhrifin einnig meiri því verð-
lag myndi lækka um 1,25% í stað
0,9%. Flutningsmenn benda jafn-
framt á að þeir séu ekki að loka á
að tekin verði upp tvö þrep í virð-
isaukaskatti síðar en þá verði aó
undirbúa breytinguna betur en nú
hefur verið gert. BB.
er íslensk hágæða mjólkurafurð sem
gefur ótal möguleika við matargerð.
Sýrður hentar vel m.a. í salöt, sósur,
ídýfur og með ávöxtum og tertum
Gallar á fullorðna - verð kr. 7.900,-
Gallar á börn - verð kr. 3.600,-
úrval af húfum og vettlingum
Glerárgötu 28 • Sími 11445