Dagur - 21.12.1993, Blaðsíða 6

Dagur - 21.12.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriójudagur 21. desember 1993 Arinviður - Gervikubbar Skoðaðu úrvalið í Nestunum ESTIN Leiruvegi ★ Veganesti ★ Tryggvabraut tytbie rh KIj Leikfangamarkaburinn Hafnarstraeti 96 Sími 27744 Akureyri Er þetta eðlilegt? Eftir að hafa fylgst all náið mcð íþrótta- málum hér í bæ sl. tuttugu ár hefur mér fundist með hreinum ólíkindum hversu misjafna afgreiðslu íþróttafélögin Þór og KA hafa fengið hjá bæjaryfirvöldum sl. fjögur ár. Það vefst sjálfsagt ekki fyrir við- komandi aðilum að hrekja þau dæmi sem ég ætla að nefna hér á eftir, en ég hcld aö öllum Þórsurum og öðrum bæj- arbúum sem fylgst hafa meó þessum málum sé farið að ofbjóða. Reyndar sýnist mér að forystumönnum stjóm- málaflokkanna sé sjálfum farið að veröa þetta Ijóst því a.m.k. fulltrúar tveggja flokka hafa verið að gera hosur sínar grænar fyrir forystumönnum Þórs síðustu daga. Okkur frnnst þetta hálf spaugilegt og viljum heldur sjá verkin tala, en eitthvert „kosningaundirbún- ingsbros" þessara aðila á 4ra ára fresti. Forystumenn stjómmálaflokka hér í bæ hafa lýst því yfir í kjölfar nýsam- þykktrar fjárhagsáætlunar Akureyrar- bæjar að hún sé mjög ábyrg og greini- lega sjáist á henni aó ekki sé verið að kaupa sér vinsældir. Þetta finnst okkur Þórsurum athyglisvert orðalag, þar sem það hlýtur að mega túlka þessi orð þannig að menn hafi iðkað það áður að kaupa sér vinsældir með ákvöróunum teknum skömmu fyrir kosningar. Fyrir fjórum ámm samþykktu bæj- aryfírvöld aó ráðast í byggingu íþrótta- húss við Lundarskóla og það mótmælir því enginn að það vantaöi hús fyrir leikfimikennslu við skólann. Hins veg- ar held ég að í upphafi hafi ekki verið ætlunin aö byggja 150 milljóna króna hús sem rúmaði 1000 áhorfendur. Aó nínu mati er þetta sérkennileg ákvörð- in þar sem Iþróttahöllin var enn í vggingu og nýja húsinu greinilega dað aö veita Höllinni samkeppni. •róðlegt verður að vita hvort Iþróttafé- lagið Þór nýtur sambærilegrar fyrir- greiðslu til að koma sér upp sambæri- legri aðstöðu í framtíðinni. Fram að þessu hafði þess ætíð verió gætt að mismuna ekki félögunum Þór og KA í úthlutun íþróttatíma í húsum bæjarins, rekstrarstyrkjum eða öðru því sem bær- inn aðstoðaði félögin við varðandi þeirra starfsemi. Eg get hins vegar ekki annað en samglaðst KA-mönnum því það er auð- vitað ekki þeim að kenna að njóta svo góðrar fyrirgreiðslu sem raun ber vitni. Mig langar nú að nefna nokkur fleiri dæmi í þessu sambandi þar sem mér finnst þessi mismunun augljós. Peningagreiðsla vegna ís- landsmeistaratitils Peningagreiðsla frá bænum til KA vegna sigurs m.fl. karla á Islandsmót- inu í knattspymu árið 1989, en synjun um sambærilega greiðslu til Þórs vegna Guðmundur Sigurbjörnsson. sigurs m.fl. karla á íslandsmótinu í inn- anhússknattspymu 1993. Fjárstyrkur Fjárstyrkur til KA að upphæð kr. 1300 þúsund. Vió þennan fjárstyrk vildi eng- inn kannast lengi vel, en um hann var gerður skriHegur samningur sem undir- ritaður var haustið 1992 og var um mánaðarlegar greiðslur aö ræða í eitt ár. Nú hefur verið gerður annar sam- bærilegur samningur við KA-inenn um önnur 1300 þúsund, sem greiðast eiga á næstu 12 mánuðum. Beiðni Þórs um sambærilegan styrk hefur verið fálega tekió en ekki afgreidd formlega ennþá. Auglýsingaskiltí Handknattleiksdeild Þórs sótti í haust um leyfi til að fá að setja upp auglýs- ingaskilti til að selja fyrirtækjum afnot af og var þetta hugsað sem fjáröflun fyrir deildina. Menn sáu fordæmi fyrir slíku auglýsingaskilti við Þingvalla- stræti og töldu að þetta hlyti aó fást samþykkt, þó svo menn myndu ekki samþykkja þann stað sem deildin hafói helst augastað á. En nú brá svo við að hér í bæ er komin út reglugerð um auglýsingaskilti upp á 6 blaðsíður, sem skiptast í 6 kaíla og þcir síðan í 60 greinar. Þessi reglu- gerð tók gildi 1. október, en ekki cr sjá- anlegt að fara eigi eftir henni í bráð að öðru leyli en því að hafna þcssari beiðni handknattleiksdeildar Þórs. Skóladagheimilið í Hamri Búið er að samþykkja í bæjarstjórn aó leggja niður skóladagheimilið í Hamri, en þar hefur bærinn leigt húsnæði af Þór sl. tvö ár og hefur þetta verið kjöl- festan í rekstri hússins. Ein af skýring- unum sem okkur hefur verió sögð varð- andi þessa ákvörðun er að við Þórsarar höfum viljaó losna við skóladagheimil- ið út úr húsinu! Þetta finnst okkur skýr- ing í ódýrari kantinum, því við könn- unist alls ekki við hana eins og öllum ætti að vera Ijóst sem til þekkja. Stækkun íþróttasvæðisins Við höfum falast eftir auðum svæðum í nágrenni félagssvæðis okkar og haft í huga að koma þar meðal annars upp sparkvöllum, fjölskyldutjaldsvæði og annarri skyldri starfsemi. Um er að ræða ónotuð svæði norðan Skarðshlíð- ar, beint norðan félagssvæðisins og einnig hálfgcrt mýrlendi vestan félags- svæðisins. Þessum beiðnum hefur að sjálfsögðu verið fálega tekið, en minna má á að KA hefur verið úthlutað „til bráðabirgða" svæói austan síns svæðis, þar sem meðal annars er (eóa kannski var) fyrirhuguð gata sem var liður í samgöngukerfi bæjarins. Byggingarmál félaganna Menn hafa gjarnan borið saman Hamar, félagsheimili Þórs og íþróttahús KA þegar rætt er um fyrirgreiðslu bæjaryf- irvalda til þessara félaga, en málið er bara ekki svona einfalt. Þegar Þór hóf byggingu Hamars var við ríkið að semja, en ekki bæinn. Tveir sjóðir styrktu þá þess konar byggingar, annars vegar Iþróttasjóður ríkisins og hins vegar Félagsheimila- sjóður ríkisins. Þegar þama var komið sögu hafði KA þegar byggt sitt félags- heimili og notið til þess framlags frá ríkinu eins og lög gerðu ráð fyrir. Þegar Þórsarar voru síóan nýfamir af stað breyttust verkaskiptareglur milli ríkis og sveitarfélaga þannig að þessi málafiokkur lluttist frá ríkinu til sveit- arfélaganna. Síóar á byggingartímanum þegar Þór stóð í mjög ströngum samn- ingaviðræóum við bæjaryfirvöld var eins og ákvcðnir aóilar sæju sér leik á borði að gera samning við sína menn í leiðinni og á ég þá við samning Akur- eyrarbæjar og KA varðandi íþróttahús- ið. Lokaorð Eins og lesa má af þessum skrifum mínum er mér nokkuð heitt í hamsi varðandi þann augljósa mismun sem hér er ríkjandi í fyrirgreióslu til þessara tveggja íþróttafélaga og ég er langt frá því að vera einn á þessari skoðun. Eg hvet alla Þórsara til að íhuga þessi mál á næstunni og vona að við berum gæfu til að jafna þennan augljósa aðstöðu- mun sem þessi íþróttafélög búa vió í dag. Eg held að vió félagar í Þór ættum að hittast í hinu glæsilega félagsheimili okkar og ræða þessi mál og hvort vió getum ekki sameinað krafta okkar til efiingar félaginu. Þaó er greinilegt að ef við stöndum ekki saman í baráttunni fyrir sjálfsögðum rétti okkar gera aórir það ekki fyrir okkur. Með íþróttakveöju, Guðmundur Sigurbjörnsson, ritari Iþróttafélagsins Þórs. Stórútsölumarkaðurinn 2. hæð opnaður kl. 13.00 20% aukaafsláttur á kassa Gerðu göð kaup fyrir jólin Markaðinum lokað 24. desember

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.